Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUND
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 B 5
Öm og Jakob Jóhann
tryggðu sér ÓL-sæti
Settu met í Greve
Jakob Jóhann Sveinsson
úr Ægi og Lára Hrund
Bjargardóttir úr SH settu
bæði íslandsmet á Opna
Sjálandsmótinu sem fór
fram í Greve um helgina.
Jakob tryggði sér um leið
farseðilinn á Ólympíuleik-
ana í Syndey í 200 m
bringusundi.
JAKOB JÓHANN Sveinsson,
Ægi, og Örn Arnarson úr SH,
tryggðu sér keppnisrétt á Ól-
ympíuleikunum í Sydney er þeir
náðu tilsettum lágmörkum á
Opna Sjálands-mótinu í sundi
um helgina. Eru þeir fyrstu is-
lensku sundmennirnir sem
tryggja sér farseðilinn til Sydn-
ey. Auk þessa náðu þrír sund-
menn lágmörkum fyrir Evróp-
umeistaramótið í 50 metra laug
í Helsinki í sumar, fjögur ís-
landsmet voru slegin, eitt var
jafnað, þá voru fjögur ís-
landsmet sett í boðsundum,
fern stúlknamet voru slegin auk
eins piltamets.
Jakob Jóhann náði lágmarkinu í
200 m bringusundi er hann synti
á 2.18,44 mínútum, en lágmarkið fyr-
ir leikana er 2.18,74.
Eftirívar Um 'e^ bætti hann
Benediktsson eigið íslandsmet all
verulega, en það var
2.19,27, sett á EM-unglinga í Moskvu
sl. sumar. Jakob náði árangri sínum í
undanrásum og í úrslitum synti hann
á 2.20,84 og er ljóst að spennufall
hefur orðið hjá honum er eftirsóttum
áfanga var náð. Þá sigraði Jakob
einnig í piltaflokki í 100 m bringu-
sundi á 1.04,74, en hafði reyndar synt
á 1/100 úr sekúndu betri tíma í und-
anrásum. Er þetta besti tími Jakobs í
greininni í 50 m laug.
Örn vann 200 m baksund og 100 m
skriðsund og hafnaði í öðru sæti í 200
m skriðsundi. Örn innsiglaði keppn-
isrétt á Ólympíuleikunum er hann
kom fyrstur í mark í 200 m baksundi
á 2.03,84 en lágmarkið er 2.04,24.
Örn var þó rúmum 2 sekúndum frá
eigin Islandsmeti i greininni. Sigur-
tími Arnar í 100 m skriðsundi var
51.82 sek., hálfri sekúndu frá ÓL-
lágmarki. Þá var hann ekki nema 12
hundraðshlutum úr sekúndu frá ÓL-
lágmarki í 200 m skriðsundi, kom
annar í mark á 1.52,70. Eitt íslands-
met setti Öm á mótinu, það var í 50
m skriðsundi er hann synti fyrsta
sprett í 4x50 m skriðsundi á 23,80,
bætti hann eigið met um fjóra hundr-
aðshluta úr sekúndu.
Lára Hrund Bjargardóttir, SH,
bætti eigið íslandsmet í 200 m
skriðsundi er hún hafnaði í öðru sæti
á 2.04,96. Gamla metið var 2.05,49.
Lára var aðeins tæpri einni sekúndu
frá ÓL-lágmarki.
Friðfínnur Kristinsson, Selfossi,
setti íslandsmet í 50 m flugsundi,
kom í mark á 25,38 sek., og bætti met
Ríkarðs Ríkarðssonar, Ægi, um 12/
100 úr sekúndu. Fiiðfínnur hafnaði í
3. sæti. Þá vann hann 50 m skriðsund
á 24,07 sek., 75/100 úr sekúndu frá
ÓL-lágmarkinu. Hann varð í 3. sæti í
100 m flugsundi á 57,10 sek., ÓL-
lágmarkið er 55,25.
Eydís Konráðsdóttir, Keflavík,
jafnaði eigið íslandsmet í 50 m flug-
sundi er hún kom fjórða í mark á
28,64 sek. Eydís varð einnig í 2. sæti í
100 m flugsundi á 1.03,83 mín., en
ÓL-lágmarkið er 1.02,23.
Elín Sigm-ðardóttir, SH, náði lág-
marki inn í Ólympíuhóp Sund-
sambandsins, og vann sér einnig inn
keppnisrétt á EM í sumar er hún
synti í 50 m skriðsund á 26,96 sek.
Þetta er besti árangur Elínar í grein-
inni í þrjú ár. Ólympíulágmarkið er
26,62.
Akurnesingurinn Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir náði lágmarki til
þátttöku á Evrópumeistaramótinu í
Helsinki í júlí í 50 m baksundi er hún
synti fyrsta sprett í 4x50 m fjórsundi
á 30,89 og var aðeins 13/100 úr sek-
úndu frá eigin íslandsmeti. Þá vann
Kolbrún 100 m baksund á mótinu á
1.07,19, var nokkuð frá eigin íslands-
meti og loks varð hún í fjórða sæti í
50 m skriðsundi á 27,00, 21/100 frá
íslandsmeti Elínar.
Hjalti Guðmundsson, SH, varð í 2.
sæti í 100 m bringusundi á tímanum
Morgunblaðið/Ásdís
Setti Islandsmet og tryggði sér sæti á
Ólympíuleikunum í Sydney í fyrstu atrennu
Æskudraum-
urinn rætist
„ÉG setti mér það markmið að ná Ólympíulágmarkinu við fyrsta
tækifæri, en í byrjun síðustu viku leist mér ekki vel á að það tæk-
ist, ég var þungur, en svo var eins og losnaði um það þegar á
hólminn var komið,“ segir Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður
úr Ægi.
1.04,80, 73/100 úr sekúndu frá ÓL-
lágmarki. Þá kom hann fyrstur í
mark í 200 m bringusundi á 2.24^40,
nærri hálfri sjöttu sekúndu frá ÓL-
lágmarki. Hjalti sigraði í fullorðins-
flokki, en Jakob sem getið er um að
framan og synti á betri tíma vann í
piltaflokki. Hjalti hafnaði auk þess í
3. sæti í 50 m bringusundi á 30,21
sek., 46/100 frá eigin Islandsmeti.
Iris Edda Heimisdóttir, Keflavík,
fylgdi eftir stórgóðum árangri sínum
frá Norðurlandameistaramóti ungl-
inga fyrr I vetur er hún vann til
tvennra gullverðlauna, í 100 og 200 m
bringusundi í stúlknaflokki og náði
auk þess tilskildum árangri til að
vinna sér sæti í Ólympíuhópi
Sundsambandsins, en í honum eru
þeir sundmenn sem nærri eru Ól-
ympíulágmörkum. íris Edda synti á
1.13,89 í 100 m bringsundi og 2.37,85
í 200 m. íris Edda er aðeins 16 ára og
vantar aðeins 1,9 sekúndur upp á að
ná ÓL-lágmarki í 100 m bringusundi
og rúmar fjórar sekúndur í lengra
sundinu. Einnig bætti hún stúlkna-
metin í báðum greinum og tvíbætti
reyndar metið í 200 metrunum, fyrst
í undanrásum og síðan í úrslitum.
Hjörtur Már Reynisson setti pilta-
met í 50 m flugsundi, synti á 26,39
sekúndum. Bætti hann eigið met um
15/100 úr sekúndu.
Loks er að geta þess að eftir þetta
mót verður væntanlega skráð
íslandsmet í fyrsta sinn í fjórum
boðsundsgreinum, en til þessa hafa
met ekki verið skráð í þessum grein-
um hér á landi. Karlasveit íslands
synti 4x50 m fjórsund á 1.46,78 mín.
Sveitin var skipuð Erni, Hjalta,
Friðfinni og Ómar Snævari Friðriks-
syni. Einnig synti sveit Islands 4x50
m skriðsund á tímanum 1.37,14. Örn,
Ómar Snævar og Friðfinnur skipuðu
sveitina ásamt Guðmundi Hafþórs-
syni. Kvennasveit Islands setti einn-
ig met í sömu greinum. í 4x50 m
skriðsundi synti sveit sem skipuð var
Elínu, Eydísi, Láru og Kolbrúnu á
1.48,45 mín. I 4x50 m fjórsundi var
komið í mark á 1.59,59. Þar synti
Kolbrún baksundið, íris Edda bring-
usundið, Eydís flugsundið og Elín
skriðsundið.
Jakob Jóhann tryggði sér keppn-
isrétt á Ólympíuleikunum í
Sydney sem fram fara síðar á árinu
þegar hann synti 200 m bringusund
á 2.18,44 mínútum í undanrásum á
Opna Sjálands-mótinu, var 30/100
undir lágmarkinu og bætti um leið
íslandsmet sitt um nærri eina sek-
úndu. í úrslitum nokkru síðar tókst
honum ekki að gera betur en vann
engu að síður. „Eg var einfaldlega í
sæluvímu," segir Jakob.
„Mér tókst að einbeita mér mjög
vel í sundinu. Þannig lagði ég mig
allan fram án þess að velta mögu-
leikunum of mikið fyrir mér,“ segir
Jakob sem fékk litla sem enga sam-
keppni í sundinu þar sem yfirburðir
hans voru miklir.
„Það er mikill léttir að hafa náð
þessum langþráða áfanga og geta
þar með farið með afslappaðri hætti
að huga að undirbúningi leikanna, í
stað þess að þurfa að leggja í margar
ferðir til að reyna að nálágmarkinu.
Framundan er hins vegar mikil
vinna. Áður en að henni kemur tekur
nú við hálfsmánaðar vetrarleyfi. Síð-
an verður æft sleitulaust fram að Ól-
ympíuleikunum," segir Jakob.
Jakob Jóhann er fæddur 24. nó-
vember 1982 og er sonur hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur og Sveins
Gunnarssonar. Jakob er nemi á öðru
ári á upplýsinga- og tæknibraut
Fjölbrautaskólans í Breiðholti. „Ég
hægði nokkuð á mér í náminu í vetur
til þess að geta undirbúið mig bet-
ur.“
Jakob byrjaði að að æfa sund hjá
Ægi 9 ára gamall og segist þá um
leið hafa sett sér það takmark að
keppa á Ólympíuleikunum árið 2000.
„Það er draumur hvers íþrótta-
manns að taka þátt í Ólympíuleikum
og þess vegna vaknaði þessi von mín
snemma. Hins vegar þótti draumur-
inn óraunhæfur og meira að segja
svo fjarlægur að í lok árs 1998 taldi
ég þetta vera nær útilokað. Síðan
hef ég tekið hröðum framförum og
vonin um þátttöku í Ólympíuleikum
vaknaði ó Smáþjóðaleikunum í
Liechtenstein síðastliðið vor þegar
ég setti mitt fyrsta íslandsmet í 200
m bringusundi, 2.20,65. Þá sá ég að
þetta var ef til ekki svo fjarlægt.“
Allt frá því Jakob hóf sundæfing-
ar hafa framfarirnar verið jafnar og
stöðugar, sem hann telur að hafí ver-
ið sér hollt, í stað þess að taka stór
stökk. Aðalgrein hans frá upphafi
hefur verið bringusund. „Það var
einfaldlega fyrsta sundið sem ég
lærði og mér líkaði strax vel við það,
þannig að ég ákvað að halda mig við
það, enda er bringusund það ólíkt
hinum sundgreinunum þremur að
ekki er hægt að æfa þær jafnhliða
ætli menn að ná árangri," segir Jak-
ob og þakkar árangur sinn fyrst og
fremst Ragnari Friðbjamarsyni.
„Ragnar hefur verið þjálfari minn
allt frá því ég byrjaði og er enn með
puttana í þjálfuninni þrátt fyrir að
Bodo Wermelskirchen hafi að mestu
tekið við þjálfuninni síðasta hálfa
annað árið. Áðalstyrktaraðilar mínir
eru annars mamma og pabbi,“ segir
Jakob sem viðurkennir að það sé
kostnaðarsamt að vera afreksmaður
í sundi. Hann æfír 6 til 10 sinnum í
viku auk einnar til þriggja lyftinga-
æfinga í viku hverri. En hefur hann
sett sér markmið á Ólympíuleikun-
um? „Nei, og ég ætla ekki að stressa
mig á því, fyrst er að búa sig undir
keppnina," segir Ólympíufarinn
Jakob Jóhann Sveinsson, sundmað-
ur.