Morgunblaðið - 07.04.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2000 G 7
BÍÓBLAÐIÐ
# #
’W %
4 *■ m. W
Bíóirt í borginni
sæojom vaiaimarsson/Arnaiaur inariOason/Hiiaur Lonsaomr
Ekki missa af
ÖÐRUM HLUTA AF LEIK-
FANGASÖGU (TOY STORY 2)
SEM SANNAR, EKKI SÍÐUR EN
FORVERINN, AÐ SKEMMTILEG
SAGA OG PERSÓNUSKÖPUN
ERU MIKILVÆGARI KVIKMYND-
UM EN LIFANDI LEIKARAR.
TÖLVUGERÐIR LEIKARAR
ÞURFA SEM SAGT EKKI AÐ
VERA VERRI EN ÞEIR LIFANDI,
EF ÞEIR HAFA EITTHVAÐ
SKEMMTILEGT AÐ GERA OG
SEGJA. EN VARÐANDI ÞAÐ SlÐ-
ARNEFNDA: ENN SEM KOMIÐ
ER LEGGJA TÖLVURNAR EKKI
SKÖPUNARVERKUM SÍNUM TIL
RADDIR SVO ÁFRAM VERÐUR
ÞÖRF FYRIR LEIKARAFÉLÖGIN.
i
kM i
h
NÝJAR MYNPIR:
Being John Malkovich
Háskólabíó: AlladagaM. 5:50-8-10:15.
Deuce Bigelow
Bíóhöllln: Alla daga kl. 4-6-8-10. Aukasýning
föstudagkl. 12., laugardag/sunnudag kl. 2.
Kringlubíó: Alla daga kl. 4-6-8-10. Aukasýn-
ingföstudag kl. 12.
Bíóborgin: Alla daga kl. 4 - 6 - 8:30 - 10:30.
Aukasýning laugardag/sunnudag kl. 2.
The End of the Affair
Stjörnubíó: Alla daga kl. 5:45-8-10:15.
Ghost Dog
Háskólabíó: Ménudag kl. 10.
Englar alheimsins ★★★★ DRAMA
íslensk. 2000. Leikstjórí: Friðrík Þór Friðriksson.
Handrit: Einar Már Guðmundsson, e. eigin skáld-
sögu. Aðalleikendur: Ingvar E. Sigurösson, Bal-
tasar Kormákur, Bjöm Jörundur Fríðbjamarson,
Hilmir Snær Guðnason.
Friðrik og hans frábæru samstarfs-
menn sigla seglum þöndum inn í nýja
árið. Slá hvergi feilnótu í mynd um
margslungið og vandmeðfarið efni.
Háskólabíó: Föstudag kl. 10. Laugardag/sunnu-
dag. kl. 4-6-8-10. Mánudagkl.. 6-8.
Amerísk fegurð ★★★l/4 DRAMA
Bandarísk. 1999. Lelkstjóri og handrit: Sam
Mendes. Aðalleikendur: Kevin Spaœy, Annette
Bening, Thora Birch, Chris Cooper, Mena Suvari,
Wes Bentléy.
Frábær mynd um skipbrot amerísks
fjölskyldulífs við árið 2000. Svart-kó-
mískt þungavigtarstykki sem auð-
veldlega má ímynda sér að segi sann-
leikann án málamiðlana. Yndislegur
leikur, sérstaklega Kevins Spaceys.
Háskólabíó: Alla dagakl. 5:40-8-10:15.
The Hurricane ★★★% DRAMA
Bandarísk. 1999. Lelkstjóri: Norman Jewison.
Handrit Dan Gordon. Aðalleikendur: Denzel Wash-
ington, John Hannah, Vicellous Reon Shannon,
Dan Hedaya.
Eftir fordómafullan upphafskafla tek-
ur við einstök mynd, full tilfinninga,
bróðurþeli sem kynþáttahatri. Ágæt-
lega gerð, skrifuð og undurvel leikin
af Washington og Shannon hinum
unga.
Bíóhöllin: Alla daga kl. 6.
The Insider ★★★% DRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: Michael Mann.
Handrit: Eric Roth. Aðalleikendur: Al Pacino, Rus-
sell Crowe, Chrístopher Plummer, Diane Venora.
Ótrúlega áhrifarík og listavel leikin
kvikmynd um hetju sem tók áhætt-
una að missa allt sem var honum
kærasttil aö sannleikurinn um skað-
semi reykinga kæmi í Ijós.
Laugarásbíó: Kl. 5.
Toy Story 2 - Leikfangasaga 2
★★★% TEIKNIMYND
Bandarísk. 1999. Leikstjórí og handrit: John
Lassiter. ísl. talsetning. Raddir: Felix Bergsson,
Magnús Jónsson, Ragnheiður Elín Gunnarsdóttir,
HaraldG. Haralds, AmarJónsson, Steinn Ármann
Magnússon, o.fl.
Framhald bráðskemmtilegrar, fjöl-
skylduvænnar teiknimyndar og gefur
henni ekkert eftir, nema síður sé.
Dótakassinn fer á stjá og gullin lenda
í hremmingum úti um borg og bý.
Dæmalaust skemmtilegarfígúrur.
Bíóhöllin: fsl. tal: 3:55 - 6. Aukasýning laugar-
dag/sunnudag kl. 1:50.
Kringlubíó: ísl. tal: Alla daga kl. 3:45. Aukasýning
laugardag/sunnudag kl. 2. Sunnudag kl. 12:00.
Bíóborgin: Enskt tal: Alla daga kl. 4. Aukasýning
laugardag/sunnudag kl. 2.
Regnboginn: Alla daga kl. 4-6. Aukasýningar
laugardag/sunnudag kl. 2.
Fíaskó ★★★ DRAMA
íslensk. 2000. Leikstjórí og handrit: Ragnar
Bragason. Aðalleikendur: Bjöm Jörundur Frið-
bjömsson, Eggert Þorleifsson, Krístbjörg Kjeld,
Margrét Ákadóttir, Róbert Amfinnsson.
Skemmtileg með góðri persónusköp-
un og vel hugsaðri og óvæntri atburð-
arás. Umhverfið íslenskt og sannfær-
andi. Róbert Arnfinnsson og
Kristbjörg Kjeld fara á kostum og aðr-
ir leikendur sýna góða takta. Vel
heppnuö frumraun hjá hinum unga
leikstjóra, Ragnari Bragasyni.
Háskólabíó: Alla daga kl. 6-8. Aukasýningar
laugardag/sunnudag kl. 4.
Græna mílan ★★★ SPENNA
Bandarísk. 1999. Leikstjórí og handrit: Frank
Darabont. Aðalleikendur: Tom Hanks, David Mor-
se, Michael Dean Clark, GarySinise.
Ágætlega heppnuö mynd eftir frægri
sögu Stephens King. Býður uppá frá-
bæran leik, fallega sögu en enda-
hnykkurinn óþarfur.
Háskólabíó: Alla daga kl. 8 -10. Aukasýning laug-
ardag/sunnudag kl. 4.
Man on the Moon ★★★ DRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjórí: Milos Forman. Hand-
rít: Scott Alexander og Larry Karaszewski. Aðal-
leikendur: Jim Carrey, Danny DeVito.
Forvitnileg mynd um mjög áhugaverð-
an mann. Jim Carrey er fæddur í hlut-
verkió.
Bíóhöllin: Alla daga kl. 3:45 - 6 - 8 - 10:05.
Aukasýningföstudagkl. 12:10.
Kringlubíó: Alla daga kl. 5:45-8-10:15. Auka-
sýning föstudag kl. 24:30.
Summer Of Sam ★★★ DRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjóri og handrit: Spike
Lee. Aðalleikendur: John Leguizamo, Adrien
Brody, Mira Sorvino, Anthony La Paglia, Ben
Gazzara.
Nokkuö áhrifamikil og yfirgripsmikil
kvikmynd um sumarið 77 í New York;
um ótta, hita, ringulreið, ást og hatur.
Bíóborgin: Alla daga kl. 7:30.
Tarzan ★★★ TEIKNIMYND
Bandarísk. 1999. Leikstjórar: Chris Buck, Kevin
Line. Handrit: Tab Murphy. Raddir: Tony Goldwyn,
Minnie Driver, Glenn Close, Lance Henríksen.
Tarzan apabróöir fær gamansama
meöhöndlun í vandaðri og skemmti-
legri Disneymynd, sannkallaðri fjöl-
skylduskemmtun.
Bíóhöllln: Laugardag/sunnudagkl. 1:50.
Three Kings ★★★ SPENNA
Bandarísk. 1999. Leikstjórí og handrit Davis O.
Russell. Aðalleikendur George Clooney, Mark
Wahlberg, lceCube, SpikeJonze.
Þrír hermenn vilja verða kóngar á
kostnað Saddams í skemmtilegri æv-
intýrakvikmynd sem er líka áhuga-
verð pólitísk ádeila.
Kringlubíó: Alla daga kl. 10:30.
The Winslow Boy ★★★
DRAMA
Bandarísk. 1998. Leikstjórí og handrít: David
Mamet. Aðalleikendur: Nigel Hawthome, Jeremy
Northam, GemmaJones.
Rnasta bíóútgáfa Mamets af leikriti
Terence Rattigans með Hawthorne í
toppformi í aðalhlutverki.
Stjörnubíó: Alla daga kl. 6.
Cider House Rules ★★% DRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: Lasse Hallström.
Handrit: John Irving. Aðalleikendur: Toby Maguire,
Charlize Theron, Michael Caine, DelroyLindo.
Brokkgeng, metnaðarfull mynd þar
sem skiptast á skin og skúrir hvað
efnismeðferð snertir og úrvinnslu og
lífið hjá ungri og reynslulausri aðal-
persónunni.
Serm er vandræðalega leikinn af
Maguire en myndin þess virði að sjá
hana, þökk sé Caine.
Regnboginn: Alladagakl. 5:30-8-10:30. Auka-
sýningar laugardag/sunnudagkl. 2.
Girl, Interrupted - Trufluð stúlka
★★% DRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjóm og handrit: James
Mangold. Aðalleikendur: Winona Ryder, Angelina
Jolie, Whoopi Goldberg.
Vel leikin mynd um ungar stúlkur á
geðveikrahæli. Jolie fékk Óskarinn
fyrir frammistöðuna.
Stjörnubíó: Alla daga kl. 8 - 10:15. Aukasýning
laugardag/sunnudag kl. 3:45.
Kóngurinn ogég ★★ViTEIKNI-
MYND
Bandarísk. 1999. Leikstjórí: Richard Rich. Hand-
rit: Richard Rodgers. Raddir: Miranda Richardson,
Christiane Noll, Martin Viduovic.
Nýjasta teiknimyndin frá Warner
Bros. er sæmileg skemmtun. Pers-
ónusköpun og saga hefði mátt vera
sterkari og höfða beturtil barna.
Bíóhöllin: Laugardag/sunnudag kl. 1:45.
The Talented Mr. Ripley ★★%
DRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjórí og handrít: Anthony
Minghella. Aðalleikendur: Matt Damon, Jude Law,
Gwyneth Paltrow, Cate Blanchett, Philip Seymour
Hoffman, James Rebhom.
Góður leikur, falleg myndataka og fín
tónlist, bæta fyrir að áhugaverö saga
er gerð óljós og innihaldsrýr.
Regnboginn: Alla daga kl. 8 -10:30.
The World Is Not Enough ★★%
SPENNA
Bandarísk. 1999. Leikstjórí: Michael Apted.
Handrít: Robert Wade. Aðalleikendur: Pierce
Brosnan, Sophie Marceau, Robert Carlyle, Denise
Richards, Robbie Coltrane, Judi Dench.
19. kafli Bond-bálksins er kunnáttu-
samlega gerð afþreying sem fetar
óhikað margtroðnar slóðir fyrirrenn-
ara síns.
Bíóhöllin: Alla daga kl. 3:45. Aukasýning laugar-
dag/sunnudagkl. 1:30.
The Beach ★★ ÆVINTÝRI
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Danny Boyle. Hand-
rit: John Hodge. Aðalleikendur: Leonardo Di Capr-
io, Virginie Ledoyen, Guillaume Canet, Robert Car-
lyle, Tilda Swinton.
Ungur heimshornaflakkari finnur
Paradís og glatar. Góður Di Caprio,
kvikmyndataka og fyrri hluti en gerist
ómarkviss er á líöur.
Bíóhöllin: Kl. 8 -10:15. Aukasýning föstudag kl.
24:30
Regnboglnn: Föstudag kl. 5:30 - 8 - 10:15 -
24:30. Laugardag kl. 3:30 - 5:45 - 8- 10:15 -
24:30. Sunnudag kl. 3:30 - 5:45 -8 - 10:15.
Mánudagkl. 5:30-8-10:15
Flawless/Gallalaus ★★ DRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjóm og handrít: Joel
Schumacher. Aðalleikendur: Robert De Niro, Phil-
ip Seymour Hoffman, Barry Miller.
Alls ekki slæm hugmynd, sem virkar
á köflum. De Niro og Hoffman standa
sig ágætlega en hlutverkin of klisju-
kennd til að þeir og myndin skilji eitt-
hvað eftir.
Bíóhötlin: K/. 3:40-5:45-8-10:15Aukasýning
föstudagkl. 24:30.
Kringlubíó: Kl. 3:45-5:45-8-10:15. Aukasýn-
ing föstudag kl. 24:30.
Framtíðarmaðurinn (The Bicent-
ennial Man) ★★ GAMANDRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: Chrís Columbus.
Handrít: Nicholas Kazan. Aðalleikendur: Robin
Williams, Sam Neill, Embeth Davidtz, OliverPlatt.
Er hægt að hugsa sér nokkuö róman-
tískara en ástir afgamals vélmennis
og ungrar stúlku? Hollywood-della af
örgustu gerð en útlitið því fágaðra.
Stjörnubíó: Laugardag/sunnudag kl. 3:45.
Scream 3 ★★ HROLLUR
Bandarísk. 1999. Leikstjóri Wes Craven. Handrit:
Kevin Williamson. Aðalleikendur: Neve Campbell,
CourtneyCox.
Köttur úti í mýri, úti er ævintýri.
Regnboginn: Föstudag kl. 5:30 - 8 - 10:15 -
24:30. Laugardag kl. 3:30 - 5:45 -8-10:15 -
24:30. Sunnudag kl. 3:30 - 5:45 -8- 10:15.
Mánudag: 5:30 -8-10:15.
Laugarásbíó: Kl. 5:40 - 8 - 10:15. Aukasýning
föstudag/laugardag kl. 24:30 og laugardag/
sunnudag kl. 3:30.
Sleepy Hollow ★★ HROLLUR
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: Tim Burton. Handrít:
Andrew Kevin Walker. Aðalleikendur: Johnny
Depp, Christina Ricci, Miranda Richardson,
Michael Gambon.
í þessari morð/draugamynd er Tim
Burton jafn flottur og frumlegur en
hann klikkar alveg á handritinu sem
erórökréttogþunnt.
Bíóhöilln: Alla daga kl. 10. Aukasýning föstudag
kl. 12:05.
The Whole Nine Yards ★★GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjórí: Jonathan Lynn,
Handrít: Mitchell Kapner. Aðalleikendur: Bruce
Willis Matthew Perry, Rosanna Arquette, Michael
Clarke Duncan.
Þokkaleg grínmynd um tannlækni og
leigumorðingja.
Laugarásbíó: Alla daga kl. 6-8-10. Aukasýning
föstudag/laugardag kl. 12. (miðnætti). Laugar-
dag/sunnudag kl. 4.
Hundurinn og höfrungurinn ★
FJÖLSKYLDUMYND
Bandansk. 1999. Leikstjóri George Miller. Hanó-
rit: Tom Benedek. Aðalleikendur: Steve Gutten-
berg, Kathleen Quinlan, Miko Hughes.
Illa skrifuð og leikstýrð mynd sem er
hvorki fyrir börn né fullorðna.
Bíóhöllin: Alla daga kl. 4-6. Aukasýning laugar-
dag/sunnudag kl. 2.
Kringlubíó: Laugardag/sunnudag kl. 1:50. Auka-
sýningsunnudagkl. 12:00.
Cyinmvnri >>Ég hef áhuga á að kanna tilfmningar og
OYI[JllljllU st5rar kenndir en ég þoli ekki tilfinninga-
Eftir Amald semi og væmni,“ er haft eftir sænska kvik-
Indriðason myndaleikstjóranum Lasse Hallström,
sem nú nýlega gerði The Cider House Rules eftir sögu
bandaríska rithöfundarins John Irvings en í henni afrek-
ar Hallström það meðal annars að stýra þeim frábæra
leikara Michael Caine upp á verðlaunapall á Oskars-
kvöldi, svo sem frægt er orðið.
Hallström er einn af útlendingunum í Hollywood og
hefur verið það frá því um miðjan níunda áratuginn þeg-
ar hann hlaut alþjóðlega frægð fyrir mynd sem hann
gerði í heimalandi sínu og hét Líf mitt sem hundur eða
Mit liv som en hund. Hér var á ferðinni einstaklega vel-
heppnuð og hugljúf þroskasaga drengs sem gerðist í
sænsku sveitinni og þess var ekki langt að bíða að Holly-
wood tældi Hallström til sín rétt eins og landa hans,
Victor Sjöström, mörgum áratugum á undan honum.
Hallström hefur síðan tekist að samlagast Hollywood -
umhverfínu án þess þó að tapa bakgrunni sínum.
Eins og Sjöström átti Hallström langan feril að baki
sem kvikmyndagerðarmaður í Svíþjóð áður en hann
flutti vestur. Hann vann bæði við gerð sjónvarps- og
kvikmynda en margir hafa eflaust gleymt því að hann var
til dæmis handritshöfundur Abba: The Movie. Myndirn-
ar sem hann leikstýrði á áttunda og fyrri hluta níunda
mm
áratugarins eru m.a. Tre killar och en tjej og Tuppcn.
Lífmitt sem hundur breytti öllu hans lífi. Hann fluttist
til Hollywood og hefur ekki snúið þaðan aftur. Holly-
wood-myndirnar hans hafa verið misjafnar að gæðum.
Fyrsta myndin sem hann gerði vestra var Once Around,
gamandrama um ameríska fjölskyldu sem var svolítið
öðruvísi. Hann reyndi að gera stórmynd um Pétur Pan
en tókst ekki (Steven Spielberg stal af honum glæpnum
með mynd sinni Króki) en árið 1993 gerði hann sína bestu
mynd í útlandinu, Hvað er að angra Gilbert Grape? eða
What’s EatingGilbert Grape?með Johnny Deppog Leon-
ardo DiCaprio. Hann stýrði Julia Roberts í suðurríkja-
mynd sem hét Something to TalkAbout árið 1995 en síð-
an þá hefur fjarskalega lítið farið fyrir Hallström.
Eða þar til John Irving\eitadi hann uppi til þess að gera
fyrir sig The Cider House Rules eftir sínu eigin handriti.
„Tónninn í sögunni var undarlega kunnur mér,“ er haft
eftir leikstjóranum. „Hann minnti mig á mínar eigin bíó-
myndir, sérstaklega Gilbert Grape og Lífmitt sem hund-
ur. Báðar eru þær þroskasögur og sögur um valið sem
maður stendur frammi fyrir í lífinu.“
Með myndum sínum vestra hefur Hallström aðallega
skoðað fjölskyldugerðina, tilfinningar innan ijölskyldna
og samband fjölskyldumeðlima og má segja að hann sé
orðinn eins konar sérfræðingur í fjölskyldudramanu.
Hann er kvæntur leikkonunni og landa sínum, Lenu Olin.
er fæddur í Stokkhólmi árið 1946 og var útnefndur til tvennra Óskars-
verðlauna fyrir „Hundalíf", þroskasögu ungs drengsí sænsku sveitinni,
en hreppti hvorki verölaunin fyrir bestu leikstjórn né besta handrit. Hann
var einn af fremstu gamanmyndahöfundum Svía og seldi sænska sjón-
varpinu sfna fyrstu 16 mm mynd þegar hann var enn í menntaskóla. Hér
er hann ásamt eiginkonu sinni, Lena Olin, á Óskarsverðlaunahátíöinni.