Morgunblaðið - 07.04.2000, Page 6
6 C FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BIOBLAÐIÐ
Frumsýning Háskólabíó frumsýnir gamanmyndina Aö vera
John Malkovich eöa „BeingJohn Malkovich“ eftirSpike Jonze
með John Cusack í aðalhlutverki.
Craig Schwart (John Cu-
sack) er á barmi örvænt-
ingar. Hann er hæfileika-
ríkur leikbrúðustjórnandi
en svo virðist sem New
York hafi ekkert með
slíka hæfileika að gera.
Hann hefur verið kvæntur
Lottu (Cameron Diaz) í tíu
ár en hún starfar í gælu-
dýrabúð og er vinnualki.
Hjónabandið er litlaust
þegar best lætur. Þau
eiga enga peninga, engar
ástríður, engar flóttaleið-
CORP
Craig þiggur í örvænt-
ingu sinni starf hjá Lest-
er- fyrirtækinu á 71/2 hæð í Mertin-
Flemmer byggingunni á Manhattan.
Hann verður strax ástfanginn af
Maxine hinni fögru (Catherine Keen-
er) en því miður er ástin alls ekki
endurgoldin.
En svo gerast þau undur að Craig
finnur leynilegan inngang á skrifstof-
unni sinni og þegar hann gætir betur
að kemst hann að því að í gegnum
þennan inngang getur hann komist
inn í höfuðið á leikaranum John Mal-
kovich. Og það er aðeins byrjunin...
Þannig er söguþráðurinn í gaman-
myndinni Að vera John Malkovich
eða „Bcing John MaIkovich“ sem
Spike Jonze leikstýrir. Með aðalhlut-
verkin fara John Cusack, Cameron
Diaz, Catherine Keener, Orson Bean,
Mary Kay Place, Charlie Sheen og
svo auðvitað sjálfur John Malkovich.
Höfundur handritsins er Charlie
Skrifstofa Cusacks: Vettvangur undarlegra at-
burða á 7 % hæð á Manhattan.
John Malkovich
Leikarar:
John Cusack, Cameron Diaz,
Catherine Keener, Orson Bean,
Mary Kay Place, Charlie Sheen
ogJohn Malkovich.
Leikstjóri:
Spike Jonze.
Kaufman en einn framleiðandanna er
Steve Golin, sem áður var með Sigur-
jóni Sighvatssyni hjá Propaganda
Films.
John Cusack, sem sjálfúr hefur
duflað við handritsgerð, segir um
myndina að hún sé „byggð á sjúkleg-
ustu hugmynd sem hægt er að hugsa
sér. Hún er gersamlega frumleg,
gersamlega ný, snúin, geðveikisleg,
Brúðustjórnandinn: John Cusack.
margræð, allt þetta og meira til.“
Þegar leikkonan Cameron Diaz sett-
ist niður með handritið minnist hún
þess að hún hafi verið farin að hlæja
„eftir þrjá blaðsíður. Og þegar ég
komst á síðu tíu hugsaði ég með mér,
hvað gerist næst? Þetta er svo stór-
kostlega skrítið."
Handritshöfundur Kaufman segir:
„Ég skrifaði „Að vera John Malko-
vich“ í hálfgerðri blindni án þess að
hafa söguþráð að vinna eftir, án þess
að vita í raun hvað ég var að fara út í.
Ég hef ekki áhuga á að vinna öðru-
vísi. Það er mikilvægt fyrir mig að
hafa ekki kort til þess að fara eftir.
Þannig get ég komið sjálfum mér sí-
fellt á óvart. Ég hafði í huga nokkrar
persónur og einstaka efnisþætti sem
ég vildi koma inná vegna þess að þeir
gera mig ýmist leiðan eða áhyggju-
fullan eða reiðan eða graðan eða ein-
mana eða vegna þess að ég hélt að
þeir væru fyndnir."
Leikstjórinn Spike Jonze, sem
einnig er leikari, fékk handritið í
hendur og hreifst mjög af því sem
hann las og áður en langt um leið var
myndin komin í framleiðslu.
Frumsýning Sambíóin frumsýna gamanmyndina „Deuce
BigelowMale Gigolo" með Rob Schneider í aöalhlutverki
DEUCE Bigelow (Rob Schneider)
er ákaflega þekkilegur fiskabúrs-
hreinsitæknir sem hefur gaman af
sínu starfi. Hann dreymir um að
taka fiskinn sinn úr búrinu og færa
úr sínu slæma umhverfi niður á
strönd svo hann geti synt með vin-
um sínum í hafinu. En þegar hann
missir starfið við sædýrasafnið í
Los Angeles og er fenginn til þess
að þrífa Koi - tjörnina í glæsilegri
blokkarsamstæðu í Malibu, taka
hinir undarlegustu atburðir að ger-
ast.
Hann kynnist kvennamanninum
mikla, Antoine Laconte (Oded
Fehr), sem er allt það sem Bigelow
er ekki, ríkur og glæsilegur um-
svermaður kvenfólki á alla vegu
auk þess sem hann á heilmikið
fiskabúr. Atvikin haga því svo til að
Antoine biður hreinsitækninn að
gæta íbúðarinnar sinnar og því
fylgja aðeins tvenn fyrirmæli, ekki
að svara símanum og ekki að aka
Porsche-bifreiðinni hans.
Þannig er söguþráðurinn í gam-
anmyndinni „Deuce Bigelow Male
Gigolo“ sem frumsýnd er í Sambíó-
unum og er með Rob Schneider,
William Forsythe, Eddie Griffin, Ar-
ija Bareikis og Oded Fehr í aðal-
hlutverkum. Leikstjóri er Mike
Mltchell en handritið gera leika-
rinn Rob Schneider og Harrls
Goldberg en einn framleiðandanna
er grínistinn Adam Sandler.
Deuce: Passar íbúð fyrir kvenna-
mann með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum.
„Mig hefur alltaf langað til þess
að gera gamanmynd um venjulegan
mann sem passar húsið fyrir ofsa-
legan kvennamann," er haft eftir
leikaranum/handritshöfundinum
Rob Schneider. Aðalpersónan var
sköpuð með Schneider sérstaklega
í huga og segir hinn handritshöfun-
dur myndarinnar, Harris Goldberg,
að „það hafi hjálpað mikið að vita að
Rob færi með aðalhlutverkið.11
Rob segir að ef ekki hefði verið
fyrir Adam Sandler hefði handritið
eflaust aldrei orðið að neinu. „Ég
hef leikið í nokkrum myndum
Adams Sandlers og það er alveg
furðulegt að fylgjast með því
hversu duglegir þeir eru hann og
framleiðandi hans, Jack Giarrapu-
to“ en sá framleiðir „Bigelow“
ásamt Sandler.
Schneider: Fer með aðalhlutverkið
og skrifar handrit.
Deuce Bigeiow
Leikarar:_______________________
Rob Schneider, William Forsyt-
he, Eddie Griffin, Arija Bareikis
og Oded Fehr.
Lelkstjóri:_____________________
Mike Mitchell
(stuttmyndin Herd, vann viú söguna
íAntz)
Ein af myndunum sem Rob lék í
ásamt Sandler var „Big Daddy" en
þar kynntist hann einnig fram-
leiðandanum Sld Ganis. „Ég komst
að því að Rob var einstaklega hæfi-
leikaríkur gamanleikari.“ Adam og
Giarraputo sýndu Ganis handrit
myndarinnar og viðbrögðin voru
jákvæð. „Ég hafði mjög gaman af
handritinu,“ segir Ganls, „og vildi
þegar vera með í að gera myndina."
Leikkonan Arija Bareikis fer
með aðalkvenhlutverkið í myndinni
en hún leikur Kötu, sem Deuce
Bigelow verður hrifinn af. Arija er
óþekkt leikkona en „mjög sérstök
leikkona og við vorum heppnir að
fá hana í myndina," er haft eftir
Schneider. „Hún var fullkomin í
hlutverkið og við vissum það strax
og við sáum hana.“
Frumsýning Stjörnubíófrumsýnir
bresku myndina Endalok ástarsam-
bandsins eða „ The End of The Affair“
með Ralph Fiennes og Julianne
Moore í aðalhlutverkum.
Ilsf
ÞAÐ er árið 1939. Bret-
land lýsir yfir stríði við
Þjóðverja. í London
hefst ástarsamband sem
á sér óvissa framtíð.
Sarah Miles (Julianne
Moore) heillast af rithöf-
undinum Maurice
Bendrix (Ralph Fiennes)
þegar þau hittast í sam-
kvæmi sem Henry
(Stephen Rea), eigin-
maður hennnar, heldur.
Þau stofna til ástríðufulls
ástarsambands. I einni af
sprengjuárásum Þjóðverja á London
verður hús Bendrix fyrir eyðileg-
gingu. Þau Sarah eru saman þegar
það gerist og hann lætur næstum því
lífið. Sarah slítur sambandinu í fram-
haldi af því Bcndrix til mikillar undr-
unar og sárra vonbrigða.
Tveimur árum síðar fær Bendrix
aftur áhuga á Sarah og lætur elta
hana á röndum ...
Þannig er söguþráðurinn í nýjustu
mynd írska leikstjórans Neils Jord-
ans, Endalok ástarsambandsins eða
„The End of the AffaiT', sem
Stjömubíó frumsýnir. Með helstu
hlutverk fara Ralph Fiennes, Juli-
anne Moore, lan Hart og Stephen
Rea en það er Jordan sjálfur sem
gerir handritið upp úr samnefndri
ævisögulegri skáldsögu breska rit-
höfundarins Grahams Greenes.
Sagt er að Greene hafi byggt
skáldsögu sína á sambandi sínu og
bandarísku konunnar Chatherine
Forboðnar ástir: Moore og Fiennes
í mynd Neils Jordan.
Moore: Sarah Miles í Endalokum
ástarsambandsins.
Walston, sem gift var auðugum
bónda. Bókin er tileinkuð henni.
Jordan, sem las söguna fyrir mörg-
um árum, segir að hún sé besta bók
höfundarins. „Ég las hana aftur fyrir
sjö eða átta árum,“ er haft eftir leik-
stjóranum, „og ég komst að því að
hún gæti orðið að mjög spennandi
kvikmynd. Ég var mjög áhugasamur
um grunnplottið, hvemig ástarsam-
bandið orkar á tvo mismunandi vegu
á aðalpersónurnar."
Glíman við að koma sögunni í kvik-
myndaform var ekki eins erfið og
Jordan kannski hélt í byrjun.
Lok ástarsambands
Leikarar:______________________
Ralph Fiennes, Jutianne
Moore, Stephen Rea, lan Hart.
Leíkstjóri:
Neil Jordan
(Angel, Company ofWolves, Mona
Lisa, The Crying Game, Interview
With a Vampire, Michael Collins,
The Butcher Boy.)
„Greene er bestur þegar hann fjallar
um siðferðilegar spurningar og sér-
staklega þegar þær snúast um
manneskjuna í okkur,“ segir Jordan.
„Það sem ég vissi að ég þyrfti að
gera var að koma hinu mannlega
drama upp á yfirborðið og finna leið
til þess að gera þetta allt saman
skiljanlegt og trúðverðugt."
En Jordan vildi gera annað og
meira. „Ég vildi að myndin væri ekki
síst um líf rithöfundarins,11 segir
hann og ákvað snemma að Ralph
Fiennes væri rétti leikarinn til þess
að fara með hlutverk höfundarins.
Hann kallaði á nokkrar leikkonur í
prufur fyrir hlutverk Sarah og hætti
leitinni þegar Julianne Moore rak á
fjörur hans. „Hún sló mig algerlega
út af laginu,“ segir leikstjórinn.
Stephen Rea, sem fer með þriðja
stærsta hlutverkið í myndinni, er
fastaleikari hjá NeilJordan en Enda-
lok ástarsambandsins en sjötta
mynd Jordans sem hann leikur í.
„Hann er frábær leikari,“ er haft eft-
ir Jordan. „Hann hefur alltaf getað
snortið mig á einhvem hátt sem mér
er ómögulegt að lýsa.“