Morgunblaðið - 01.02.2000, Síða 13

Morgunblaðið - 01.02.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 B 13 AP Benito Carbone, leikmaður Aston Villa, var mikill fyrir sér á Villa Park og gerði þrennu í 3:2-sigri gegn Leeds í ensku bikarkeppninni um helgina. ÓVÆNT úrslit litu dagsins Ijós í 16 liða úrslitum ensku bikar- keppninnar um helgina. Gilling- ham, sem leikur í 2. deild, lagði Sheff. Wed., sem leikur tveimur deildum ofar, 3:1. Charlton vann úrvalsdeildarlið Coventry 3:2. Tranmere virðist óstöðvandi í bikarkeppnum, lagði Fulham 2:1, og Benito Carbone tryggði Aston Villa þátttöku í næstu um- ferð með þremur mörkum gegn Leeds. Peter Taylor, knattspymustjóri Gillingham, trúði vart eigin augum er liðið hans lagði úrvals- deildarlið Sheff. Wed. í 16 liða úrslit- um bikarkeppninnar. Knattspyrn- ustjórinn hafði þar með komið liðinu, sem leikur í 2. deild, í átta liða úrslit bikarkeppninnar í fyrsta skipti í 107 ára sögu félagsins. En í upphafi leit ekkert út fyrir að Gill- ingham næði því að leggja stóra fé- lagið að velli. Gerald Sibon kom Sheff. Wed. yfir eftir hálftíma leik og Gillingham náði ekki að svara fyrir sig fyrr en 40 mínútum síðar er varamaðurinn Mark Saunders jafn- aði leikinn. Andy Thomson náði að koma Gillingham yfir nokkrum mín- útum síðar. Nicky Southall innsigl- aði sigurinn undir lokin við mikla kátínu áhorfenda, sem voru um 10 þúsund á Priestfield-vellinum. Tayl- or, sem þjálfaði áður 21 árs landslið 8 Englendinga um þriggja ára skeið, sagði að sigurinn á Sheff. Wed. væri sá eftirminnilegasti sem hann hefði persónulega upplifað í íþróttum. „Ég er ánægður fyrir hönd félags- ins, stuðningsmanna og leikmanna, en ég finn til með Danny Wilson, knattspyrnustjóra Sheff. Wed., því hann hefur orðið að þola miklar raunir á þessu tímabili. Þetta er í fyrsta skipti sem liðið er komið í átta liða úrslit keppninnar og við ætlum M að njóta þess að leika næsta leik í keppninni,“ sagði Taylor en Gilling- ham mætir Chelsea í átta liða úrslit- um. Wilson sagðist eftir leikinn vera undrandi, ekki síst í ljósi þess að lið- ið hans hefði verið á uppleið í deild- inni. „Ég er sár og afar vonsvikinn. Það er ekkert vandamál að falla úr bikarkeppninni, en það sem veldur áhyggjum er að liðið gat ekki sýnt Íbetri frammistöðu heldur en það gerði í dag. Við getum ekki afsakað tap sem þetta.“ Leikmenn Tranmere enn við sama heygarðshornið David Kelly, leikmaður Tran- mere, sem hefur verið iðinn við að skora mörk fyrir félagið sitt í deild- arbikarkeppninni en þar er liðið komið í úrslit, hélt uppteknum hætti er hann gerði sigurmarkið í 2:l-sigri á Fulham í 16 liða úrslitum bikar- 1 keppninnar. Kelly, sem er 34 ára, var ekki einu sinni í byrjunarliðinu í leiknum, en nýtti tækifærið til fulls er hann kom inn á. John Aldridge, knattspyrnustjóri liðsins, sagði að leik loknum að hann hefði búist við að liðið kæmi til með að eiga erfitt uppdráttar eftir að það tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á Wembley, en leikmenn sínir hefðu sýnt staðfastan vilja til þess að vinna leikinn gegn Fulham. „Strákarnir nutu þess að | komast í úrslit en greinilegt er að þeir vilja gera betur og standa sig einnig í þessari keppni. Andinn í lið- inu er einstakur og sá besti sem ég hef kynnst, ekki ósvipaður þeim sem ég upplifði er ég lék með írska landsliðinu." Carbone bar skjöldinn John Gregory, knattspyrnustjóri Aston Villa, kveðst trúa því að Íþrennan sem ítalinn Benito Carb- one gerði gegn Leeds sé upphaf að glæstri framtíð leikmannsins á Villa Park. Carbone var hetja liðsins gegn Leeds, en hann hafði fyrir þann leik aðeins gert eitt mark í 13 leikjum fyrir liðið. Það var vel að verki staðið hjá Italanum að skora fyrstu tvö mörkin í leiknum við Leeds en þriðja markið gerði hann eftir að Paul Merson hafði komist inn fyrir vörn Leeds og lagt upp markið af harð- fylgi. Merson gaf boltann fyrir markið en fékk um leið högg á höf- uðið svo úr blæddi. „Hann [Carbone] hefur ekki enn skorað fyrir okkur í úrvalsdeildinni á þessu tímabili og síðast er hann kom knettinum í netið var það gegn Darlington í sömu keppni. Það var þvi kominn tími til að hann sýndi hvað í honum býr. Ég er glaður fyrir hans hönd og vonandi hvetur þessi frammistaða hans áfram til góðra verka,“ sagði Greg- ory, knattspyrnustjóri Aston Villa. Leikmenn Coventry voru allt ann- að en ánægðir er flautað var til leiks- loka gegn Charlton. Leikmenn úr- valsdeildai'liðsins voru komnir með tveggja marka forystu eftir aðeins 21 mínútu en Charlton lagði ekki árar í bát og jafnaði 2:2 fyrir leikhlé. Baráttan var mikil á milli leikmanna í síðari hálfleik en Andy Hunt tryggði Charlton sigur með marki tveimur mínútum fyrir leikslok. Alan Curbishley, knattspyrnu- stjóri Charlton, sagði að hann hefði vitað að leikurinn yrði sínu liði erfið- ur enda Coventry eitt af stöndugri liðum úrvalsdeildar. „Mér fannst við óheppnir að lenda 2:0 undir en við sýndum seiglu og náðum að snúa leiknum okkur í hag. Við sýndum frábæra frammistöðu þegar upp er staðið." Spjöld níu sinnum á loft Leiks Chelsea og Leicester verð- ur vart minnst fyrir áferðarfallega knattspyrnu, fyrir utan leikni George Weah hjá Chelsea, heldur vegna þess að sjö leikmenn fengu gula spjaldið og tveir þeirra, Dennis Wise í Chelsea og Steve Walsh hjá Leicester, fengu reisupassann áður en yfir lauk. Chelsea hrósaði 2:1- sigri og Gianluca Vialli, knatt- spyrnustjóri liðsins, gerir sér vonir um að liðið fari alla leið í úrslit. Hann viðurkenndi að leikurinn hefði ekki verið mikið fyrir augað enda baráttan þeim mun meiri, en sagði svo: „Vissulega var ekki um áferðar- fallega knattspyrnu að ræða en leik- menn gáfu sig alla í leikinn og börð- ust og það er einkennandi fyrir enska knattspyrnu. Ég vissi alltaf að leikurinn yrði hálfgerður bardagi og við vorum viðbúnir slíkum átökum. Við getum líka leikið góðan fótbolta, en það var ekki hægt í leik sem þess- um.“ ■ HELGI Sigurðsson skoraði sitt fimmta mark í grísku deildinni í vetur er lið hans, Panathinaikos, vann Kavala 3:0 á sunnudag. Helgi kom inn á sem varamaður í hálfleik og markið gerði hann af stuttu færi eftir fyrirgjöf. ■ ARNAR Grétarsson lék allan leikinn með AEK í gær þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Kalamata á útivelli í efstu deild grísku knatt- spymunnar. ■ KRISTJÁN Brooks lék í 75 mín- útur með Agios Nikolaos sem gerði jafhtefli, 1:1, við Olympiakos Volou í næstefstu deildinni í Grikklandi. Agios er í 9. sæti deildarinnar. ■ SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson skoraði eitt mark fyrir Chester City sem vann Torquay United 2:1 í ensku 3. deildinni. Þrátt fyrir sig- ur er Chester í neðsta sæti deildar- innar. ■ IVAR Ingimarsson skoraði sig- urmark Brentford sem lagði Blackpool 1:0 í 2. deildinni. Gunnar Einarsson sat á bekknum hjá Brentford, sem er í 8. sæti deildar- innar. ■ STOKE gerði 2:2-jafntefli við Bumley í 2. deildinni. Stoke komst í 2:0 en Bumley náði að jafna með tveimur mörkum á síðustu 14 mín- útunum. Stoke fékk vítaspyrnu undir lokin en brenndi spymunni. Þá fékk liðið gott tækifæri til þess að bæta við marki en tókst ekki að skora. Brynjar Bjöm Gunnarsson lék allan leikinn. Sigursteinn Gfsla- son sat á bekknum hjá Stoke. ■ EIÐUR Smári Guðjohnsen skor- aði eitt mark í 3:l-sigri Bolton gegn Cambridge í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar. Eiður Smári kom inn á sem varamaður á 69. mínútu leiksins og gerði markið fjómm mínútum fyrir leikslok. Guðni Bergsson lék allan leikinn með Bolton. ■ BJARKI Gunnlaugsson lék allan leikinn með Preston sem tapaði 2:0 fyrir Everton í bikarkeppninni í Énglandi. ■ LARUS Orri Sigurðsson lék með WBA sem gerði l:l-jafntefli við Swindon í ensku 1. deildinni á laug- ardag. Þetta var fyrsti leikur Lár- usar Orra eftir þriggja leikja bann. WBA er nálægt botni deildarinnar. ■ BJARNÓLFUR Lárasson sat á bekknum hjá Walsall sem gerði l:l-jafntefli við Wolves í 1. deild- inni. Walsall hefur gengið allt í hag- inn, unnið fjóra og gert eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum. ■ ARNAR Gunnlaugsson lék síð- ustu 12 mínútumar með Leicester sem tapaði 2:1 gegn Chelsea í ensku bikarkeppninni á sunnudag. ■ VERBROEDERING Geel lagði Lokeren 3:0 í belgísku 1. deildinni. Guðmundur Benediktsson lék ekki með Geel en Amar Viðarsson var í liði Lokeren. ■ RACING Genk tapaði fyrir Standard 5:1 í belgísku deildinni á föstudag. Þórður Guðjónsson lék með Genk og Bjarni Guðjónsson kom inn á hjá liðinu undir lok leiks- ins. ■ ROSENBORG lagði Brann, sem er undir stjórn Teits Þórðarsonar, 3:0 í æfingaleik þrátt fyrir að Ros- enborg væri án níu landsliðs- manna, sem vom að undirbúa sig fyrir landsleik gegn íslendinga á La Manga á Spáni. ■ JÓHANNES Guðjónsson lék með MVV Maastricht sem tapaði 1:0 fyrir Eijsden í Hollandi. ■ SIGURÐUR Jónsson lék með Dundee Utd sem vann Airdrie 4:1 í skosku bikarkeppninni um helgina. ■ EYJÓLFUR Sverrisson og félag- ar í Herthu Berlín sigmðu Bohemi- ans Prag, 3:0, í síðasta upphitunar- leik sínum fyrir seinni umferð þýsku deildarkeppninnar í knatt- spyrnu. Alex Alves, nýi Brasilíu- maðurinn hjá Herthu, skoraði tvö mörk í leiknum. Man. United á toppinn MANCHESTER United er á ný komið í efsta sæti ensku úrvalsdeilarinnar. Liðið lagði Middlesbrough 1:0 að velli á Old Trafford fyrir framan 61.267 áhorfendur, sem er mesta aðsókn á leik hjá félaginu síðan 1977. Middlesbrough fékk tækifæri til þess að komast yfir í leiknum en Juninho lét Mark Bosnich, markvörð United, verja frá sér vítaspyrnu. David Beek- ham gerði sigurmarkið þegar þrjár mínútur vora til leiksloka, en hann skor- aði með skoti af löngu færi sem Mark Schwarzer, markvörður Middles- brough, er hafði nokkrum sinnum varið afbragðsvel í leiknum, missti knöttinn milli fóta sér.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.