Morgunblaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 2
I B ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
■ ARNAR Þór Viðarsson lék allan
leikinn með Lokeren sem vann
stórsigur á Aalst, 5:1, í efstu deild-
inni í Belgíu.
■ GUÐMUNDUR Benediktsson lék
síðustu 15 mínútumar með Geel
sem tapaði, 0:2, fyrir Germinal
Beerschot og er áfram við botninn á
belgísku deildinni.
■ GENK, belgísku meistaramir,
steinlá, 5:0, fyrir Moeskroen og er
heillum horfið. Þórður Guðjónsson
lék allan leikinn með Genk en
Bjami Guðjónsson lék fyrri hálf-
leikinn.
■ HELGI Jónas Guðfinnsson skor-
aði 6 stig og lék í 23 mínútur þegar
RB Antwerpen tapaði, 59:55, fyrir
Oostende í uppgjöri efstu liðanna í
belgísku úrv'alsdeildinni í körfu-
knattleik á sunnudaginn. Oostende
náði þar með tveggja stiga forystu í
deildinni.
■ HERBERT Amarson skoraði 5
stig og lék í 28 mínútur þegar Donar
Groningen tapaði, 50:52, fyrir Ricoh
Astronauts í úrslitakeppninni um
hollenska meistaratitilinn í körfukn-
attleik. Donar er áfram í 6. sætinu.
■ EIRÍKUR Önundarson lék með
félagi sínu Holbæk í úrvalsdeildinni
í danska körfuboltanum um helgina.
Holbæk vann góðan sigur á BMS/
Herlev, 78:57. Eiríkur átti góðan
leik fyrir lið sitt, gerði 22 stig og gaf
13 stoðsendingar.
■ ÓLAFUR V. Júlíusson, knatt-
spymumaður úr Val, er genginn til
liðs við 2. deildarlið HK. Olafur, sem
lék með HK í yngri flokkunum, er 21
árs sóknarmaður og hefur leikið 9
leiki með Val í úrvalsdeildinni.
■ RÍKHARÐUR Daðason skoraði
fyrra mark Viking Stavanger sem
gerði jafntefli, 2:2, við Bryne í æf-
ingaleik á laugardaginn. Ríkharður
gekkst undir aðgerð á hné í gær.
■ BREIÐABLIK sigraði ÍA, 5:3, í
æfingaleik úrvalsdeildarliðanna í
knattspymu á föstudaginn. Kjartan
Einarsson skoraði tvö af mörkum
Kópavogsliðsins sem hafði áður tap-
að, 0:2, fyrir 1. deildarliði FH.
■ JENNY Thompson, sundkona frá
Bandaríkjunum, setti heimsmet í
100 m flugsundi í 25 m laug á heims-
bikarmóti í París á laugardag.
Thompson synti á 56,80 sekúndum
og bætti eigið met frá 1998 um 10/
100 úr sekúndu.
■ IRINA Privalova frá Rússiandi,
einn þekktasti spretthlaupari í
kvennaflokld undanfarinn áratug,
varð í þriðja sæti í 100 m grinda-
hlaupi á móti í Sydney á sunnudag-
inn, hljóp á 13,89 sekúndum. Priva-
lova er nýlega farin að æfa
grindahlaup, eftir að hafa verið í 60,
100 og 200 m hlaupum án grinda.
■ Á sama móti mættust heimsmet-
hafamir í stangarstökki kvenna,
Emma George, Ástralíu, og Stacy
Dragila, Bandaríkjunum. Dragila
stölA 4,30 m og varð önnur, en
George fór yfir 4,15 m og varð að
láta sér lynda þriðja sætið. Alej-
andra Garcia, Árgentínu, sigraði,
stökk 4,30 m en notaði færri tilraun-
ir en Dragila.
Gamall draugur vak
inn upp á Highbury
Arsenal vakti upp gamlan draug
er liðið tók á móti Liverpool á
sunnudag. Lundúnaliðinu hefur
gengið afleitlega í leikjum liðanna
undanfarin ár og þrátt fyrir sóknar-
þunga gekk því allt í mót og tókst
ekki að skora. Steven Gerrard og
Aboubacar Titi Camara gerðu út um
vonir Arsenal um fyrsta sigur þess
gegn Liverpool í 14 leikjum er Gerr-
ard gaf 30 m sendingu inn fyrir vöm
Arsenal þar sem Camara tók við
boltanum og urðu á engin mistök er
boltinn þandi netmöskvana 11 mínút-
um fyrir leikhlé. Táningurinn Gerr-
ard var enn í sviðsljósinu er hann
stöðvaði Fredrik Ljungberg sem var
kominn í ákjósanlegt færi inni í víta-
teig skömmu síðar. Gerrard varð síð-
ar að fara út af er hann meiddist.
Reyndar rak hvert tækifærið ann-
að hjá Arsenal og tréverkið kom Li-
verpool til bjargar eitt sinn er Patr-
ick Vieira átti skot í slána. Önnur
skot lentu í greipum Sander Wester-
veld, sem var öryggið uppmálað í
markinu. Ákafi Ársenal varð þess
valdandi að liðið gleymdi sér í vöm
og litlu munaði að Liverpool tækist
að auka forystu sína undir lokin er
Titi Camara og Danny Murphy náðu
báðir að færa sér mistök í vöm Ars-
enal í nyt. David Seaman varði hins
vegar frá Murphy og hitt skotið fór
himinhátt yfir markið.
Sæti í Meistaradeildinni
í hættu?
Ensk dagblöð segja að Arsene
Wenger, knattspymustjóri Arsenal,
hafi gefið upp von um að liðið eigi
möguleika á sigri í deildinni. Hann
sagði meðal annars fyrir leikinn að ef
liðið tapaði væri það nánast úr leik og
að engin ástæða til að fegra stöðu
þess. Hann hefði jafnframt miklar
áhyggjur af því að liðið kæmist ekki í
Meistaradeild Evrópu að ári. The
Mirror segir að nú taki við barátta
liðsins um að ná þriðja sæti deildar-
innar, sem tryggir sæti í Meistara-
deild Evrópu næsta vetur. Með sigri
er Liverpool einnig komið í baráttu
um að ná þessu eftirsóknarverða
sæti, sem er nánast ótæmandi tekju-
auðlind fyrir evrópsk félög. Mynda-
vélum var beint að Gerard Houllier,
knattspymustjóra Liverpool, þegar
leiknum lauk og á stóram skjá mátti
sjá að honum var augljóslega létt.
Hann taldi eftir leikinn að liðið hefði
alla burði til þess að ná þriðja sætinu.
Ummæli knattspymustjóra Liver-
pool em eðlileg í Ijósi þess að liðið
hefur unnið bæði Leeds og Arsenal á
rúmri viku.
Skytturnar þrjár
björguðu Chelsea
Af einhverjum ástæðum er Gian-
franco Zola haldið á varamannabekk
Chelsea um stundir. ítalinn knái er
síður en svo ánægður með þá þróun
mála og hafa dagblöð í Englandi spáð
því að hann muni halda heim á leið að
loknu tímabilinu í Englandi.
Lundúnaliðin Arsenal og Chelsea höfðust
ólíkt að um síðustu helgi. Gísli Þorsteinsson
fylgdist með leikjum liðanna í höfuðstað
breska konungsveldisins og sá Arsenal bera
á ný skarðan hlut frá borði í viðureign sinni
við Liverpool á Highbury og áframhaldandi
sigurgöngu Chelsea á Stamford Bridge er
liðið lagði Wimbledon.
Frammistaða hans í leiknum gegn
Wimbledon sannaði þó að hann er
síður en svo á síðasta snúningi. Zola
kom inn á seint í leiknum ásamt Tore
Andre Flo og Jody Morris og tókst
þeim að blása lífi í sóknarleik liðsins.
Fram að því hafði hvorki gengið né
rekið upp við mark Wimbledon og
fengu George Weah og Chris Sutton
fá tækifæri til þess að skora og vom
iðulega leiddir í rangstöðugildm
Wimbledon. Því blés ekki byrlega
fyrir Chelsea, því þrátt fyrir sóknar-
þunga náði Andreas Lund, í sínum
fyrsta leik með liðinu, að koma
Wimbledon yfir þegar 17 mínútur
vom til leiksloka. Adam var hinsveg-
ar ekki lengi í Paradís, því Gustavo
Poyet skoraði stórglæsilegt mark af
um 20 m færi á 79. mínútu. Er mark-
ið sagt vera eitt af mörkum ársins í
deildinni.
Wimbledon í úlfakreppu
Eftirleikurinn var Chelsea auð-
veldur því skömmu síðar fylgdi ann-
að mark frá George Weah, er hann
skallaði óvaldaður í markið af stuttu
færi eftir undirbúning frá Zola.
Þriðja markið kom skömmu fyrir
leikslok er Jody Morris kom knettin-
um í netið og hefur liðið nú ekki tap-
að í níu leikjum í röð. Gianluca Vialli,
knattspymustjóri, var að vonum
glaður með leikinn, en hann segir að
Andreas Lund skoraði fyrir Wimbledon gegn Chelsea en það dugði ekki til
og heimamenn fögnuðu sigri.
Kvennalandsíiðinu
boðið til Bandaríkjanna
KNATTSPYRNUSAMBAND íslands hefur þegið boð banda-
ríska knattspyrnusambandsins um að leika tvo kvennalands-
leiki gegn liði heimamanna í byrjun aprfl. Bandarísku konum-
ar era núverandi heimsmeistarar og eru leikirnir gegn ^
fslendingum hugsaðir sem undirbúningur liðsins fyrir Ólymp-
fuleikana í Sydney í september.
íslenska liðið lék tvo leiki við bandaríska liðið fyrir tveimur
árum og töpuðust þeir báðir, 0:6 og 0:1. Leikimir við Banda-
ríkin verða 5. og 8. aprfl og verður fyrri leikurinn leikinn fyrir
luktum dyrum og ekki liggur fyrir hvar hann fer fram, en síð-
ari leikurinn verður í Charlotte og verður sýndur í beinni
sjónvarpsútsendingu ESPN. íslenska liðið heldur utan 3. aprfl
og kemur heim aftur 10. apríl.
MÆ' m h ■ w æ jm __ m — W
ivnstmn i ■ 4« S20T1 st
Evrópubikarmóti
Kristinn Bjömsson, skíðamaður
frá Ólafsfirði, keppti í fjóram
Evrópubikarmótum í svigi og stór-
svigi í síðustu viku. Hann kláraði að-
eins eitt þessara móta, keppni í svigi
sem fram fór í Ofterschwang í
Þýskalandi á sunnudag. Þar hafnaði
hann í 14. sæti og var 2,67 sekúndum
á eftir sigurvegaranum Mario Matt
frá Austurríki. Svíinn Martin Han-
son, æfingafélagi Kristins, varð í 7.
sæti í sama móti, 0,97 sekúndum á
undan Kristni.
Keppt var í svigi á sama stað á
laugardag og þá kláraði Kristinn
ekki.
Hann keppti einnig í tveimur stór-
svigsmótum í Evrópubikarnum í
Sella Nevea á Ítalíu 9. og 10. febrúar
og féll úr leik í fyrri umferð þeirra
beggja.
Hann keppir í svigi á heimsbikar-
mótinu í Adelboden í Sviss á sunnu-
daginn kemur. Það verður áttunda
svigmót heimsbikarsins í vetur, en
þau era alls ellefu talsins.