Morgunblaðið - 07.04.2000, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTIÍDAGUR 7. APRÍL 2000 C 5
BÍÓBLAÐIÐ
V
Hoffman og DeNiro: Kona læst ílíkama karlmanns og harðjaxl, sem lamast eftirslag.
fljótir að dæma fólk. Ég er ekkert skárri. Ég á
óskaplega erfitt með að þola óumburðarlyndi
og þegar ég hitti þannig fólk langar mig hrein-
lega til að ganga frá því!“ segir Schumacher og
glottir og bætir við að þetta umburðarlyndi
megi sjá í einu atriði „Flawless" þar sem sam-
kynhneigðir repúblikanar reyna að fá drag-
drottningarnar til að kasta kjólunum og fara í
öryggisbelti jakkafatanna. „Þegar hlutar
minnihlutahóps fara að segja öðrum innan
sama hóps að þeir séu ekki nógu góðir er of
langt gengið. Það er bara eins og „Animal
Farm“ eftir Orwell þar sem sum dýrin eru
jafnari en önnur.“
En spurningin um karlmennskuna er áhuga-
verð. Hvað gerir karlmann að karlmanni?
„Það sama og það sem gerir fólk að góðum
manneskjum. Ég held að við eigum öll góða
kosti þrátt fyrir að vera gallagripir. Það
ski'ýtna er að til þess að geta verið hugrökk
þurfum við að vera gungur, til þess að vera gef-
andi þurfum við að geta þegið og svo framveg-
is. Þú sérð hjá litlum börnum að þau hugsa allt-
af fyrst og fremst um sig og foreldrarnir þurfa
að kenna þeim að deila leikföngunum með vin-
unum. Ég held að samhygð sé eitthvað sem
maðurinn þarf að læra, það sé honum ekki eðl-
islægt. Enda geta börn verið voðalega grimm
eins og margir muna eftir úr sinni æsku,“ bæt-
ir hann við og horfír ábúðarfullur á blaðamann.
„Samkennd, hugrekki, réttlætiskennd,
hreinskilni en fyrst og fremst samúð og vænt-
umþykja eru allt tilfinningar sem við þurfum
að tileinka okkur á lífsleiðinni. En það eru ein-
mitt þessir kostir sem eru mikilvægustu gjafir
hverrar manneskju til annarra."
Öll dýrin í skóginum geta verið vinir. Eru
það þau skilaboð sem þú vilt að fólk sjái í
„Flawless"?
„Jaa,“ segir hann og brosir út í annað. „Ef
fólk vill sjá „Flawless" sem gamanmynd er það
í fínu lagi, enda er hún bráðfyndin. En það
væri samt líka gaman ef einhverjir fara að
hugsa um mannleg samskipti og hvernig lífið
getur verið miklu skemmtilegra ef „öll dýrin í
skóginum eru vinir“. Og svo ég minnist aftur á
merkimiðana sem við viljum hengja á fólk þá
er Rusty í Flawless hvorki hommi né dragdr-
ottning. Hann er kona sem er föst í líkama
karlmanns. Það eru margir í þessari stöðu sem
lifa mjög einangruðu lífi því jafnvel innan sam-
félags samkynhneigðra eru þessir einstakling-
ar úti á jaðri. En maðurinn hefur alltaf verið
hræddur við hið óþekkta og þess vegna er
betra að búa til merkimiða til að láta a.m.k. líta
svo út fyrir að ekkert geti komið á óvart.“
Nú ert þú fæddur árið 1939, sama ár og
seinni heimsstyrjöldin hófst...
„Já, þegar Hitler réðst inn í Pólland...“
Finnst þér karlmennskuímyndin ekki hafa
breyst talsvert á þessum árum?
„Það virðist vera á yfirborðinu. Ég las um
daginn bókina „Stiffed“ eftir kvenréttindakon-
una Susan Faludi þar sem hún varpar fram
þeirri kenningu að karlmenn í dag eigi í krísu
vegna þess að þeir geta ekki fundið þá sam-
kennd sem samherjar upplifa í stríði. Ég er
ekki viss um að þetta sé rétt kenning, en hún
er áhugaverð engu að síður. En ég held að
þrátt fyrir að margir telji að karlmenn séu
opnari í dag heldur en þeir voru fyrr á tímum
séu samt flestir hræddir við að sýna veikleika
opinberlega. Þú sérð ekki karlmenn sitja sam-
an og ræða um vandamál sín, nema kannski á
AA-fundum eða annars staðar þar sem fólk
sem hefur beðið einhvers konar skipbrot í lífi
sínu er að reyna að púsla brotunum saman. Þú
sérð t.d. hvemig Walt (De Niro) breytist við
það að fá slag. Ég er alveg fullviss um það að
hefði sú ógæfa ekki hent hann myndi hann
aldrei hafa opnað fyrir vináttu við Rusty. En
það sem gerist með Walt er að eftir slagið er
hann kominn í svipaða stöðu og Rusty. Hann
er allt í einu kominn í líkama sem hann vill ekki
vera í. Þá neyðist hann til að endurskoða við-
horf sitt til lífsins. Þegar ég skrifaði handritið
sá ég þá að mörgu leyti sem sömu persónuna.
Þeir eru báðir dálítil hörkutól en á sama tíma
eru þeir báðir viðkvæmir og hræddir við höfn-
un. Um leið og þeir kynnast og samþykkja
hvor annan fylgja aðrir í kjölfarið."
Uppgötvað marga leikara
Rusty segir líka á einum stað í myndinni að
þeir fordómar sem hann þurfi að kljást við
daglega krefjist miklu meiri karlmennsku en
Walt hefði nokkum tíma sýnt.
„Já, það er líka satt. Imyndaðu þér bara
manneskju í þessari stöðu. í lestinni, úti á göt-
um, hvert sem þeir fara mæta þeir óvild og for-
dómum umhverfisins. Það þarf ekkert smá-
ræðis hugrekki til að geta horfst í augu við það
á hverjum degi, bara til að geta verið maður
sjálfur."
Þú hefur haft það orðspor að hafa uppgötvað
margar stjörnur samtímans, eins og Juliu
Roberts, Rob Lowe, Emilio Estevez, Demi
Moore, Matthew MacConaughey og fleiri. Og
nú hefur þú fundið Philip Seymour Hoffman í
hlutverk Rusty á móti stórstiminu Robert De
Niro.
„Þegar ég vel í hlutverk lít ég fyrst og
fremst á leikarann, en ekki hvort viðkomandi
sé frægur eða ekki. Það hefur oft gengið upp
hjá mér eins og þú nefndir. Núna var ég líka
mjög heppinn með leikarana mína. Ég hef ver-
ið mikill aðdáandi PhiHps síðan ég sá hann i
„Scent of a Woman“ og vissi af hlutverkaferU
hans að hann fer þangað sem enginn þorir að
fara. Ég hefði t.d. verið í slæmum málum ef
PhiHp hefði ekki tekið hlutverkinu, því ég hafði
engan annan í bakhöndinni sem hugsanlegan
Rusty. En ég er svo heppinn að góðir leikarar
neita ekki góðum hlutverkum. Sömu sögu má
segja um Robert De Niro. Þegar hann sam-
þykkti að taka að sér hlutverk Walts vissi ég að
enginn gæti gert það betur. Hann sýndi ótrú-
lega fagmennsku og lagði á sig mikla vinnu við
persónusköpunina."
En ef þú Htur á kvikmyndimar þínar sem
þín listrænu afkvæmi hvert er þá uppáhaldið?
„Flawless er fjórtánda bamið mitt, það
yngsta og auðvitað í mestu uppáhaldi núna,“
segh' Schumacher og verður heimilislegur á
svip við þessa líkingu. „En maður elskar böm-
in sín út frá mismunandi forsendum. Stundum
þykh manni vænst um þau sem hafa verið erf-
iðust, því þau hafa kennt manni einhverja lexíu
sem maður þurfti að læra. „St. Elmos Fire“ og
„Lost Boys“ vora góðar fyrir mig sem leik-
stjóra og það var mjög gaman að vinna við
þær. „Cousins" var líka mjög skemmtileg og
frábært að leikstýra Isabellu Rosselini og Ted
Danson í dásamlegu umhverfi Vancouver þar
sem myndin var tekin upp. „Flatliners" var
líka frábærlega gaman að taka og skemmtileg-
ur leikhópur. Ég held að ég hefði getað gert
betur í „Dying Young“ en samt þykir mér
voðalega vænt um þá mynd. En ég hugsa að
„Falling Down“ sé ein af mínum bestu mynd-
um; þar spilar líka frábært handrit og góður
leikur stóra rallu. Batman-myndirnar vora
svolítið erfiðari því þær vora í rauninni ekki
mitt hugarfóstur. Það var mikil pressa á mér
og miklar væntingar, bæði um gott gengi í bíó-
húsunum og einnig frá aðdáendum teikni-
myndasagnanna sem vora ekki allir ánægðir
með mína nálgun. En þú getur aldrei gert alla
ánægða. Þannig er það bara. En þegar lít yfir
þennan stóra barnahóp get ég samt hugsað
með mér: Þið erað öll ágæt og ég vildi ekki
skipta á neinu ykkar!“
Nú era margar myndanna mjög ólíkar og þú
virðist iðulega fara á nýjar slóðir í hverri
mynd.
„Margir leikstjórar halda sig mjög fast við
ákveðin þemu, eins og Alfred Hitchcock og
Woody Allen, sem gengur mjög vel upp fyrir
þá. En minn uppáhaldsleikstjóri er Billy Wild-
er og allar hans myndir eru ólíkar hver ann-
arri. En mitt helsta markmið í kvikmyndum er
að skemmta fólki og segja þeim áhugaverðar
sögur. Og það sem mér finnst áhugavert
hverju sinni breytist með hverri mynd.“
Dogma-mynd
í farvatninu?
Hvað er á döfinni hjá þér næst?
„Næsta myndin mín er um hóp ungra her-
manna sem era að fara til Víetnam. Arið er
1971 og þeir era að ljúka við þjálfun í Suður-
ríkjunum. Þetta var mjög erfiður tími í Banda-
ríkjunum og mér finnst áhugavert að kanna
hvað fær fólk til að fylgja skipunum í blindni,
jafnvel gegn betri vitund. Og ég ætla að gera
þessa mynd fyrir helmingi minni pening held-
ur en ég gerði „Flawless“ fyrir. Ég var mjög
hrifinn af dönsku dogma-myndunum, Veisl-
unni og Fávitunum, og hef hugsað mér að gera
nýju myndina svolítið í þeim anda. Skera niður
allt óþarfa dót. Kannski fæ ég aldrei aftur inn-
göngu í Hollywood...“
En þetta er karlmennskuleg og djörf
ákvörðun...
„Já, finnst þér ekki. Og ég hef aldrei verið
ánægðari.“
Maestro
ÞITT FÉ
HVAR SEM
ÞÚ ERT
W f v
ccessoTVZf
Sprenghlægilegt verð!
Skart og klíítar kr. 150 - Töskur kr. 500 -
Regnhlífar og sólgleraugu kr. 200 -
Hufur og hattar kr. 500-1000 - Buxur kr. 1000 -
Pils frá kr. 800-1.500 - Kjólar frá 1.250-3.000 -
Stutterma jakkar kr. 2.000 - Síðerma jakkar kr. 2.500
Opið alla daga frá kl. 12-18