Morgunblaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR15. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
4"
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000 B 7
HANDKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
Þjálfari Wuppertal leystur frá störfum eftir tap á heimavelli
Dagur og Rasch
til Solingen?
Stefan Schöne, þjálfari þýska
liðsins Wuppertal, var leystur
frá störfum á sunnudaginn.
Schöne, sem tók við starfi Viggó
Sigurðssonar fyrir rúmu ári, fékk
kaldar kveðjur frá stuðningsmönn-
um liðsins eftir tap Wuppertal á
heimavelli fyrir Frankfurt. Allt
virðist vera komið upp í loft hjá
Wuppertal, en þess má geta að
reikningar liðsins voru lokaðir í sl.
viku, þar sem Wuppertal hefur
ekki gert upp við Viggó.
Miklar breytingar eru framund-
an á leikmannahópi Wuppertal
liðsins. Stjóm liðsins tOkynnti í síð-
ustu viku að fimm af þeim leik-
mönnum, sem keyptir voru til liðs-
ins í vetur, verði látnir taka pokann
sinn þótt þeir eigi eftir eitt til tvö ár
af samningi sínum. Þá fengu mátt-
arstólpar liðsins menn eins og Dag-
ur Sigurðsson,Valdimar Grímsson,
Dimitri Filippow og Stig Rasch til-
boð frá félaginu en félagið vill
lækka við þá samningaupphæðina.
Norski landsliðsmaðurinn Stig
Rasch, sem átt hefur í málaferlum
við félagið, segist vera á leið burt
og óvíst er með aðra leikmenn.
Rasch tilkynnti á föstudag að
hann myndi yfirgefa Wuppertal og
ganga annaðhvort til liðs við Eisen-
ach eða Solingen sem er nágranna-
bær Wuppertal og berst við að
komast í fyrstu deild.
Dagur Sigurðsson hefur einnig
verið orðaður við Solingen en þar
ræður ríkjum fyrrum fram-
kvæmdastjóri Wuppertal, Win-
fried Meister, sem dælt hefur
ómældu fé til Solingen og ætlar þar
að komast aftur í fyrstu deild og
jafna opinn reikning við þá sem nú
ráða ríkjum hjá HC Wuppertal.
Solingen berst harðri baráttu við
Göppingen um að komast beint
upp. Sem stendur eru liðin jöfn í
efsta sæti, Göppingen er með betri
markatölu. Fari svo að Solingen
lendi í öðru sæti gæti liðið einmitt
þurft að leika aukaleiki við Wupp-
ertal lendi liðið í þriðja neðsta sæt-
inu.
Lognið á
undan
storminum
ÞAÐ getur reynst býsna mjótt bilið á milli þess að vera skúrkur
eða hetja í handknattleik. Það fékk Magnús Erlendsson, mark-
vörður Framara, nærri því að reyna á lokasekúndunum í leik
Fram og KA á sunnudagskvöld. Heimamenn höfðu þá eins marks
forystu, 24:23, en gestirnir frá Akureyri sóttu án afláts. Þegar
tæpar tíu sekúndur voru til leiksloka létu norðanmenn skot ríða
að marki, en Magnús varði vel. Hinir bláklæddu fögnuðu af kappi,
en enginn þó eins kröftulega og Magnús, sem lét gleði sína í Ijós
með því að kasta knettinum í gólfið. Þaðan barst hann í hendur
KA-manna sem þar með fengu annað tækifæri til að jafna metin.
Það tókst þó ekki og eru Framarar nú komnir í þriðja sæti deild-
arinnar á ný, stigi á eftir Akureyringum.
Það væri synd að segja að þeir
350 áhorfendur sem hundsuðu
stormviðvörun Veðurstofunnar hafi
fengið að sjá snilld-
Stefán arhandknattleik í
Pálsson Safamýri, en leikur-
skrifar inn var þó spennandi
og munurinn á liðun-
um aldrei meiri en þrjú mörk. í fyrri
hálfleik skoruðu sóknarmenn
beggja liða eins og þeir væru á
akkorði, á sama tíma og ekki örlaði á
varnarleik eða markvörslu. Staðan í
leikhléi var 16:15, Fram í vil eða alls
31 mark skorað á 30 mínútum.
I síðari hálfleik varð breyting á
þessu. Varnarleikur beggja liða tók
stakkaskiptum og Flóki Ólafsson,
markvörður KA-manna varði eins
og berserkur, oftar en ekki úr
dauðafærum heimamanna.
Allt gekk á afturfótunum hjá
Frömurum og á fyrstu fjórtán mín-
útum hálfleiksins skoruðu þeir ein-
ungis tvö mörk og Sebastían Alex-
andersson, markvörðurinn snjalli,
varði ekki eitt einasta skot. Þá kom
téður Magnús Erlendsson til sög-
unnar, en hann hefur lítið fengið að
spreyta sig á milli stanganna í vetur.
Hann gerði sér lítið fyrir og nánast
lokaði markinu, varði sjö skot á
stundarfjórðungi. Frömurum hljóp
kapp í kinn og náðu þeir að síga
fram úr á lokamínútunum. Vörðu
KA-menn á þeim tíma mikilli orku í
að skammast yfir dómgæslu þeirra
Bjarna Viggóssonar og Valgeirs
Ómarssonar, sem raunar skal viður-
kennt að voru Akureyringum heldur
mótdrægir.
Framarar mega teljast heppnir
að hafa innbyrt bæði stigin, því leik-
ur þeirra var á köflum ósannfær-
andi. Má reikna með að leikmenn
hafi átt erfitt með að einbeita sér
vegna bikarúrslitaleiksins næst-
komandi laugardag. Gunnar Berg
Viktorsson átti þó þokkalegan leik,
en í liði KA áttu þeir Sævar Árnason
og Halldór Sigfússon ágæta spretti,
auk þess sem skemmtilegt var að
fylgjast með hinum unga og ákafa
Jónatan Magnússyni sem lét sókn-
armenn Fram finna fyrir sér.
Heimir Ríkharðsson, aðstoðar-
þjálfari Fram, var kampakátur í
leikslok. „Sennilega voru sumir
minna manna með hugann annars
staðar en við leikinn. Við gerðum
okkur þetta allt of erfitt, með því að
nýta ekki þau færi sem við fengum.
í upphafi seinni hálfleiks fengum við
sex dauðafæri, sem öll fóru í súginn.
Ef einhver þeirra hefðu ratað inn,
þá hefði sigurinn ekki orðið svona
naumur. Það er alveg ljóst að við
verðum að standa okkur betur í
sókninni á laugardaginn."
Aðspurður um bikarúrslitaleikinn
sagði Heimir að ekki væri fyrirhug-
að að haga undirbúningi liðsins
öðruvísi en að um hvern annan leik
væri að ræða. „Leikurinn leggst vel
í okkur og það er ágætis veganesti
að hafa náð að leggja KA-menn og
bæta þar með stöðu okkar í deild-
Litháínn Robertas Pauzuolis hjá Fram sækir að marki KA.
Baráttusigur HK-manna
Enn einu sinni sýndu leikmenn HK-
liðsins sitt margfræga baráttu-
eðli þegar þeir tóku á móti leikmönn-
um Stjörnunnar í
Digranesi. Sigurður
BjZason Valu,r ff1™ ^di
skrifar gamla takta, sem varð
til þess að Stjörnu-
menn tóku hann úr umferð. Það dugði
ekki - leikmenn HK fögnuðu sigri,
27:24.
Leikur liðanna var skemmtilegur á
að horfa frá upphafi til enda. Ein-
kenndist af mikilli baráttu þar sem
hvorugt liðið ætlaði sér að gefa sitt
eftir. Stjörnumenn hófu leikinn betur
og náðu fljótlega tveggja marka for-
ystu. Leikmenn HK voru ekki á þeim
buxunum að hleypa Stjörnumönnum
fram úr sér og með mikilli baráttu
tókst þeim að halda í við þá og vel það,
því þegar fyrri hálfleikur var flautað-
ur voru leikmenn HK búnir að ná
tveggja marka forystu, 13:11.
HK-menn mættu grimmir til síðari
hálfleiks og með góðri spilamennsku
náðu þeir að halda Stjörnumönnum
vel fyrir aftan sig. I staðinn fyrir að
gefa eftir juku HK-menn forskot sitt
og náðu þeir mest fjögurra marka for-
ystu þegar tíu mínútur voru til leiks-
loka. í lokin gáfu þeir hins vegar að-
eins eftir, en samt sem áður var
öruggur sigur þeirra staðreynd, 27:25.
HK-menn gáfu sig alla í leikinn og
uppskáru eftir því. Sigurður Valur
Sveinsson var góður í fyrri hálfleik áð-
ur en hann var tekinn úr umferð og
náði að mata Alexander Arnarson vel
á línunni. „Það er frábært að leika í
liði með leikmanni eins og Sigurði. Ég
á alltaf von á sendingu er hann fær
knöttinn," sagði Alexander, sem átti
góðan dag og skoraði mörg mörk af
miklu harðfylgi af línunni. „Þessi sig-
ur var kærkominn fyrir okkur eftir
áfallið er við töpuðum fyrir Fram í
undanúrslitum bikarkeppninnar."
Baulað á leikmenn Wuppertal
Leikmenn Wuppertal fengu að
heyra það eftir að þeir töpuðu
á heimavelli fyrir Frankfurt, 26:22.
Þeir voru hreinlega baulaðir niður
af afar óánægðum áhorfendum.
Þá fékk þjálfari liðsins Stefan
Schöne það óþvegið og hávær hróp
um að reka ætti hann strax
glumdu um alla höll. Hann var
púaður niður þegar hann gekk inn
í klefa að leik loknum.
Wuppertal lék afar illa loks þeg-
ar allir leikmenn voru orðnir heilir
og bjuggust menn við mun betri
leik. Dagur Sigurðsson og Heið-
mar Felixson voru ekki meðal
markaskorara, en Valdimar
Grímsson gerði 4 mörk - þar af
þrjú úr vítaköstum, Dimitri Fil-
ippov setti 5 mörk. Stig Rasch var
sem fyrr besti maður liðsins, skor-
aði 9 mörk.
Kiel vann Schutterwald nokkuð
létt 32-21 en helstu máttarstólpar
liðsins þeir Magnus Wislander og
Staffan Olson kvarta undan miklu
álagi. Þeir þurfa að leika yfir 100
leiki á tímabilinu og segja að eng-
inn geti staðist svo mikið álag.
Willstatt vann góðan sigur í
fallbaráttunni og sinn þriðja á
þessu tímabili. Essen tapaði nokk-
uð óvænt fyrir Willstatt, 21:19, eft-
ir að hafa byrjað mjög vel eftir-
vetrarhlé. Magnús Sigurðsson
gerði 3 mörk og Gústaf Bjarnason
2.
Julian Róbert Duranona hefur
ekki náð að stilla fallbyssuna nógu
vel enn sem komið er og er langt
frá sínu besta er Eisenach tapaði
sem fyrr á útivelli - steinlá fyrir
Nettelstedt, 37:24. Þetta er
stærsti sigur Nettelstedt frá upp-
hafi.
Nordhorn vann léttan sigur á
útivelli gegn slöku liði Dormagen
sem er í bullandi fallhættu sem
fyrr, 25:20. Héðinn Gilsson skoraði
3 mörk fyrir Dormagen, en þeir
Daði Hafþórsson og Róbert Sig-
hvatsson 2 hvor.
Stóð ekki við gefin loforð
BERND-Uwe Hildebrandt, framkvæmdastjdri Magdeburg, vandar ekki
umboðsmanninum Wolfgang Gutschov kveðjurnar í nýjasta hefti Handball
Woche. Hann segir Gutschov hafa svikið gefið loforð gagnvart rússneska
leikmanninum Oleg Kulischov, sem meiddist á EM í Króatíu. Gutschov,
sem er umboðsmaður ijölmargra leikmanna, meðal annars íslendinganna
Ólafs Stefánssonar, Dags Sigurðssonar og Valdimars Grímssonar, er jafn-
framt framkvæmdastjóri rússneskalandsliðsins í handbolta. Hildebrandt
segir það dafsakanlegt að setja Kuloschov aftur inná völlinn í úrslitaleikn-
um gegn Svíum þegar Ijóst var að hann var þegar dleikhæfur og segir Gut-
schov hafa brotið gefið loforð um að leikmanninum yrði strax hlíft ef upp
kæmi minnstu meiðsli. „Það erum við sem greiðum leikmanninum laun og
svona meðferð er dþolandi og verður ekki liðin í framtíðinni," segir Hild-
ebrandt.
Eyjamenn lögðu
meistarana
Skapti Öm
Ólafsson
skrifar
ÓHÆTT er að segja að íslands-
og bikarmeistarar Aftureldingar
úr Mosfellsbæ hafi beðið skip-
brot í stórbrotinni í Vestmanna-
eyjum, þar sem þeir réðu ekki
við öfluga vörn heimamanna,
sem fögnuðu sigri 23:19.
Ljóst var að heimamenn komu
mun ákveðnari til leiks og ætl-
uðu sér ekkert annað en sigur og
þrjú mikilvæg stig í
þessum leik. Eyja-
menn voru án síns
besta manns, Miro
Bavisic, sem tók út
leikbann í þessum leik. Það virtist
ekki há liðinu á neinn hátt, því liðið
var að leika sem ein heild. Þessi
„vondi-kafli“ sem virðist hrjá svo
mörg lið í deildinni leit aldrei dagsins
ljós í leik heimamanna, og var ÍBV
örugglega að leika sínar bestu 60
mínútur á þessari leiktíð.
Að sama skapi voru brotalamir í
leik Aftureldingar, bæði í vörn og
sókn. Það sem stóð upp úr í leik liðs-
ins var að Bergsveinn Bergsveins-
son var að verja ágætlega, alls 17
skot. Einn besti leikmaður Aftureld-
ingar og deildarinnar, Bjarki Sig-
urðsson, var lítið með í leiknum, virð-
ist sem meiðsli hijái Bjarka ennþá.
í hálfleik var staðan 11:7, heima-
mönnum í vil.
Strax í upphafi síðari hálfleiks
bættu Eyjamenn við forystuna og
voru komnir með 8 marka forystu
þegar stundarfjórðungur var að
baki. Staðan 15:9. Á þessum kafla
var Gísli Guðmundsson, markmaður
ÍBV, að verja ágætlega. Einnig gekk
3-2-1 vöm heimamanna upp og voru
Mosfellingar bæði hugmyndasnauð-
ir og þungir í sóknarleik sínum og
virtust engin svör hafa við sprækum
Eyjamönnum.
Undir lok leiksins brugðu Mosfell-
ingar á það ráð að leika maður á
mann vörn en allt kom fyrir ekki og
Eyjamenn lönduðu enn einum
heimasigrinum. Lokatölur leiksins,
23:19
Liðsmenn Aftureldingar voru
langt frá sínu besta í þessum leik og
Ijóst er að liðið þarf að fara í nafla-
skoðun ef það ætlar sér titil í ár.
Frammistaða Bergsveins Berg-
sveinssonar í markinu var eina Ijósið
í leik liðsins.
Liðsheildin var sterk hjá Eyja-
mönnum og þeir uppskáru eins og
þeir sáðu. Góð vörn, góður sóknar-
leikur og ágætis markvarsla.
„Þessi leikur var vægast sagt mar-
tröð fyrir okkur. Það virðist sitja í
mönnum að þetta eigi að vera einfalt
og auðvelt en svo er ekki, við verðum
að leggja okkur 100 prósent fram
ætlum við okkur sigur í deildinni.
Liðið er engan veginn að ná saman
eftir áramótin, varnarleikurinn er
„VIÐ unnum á betri vörn og betri markvörslu," sagði Óskar Ár-
mannsson úr Haukum eftir 28:25 sigur í nágrannaslag við FH á
Strandgötunni á laugardaginn. „Mér fannst við hafa yfirburði f
vörninni framan af en held að það hafi komið hik í sóknarleikinn
um miðjan síðari hálfleik eins og oft vill verða þegar þegar lið eru
komin með góða forystu og þá náðu þeir að narta í hælana á okk-
ur,“ bætti Óskar við. Með sigri skutust Haukar upp í fjórða sæti
deildarinnar en FH situr eftir í tíunda.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Liðin skiptust á forystu fyrstu tíu
mínútumar en þá kom kafli
þegar dómarar voru iðnir við að reka
heimamenn útaf.
Það virtist bara
betra fyrir þá því á
meðan bættu þeir
við mörkum og náðu
forystu, sem þeir létu aldrei af
hendi. Munurinn varð mestur 6
mörk um miðjan síðari hálfleik þeg-
ar Haukarnir skoruðu þrjú mörk
einum og tveimur færri. Þá loks bitu
FH-menn í skjaldarrendur og söx-
uðu forskotið niður í eitt mark þrátt
fyrir að Jónas Stefánsson kæmi í
mark Hauka og verði meðal annars
tvö vítaskot. Þegar tvær mínútur
voru til leiksloka kom enn einn vafa-
samur brottrekstur og Brynjari
Geirssyni úr FH var vikið af velli.
Það dugði Haukum til að bæta við
tveimur mörkum og tryggja sér sig-
ur.
Haukar verðskulduðu sigurinn því
liðið barðist sem einn maður svotil
allan leikinn og sýndi mikla skyn-
semi. Magnús Sigmundsson varði
vel og Jónas, sem tók við af honum,
gerði enn betur. Óskar og Halldór
Ingólfsson virtust skora að vild og
Kjetil Ellertsen ásamt Aleaksandr
Shamkuts voru góðir.
„Við vorum alls ekki samstiga í
þessum leik og það var súrt að tapa
en það verður varla verra að tapa
einmitt fyrir Haukum,“ sagði Sig-
ursteinn Arndal, sem átti enn aftur
góðan leik fyrir FH. „Ég tel að við
höfum helst tapað á að við vorum
ekki nógu fastir fyrir í vörninni og
sóknarleikurinn var frekar einhæfur
í lokin þegar flest mörkin komu eftir
einstaklingsframtak." Guðmundur
Pedersen og Gunnar Beinteinsson
áttu einnig góðan leik og Valur Arn-
arsson átti góða innkomu eftir hlé.
Magnús Árnason varði vel fyrir hlé
en tuttugu mínútur liðu af þeim síð-
ari áður en hann varði aftur.
slakur, sóknarleikurinn afleitur. En
hins vegar var Bergsveinn að verja
mjög vel í dag en liðsheildin var
verulega slök. Síðustu tveir leikir hjá
okkur hafa verið hræðilegir og leik-
menn verða að líta í eigin barm og
grafa upp hvað er að og reyna að
laga þetta,“ sagði Bjarki Sigurðsson, ,
fyrirliði Aftureldingar, eftir leikinn.
„Það var vörnin númer 1, 2 og 3
sem var undirstaðan að þessum
sigri. Við komum mun ákveðnari til
leiks og vorum staðráðnir í að vinna
og það tókst,“ sagði Erlingur
Richardsson, fyrirliði Eyjamanna,
eftir leikinn.
„U nn um
á be trí
V ön
IStaðan/B10
■ Úrslit/B10
FOLK
■ í SÍÐARIhálíleik í viðureign ÍBV
og UMFA, tóku Eyjamenn leikhlé
sem væri ekki í frásögur færandi ef
formaður handknattleiksdeildar
UMFA, Jóhann Guðjónsson, hefði
ekki rokið inn á miðjan völlinn og
átti eitthvað vantalað við dómara
leiksins, Einar Sveinsson og Rögn-
vald Erlingsson. Formaðurinn var
fljótlega leiddur af velli og róaður
niður. _
■ ÓVÍST er hvort einn besti leik-
maður 1. deildar karla, Bjarki Sig-
urðsson, verði með í næsta leik Aft-
ureldingar gegn ÍR þar sem hann
er meiddurí hné.
■ MEÐALALDUR leikmanna ÍBV
sem lagði Aftureldingu á laugar-
daginn í 1. deild karla var 22 ár. Þar
af voru fjórir leikmenn sem leika í
3. flokki ÍBV. Leikmennimir fjórir
sem um er að ræða heita Kristinn
Jónatansson, Sindri Ólafsson, Sig-
urður Ari Stefánsson og Sigþór
Friðriksson.
■ MARKVERÐIR liðs ÍBV eru
einnig ungir að árum, Gísli Guð-
mundsson er 22 ára og Kristinn
Jónatansson er 17 ára. Aldursfor-
seti liðsins er Guðfinnur Krist-
mannsson, 29 ára. Sá sem elstur er
í liði Aftureldingar er Alexei Trúf-
an, hann er á 41. aldursári.
■ OLEG Titov, leikmaður Fram,
var í óvenjulegu hlutverki í leiknum
við KA á sunnudagskvöld. í stað
þess að spila á línunni var hann í
hlutverki tökumanns á mynd-
bandsupptökuvél Framliðsins.
Hann mun þó leika með í bikarúr-
slitaleiknum á laugardag.
UJAN Holpert, landsliðsmark-
vörður Þjóðveija í handknattleik,
og markvörður Flensburg lenti í
mikilli lífshættu aðfaranótt sunnu-
dags. Holpert fékk miklar maga-
kvalir og hélt sig vera með flensu,
þegar kvalimar ágerðust var kallað
á neyðarlækni og í ljós kom að hann
var með spmnginn botnlanga og
var gerð aðgerð í skyndi, sem
hreinlega bjargaði lífi hans enda þá
kominn í mikla lífshættu.
■ NORSKI landsliðsmaðurinn
Christian Berge, félagi Holpert hjá
Flensburg.var einnig fluttur á
sjúkrahús á sunnudag með miklar
kvalir í kvið og er talið að um maga-
krampa sé að ræða og verður hann
að liggja nokkra daga á sjúkrahúsi
til rannsóknar.
■ DANIEL Stephan, landsliðsmað- »•
ur og leikmaður Lemgo, lék sinn
seinasta leik á tímabilinu þegar
Lemgo valtaði yfir slakt lið Bad
Schwartau. Hann mun gangast
undir ílókna aðgerð á þumalfingri.
Færa þarf til sinar úr handlegg og
græða á þumalfingur og mun hann
þurfa minnst 4 mánuði til að fá sig
góðan.
'+