Morgunblaðið - 03.05.2000, Page 12

Morgunblaðið - 03.05.2000, Page 12
12 E MIÐVIKUDÁGUR 3. MAÍ 2000 MORGUNBLAQIÐ FASTEIGN AMIÐLQN SCIÐÖRLANDSBRAÖT 46 (bláu húsin) SÍMI 568-5556 • FAX 568-5515 MAGNÚS HILMARSSON EYSTEINN SIGURÐSSON BIRNA BENEDIKTSD. ritari. lögg. fasteignasali. JÓN ÞÓR INGIMUNDARSON |p Félag Fasteignasala Sími 568 5556 Opið laugard. 12-14 Einbýli og raðhús DEILDARAS, AUKAIBUÐ. Vorum að fá í einkasölu glæsilegt 288 fm einbýlishús á 2 hæðum með innnb. 35 fm bílskúr og 2ja herb. aukaíbúð á neðri hæð. Fallegar innréttingar. Glæsilegt útsýni. Fallegur ræktaður garður. Verð 26,5 millj. HEIÐARGERÐI, EINBYLI. Vorum að fá I sölu þetta fallega 110 fm einbýlishús, sem er hæð og hálfur kjallari ásamt 30 fm bílskúr. Eignin er mikið endurnýuð. Nýtt eldhús, nýtt baö, nýtt gegnheilt parket o.fl. 3 svefnherb. eru á hæðinni og eitt í kjallara. Bílskúrinn er nýklæddur að innan og er með nýju þaki. Áhv. húsbréf 5,1 millj. Verð 15,9 millj. VIÐITEIGUR, MOS. Fallegt raöhús á einni hæð, 83 fm Fallegar innréttingar. Parket. Fallegur ræktaður garður. Verð 11,9 millj. KLEIFARSEL. Vorum að fá í einkasölu þetta glæsilega einbýlishús á tveimur hæðum 171 fm ásamt 34 fm bílskúr og 50 fm glugga- lausu rými í kj. 4 til 5 svefnherbergi. Fallegar stofur. Stórt sjónvarpshol á efri hæð. Fallegur ræktaöur garður. Verð 18,5 millj. FANNAFOLD. Fallegt raöhús á einni hæð með innb. bílskúr, alls 180 fm 4 svefnherb. Laufskáli úr stofu. Góður suðurgarður með timburverönd. Verð 18,5 millj. BLIKAHOFÐI, MOS. Vorum að fá í einkasölu 100 fm 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð í nýju fjölbýli. Fallegar Ijósar innréttingar. Park- et. Fallegt útsýni. Stórar suðvestursvalir. Verð 11,2 millj. RJÚPUFELL LAUS Falieg 4ra herb. íbúð 110 fm á 4. hæð efstu í nýklæddu húsi. Parket. Stórar yfirbyggöar svalir í suðvestur. Laus strax. Verð 9,7 millj. LAUFENGI. Vorum að fá í sölu sériega fal- lega 4ra til 5 herbergja 112 fm (búð á 2. hæð í þessu fallega fjölbýlishúsi. Glæsilegar innrétt- ingar. Parket. Búr og þvottahús í íbúð. Áhv. húsbréf 4,4 millj. Verð 11,9 millj2603 ALFHEIMAR. Glæsileg 93 fm íbúð á efstu hæð, ásamt 15 fm herb í risi, 13 fm herb. í kjallara og 15 fm geymslu, alls 135 fm Nýlegt merbau-parket. Sérþvottahús. Gengið úr íbúð upp í ris. Verð 11,9 millj. herb. íbúð 100 fm á 2. hæö ásamt 33 fm rúm- góðum bílskúr. Fallegt útsýni. Suðaustursvalir. Nýtt bað. Áhv. 4,8 millj. Verð 12,2 millj. FROSTAFOLD. Gullfalleg og rúmgóð 3ja herb. 90 fm íbúö á 2. hæð í lyftuhúsi. Pari<et. Fallegt útsýni. Stórar suöaustursvalir. Áhv. byggsj. 3,5 millj. Verð 10,5 millj. J-Wíííúml 1319ti|i Sillilll Höfum til leigu 5 bil á jarðhæð sem eru 110 til 120 fm hvert á þessum frábæra stað í Linda- hverfi. Lofthæð 3,80 m. Góðar innkeyrsludyr á hverju bili. Til af- hendingar fljótlega. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. Bakkastaðir 120 fm sérhæðir : ^T1 11 SSÍÍSÍ' jn h i Höfum til sölu 6 glæsilegar 120 fm sérhæðir með 4 svefnherb. sem er verið að byggja á þessum eftirsótta stað við golfvöllinn og Korpu. Ibúðirnar afh. fullbúnar með glæsilegum innréttingum í september 2000. Sér 60 fm garður með neðri hæðum. Húsin afhendast steinuð að utan og lóðin fullfrágengin. Bílskúr getur fylgt. Einnig hægt að fá , íb. tilbúnar til innréttinga. Verð frá 12,3 millj. BtaHBa mmmmmmamaamsm RAUÐALÆKUR. Höfum til sölu 3ja til 4ra herb. 95 fm íbúð á 1. hæð í 7 íbúða vel- viðhöldnu húsi. 2 samliggjandi stofur (sú minni nýtist í dag sem svefnh). Stórt svefnh. með 256x225x65 cm fataskáp. Stórt, bjart eldhús með miklu skáparými. Stórt hol sem nýtist sem boröstofa og til veisluhalds. Sérhiti og sérrafm. Sérgeymsla og sam. þv. í kjallara. Suðursvalir. Sérbílastæði á lóð. Verð 10,7 millj. VESTURBÆR. Sérlega glæsileg og mjög sérstök 3ja til 4ra herb. íbúö á 4. hæð. Vandað- ar sérsmíðaðar innréttingar. Stæði í bílskýli fylgir. Þessi íbúð er í algjörum sérflokki, sjón er sögu ríkari. Verð 11,5 millj. Atvinnuhúsnæði BÆJARLIND, TIL SÖLU EÐA LEIGU. Vorum að fá í sölu eða til útleigu í fallegu húsi 242,5 fm verslunarhúsnæði á götu- hæð. Húsið stendur á besta stað í Lindahverfi. Til afhendingar fljótlega tilbúið til innréttinga. Verð 25,9 millj. HJALLAVEGUR. Falleg 2ja herb. íbúð 60 fm í kjallara í tvíbýli. Góðar innréttingar. Frábær staðsetning. Sérinngangur. Verð 6,9 millj FAXAFEN. Höfum til sölu gott 276 fm verslunarhúsnæöi á götuhæð í stóru versl- unarhúsi. Góð aðkoma. Næg bílastæði. Laust fljótlega. HLÍÐARSMÁRI - VERSLUN- ARHÚSNÆÐI. Vorum að fá í einka- sölu glæsilegt 213 fm verslunarhúsnæði á þessu eftirsótta verslunarsvæði. Húsnæðið er á götuhæð í þessu fallega húsi. Alltaf hægt að fegra heimilið Vafrað um vefinn Margir eru í þann mund að skipta um hús- næði. Brynja Tomer veit af eigin raun að býsna mikil vinna er að flytja og endur- skipuleggja nýtt heimili. Hér greinir hún frá nokkrum vefsíðum, sem teng;jast heimilinu. AVEFSÍÐU sem heitir Abou- t.com og hægt er að finna með því að slá inn: http://www.interior- dec.about.com er mikill fjöldi af greinum sem tengjast heimilinu. Meðal annars er fjallað um samskipti við innanhúsarkitekta, skipulag heimilis, húsgögn og flutninga. í kafla um flutninga er fólk hvatt til þess að skipuleggja þá tímanlega. Mælt er með því, þegar verið er að pakka niður, að skrifað sé á blað hvað fer í hvern kassa og kassarnir séu síðan númeraðir. „Verið nákvæm þegar þið skrifið þetta niður, skrifið „diskar með blárri rönd, vatnsglös, hvítir bollar" og svo framvegis held- ur en „dót úr eldhúsi". Sú nákvæmni á eftir að borga sig þegar tekið er upp úr kössunum." Betra er að hafa fleiri pappakassa en færri. Mælt er með því að fólk verði sér úti um miklu fleiri kassa en það telur sig þurfa. Geymið nokkra fyrir sjálfan flutningadaginn, en í þá má setja rúmfatnað, snyrtivörur, hreingerningadót og annað sem not- að er fram á síðasta dag. Sniðugt er að nota liti, til dæmis tússliti, til að auðkenna kassa sem tilheyra hverju herbergi. Kassar sem fara í baðherbergi eru t.d. allir með grænni rönd, þeir sem tilheyra eldhúsi með rauðri rönd og svo fram- vegis. Ráðlegt þykir að pakka saman hlutum sem eiga saman, til dæmis framlengingarsnúrum í sama kassa og millistykki og bókastoðum í sama kassa og bókum og geisladiskastandi í sama kassa og geisladiskum. Ef nauðsynlegt er að taka skápa, rúm eða önnur húsgögn í sundur fyr- ir flutninga er gott að setja skrúfur og önnur tilheyrandi smástykki í um- slag eða plastpoka og festa vel með límbandi á viðkomandi húsgagn. Hreingerningatól og tæki þurfa að vera áðgengileg eftir að búið er að tæma húsnæðið, svo hægt sé að þrífa það áður en nýir eigendur flytja inn. Gott er að setja hreinsiefni, tusk- ur, klúta, bursta og þess háttar sam- an í körfu eða kassa, svo allt sé á vís- um stað. Best er þó, segja hinir reynslumiklu, að vera búinn að þrífa sem mest áður en stóri dagurinn rennur upp. Glugga, innréttingar og skápa þarf til dæmis ekki að þrífa á síðustu stundu, heldur fyrst og fremst gólf og baðherbergi. Innanhúsarkitekt til aðstoðar Á sömu vefsíðu, http://www.mter- iordec.about.com, er að finna ráðleg- gingar um innanhúsarkitekta. Mælt er með því að þjónusta þeirra og þekking sé nýtt, þegar skipuleggja á heimili eða breyta því verulega. „Hlustið, talið og hlustið," eru í stuttu máli helstu ráðleggingar. Með því er átt við að snjallt sé að byrja á því að leyfa fagmanninum að greina frá vinnulagi sínu og þóknun. Síðan segið þið honum hvað þið viljið láta gera og hversu mikið fram- kvæmdirnar mega kosta. Því meiri upplýsingar sem ráðgjafinn fær þeim mun betra. Greinið frá þörfum fjölskyldunnar og hugmyndum ykk- ar um heimilið. Ovitlaust er að sýna innanhússarkitektinum myndir úr bæklingum og blöðum, sem sýna hvað ykkur finnst fallegt. Ekki er heldur úr vegi að sýna honum lita- spjöld úr málningavörubúð, með lit- um sem ykkur finnst fallegir, því allt þetta veitir dýrmætar upplýsingar um smekk ykkar og hugmyndir.“ Athyglisverð og einkar aðgengileg vefsíða er: http://www.homefur- nish.com. Auk þess sem veittar eru víðtækar upplýsingar, m.a. um helstu húsgagnaverslanir og sýning- ar beggja vegna Atlantshafsins er til dæmis fjallað um það sem hafa ber í huga þegar verið er að raða upp hús- gögnum. í svefnherbergi er rúmið aðalhús- gagnið, í stofu er það sófi og á skrif- stofu er það skrifborð. Þessar grunn- reglur eru kynntar til öryggis, ef einhver hefði ekki áttað sig á þeim. Sé fallegt útsýni úr stofunni er eðli- legt að sófi snúi þannig að úr honum sé hægt að njóta þess. Sé arinn í að- alhlutverki ætti sófinn að snúa að honum, en sé sjónvarpið það sem mestu skiptir er eðlilegt að snúa hon- um að því. Stór húsgögn ættu ekki að standa of nálægt hvert öðru, heldur ætti að dreifa þeim um stofuna.Taka þarf til- lit til sérstöðu hvers herbergis. Séu stofugluggar til dæmis bogalaga er fallegt að undirstrika það með rúnn- uðum sófa eða ávölu borði nálægt gluggunum. Notagildi og fegurð Uppröðun húsgagna á að taka mið af daglegu lífi heimilisfólksins, auk þess sem hún á að vera þess eðlis að húsgögnin njóti sín sem best. Til dæmis á að vera borð þar sem venjan er að setjast niður og fá sér kaffibolla eða snarl. Sömuleiðis þarf nægilegt sætapláss að vera þar sem venjulega er setið og spjallað við gesti. Til þess að fallegur stakur stóll njóti sín sem best er betra að hafa hann við hliðina á fallegu borði eða lampa, en við hliðina á sófasetti. Einnig þarf að huga að jafnvægi í uppröðun. Tveir gerðarlegir bólstr- aðir stólar eru til dæmis fallegri á móti sófa en hversdagslegir eldhús- stólar. Stundum er nauðsynlegt að brjóta upp línur, form og efni til að mynda jafnvægi. Húsgögn og skrautmunir þurfa til dæmis að vera úr mismunandi efniviði, sumt úr timbri, annað úr málmi og enn annað úr steini eða gleri. Hornskápar eru heppilegir til að brjóta upp hvassar hornalínur og einnig hornhillm’ með persónulegum munum. Nýta ber húsnæði vel. Til dæmis er hægt að gera lítil nytjahom hér og hvar, lestrarhom í svefnherberginu og spilahorn fyrir fjölskylduna í sjónvarpsherberginu. Gera má lang- an vegg aðlaðandi með því hafa langt og mjótt borð uppi við hann og raða fallegum myndum á það. Skrifborð og vinnuborð ættu alltaf að vera ná- lægt glugga, til að nýta birtu og njóta útsýnis Gæta þarf að lýsingu og birtu þeg- ar verið er að finna húsgögnum stað. Dökkur skápur nýtur sín engan veg- inn í dökku horni og stóll með skær- litu áklæði virðist glannalegur í skærri birtu undir glugga. í grein- inni er umfram allt ítrekað mikilvægi þess að bi’jóta upp form og línur, án jjess þó að úr verði allsherjar óreiða. Setjið kertastjaka eða borðlampa á borðstofuskenk, stól með háu baki við hliðina á sófanum, eða sófa þvert fyrir horn og hafið gerðarlega potta- plöntu bak við hann. Gömul hús Að lokum skal hér getið banda- rískrar vefsíðu um heimili, sem við fyrstu sýn virðist ekki upp á marga fiska. Hana er hægt að skoða með því að slá inn vefslóðina: http:// www.4moving.com og ef rótað er, líkt og margir gera á útsölu, má grafa upp ágætis upplýsingar í tengslum við heimili og betrumbæt- ur á því. Prýðileg vefsíða um gömul hús er: http://www.oldhou- seweb.com. Auk þess sem ýmis ráð eru gefin í tengslum við viðgerðir og viðhald er hægt að skoða margar myndir, til dæmis af eldhúsum, fal- legijm gluggum og ömum, sér til ánægju, eða til að næla sér í hug- myndir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.