Morgunblaðið - 01.02.2000, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 B 7
EM í KRÓATÍU
Islenska landsliðið í hand-
knattleik hefur aldrei byrjað
nokkurt ár jafn illa og nú ...{
Morgunblaðið/Ásdís
Róbert Sighvatsson er hér í baráttu við tvo leikmenn Úkraínu, hefur betur og skorar sigurmark ís-
lands. Róbert var besti leikmaður íslands á EM.
Staður
Urslit
7.jan. Frakklandi Bordeaux Tap 20:24
9. jan. Frakklandi Pau Jafnt. 20:20
21. jan. Svíþjóð Rijeka f, Tap 23:31
22. jan. Portúgal Rijeka J 1 Tap 25:28
23. jan. Rússlandi Rijeka p Tap 23:25
25.jan. Danmörku Zagreb | Tap 24:26
27. jan. Slóveníu Zagreb Tap 26:27
29. jan. Úkraínu Rijeka Sigur 26:25
Samtals: 8 116: 18,7%árangur
8 leikir:
1 sigur
1 jafnt.
6 tapl.
Róbert var
hetja íslands
ÍSLENSKA landsliðið lauk þátttöku á Evrópumótinu í Króatíu með
því að sigra Úkraínu 25:24 í leik um 11. sætið í keppninni. Sigur
sem var Ijós í annars myrkri frumraun íslenska liðsins á Evrópu-
móti. Niðurstaðan er ekki til að hrópa húrra fyrir og kallar á breyt-
ingar. Liðið hlaut ekkert stig í riðlakeppninni og var eina liðið sem
afrekaði það. Nú eru tveir leikir framundan við Makedóníu í undan
keppni HM.
Leikmenn og aðrir sem að liðinu
standa verða að láta þessa frum-
raun sér að kenningu verða og koma
betur undirbúnir til
„ leiks.
Jónatansson , Leikurmn a moti
skrifarfrá Ukraínu var einn sá
Zagreb skásti sem sást til
liðsins í keppninni. Meiri barátta var
í liðinu en áður og menn voru stað-
ráðnir að selja sig dýrt og koma ekki
heim til íslands án þess að hafa fagn-
að sigri einu sinni í keppninni. Sigur-
inn segir kannski ekki mikið um
styrk liðsins því mótherjinn var í
svipuðum gæðaflokki. Engu að síður
er þetta sigur sem gerði það að verk-
um að Island hafnaði ekki í neðsta
sæti keppninnar. Það kom í hlut
Úkraínu.
Handboltinn sem liðin sýndu á
laugardaginn var ekki góður, en leik-
urinn var jafn og spennandi. Róbert
Sighvatsson var hetja íslenska liðs-
ins með því að skora sigurmarkið
þegar aðeins tvær sekúndur voru eft-
ir. Það fór vel á þvi enda var hann
besti leikmaður íslenska liðsins í
leiknum, skoraði sex mörk úr jafn-
mörgum skotum og fískaði auk þess
fjögur vítaköst. Hann var reyndar
besti leikmaður Islands í keppninni.
Tveir markahæstu leikmenn
keppninnar, Úkraínumaðurinn Oleg
Velykyy og Valdimar Grímsson,
háðu einvígi um það hvor þeirra
hreppti markakóngstitilinn og hafði
Velykyy betur í þeirri rimmu, gerði
ellefu mörk í leiknum og samtals 46
mörk í keppninni allri. Valdimar var
með níu mörk og samtals 41 mark og
hafnaði í öðru sæti yfir markahæstu
leikmenn mótsins.
Það er ljóst þegar keppnin er gerð
upp að undirbúningur liðsins brást
algjörlega. Flestir leikmanna liðsins
voru ekki tilbúnir í slaginn þegar á
hólminn var komið. Úthaldsleysi háði
liðinu veralega og barátta var ekki tii
staðar. Þegar leikmenn gefa kost á
sér í landslið Islands eiga þeir að
hafa þann metnað til að bera að vera í
toppæfingu. Gefa sig í verkefnið af
heilum hug og láta ekki annað trufla
sig á meðan.
Það er aðeins hægt að nefna þrjá
til fjóra leikmenn sem stóðu undir
væntingum í þessari keppni. Það er
áðurnefndur Róbert, sem er sam-
viskusamur með afbriðgum. Gefur
sig alltaf 100 prósent í hvem einasta
leik. Hann kvartar aldrei og lætur
verkin tala. Valdimar Grímsson lék
yfir getu miðað við að vera stíga upp
úr meiðslum. Það gætu margir tekið
hann sér til fyrirmyndar.
Hann gaf mörgum félaga sinna
langt nef með því að sýna hvað
keppnisskapið getur fleytt mönnum
langt þótt það vanti eitthvað upp á
leikæfinguna. Ólafur
Stefánsson var að leika vel fyrir
liðið á köflum, en fékk litla aðstoð
þegar hann þurfti á henni að halda.
Þá má nefna yngsta leikmann liðsins,
Guðjón Val Sigurðsson, sem átti
stjörnuleik á móti Slóveníu. Hann
sýndi að hann er traustsins verður og
á framtíðina fyrir sér í landsliðinu.
Val Þorbjörns á liðinu hlýtur að
orka tvímælis þegai’ niðurstaðan
liggur fyrir. Hvers vegna er hann að
taka með sér leikmenn sem eru ekki í
æfingu?
Það er ekki nóg að vera atvinnu-
maður í íþróttinni til að eiga fast sæti
í landsliðinu. Þjálfarinn þai’f að geta
metið líkamlegt ástand leikmanna
áður en haldið er í svona erfiða
keppni sem Evrópumót vissulega er.
Duranona kom úr fríi á Kúbu tíu dög-
um eftir að liðið hóf lokaundirbún-
inginn 3. janúar. Þorbjörn hefði átt
að sjá hver staða hans væri strax á
fyrstu æfingunum. Rúnar Sigtryggs-
son og Magnús Sigurðsson voru
teknir með til að styrkja varnarleik-
inn, en náðu ekki að stoppa í þau göt
sem þar voru fyrir hendi alla keppn-
ina. Nær hefði verið að taka með
varnarjaxl eins og Petr Baumruk úr
Haukum, sem er orðinn íslenskur
ríkisborgari og í toppæfingu. Hann
hefur mikla reynslu og hana vantaði
tilfinnanlega inn í liðið. Þá hefði ég
viljað sjá leikmann eins og Ragnar
Óskarsson lífga upp á sóknarleikinn.
Dagur Sigurðsson var fyrirliði liðsins
á mótinu og náði ekki að stapa stálinu
í samherja sína eða taka af skarið
þegar á þurfti að halda. Það er ekk-
ert undarlegt því hann gengur ekki
heill til skógar og var alveg óvíst
fram á síðustu stundu hvort hann
gæti tekið þátt. Leikmenn höfðu ekki
SQKNARNÝTING
EM 2000
í Króatíu
Rijeka
29. jan.
ísland
Mörk Sóknir %
Úkraína
Mörk Sóknir %
5 Langskot 6
2 Gegnumbrot 6
5 Hraðaupphlaup 1
2 Horn 7
8 Lína 1
4 Viti 4
ákveðin hlutverk á vellinum, ef þeir
hefðu haft það komust þau fyrirmæli
ekki til skila inn á völlinn. Það var
hending ef leikkerfi gengu upp.
Undirbúningur liðsins var í mjög
lausu lofti og menn vissu varla í
hvorn fótinn þeir ættu að stíga áður
en haldið var af stað. Liðið var ekki
endanlega valið fyrr en á síðustu
stundu vegna meiðsla nokkurra leik-
manna, eins og Dags og Valdimars
og þeirra Bjarka Sigurðssonar og
Ai-ons Kristjánssonar, sem heltust
úr lestinni rétt fyrir brottför.
Þegar landsliðshópurinn kom
saman fóru tveir dagar í það hjá leik-
mönnum og HSÍ að funda um trygg-
ingar og dagpeninga. Tveir leikir við
Frakka í byrjun
janúar lofuðu góðu, en það vantaði
að fylgja þeim efth- með fleiri leikj-
um. Það var ætlaður leikur við úrval
erlendra leikmanna úr íslensku
deildinni, en þeir neituðu nema að
fá borgað og þá var leikið við ÍBV í
staðinn. Einnig var fyrirhugaður
leikur við KA á Akureyri en þá varð
ófært. Rétt áður en landsliðið hélt til
Króatíu var allt í einu kominn nýr að-
stoðarþjálfari, Einar Þorvarðarson, í
stað Borisar Bjama. Svona hræring-
ar á síðustu stundu setja auðvitað
mark sitt á liðið og kannski ekki
hægt að búast við góðum árangri
þegar svona er á málum haldið.
Handknattleikssambandið þarf að
skoða allt það sem miður fór og láta
ófarirnar í Króatíu sér að kenningu
verða.