Morgunblaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 12
mmm
Tiger
Woods
Islandsmethafinn í hástökki karla,
Einar Karl Hjartarson, ÍR, gerði
atlögu að hálfsmánaðargömlu
Islandsmeti sínu í
- jvar hástökki innanhúss á
Benediktsson mótinu, 2,24. Reyndi
skrifar hann að fara yfir 2,25
metra, bæta metið
um einn sentímetra og tryggja sér
um leið farseðil á Ólympíuleikana í
Sydney. Þrjár tilraunir Einar við
2,25 mistókust allar en greinilegt að
Einar er á góðu róli um þessar
mundir og fróðlegt verður að fylgj-
ast með framgöngu hans á Evrópu-
meistaramótinu innanhúss í Gent í
Belgíu um aðra helgi.
Einar Karl stökk yfir 2,10 og 2,15
metra í fyrstu tilraun og síðan 2,20 í
annarri. Ólympíulágmarkið var hon-
um hins vegar óyfirstíganlegur
þröskuldur í þetta sinn, en hann hef-
. ur nægan tíma fyrir sér.
Eins og svo oft áður á Meistara-
mótum síðustu ára beindust flestra
augu að Jóni Amari Magnússyni.
Hann sýndi það á Meistaramótinu í
fjölþraut fyrir skömmu og nokkru
síðar á sjöþrautarmóti í Eistlandi að
hann er kominn á mikinn skrið. Ekki
dró úr skriðinum að þessu sinni.
Reyndar kom veður í veg fyrir að
hann keppti í 60 m hlaupi. Þar kom
Reynir Logi Ólafsson, Ármanni, á
6,96 sek., annar varð Bjarni Þór
TVaustason, FH, á 7,08 og þriðji
Sveinn Þórarinsson, FH, 7,12. Reyn-
ir hljóp reyndar á 6,95 í undanriðl-
um, það er aðeins 5 hundraðshlutum
úr sekúndu frá lágmarki fyrir EM í
, Gent.
Ófærðin kom ekki í veg fyrir að
Jón Amar mætti galvaskur til leiks í
langstökki og kúluvarpi á laugardag-
inn. Hann sigraði af öryggi í lang-
stökki, stökk lengst 7,58 m, en stökk
auk þess 7,55 og 7,49. Þrjú stökk
vom hins vegar ógild. Jafn og góður
árangur hans nú auk íslandsmets-
ins, 7,76 m á dögunum, undirstrika
að vænta má framfara í greininni á
árinu, haldi fram sem horfir.
Fjórar af sex tilraunum Jóns Am-
ars í kúluvarpinu vom gildar og vom
köstin fjögur öll yfir 16 metrar,
*■ 16,10, 16,18, 16,20 og það lengsta
16,21. Lengst hefur Jón varpað 16,37
innanhúss, en 16,61 utandyra.
íslandsmetið í 60 m grindahlaupi
féll síðan á sunnudaginn. Þrátt fyrir
að Jón fengi nær enga keppni í
hlaupinu var hann einbeittur og
Morgunblaðið/Þorkell
Jón Amar Magnússon varpaði fjórum sinnum yfir 16 metra í
kúluvarpi. Hér býr hann sig undir að varpa kúlunni.
Morgunblaðið/Þorkell
Einar Karl Hjartarson reyndi við met í hástökki, 2,25 metra, en
tókst ekki að komast yfir. Hér lyftir hann sér af öryggi yfir 2,20.
ákveðinn. Kom hann í mark á 7,98
sekúndum og bætti eigið met um 1/
100 úr sekúndu. Það setti hann í
sjöþrautarkeppni á sænska meist-
aramótinu í janúarlok 1996. Ari síðar
jafnaði Jón reyndar eigið met í
sjöþrautarkeppni heimsmeistara-
mótsins í París. Annar í grinda-
hlaupinu varð Ingi Þórisson, FH, á
8,68. Fleiri komust ekki til keppni í
greininni á réttum tíma vegna
ófærðar.
Björgvin Víkingsson, FH, bætti
drengjametið í 800 m hlaupi þegar
hann kom fyrstur í mark á 1.59,6.
Annar efnilegur hlaupari, Eva Rós
Stefánsdóttir, FH, sigraði örugglega
í 800 m hlaupi kvenna á 2.22,5, rúm-
lega 11 sekúndum á undan Dagnýju
Huldu Erlendsdóttur, Armanni.
Elías Bergur Sigurbjörnsson, ÍR,
bætti eigið unglingamet í 60 m, hljóp
á 7,08 sekúndum í undanúrslitum.
Silja Úlfarsdóttir, FH, sigraði í 60
m hlaupi kvenna á 7,71 sekúndu.
Setti hún um leið unglingamet og var
aðeins 1/100 frá lágmarki fyrir EM
innanhúss í Gent. Hafði Silja tals-
verða yfirburði í hlaupinu því önnur
varð Þórunn Erlingsdóttir, FH, á
8,01 og Guðný Eyþórsdóttir, IR,
hlaut bronsverðlaun á 8,11. Silja,
Þórunn og Guðný eru allar jafngaml-
ar, fæddar 1981.
Guðný mætti hins vegar sterk til
leiks í langstökki og sigraði með 5,60
metra stökki, var fjórðungi úr metra
á undan Gunnhildi Hinriksdóttur,
HSK, en hún varð önnur. Þriðja sæt-
ið kom í hlut Vilborgar Jóhannsdótt-
ur, UMSS, 5,27 m.
Sólveig Björnsdóttir, Breiðabliki,
hélt upp á hálfrar aldar afmæli fé-
lags síns og færði því íslandsmeist-
aratitil í 60 m grindahlaupi, kom í
mark á 8,87 sekúndum og bætti sinn
persónulega árangur um leið. Önnur
varð Anna M. Ólafsdóttir, FH, á 9,43
og þriðja varð Vilborg Jóhannsdótt-
ir, UMSS, á 9,67.
Keppni í þrístökki karla var afar
jöfn og spennandi og munaði aðeins
þremur sentímetrum á fyrsta og
þriðja manni. Örvar Ólafsson, HSK,
stökk lengst 14,40 metra. Jónas
Hallgrímsson, FH, varð annar með
14,37 metra og jafnlangt stökk Sig-
tryggur Aðalbjörnsson, ÍR. Jónas
átti hins vegar lengri stökk en Sig-
tryggur þegar önnur stökk í keppn-
inni voru skoðuð og hlaut því silfur-
verðlaunin verðskuldað.
Hápunkturínn var
met Jóns Amars
stöðvaður
PHIL Mickelson stöðvaði
sigurgöngu Tiger Woods í
fyrrinótt þegar Buick In-
vitational-golfmótinu f
PGA-mótaröðinni lauk í La
Jolla í Kaliformu. Woods
hafði unnið sex mót í röð og
virtist ætla að leika ná-
kvæmlega sama leik og í
næsta móti á undan þegar
hann vann upp sjö högga
forskot efstu manna. En
Mickeison var sterkastur á
endasprettinum og Iauk
keppni á 270 höggum. Tig-
er og Shigeki Maruyama
urðu jafnir í 2.-3. sæti á 274
höggum. Þetta var fyrsti
mótssigur Mickelsons í tæp
tvö ár.
JÓN Arnar Magnússon, tug-
þrautarkappi úr Tindastóli,
sýndi það á íslandsmeistara-
mótinu innanhúss um helgina
að hann er á miklum skriði um
þessar mundir og virðist gróinn
sáranna sem slógu hann út af
laginu lungann úr síðasta ári.
Jón Arnar sigraði í þremur
greinum á Meistaramótinu og
náði góðum árangri. Hæst reis
fslandsmet hans í 60 m grinda-
hlaupi, 7,98 sekúndur. Bætti
hann eigið met um einn hundr-
aðshluta úr sekúndu.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR / MEISTARAMÓT ÍSLANDS