Morgunblaðið - 01.02.2000, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
íslenska vömin ekki í vand
ræðum með Norðmenn
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
frá Spáni
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu gerði í gær markalaust
jafntefli við Norðmenn í fyrsta
leiknum á Norðurlandamótinu í
knattspyrnu á La Manga. Leik-
urinn var tilþrifalítill en íslenska
liðið lék vel í vörn og Norðmenn
fengu ekki mörg tækifæri til að
skora. Þetta var það sem Atli
Eðvaldsson landsliðsþjálfari
lagði fyrir leikmenn sína í fyrsta
leiknum sem hann stjórnar sem
landsliðsþjálfari A-landsliðs
karla, að verjast af yfirvegun og
nákvæmni og það gerðu strák-
arnir.
Fyrri hálfleikur var vel leikinn af
hálfu íslenska liðsins, sérstak-
lega þá í vöminni eins og áður segir.
Leikmenn voru ró-
legir og yfirvegaðir
og spiluðu sig út úr
þeim fáu vandamál-
um sem upp komu
nærri vítateig íslendinga. Leikurinn
var afskaplega rólega leikinn og
hægur þó svo barátta væri mikil í
leikmönnum, altént fannst norska
þjálfaranum nóg um hamaganginn í
íslensku leikmönnunum.
Það munaði ekki nema hársbreidd
að Norðmenn kæmust yfir strax á
þriðju mínútu þegar John A. Riise
átti gott skot í stöngina. Þaðan fór
boltinn eftir marklínunni og framhjá
hinni stönginni. Um miðjan hálfleik-
inn átti Sigurður Örn Jónsson skot
framhjá eftir misskilning milli vam-
armanns og markvarðar norska liðs-
ins. Sigurður fékk kjörið tækifæri til
að skora en skaut framhjá. Norð-
menn brunuðu í sókn og hinn eld-
fljóti Jan Derek Sörensen skaut
framhjá. Þetta var besta marktæki-
færi leiksins.
Hafí mönnum fundist fyrri hálf-
leikur rólegur veit ég ekki hvað á að
segja um þann síðari því hann var
enn rólegri og sárafátt markvert
gerðist nema hvað skömmu eftir að
flautað var til síðari hálfleiksins
prjónuðu þeir Einar Þór Daníelsson
og Ríkharður Daðason sig í gegnum
vörn Norðmanna en skot Einars
Þórs fór framhjá. Norðmenn ruku í
sókn og gefið var frá frá vinstri
kanti, boltinn datt ofan á þverslá ís-
lenska marksins án þess að Árni
Gautur Arason virtist gera sér fylli-
lega grein fyrir hættunni. Annars
átti hann fínan dag í markinu, greip
vel inn í þegar á þurfti að halda og
var ófeiminn við að kalla og leiðbeina
samherjum sínum. Það er góður
kostur hjá markvörðum að láta í sér
heyra og þeim kosti er Árni Gautur
gæddur.
Vömin lék vel, Hermann Hreið-
arsson og Pétur Marteinsson réðu
ríkjum á miðjunni og stjómuðu
rangstöðuaðferðinni vel enda vom
Norðmenn níu sinnum dæmdir rang-
stæðir. Auðun var hægra megin og
stóð vel fyrir sínu. Vinstra megin var
Indriði Sigurðsson og virkaði hann
hálf óöraggur í byrjun leiks en það
lagaðist. Hann varð síðan að fara af
leikvelli þar sem hann fékk mikinn
höfuðverk og telja menn hann vera
af sólinni hér á Spáni. „Það var alveg
bölvað að ná ekki að klára leikinn, ég
fann mig vel og var rólegur," sagði
einn fjögurra nýliða í landsliðinu eft-
ir leikinn
Sigurður Örn lék á hægri vængn-
Island - Noregur 0:0
La Manga á Spáni, Norðurlandamótið í knattspymu karla, mánudag-
inn 31. janúar 2000.
Aðstæður: Mjög góðar, sól, 15 stiga hiti og talsverð gola sem stóð þvert
á völlinn en hafði engin áhrif á leikinn. Völlurinn eins og þeir gerast
bestir, rennisléttur og fínn.
Markskot: Island 5 - Noregur 4.
Homspymur: ísland 3 - Noregur 4.
Rangstaða: Island 4 - Noregur 9.
fsland: Ámi Gautur Arason - Auðun Helgason, Hermann Hreiðarsson,
Pétur Marteinsson, Indriði Sigurðsson (Bjami Þorsteinsson 55.) - Sig-
urður Öm Jónsson Rúnar Kristinsson, Helgi Kolviðsson, Tryggvi Guð-
mundsson (Einar Þór Daníelsson 46.) - Ríkharður Daðason (Sigþór
Júlíusson 74), Heiðar Helguson (Þórhallur Hinriksson 46.). Aðrir
varamenn sem komu ekki við sögu vora Birkir Kristinsson, Sverrir
Sverrisson og Haukur Ingi Guðnason.
Noregur: Espen Baardsen - Trond Andersen, ClausLundekvam,
Henning Berg, Vidar Riseth - Jan Derek Sörensen, Örjan Berg, John
A. Riise (Jostein Flo 78.), Ole Martin Aarst (Roar Strand 78.) - John
Carew (Andreas Lund 74.).
Gult spjald: Hermann Hreiðarsson (61. fyrir brot) og Einar Þór Daní-
elsson (75. fyrir að sparka bolta í burtu er dæmt var á hann.)
Rautt spjald: Ekkert.
Áhorfendur: Engin opinber tala en 650 manna stúka var nokkuð þétt
setin.
Dómari: Nicolai Vollquartz frá Danmörku; ágætur.
Aðstoðardómarar: Finn E. Rasmussen frá Danmörku og Jon Kari
Fredriksen frá Færeyjum.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurður Öm Jónsson sækir að norska markinu, Espen Baardsen markvörður er til varnar.
Frábærar
aðstæður
AÐSTÆÐUR til knattspymuiðkun-
ar á La Manga era í einu orði sagt
frábærar og segja Norðmenn, sem
eiga landsvæðið þar sem knatt-
spymuvellimir era, að hvergi í
Evrópu sé aðstaðan eins góð. Á svæð-
inu era átta rennislettir og fallegir
grasveliir og er 650 manna stúka við
einn þeirra. Gistiaðstaðan er til mik-
illar fyrirmyndar enda er gist í smá;
húsum sem eru mjög vel búin. í
næsta nágrenni er glæsilegt Hyatt
hótel og í tengslum við það eru þrír
18 holu golfvellir og glæsilegt æfinga-
svæði sem er upplýst á kvöldin.
Norðmenn leggja mikið upp úr
mótinu og er umgjörðin glæsileg hjá
þeim, fánar Norðurlandanna blakta
við hún meðfram götunum sem liggja
um svæðið og allt skipulag er til mik-
illar fyrirmjmdar enda hafa þeir
áhuga á að fleiri þjóðir sjái hvemig
þeir standa að málum á La Manga því
þeir vonast eftir að fá fleiri á næstu
árum til að koma hingað og æfa eða
keppa.
um og náði sér ekki fyllilega á strik,
skilaði boltanum ekki nógu vel og
komst einhvem veginn aldrei í rétt-
an takt við leikinn. Helgi Kolviðsson
og Rúnar Kristinsson vora á miðj-
unni og áttu ágætan dag, Rúnar var
síðan færður í framlínuna í síðari
hálfleik þegar Þórallur Hinriksson
kom inn á fyrir Heiðar Helguson.
Rúnar er miklu betri miðjumaður en
framlínumaður.
Á vinstri vængnum var Tryggvi
Guðmundsson. Hann var dálítið
„villtur" framan af fyrri hálfleiknum,
hljóp mikið fram á við og gleymdi sér
í vamarhlutverkinu. Vinstri vængur-
inn nýttist því ekki eins vel og sá
hægri í fyrri hálfleiknum.
Ríkharður Daðason var mikilvæg-
ur frammi þó ekki væri nema til að
Atján leikmenn í leik
FORRÁÐAMENN þeirra liða sem taka þátt í Norðurlandamótinu á
La Manga komu sér saman uin það á fundi á sunnudagsmorguninn
að hvert lið yrði með 18 leikmenn á skýrslu í hverjum leik og að
heimilt yrði að skipta fímm sinnum inn á. Upphaflega var hug-
myndin sú að leyfa fjórar skiptingar og sú fimmta yrði þá mark-
varðarskipti en frá því var horfið og því má nota einhverja fimm af
varamannabekknum.
taka á móti háum sendingum sem
þangað koma. Hann hefur þó oft
leikið betur en í gær, en skilaði sínu
þó ágætlega. Heiðar Helguson er
mjög vinnusamur og elja hans og
dugnaður mun nýtast íslenska
landsliðinu á næstu árum.
Varamennirnir sem komu við sögu
í leiknum í dag vora Einar Þór Daní-
elsson, sem setti mark sitt á leikinn
enda nýttist vinstri vængurinn mun
betur eftir hlé en fyrir. Þórhallur
Hinriksson kom inná í byrjun síðari
hálfleiks og stóð fyrir sínu eins og
þeir Bjarni Þorsteinsson og Sigþór
Júlíusson. Það verður þó að segja
það eins og er að eftir að skipt hafði
verið um fjóra leikmenn úr byrjun-
arliðinu var allur annar bragur á leik
íslands og það nýttu Norðmenn sér
þó svo þeir næðu ekki að skora.
Hjá Norðmönum átti Henning
Berg góðan leik í vöminni, Staale
Solbakken var sterkur á miðjunni og
Jan Derek Sörensen átti nokkra
spretti í orðsins fylllstu merkingu
því hann er eldfljótur. Þá virkaði
hinn tvítugi hávaxni John Carew
hættulegur þó svo hann næði ekki að
nýta sér það til fulls í gær, aðallega
vegna þess hversu vel Hermann
Hreiðarsson lék.
IHvað sagði Atli?/B 16
Þjóðsöngurinn
leikinn þrívegis
Islenski þjóðsöngurinn hljómaði
þrívegis á knattspyrnusvæðinu á
La Manga í gær. Hann var að sjálf-
sögðu leikinn fyrir leik Islands og
Noregs og um mprguninn var hann
leikinn tvívegis. Ástæðan var sú að
tæknimenn vora að koma hljóðkerfi
fyrir við völlinn og notuðu íslenska
þjóðsönginn til að prófa græjumar.
Það verður ekki annað sagt en þjóð-
söngurinn hafi hljómað vel, enda var
sérlega hátt stillt þegar hljóðkerfið
var prófað um morguninn.
Annasamt hjá dómaranum
Nicolai Vóllquartz, danskur dóm-
ari í leik Islands og Noregs, hafði í
nógu að snúast. Hann dæmdi 23
aukaspyrnur á íslendinga, tíu í fyrri
hálfleik og þrettán í þeim síðari, og
fjórtán sinnum þurfti hann að dæma
aukaspyrnu á Norðmenn, tíu sinnum
í fyrri hálfleik og fjóram sinnum eftir
hlé. íslenska liðið átti níu skot í átt að
marki, fjögur þeirra náðu aldrei að
markinu, lentu í vamarmönnum áð-
ur en til þess kom. Á sama hátt áttu
Norðmenn sjö skot að marki, þrjú
þeirra vora varin af vamarmönnum.
Atli ekki i jakkafötum
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari
hefur verið þekktur fyrir að vera í
jakkafötum með hálstau þegar hann
stjórnar liði í knattspymuleik. í gær
var hann hins vegar í íþróttabuxum
og stuttermabol, en það mun breyt-
ast samkvæmt því sem Atli segir.
„Nei, ég er ekki hættur að vera í
jakkafötum á leikjum. Nú eram við í
hita og á æfingamóti þannig að ég
ákvað að vera svona fijálslega
klæddur," sagði hann brosandi þeg-
ar það var borið undir hann hvort
hann væri búinn að leggja „ein-
kennisfötunum".