Morgunblaðið - 07.04.2000, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ
t
*
8 C FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2000
I tilefni af frumsýningu myndarinnar
Leiðangurinn til Mars (Mission to
Mars) efnum við til skemmtilegs
leiks á mbl.is. Vertu með í ferð til
Mars á mbl.is og svaraðu léttum
spurningum um myndina í skemmti-
legum leik. Heppnir þátttakendur
eiga von á glæsilegum vinningum.
Vinningar:
Fjórir Playstation leikir
Fjórir Mongoose gg-
hjólagallar "fi
Eitt hundrað miðar á
Leiðangurinn til Mars
PlayStation
ntvoru fjallahjól
HASKOL413IO
Þegar fyrsta mannaða ferðin til Mars veróur fyrir
leyndardómsfullum áfölluni er björgunarlið sent af
stað til að bjarga leiðangursmönnum og rannsaka
málið. Björgunarniannanna bíður aðeins einn eftirlif-
andi leiðangursmaður og leyndardómsfull hvelfing.
Myndinni er leikstýrt af Brian De Palma og fer Gary
Sinise með aðalhlutverkið.
BÍÓBLAÐIÐ
Jónas
Knútsson
HÉR ERGREINT FRÁ
FIMM KVIKMYNDUM.
FJÓRAR VORU GERÐ-
AR í RAUN
OGVERU EN EINLEIT
ALDREI DAGSINS
LJÓS ENDA UPP-
SPUNI FRÁ RÓTUM.
HVER MYNDANNA ER
SÚ SÍÐASTNEFNDA?
Lithgow berst
við vindmyllur
Bandaríski leikarinn John Lithgow
hefurdrjúga reynslu af aö leika
furöufugla og ískyggilega glæpa-
menn, allt frá kynskiptingi í The
World According to Garp áriö 1982 til
geimveruprófessors í sjónvarpsþátt-
aröðinni vinsælu 3rd Rock From the
Sun, sem hann hefur hlotiö þrenn
Emmy-verðlaun lyrir. Nú fer hann
meö hlutverk Don Quixote, sem rétt
einu sinni berst viö vindmyllurí nýrri
kvikmynd byggöri á skáldsögu Cerv-
antes. Lithgow hefur lengi langaötil
aö leika þetta hlutverk og er einn af
meöframleiöendum myndarinnar
sem frumsýnd er á sunnudag á TNT-
sjónvarpsstöðinni. Hinn kubbslega
félaga hans, Sancho Panza, leikur
Bob Hoskins og Isabella Rosselini
erdularfull greifynja.
Levin skýst
á toppinn
GeraldLevin, stjómanda Time Warn-
er-samsteypunnar, var hvergi aö sjá í
fyrra á lista kvikmyndatímaritsins
Premiere yfir 100 valdamestu ein-
staklinga í skemmtanaiönaðinum. Á
glænýjum lista fyrir áriö 2000 skýst
hann hins vegar beint í efsta sætiö,
væntanlega vegna fyrirhugaörar
sameiningar Time Warner og Amer-
ica Online. í fyrra vermdi Rupert Mur-
doch, stjórnandi News Corp., efsta
sætiö en nú er hann í því þriöja. í
ööru sæti er Sumner Redstone, for-
stjóri Viacom. Stjórnandi Walts Disn-
ey, Michael Eisner, fellur nú úr ööru
sæti í þaö fjórða og Steven Spiel-
bergút fjórða í fimmta.
Campion
móðguð
Leikstjóri hinnar vinsælu verölauna-
myndar Píanós, Ástralinn Jane
Campion krefst þess nú aö út-
gefandi nýrrar uppsláttarbókar biöji
sig afsökunar og dragi til baka upp-
lýsingarí bókinni um Píanó. Bókin er
Oxford Companion to Australian
Rlms og í nýjustu útgáfu hennar seg-
ir aö Píanó sé byggö á skáldsögu
sem kom út á Nýja-Sjálandi áriö
1920 eftir Jane nokkra Mander. Sag-
an heitir The Story Of a New Zealand
River. Umboösmaöur Campions seg-
John Lithgow: Hér fagnar hann
Emmy-verðlaunum.
ir þessa fullyróingu ranga og meiö-
andi fyrir Campion. Talsmaöur út-
gefanda segir máliö í athugun.
Wajda gefur
Óskarinn
Pólski leikstjórinn Andrzej Wajda,
sem sneri sigri hrósandi frá Holly-
wood meö óskarsstyttu í farangrin-
um, hefurgefið háskóla í Kraká
styttuna. „Skólinn er 600 ára gam-
all,“ segir Wajda, „svo styttunni er
mikill heiöur aö þvf aö geymast
þar." Wajda, sem er 73 ára aö aldri,
fékk sérstakan heiöursóskarfýrir
langan feril, sem helgaöur hefur ver-
iö baráttu Pólverja fyrir frelsi frá
ófrjálsu kommúnísku þjóöskipulagi.
„Þessi verölaun eiga að minna ungt
fólk, sem hingaö kemurí heimsókn,
aö pólsk kvikmyndagerð á sér heiö-
viröa fortíð ekki síöur en glæsta
framtíö," sagði snillingurinn aldni.
Stikkfrí
í London
íslenska bfómyndin Stikkfrí eftir Ara
Kristinssonveróur sýnd f London í
fyrramálið sem liöurí norrænni fjöl-
skyldumyndahátíö í Barbican-
menningarmiðstööinni. Hvern laug-
ardag veröurlyrst sögustund og síó-
an sýnd kvikmynd frá einu
Noröurlandanna. Daguríslands erá
morgun, 8. apríl, og á undan sýn-
ingu á Stikkfrísegir Helen Eastís-
lenskarhuldufólkssögur. Nefnist
dagskráin Sögur úr huldulandi.
1.
Attack of the
Killer Tomatoes (1978)
Risavaxnirtómatar ráöast á menn
ogéta þá. GeorgeClooneyfermeö
Iftið hlutverk en hagur hans hefur
vænkastnokkuð síöan. Oftflokkuö
meö verstu myndum kvikmyndasög-
unnar. Textinn viö titillag myndarinnar
þykir og einhver lakasta textasmíö f
manna minnum.
2.
Tannenbaum (1990)
Drengjakórinn í Vín kemurtil smá-
bæjarí Bandaríkjunum en kórdreng-
irnir reynast vera blóösugur. Þessi
hryllingsmynd þykir meö verstu
myndum sem geröar hafa verió.
Leonardo DiCaprio kom hérfyrst
fram á breiötjaldinu en hann lék ung-
vampýruna Kleinzwerg.
3.
Charro (1969)
Elvis Presley leikur hér kúreka sem
fariö hefur villur vegar en vill fyrir alla
muni bæta ráö sitt. Honum er kennt
um aö hafa stoliö fallbyssu og veróur
aö hreinsa mannorö sitt. Presley
ákvaö þegar hér var komiö sögu aö
hætta aö syngja í myndum og láta
reyna á leikhæfileikana. Goöinu
snerist brátt hugur og tók aftur upp
gítarinn eftirþessi ósköp. Þess má
geta aö Dean Martin lék kúreka í
myndinni „Rio Bravo" svo hugmyndin
aö troöa Elvis í þetta hlutverk var ef
til vill ekki svo langsótt.
4.
At Long Last Love
(1975)
Burt Reynolds dansar og syngur!
Leikstjórinn fékk þá flugu í höfuöiö
aö velja leikara sem hvorki gátu
dansaö né sungiö. Reynolds hefur
löngum veriö vanmetinn leikari en
maðurinn er vita laglaus og heldur
varttakti. Honum varekki ætlaö að
syngja fremur en Elvis Presley aö
leika kúreka. Aörir leikarar í mynd-
inna áttu jafnlítið erindi í dans-og
söngvamynd. Kvikmyndamennirnir
heföu betur reynt að ná í Fred Astaire
á elliheimilinu.
5.
Red Sun (1971)
Charles Bronson leikur kúreka.
Honum ergert aö aöstoðajapanskan
samúræja (Torisho Mifune) viö aö
finna stoliö sverö. Myndin fjallar því
um áreksturólíkra menningarheima.
Ursula Andress leikur svissneska
feguröardfs aö vanda en af einhverj-
um óskiljanlegum ástæöum álpaöist
Alain Delon til aö leika kúreka í þess-
ari mynd. Myndin varfrönsk, spænsk
og ítölsk þannig aö Japanir og Banda-
ríkjamenn komu hvergi nærri.
Meistarinn Akira Kurosawa húö-
skammaði Mifune fyrir aö leggja nafn
sittvió þennan hégóma.
VMnvaNBNNVl :8VAS
Móðguð: Jane Campion vissi ekkl um óréttlæti heimsins þegar hún fagnaði
frumsýningu nýjustu myndar slnnar, Holy Smoke, ásamt Kate Winslet (t.v.).