Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 1

Morgunblaðið - 03.05.2000, Síða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐIAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Stjórnbúnaður fyrir ofnhitakerfi Verð við allra hœíi PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 BLAÐ C Matsverð ábúða LÁN íbúðalánasjóðs taka mið af brunabótamati, ef kaupverð eigfnar er hærra en það, segir Hallur Magnússon í þættinum Markaður- inn. Þetta skiptir máli nú, þegar verð á húsnæði hefur hækkað veru- lega. Þegar langt er síðan bruna- bótamat fór fram, er hugsanlega hægt að fá nýtt mat. / 2 ► Heimilið flutt I þættinum Vafrað um vefínn íjallar Brynja Tomer um flutninga. Það er mikið verk að flytja og ekki sama, hvernig gengið er frá hlutunum, þegar pakkað er niður né heldur, þegar skipuleggja á heimilið á nýj- um stað. Uppröðun húsgagna skipt- ir máli og gæta þarf að lýsingu og birtu. /12 ► Ú T T E K T Suður- Mjódd SAMKVÆMT nýrri skipulagstillögu fyrir Suð- ur-Mjódd, sem er að fara til kynningar hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, verður íþrótta- svæði ÍR stækkað úr 8,7 í 12,8 hektara. „Möguleikamir verða íjöl- breyttari. Þama verða iþrótta- vellir, skokkbrautir og almenn útivistarsvæði,“ segir Þórarinn Þórarinsson arkitekt í viðtali hér í blaðinu í dag, en hann hef- ur skipulagt svæðið. Jafnframt er lagt til, að tengi- braut til Kópavogs verði færð þannig, að hún liggi samsíða Reykjanesbraut í framhaldi af Álfabakka í Norður-Mjódd um undirgöng undir Breiðholts- braut. Ein aðalbreytingin sam- kvæmt skipulagstillögunni felst í því, að nú er gert ráð fyrir lóð- um fyrir verzlun, þjónustu og skylda starfsemi vestast á svæð- inu næst Reykjanesbraut. Þar eiga því eftir að rísa glæsilegar nýbyggingar í framtíðinni. „Lóðastærðir á þessu svæði verða sveigjanlegar eftir óskum umsækjenda," segir Þórarinn Þórarinsson. „Svæðið hefur þann stóra kost, að það gæti tengzt Smárahverfínu í Kópa- vogi um undirgöng auk þess sem það liggur í þjóðbraut með tilliti til Reykjanesbrautar.“ Þórarinn kveðst eiga von á mikilli ásókn í þessar lóðir vegna legu þeirra, enda þótt ekkert sé hægt að segja um að svo komnu, hvenær þær koma til úthlutunar. / 22 ► Byggingarvísitaian stórstígari en áður VÍSITALA byggingarkostnaðar hækkaði um 2% í apríl ffá mánuðin- um þar á undan og hefur ekki hækk- að jafnmikið milli mánaða um árabil. Vísitalan er nú 244,1 stig (júní 1987=100) og gildir þessi vísitala fyrir maí. Samsvarandi vísitala miðað við eldri grunn er 781 stig (desember 1982 er 100). Hækkun vísitölunnar á þriggja mánaða tímabili mars-maí samsvarar 9,5% hækkun á ári, en sl. tólf mánuði hækkaði byggingarvísi- talan um 3,7%. Þessa hækkun byggingarvísitöl- unnar má rekja til launasamninga þeirra, sem gerðir voru í apríl. Nokkrar starfsstéttir eru með lausa kjarasamninga í haust og í kjölfar þeirra gætu orðið frekari hækkanir á byggingarvísitölunni en ekki er hægt að segja fyrir um hve miklar. Hins vegar eru ekki líkur á, að byggingarvísitalan muni hækka um- talsvert í sumar. í fyrra lækkaði þessi vísitala lítillega um mitt sumar. Það sama gerðist líka sumarið 1998. Byggingarvísitalan er samsett af kostnaðarþáttum nýbygginga og ætti því að vera mikill mælikvarði á verðþróunina á því sviði. Raunin hef- ur hins vegar verið önnur. Þegar samdrátturinn ríkti í bygg- ingariðnaðinum hækkaði byggingar- vísitalan miklu örar en verð á nýjum íbúðum og það svo, að í rauninni mátti tala um verðlækkun á nýju íbúðarhúsnæði. Á síðustu misserum hefur þessi þróun snúizt við og verð á íbúðar- húsnæði hækkað mun meira en byggingarvísitalan. „Það hefur orðið viss verðleiðrétting á markaðnurn," segir Ólafur Blöndal hjá fasteigna- sölunni Gimli. „Verð á nýju húsnæði var komið svo lágt, að það var jafnvel orðið ódýrara en notað húsnæði, sem var í hæsta máta óeðlilegt.. Hækkanirnar undanfarin misseri eru að sumu leyti ekki óeðlilegar og raunar tímabærar, enda þótt þær hafi verið mun meiri en hækkun byggingarvísistölunnar á sama tíma." Vísitala byggingarkostnaðar 1997 til apríl 2000 Byggingavísitala: Júlí 1987 = 100 1997 1998 1999 síðust j 12 mán. (%) 2000 r™ ■ ÞÚ FÆRÐ MEIRA 0,A9°{° ■'á p FYRIR HÚSBRÉFIN ÓK^ .■ HJÁ FJÁRVANGI Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi eftir fjármálastofnunum. Fjárvangur keppist við að bjóða besta kaupgengið og staðgreiðir Húsbréfin samdægurs. Ráðgjafar Fjárvangs veita allar upp- lýsingar um kaupgengi Húsbréfa. Hærra kaupgengi þýðir hærra verð fyrir Húsbréfin þín. fim- FJÁRVANGUR L 0 G GILT VEHBBHfFAFYRIBTÆKI Laugavegi 170 simi 5 40 50 60, www.fjarvangur.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.