Morgunblaðið - 18.02.2000, Page 10

Morgunblaðið - 18.02.2000, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ ,10 C FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 BÍÓBLAÐIÐ aNRNMHMHHHHHHHMHMMHHMMMMHMMMMHMMHMMHHMMHMHMHMHMMMHSMMMHMHMHMMMHMHMHMIMMMMN^^ Frumsýning Regnboginn, Sambíóin Álfabakka og Borgar- tbíó Akureyri sýna myndina Hinn hæfileikaríka Ripley eða „The Talented Mr. Ripley“ með Matt Damon og Gwyneth Paltrow. % a a Leikarar: TOM Ripley (Matt Da- mon) þráir hið kæruleys- islega unaðslíf í fallegu landslagi Ítalíu á ofan- verðum sjötta áratugn- um, líf hinna ríku, líf for- réttindastéttarinnar. Hann lifir ekki slíku lífi. Það gerir Dickie Green- leaf (Jude Law) hins veg- ar. Þegar faðir Dickies, sem er auðugur skipa- smiður, biður Tom Ripl- ey að gerast sendisveinn sinn og fara suður til Ítalíu að hitta Dielde og reyna að fá hann til þess að snúa aftur til Banda- ríkjanna, gera Dickie og kærastan hans, Marge Sherwood (Gwyneth Pattrow), sér enga grein íyrir til hvaða ráða sendi- sveinninn er tilbúinn að grípa til þess að öðlast þann munað sem þau lifa í. Það er betra í hans huga að þykjast vera einhver annar en hann er en að vera algjört núll og nix. Þannig er sagan í nýrri mynd leik- stjórans Anthony Minghellas, Hinn hæfileikaríki Ripley, sem frumsýnd er um helgina með þeim Matt Da- mon, Gwyneth Paltrow ogJude Law í aðalhlutverkum. Mlnghella gerir sjálfur handritið sem hann byggir á sögu eftir Patricia Highsmith. Með önnur hlutverk fara Jack Daven- port, Philip Seymour Hoffman og Jude Law og Gwyneth Paltrow: Leika bandarískt par á Ítalí James Rebhorn. Hinn hæfileikaríki Ripley er fyrsta myndin sem Mingh- ella gerir eftir að hann sendi frá sér Óskarsverðlaunamyndina Enska sjúklinginn og var margt af tækni- fólkinu sem vann með honum að þeirri mynd á bak við myndavélina við gerð Ripleys. Má þar nefna fólk eins og klipparann Walter Murch, kvikmyndatökumanninn John Sea- le, búnaingahönnuðinn Ann Roth og tónsmiðurinn Gabriel Yared. Anthony Mlnghella segist strax hafa fengið áhuga á að kvikmynda sögu Highsmith þegar hann las hana fyrir nokkrum árum en hún er ein af nokkrum þar sem Ripley þessi kem- Matt Damon, Gwyneth Paltrow, Jude Law, Jack Davenport, Philip Seymour Hoffman og James Rebhorn. Leikstjóri: Anthony Minghellas (Truly, Madly, Deeply, Mr. Wonderful, The English Patient). ur við sögu. „Hugmyndin um að einhver sé tilbúinn að skipta algerlega um pers- ónu til þess að verða einhver annar en í miðpunkti sög- unnar,“ er haft eftir Ming- hella. „Þessi knýjandi þörf er sprottin af óánægju með sitt eigið sjálf, jafnvel sjálfs- hatri.“ Og áfram heldur Ming- hella: „Flest okkar, held ég, verðum óánægð með okkur sjálf á einhverjum tíma- punkti í lífi okkar, finnum til vanmáttakenndar, erum ekki ánægð með hlutskipti okkar og vildum að við værum einhver annar. Þetta er nokkuð sem við getum öll skilið og samsamað okkur við og það var þetta sem í rauninni heillaði mig í sögunni." Myndin var tekin á níu ólíkum tökustöðum á Ítalíu og þurfti kvik- myndahópurinn að leggjast í mikil ferðalög um landið en kvartaði ekki undan náttúrufegurðinni. Matt Da- mon og breski leikarinn Jude Law komu fljótlega til greina í aðalhlut- verkin en fyrst og fremst skrifaði Minghella handritið með Gwyneth Paltrow í huga. „Hún var sú fyrsta sem ég réð,“ er haft eftir honum. Frumsýning Bíóhöllin, Kringlubíó, Stjörnubíó og Nýja bíó, Akureyri, frumsýna spennumyndina Þrjá kónga eöa „Three Kings“ með George Clooney, Mark Wahlberg og lce Cube FÍáa&á r d a ga FLÓABARDAGA er lokið og þrír bandarískir hermenn vilja halda heim í heiðardalinn ríkari en þeir voru. Einn af þeim er Archie Gates major (George Clooney), sem fer á eftirlaun eftir tvær vikur. Annar er Troy Barl- ow (Mark Wahlberg), sem nýlega varð faðir. Sá þriðji er Chief Elgin (lce Cube), sem er frá Detroit í fjög- urra mánáða leyfi frá störfum. Þeir komast að því að Saddam Hussein rændi Kúveita heilmikl- *’ um gullbirgðum og þessir þrír her- menn ásamt að- stoðarmönnum eiga ekki í neinu sálarstríði þegar þeir ákveða að ræna því aftur frá Hussein eftir að þeir komast yfir kort sem vísar leiðina. En þeir upplifa í millitíðinni hvemig stríðið hefur far- ið með landsmenn Husseins og hvemig uppreisnaröfl innanlands, *. hvött áfram af Bush Bandaríkjafor- seta, eru barin niður og þeir verða að endurhugsa áætlun sína. Þannig er söguþráðurinn í banda- rísku spennumyndinni Þremur kóng- um eða „Three Kings" með George Clooney, Mark Wahlberg og lce Cube í aðalhlutverkum, en leikstjóri og handritshöfundur er David O. Rus- ! sell. Með önnur hlutverk fara Spike mmmmmnmmmmmmmwmmwmmmmmmmm Jonze, Nora Dunn, Jamie Kennedyog CHffCurtis. Höfundur myndarinnar, Russell, segist hafa eytt átján mánuðum í rannsóknir á Flóabardaga og eftir- mála stríðsins áður en hann settist niður og skrifaði handrit myndarinn- ar. „Það eina sem ég vissi áður en ég lagðist í rannsóknir mínar var að við hefðum farið til Miðausturlanda og hrakið Saddam Hussein frá Kúv- eit,“ er haft eftir honum. „Þegar ég skoðaði málið nán- ar komst ég að því að Hussein var enn við völd og George Bush hvatti borg- ara Iraks til þess að rísa gegn hon- um og sagði, við skulum hjálpa ykk- ur. Fólkið efndi til uppreisnar og við gerðum ekkert til þess að koma því til aðstoðar. Það var sallað niður af sínum eigin her.“ Og Russell heldur áfram: „Mér fannst að þetta gæti verið athyglis- verður bakgmnnur í sögu um hóp af bandarískum hermönnum sem halda inn í þetta súrrealíska land sem írak var eftir Flóabardaga. Þeir halda að í Irak sé allt stoppfullt af farsímum, lúxusbílum og stolnu herfangi frá millunum í Kúveit og þeir vilja kló- festa eitthvað af því. En þegar þeir halda inn í landið blasir við þeim Mark Wahlberg: Einn af hermönnunum sem ætla að auðgast á Flóabardaga. George Clooney: Fer fyrir hópi bandarískra hermanna í leit að gulli f íran í myndinni Þremur kóngum. nokkuð sem fær þá til þess að skoða hugsinn." „Ég hringdi í Russell og lét hann vita að ég hefði áhuga á að leika í myndinni hans,“ er haft eftir leikar- anum Clooney, sem þekktastur er fyrir leik sinn í Bráðavaktinni og myndum eins og Batman ogRobin og „Out ofSight“. Hann lagði talsvert á sig til þess að hreppa hlutverkið, elti Russell m.a. til New York til þess að ná fundi hans, og loks gaf leikstjórinn eftir. HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHi Three Kings Leikarar________________________ George Clooney, Mark Wa- hlberg, lce Cube, Spike Jonze, Nora Dunn, Jamie Kennedy og Cliff Curtis. Lelkstjóri David 0. Russell (Spankingthe Monkey, Flirting With Disaster). Fegurðarsamkeppnin er í vændum í smábænum Mount Rose í Minnesota og hún setur allt á annan endann. A meðal kepp- enda eru Becky Leeman (Denise Richards), ger- spilltur stelpukjáni af moldríku foreldri og dótt- ir gamals sigurvegara í keppninni, Glady Leem- an (Kirstie Ally). Helstu hæfileikar Beckyar eru að hafa dómara keppn- innar góða. Helsti keppinautur hennar er Amber Atkins (Kirsten Dunst) sem dreymir um að fá að lesa fréttir í sjónvarpi og að komast sem lengst í burtu frá Mount Rose og sinni elskandi móður Annette (Ellen Barkirí). Þannig er söguþráður- inn í bandarísku gaman- myndinni Fegurðarsam- keppninni eða „Drop Dead Gorgeous", sem sýnd er í Háskólabíói með Denise Richards, Kirstie Ally, Ellen Barkin og Kirsten Dunst. Leikstjóri myndarinnar er Michael Patrick Jann en handritshöfundur- inn heitir Lona Williams. Henni datt í hug að gaman væri að skrifa um eldheita fegurðarsam- keppni í amerískum smábæ, sérstak- lega þar sem hún hafði einu sinni tekið þátt í slíkri keppni í Minnesota. „Það er ekki eins og ég hafi verið alin upp til þess að taka þátt í fegurðar- samkeppnum," er haft eftir henni, „en eins og einn keppandinn í mynd- inni segir, Ef þú ert sautján ára og hefur eitthvað smávit í kollinum er margt verra sem þú getur tekið þér fyrir hendur." Williams segist byggja handrit sitt á því sem hún þekkir hafandi tekið þátt í fegurðarsamkeppni og sum at- riðin hafi hún sjálf upplifað. „Ég klippti til dæmis einu sinni á borða þegar tekið var í notkun nýtt skolp- ræsikerfi í bænum mínum,“ er haft eftir henni. Hún segist alltaf hafa verið hálfutangátta í heimi fegurðar- dísa og notað tímann til þess að fylgj- ast með, horfa á það sem gerðist og kynnast fyrirbærinu fegurðarsam- keppni. Galdurinn, segir hún, er að taka keppni af þessu tagi ekki of hátíð- lega. „Því alvarlegar sem fólk lítur á Kirstie Alley í hlutverki metnaðargjarnrar móð- ur: ígamanmyndinni Fegurðarsamkeppnin. Drop Dead Gorgeous Leikarar: Kirstie Alley, Ellen Barkin, Kir- sten Dunst, Denise Richards. Leikstjóri: Michael Patrick Jann (The State á MTV). hlutina því fyndnara verður það og því auðveldara er að grínast með það,“ segir hún. Kvikmyndaframleiðandinn Gavin Polone keypti þegar handritið af Williams því hann sá í því skemmtun fyrir bæði foreldra og unglinga. „Þetta var eitt fyndnasta handrit sem ég hef nokkru sinni lesið,“ segir framleiðandinn. „í Bandaríkjunum snýst allt um sigurvegara. Við viljum eiga hetjur sem ná á toppinn og sigra alla aðra og um það snýst í raun og veru hver einasta fegurðarsam- keppni." Polone fékk leikstjórann Michael Patrick Jann til þess að leikstýra myndinni en hann hafði unnið við gerð gamanþáttaröð á MTV sem hét Ríkið. „Michael hafði virkilega góðan skilning á því sem við vorum að hugsa," segir framleiðandinn. wm/mmmwmmwmmwmmmmwmwwBmmmmBwmm&ffiwmmwBwwwmwwmmmwmmsBmwmmmwi Frumsýning Frumsýning/Háskóla- bíófrumsýnir bandarísku gamanmyndina Fegurðarsamkeppnina eöa „Drop Dead Gorgeous“ meö Kirstie Alley og Ellen Barkin í aðalhlutverkum. Denise Richards-.Leikur eina af stúlkunum sem taka þátt í fegurðar- samkeppninni í smábænum Mount Rose. fegu rðarsamkeppnT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.