Morgunblaðið - 12.05.2000, Qupperneq 4
4 C FÖSTUDAGUR12. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
+
BÍÓBLAÐIÐ
Blöndal
íslenskt
vor í
Cannes?
ÞAÐ viðrar vel fyrir kvikmynda-
gerð á íslandi og útlit er fyrir
ómunatíð. Fjárframlögríkisins
til Kvikmyndasjóðs hafa marg-
faldast á undanförnum árum,
sem hefurorðið til þess að
styrkupphæðir einstakra
mynda hafa hækkað á sama
tíma og styrkveitingum hefur
fjölgað. Teknarhafa verið upp
skattaívilnanir til að skapa kjör-
aðstæðurá íslandi fyrirerlenda
framteiöendur. í ofanálag verð-
ur ekki þverfótað fyrir hæfíleika-
ríku og metnaðarfullu ungu
fólki, sem lætur til sín taka á
öllum sviðum kvikmyndagerðar.
Spáin lofargóðu.
Kvikmyndirfrá Norður-
löndum, ekki síst Dan-
mörku og Svíþjóö, hafa
átt upp á pallboröiö á
undanförnum árum og Thomas
Maihjá Trust Films, sem mark-
aðssetti m.a. dogma-myndirnar
Veisluna og Fávitana, sagði í
samtali viö blaðamann fyrir
nokkru aö íslendingar hefðu
tækifæri til aö komast í þennan
hóp í Cannes. Ekki síst ef við
fengjum að njóta góðs af hinum
miklu vinsældum Bjarkar, sem
er f aöalhlutverki f mynd Lars
von Triers, Dancer in the Dark,
í aóalkeppninni.
Sjaldan eða aldrei hefurver-
ið um jafn auðugan garö að
gresja af fslenskum kvikmynd-
um á hátíðinni. Nýrrar myndar
frá Friðriki Þórer jafnan beðiö
með eftirvæntingu oggríöar-
mikil aðsókn á íslandi á eftir að
veröa Englum alheimsinst\\
framdráttar. Victoria Abrílgerir
101 Reykjavík að spennandi
kosti fyrir erlendan markað og
hefur myndinni þegar verið
sýnduráhugi affjölmörgum há-
tíðum ogdreifingarfyrirtækjum.
Þá veröur teflt fram fýrstu mynd
leikstjórans Ragnars Braga-
sonar, Fíaskó, sem var al-
mennt vel tekiö af gagnrýnend-
um á íslandi. Að auki verða svo
Ungfrúin góða og húsið og
Myrkrahöfðinginn kynntar á
markaðnum.
Eins og þetta sé allt! Ráðgert
er að frumsýna íslenska draum-
inn og Gemsa í sumar, Ikingut
og Óskabörn þjóðarinnarí vet-
ur, Villuljós, öðru nafni Drama-
rama og Regínu sömuleiðis og
fjölmörgönnurverkefni eru í
bígerö. Skrímsli Hal Hartleys
veröurtekin á íslandi í sumar,
leitaö er að handritshöfundi fýr-
ir Sjálfstætt fólk sem Hector
Babenco leikstýrir, og fjár-
mögnun lýkur á East ofthe
Moon í Cannes, aö sögn Snorra
Þórissonar, sem hefurfengið
til liös við sig Erik Gustavson,
leikstjóra hinnar eftirminnilegu
Telegrafisten. Þá eru ótaldar
myndirsem Friðrik Þórhefur
hug á aö leikstýra, t.d. Fálkar
ogNeutron, sem yröi fyrsta
mynd hans á enska tungu.
Er of snemmt aó fara aö tala
um íslenska voriö? ■
Nú eru rétt 10 ár síðan íslendingur hlaut
Gullpálmann í Cannes í fyrsta og eina skiptið.
Já, þegar rætt er um kvikmyndaleg afrek Is-
lendinga gleymist einhverra hluta vegna oft að
Sigurjón Sighvatsson framleiddi myndina sem
hreppti þessi eftirsóttustu kvikmyndahátíðar-
verðlaun heimsins árið 1990. Þetta var „Wild at
Heart“, eftir David Lyneh, með þeim Nicolas
Cage, Laura Dem, Willem Dafoe og Isabellu
Rossellini í aðalhlutverkum.
Auk Sigurjóns voru Islendingar ekki fjöl-
mennir þama suður frá fyrir 10 árum. Einn
lausamaður í blaðamannastétt hafði þó fyrir því
að fylgjast með þessu ævintýri. Nokkum veginn
af rælni eða bamslegum áhuga, en bjóst þó varla
við að förin yrði svo eftirminnileg. Eftir að hafa
hitt Sigurjón að máli tókst að fá einkaviðtöl við
alla aðstandendur myndarinnar og birtust þau í
Morgunblaðinu skömmu síðar. Skemmtilegri
viðmælendur en David Lynch era vandfundnir.
Hnyttinn, frumlegur og snjall í tilsvöram.
53 ára skrykkjótt saga
Kvikmyndahátíðin í Cannes á sér langa og
merkiiega sögu. Hún hefur gengið í gegnum ótal
breytingarskeið, áföll og sigra, en alltaf haldið
velli sem heimsins mesti kvikmyndaviðburður.
Hana sækja yfir 50 þúsund manns á ári hverju,
einkum framleiðendur, kaupendur, seljendur og
aðrir í bransanum, og er varla nokkur annar
staður sem lokar jafn mörgum samningsferlum
og Cannes, hvort sem um er að ræða framleiðslu
eða dreifingu. Þá era yfir 4.000 fjölmiðlamenn á
staðnum, sem gerir Cannes að mesta árlega
fjölmiðlaviðburði heims. Kemur því á óvart hve
lítinn áhuga íslenskir fjölmiðlar hafa til skamms
tíma haft á þessari veislu, en það er önnur saga.
Hátíðin hefur verið haldin óslitið á hverju ári í
53 ár, nema hvað hún féll niður í kjölfar stú-
dentauppreisnarinnar 1968. Franska nýbylgju-
klíkan sá fyrir því. Hún varð mjög snemma vett-
vangur helstu stjama í kvikmyndaheiminum,
ekki síst vegna þess að á 6. og 7. áratugunum
vora leikarar frá Frakklandi og Ítalíu á meðal
skærastu stjarna heimsins. A 8. áratugnum tók
Gilles Jacob síðan við hátíðinni og ræður hann
enn þar ríkjum. Er varla ofsögum sagt að hann
sé áhrifamesti maður óháðrar kvikmyndagerðar
síðasta aldarfjórðunginn. Ahrif hans era ekki
síðri á bandaríska kvikmyndagerð, því fjölmarg-
ir þarlendir leikstjórar vora uppgötvaðir í Cann-
es, s.s. Martin Scorsese, Quentin Tarantino og
margir fleiri.
Eftir að hafa fylgst með hátíðinni í fjarska í
mörg ár tók ég af skarið árið 1989. Fram að því
hafði ég haldið að Cannes snerist að mestu um
fáklæddar stúlkur á ströndinni, en síðar komst
ég að því að sá hluti hátíðarinnar er ósýnilegur
nema maður sækist sérstaklega eftir því. Og það
gera í raun fáir, nema einhverjir ljósmyndarar í
leit að tilbreytingu.
Hvað um það, árið 1989 gerðust þau undur og
stórmerki að 26 ára óþekktur Bandaríkjamaður,
Steven Soderbergh, hlaut Gullpálmann fyrir
sína fyrstu mynd, „Sex, lies and videotape".
Spike Lee, leikstjóri „Do the Right Thing“, varð
æfur af reiði og sakaði dómnefndina, undir for-
sæti Wims Wenders, um rasisma. Aðrar ástæð-
ur gátu ekki legið að baki því að mynd hans vann
ekki til verðlauna. Nokkram áram síðar tók ég
síðan viðtal fyrir Manniíf við Spike Lee, sem þá
var snúinn aftur með myndina „Jungle Fever“.
Þá var hann hinn rólegasti og hafði hemil á sér.
Hinnvænstipiltur.
íslenskur aðall
Hátíðin árið 1991 er einna kunnust fyrir af-
skaplega ákveðna afstöðu dómnefndar, undir
forsæti Romans Polanskis, sem veitti bræðran-
um Ethan og Joel Coen öll helstu verðlaunin;
gullpálmann, leikstjóraverðlaunin og þá var
John Turturro valinn besti leikarinn í mynd
þeirra, Barton Fink.
Annars er ’91 módelið af Cannes mér líklega
minnisstæðast fyrir að það var þar sem ég klár-
aði 10 síðna karakterviðtal við Friðrik Þór Frið-
riksson fyrir tímaritið Mannlíf. Líklega fyrsta
stóra viðtalið við piltinn, enda Böm náttúrannar
að klárast og stutt í framsýningu, sem átti eftir
að breyta lífi okkar allra. Mér hafði gengið erfið-
lega með þennan feimna strák á fyrri fundi okk-
ar, en í Cannes var hann í fínu formi. Eftir eins-
og hálfa Tavel-rósavín kjaftaði á honum hver
tuska og sögumar urðu fleiri en blaðamaður
hafði tök á að festa niðrá blað. Undir dyggri leið-
sögn þáverandi ritstjóra Mannlífs, með gullnu
regluna um kynlíf-trúarbrögð-áfengi að leiðar-
ljósi, varð þetta hið besta viðtal. Held ég. Og við-
mælandinn sýndi einstaka takta í prakkaraskap,
sem verður þó ekki rakinn hér.
Árið 1992 vora kvikmyndir frá Norðurlönd-
unum í brennidepli. Ein mynd var valin frá
hverju landi og var Svo á jörðu sem á himni, eftir
Kristínu Jóhannesdóttur, fulltrúi íslands. Þetta
var áður en myndin var frumsýnd á íslandi og
því talsverð eftirvænting í lofti. Viðtökumar
stóðu fyllilega undir væntingunum, einsog lesa
mátti frá fréttaritara Morgunblaðsins.
Sama ár komu Frakkar og ýmsir aðrir
Evrópumenn til hátíðarinnar heldur niðurlútir.
Bandarískar kvikmyndir höfðu unnið pálmann
gullna þrjú ár í röð og nú skyldi allt gert til að
snúa við blaðinu. Sælkerinn mikli Gérard Dep-
Þorfinnur Ómarsson,
framkvæmdastjóri Kvik-
myndasjóös, hefurveriö
árlegur gestur á kvik-
myndahátíöinni í Cannes
í 12 ár. Fyrst sem fjöl-
miðlamaðurfyrir blöö,
tímarit og útvarp, en nú
er hann í fjórða skipti far-
inn þangað sem fulltrúi
lands og þjóöar, meö nýj-
ustu kvikmyndir íslands í
farteskinu. Hann rifjar
hér upp eftirminnileg at-
vikfrá hátíðinni fyrir
Bíóblaö Morgunblaösins.
ardieu var gerður að formanni dómnefndar og
Frakkar bára höfuðið hátt í minnimáttarkennd
sinni.
Altman og Óskar
Þegar líða tók á hátíðina var ijóst að Robert
Altman átti hug gagnrýnenda og kvikmynda-
áhugamanna á hátíðinni með hina frábæra
Hollywood satíra, „The Player“. í viðtali við
blaðamann fyrir Mannlíf komst hann auðveld-
lega á topp-10 listann yfir frískustu viðmælend-
ur. Allt stefndi í að hann ynni gullpálmann öðra
sinni. Flestum menningarvitum stóð á sama, -
hann var jú að gera grín að Hollywood, var það
ekki? En Altman fékk bara leikstjóraverðlaun-
in. Og sigurvegarinn er: Bille August fyrir Den
goda viljan. „Den hvað?“ spurðu viðstaddir og
höfðu aldrei heyrt myndarinnar getið. Nema
þegar PerniUa August fékk leikkonuverðlaunin,
verðskuldað, skömmu áður. En Gullpálmi núm-
er tvö tU þessa getulausa Dana kom öUum í opna
skjöldu. Fáir höfðu séð myndina, nema kannski
einhverjir Skandinavar. Hallærisleg málamiðl-
un, sem varð hátíðinni ekki tíl framdráttar,
hvorki í Evrópu né annars staðar.
Cannes árið 1992 er öragglega minnisstæðara
fyrir það þegar Sharon Stone krosslagði fæt-
uma í opnunarmyndinni „Basic Instinct".
Stundum þarf ekki endilega flóknar aðgerðir tU
að leggj a heiminn að fótum sér.
Ári síðar var komið að enn sterkari þætti ís-
lands á hátíðinni. Sódóma Reykjavík var valin í
Selection OfficieUe, undir merkjum Un certain
regard, sem er næsti bær við keppnina. Mynd-
inni var mjög vel tekið, en eftirminnUegastur er
kannski söngur Bjöms Jörandar og Helga
Bjömssonar, þegar þeir vora kynntir á sviðinu,
ásamt Óskari Jónassyni, Jóni Ölafssyni og Sól-
eyju EUasdóttur. Myndin seldist um gjörvallan
heim, sem er auðvitað helsta markmiðið með
þessu öllu saman.
Málamiðlanir
Á sömu hátíð var íslensk mynd í keppni, því
Ævintýri á okkar tímum, eftir Ingu Lísu Middl-
eton, keppti í flokki stuttmynda. Full ástæða var
tU að hafa uppi bjartsýni, enda afar sérstök og
mikU stuttmynd á ferð. Dómnefndin olU
hneykslan; valdi Jim Jarmusch fyrir þriðju
mynd sína um Kaffi og sígarettur, með þeim
Tom Waits og Iggy Pop. Dagblaðið Libération
gerði grín að niðurstöðunni: „rétt hjá dómnefnd
að velja svona ungan og óþekktan höfund, sem
þarf á þessum verðlaunum að halda“. Blaðið
meinti auðvitað hið gagnstæða enda var Jarm-
usch eini þekkti leikstjórinn í stuttmyndakeppn-
inni.
Formaður dómnefndar í aðalkeppninni var
franski öðlingurinn Louis Malle, sem hafði ný-
lokið við kynlífsdramað „Damage" með JuUette
Binoche og Jeremy Irons í aðalhlutverkum. Ég
varð þess heiðurs aðnjótandi að ná einkaviðtali
við Louis Malle á kvikmyndahátíðinni í Gauta-
borg fyrr um veturinn og hafði mikla ánægju af.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
W i-ES DESSOUS
DU FESTIVAL
GÉRARD DEPARDIEU
BRIANDEPALMA
ít f evenpmpnf ri3n. u «aJ
Björk er komin á forsíðurnar í Frakklandi, t.d. á sérblað Le Monde og hér á forsíðu Studio.
Þegar Islendingar unnu Gullpálmann: Nicolas
Cage, Laura Dern, Isabella Rosselini ogDavid
Lynch kynna Wild At Heart.
Blessuð sé minning hans. Tveimur áram síðar, í
viðtaU við undirritaðan í Cannes vegna „Die
Hard 3“, sagði Jeremy Irons farir sínar ekki
sléttar af samstarfi sínu við Malle. Hann hefði
farið illa með sig með því að taka nektarsenur á
allt annan hátt en um hafði verið rætt. Víðar
Unsur en ekki þröngar. Ég veit ekki hvoram ég á
að trúa, en alltént er nú aðeins annar þeirra til
frásagnar og ekki hefur Juliette Binoche kvart-
að, svoégviti.
Aldrei var spuming hvaða mynd bæri sigur
úr býtum í Cannes þetta árið. Píanóið hennar
Jane Campion var án vafa mynd hátíðarinnar.
Menn komu dolfallnir af frumsýningunni og um
fátt annað var talað þessa hátíð. Engu að síður
var Gullpálminn kUpptur í tvennt og afleggjari
einnig færður í hendur Hou Hsiau Hsien fyrir
„Farewell My Coneubine“. Slíkt gerist ekki
nema þegar dómnefndin getur ekki komið sér
saman um eina mynd. Síðarnefnda myndin var
reyndar líka ágæt og átti allt gott skiUð.
Árið 1994 tóku Bandaríkjamenn völdin aftur í
Cannes. Ymsir evrópskir menningarvitar
kenndu Clint Eastwood, formanni dómnefndar,
um að Quentin Tarantino skyldi hljóta gullpálm-
ann fyrir „Pulp Fiction". Breski gagnrýnandinn
Derek Malcolm ritaði langa pistla í The Guard-
ian til að skýra út hversvegna Rauður, eftir
Krzyzstof Kieslowski, væri miklu merkilegri
mynd. Malcolm taldi ekkert nýtt vera á ferðinni
hjá Tarantino, hann hefði jafnvel sjálfur gert
betur í sinni fyrstu mynd, „Reservoir Dogs“
(sem komst ekld í keppnina tveimur áram áður,
svei!) Hvað um það, löngu síðar sagði innan-
búðarmaður mér að það hefði ekki verið CUnt
sem hafi tryggt Quentin Gullpálmann, heldur
hefðu aðrir dómnefndarmenn verið honum
sterkari.
Keppnin í Cannes var afar sterk árið 1995.
Þarna rak hvert kvikmyndaséníið annað; Jeunet
og Caro, Þeo Angelopoulos, John Boorman, Tim
Burton, Terence Davies, Philip Haas, Christ-
opher Hampton, Hou Hsiao Hsien, James
Ivory, Jim Jarmusch, Ken Loach, Manoel de
OUveira, Zhang Yimou og Sam Raimi, auk þess
sem ungur franskur snillingur var uppgötvaður,
Mathieu Kassovitz, sem hlaut leikstjóraverð-
launin fyrir Hatur og skaut mörgum gamla
manninum ref fyrir rass.
Mesti snillinn vann þó Gullpálmann; Bosníu-
maðurinn Emir Kusturica fyrir meistaraveririð
„Underground". Ég hafði hitt Emir tvisvar áð-
ur, fyrst þegar ég var með fjölskyldu minni á
skíðum í frönsku Olpunum og síðan tók ég viðtal
við hann í París rétt áður en hann kláraði „Und-
erground". Viðtalið geymdi ég fyrir Moggann
þar til Gullpálminn var í höfn. Það var tekið áður
en hann fékk leið á því að tala um pólitík og var
hann ekki að skafa af því. Skemmtilegustu
kynnin af Emir vora þó mörgum áram síðar; í
fótboltaleik íslenskra kvikmyndagerðarmanna
gegn Júgóslövum í No Smoking Band, í tengsl-
um við kvikmyndahátíð í fyrra. Leikinn unnum
við7-4.
Gull og gnípíur
Keppnin um gullpálmann hefur sjaldan verið
jafn spennandi og árið 1996. Tvær afar ólíkar
myndir þóttu strax mjög sigurstranglegar;
„Breaking the Waves“, eftir Lars Von Trier, og
„Secrets and Lies“, eftir Mike Leigh. Sannar-
lega erfitt að gera upp á milli. Þó að Mike Leigh
hafi sent þama frá sér einstaka mynd, varð ég
fyrir vonbrigðum með að Trier skyldi ekki hafa
+
BÍÓBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000 C 5
þetta. Og ég varð líka svekktur fyrir hönd Emily
Watson, þó að Brenda Blethyn hafi líka verið
stórkostleg. Þó ekki væri nema vegna þess að ég
tók viðtöl fyrir Moggann við allt Breaking-slekt-
ið.
Eftir á að hyggja hefði þriðja myndin gjaman
mátt vinna. Coen-bræður vora komnir aftur, í
þetta skiptið með Fargo, einhverja eftirminni-
legustu spennumynd síðari tíma. Einhverra
hluta vegna kom hún aldrei neitt sérstaklega til
greina í Gullpálmann. Þetta var einhvem veginn
alltof auðvelt hjá þeim. Engin kvöl, þjáning eða
angist hafði fylgt þessari mynd, heldur bara
skothelt handrit og óaðfinnanlegt handbragð.
Þeir era bara alltof góðir.
Þetta sama ár náði ég viðtali við Martin
Scorsese, sem var að kynna mynd sína Kundum.
Viðtalið skrifaði ég svo aldrei, enda hafði ég
skipt um starfsvettvang í millitíðinni. Það var
einmitt í Cannes ’96 sem mér datt í hug að sækj-
ast eftir stöðu hjá Kvikmyndasjóði. En Scorsese
var hinn skemmtilegasti. Fáir hafa jafn sindr-
andi og grípandi talanda. Svo er hann auðvitað
snillingur. Hann var svo hrifinn af nýju mynda-
vélinni minni, að hann heimtaði að tekinn yrði
mynd af okkur saman. Ég gat því ekki annað en
brotið mína eigin reglu um að biðja ekki um
grúpíumynd af mér og viðmælandanum.
Eftir þetta gerbreyttust ferðir mínar til
Cannes. Nú var ég kominn hinum megin við
borðið, að kynna íslenskar kvikmyndir fyrir
kaupendum og öðram kvikmyndahátíðum. Hef-
ur það gengið nokkuð vel, enda er þetta lang-
mikilvægasti vettvangur íslenskra kvikmynda
erlendis. Islenskar kvikmyndir hafa náð ágætri
dreifingu erlendis þó að alltaf verði að stefna að
því að gera betur.
Skotið fram hjá
Síðustu árin hefur Cannes-hátíðin að ýmsu
leyti átt undir högg að sækja. Sambandið við
bandaríska framleiðendur hefur farið versn-
andi. „Tant pis“, segja kannski Frakkamir, en
vitaskuld lifir hátíðin ekki án bandarískra stór-
mynda. A sama tíma og bandarískir framleið-
endur leggja minna uppúr því að koma mynd í
keppnina, hefur hátíðinni ekki heldur tekist að
fá til sín myndir, sem gætu í framtíðinni flokkast
sem meistaraverk. Eða hver verða eftirmæli
Gullpálmans 1997,1998 og 1999? Ja, flest annað
en mílusteinn. Fyrst var það Állinn, eftir Jap-
anann Immamura og svo var það Angelopoulos
með Eilífðina og einn dag, sem túlkað var frem-
ur sem uppsöfnuð verðlaun fyrir þennan ágæta
leikstjóra. í fyrra kom dómnefndin svo öllum á
óvart með því að velja litla mynd frá Belgíu,
Rosetta, eftir þá Dardegna-bræður, með unga
amatörleikkonu í titilrallunni. Á sama tíma hef-
ur hátíðin reynt að berjast gegn Hollywood og
myndir á borð við LA. Confidential farið tóm-
hentar heim. Varla er hægt að halda því fram að
Cannes sé með þessum myndum að styrkja
stöðu sína sem helsta kvikmyndahátíð heims.
Samt er hún það enn.
Kvikmyndamarkaðurinn, sem haldinn er
samhliða hátíðinni, hefur reyndar bara styrkst,
ef eitthvað er. Æ fleiri myndir era þar til sýning-
ar og æ fleiri kaupendur koma til að sjá það sem
er í boði á heimsmarkaði.
Og hvað er svo að gerast í ár? Jú, aldrei fleiri
myndir hafa reynt að komast í keppnina, eða alls
1.397 talsins! Þetta er 25% aukning frá fyrra ári,
hvað sem því veldur. Kannski bara ártalið mikla,
2000. Hátíðin hefur lengi verið gagnrýnd fyrir
að velja oft sömu leikstjórana og svo er einnig
nú: Lars Von Trier, Coen-bræður, Ken Loach
og John Waters era allir á meðal góðkunningja.
Fimm kvikmyndir verða sýndar frá íslandi í
ár, eða fleiri en gengur og gerist (sjá Cannes-
pistil Pétm-s Blöndal hér til hliðar), enda mikil
uppsveifla í íslenskri kvikmyndagerð.
Framlag okkar til keppninnar er þátttaka í
hinni alþjóðlegu kvikmynd, Dancer in the Dark.
Alþjóðlegu, segi ég, því meira en tugur þjóða
leggur fé og listræn gildi til myndarinnar.
Myndin er m.a. styrkt af Kvikmyndasjóði ís-
lands, íslenska kvikmyndasamsteypan er á
meðal framleiðenda, Björk Guðmundsdóttir
leikur aðalhlutverk og semur tónlist, Sjón sem-
ur söngtexta og Karl Júlíusson hannar risa-
vaxna leikmynd.
Dancer in the Dark hlýtur að eiga alla mögu-
leika á verðlaunum, jafnvel sjálfum Gullpálman-
um (eða leikkonuverðlaunum). Þó era nokkrar
aðrar sterkar myndir þama innanborðs. Derek
Malcolm telur myndina í hópi þeirra sigur-
stranglegustu, ásamt O Brother, Where Art
Thou? eftir Coen-bræður, Bread and Roses, eft-
ir Ken Loach, Untitled, eftir Hong Kong-leik-
stjórann Wong Kar-Wai og frönsku myndinni
Code Unknown.
Annars era mestu fréttimar frá Cannes
tengdar óvissu. Eftir aldarfjórðung á valdastóli
Cannes-hátíðarinnar hafði Gilles Jacob ákveðið
að draga sig í hlé en vera áfram stjómarformað-
ur hennar með nýjum stjórnanda. Það er til
marks um hvemig kvikmyndapólitíska kvömin
malar að eftirmaður hans hefur sagt af sér áður
en hann byrjar störf. Og enginn veitt neitt, eins
og William Godman sagði. Það verður fróðlegt
að finna fyrir þessum sviptingum á hátíðinni
núna þar sem fullkomin óvissa ríkir um framtíð-
arstjórnun hennar.
Morgunblaðiö/ Sigurbjörn Aöalsteinsson
Jim Stark, sem m.a. framleiddi Á köidum klaka, leikstjóri þeirrar myndar, Sendiherra islands, Jón Baldvin
Friðrik Þór og leikstjóri LA Confidential, Curtis Hanson ræða saman. Hannibalsson, ræðir við bíógest.
Fyrstu íslensku
kvikmyndahátíö-
inni, sem haldin
hefur veriö í Holly-
wood, lauk um
helgina. Sigurbjörn
Aðalsteinsson var
á staönum og
kynnti sérviöbrögö
gesta og gangandi.
„Allir íslenskir kvikmyndagerðar-
menn vita aðþað er hættulegt að not-
ast við íslenskt landslag í kvikmynd-
um. Fallegt landslag getur drepið
slappa sögu“ - Friðrik Þór Friðriks-
son.
„Iceland naturally" stendur stór-
um stöfum á auglýsingaplaggi sem
hangir í anddyri kvikmyndahúss í
Los Angeles. Iceland naturally. Höf-
um við ekki öll verið sölumenn fyrir
náttúrulegt ísland einhvemtímann á
ævinni? Hvaða land er með besta
vatnið? Island, náttúrlega. Besta
kjötið? ísland náttúrlega.
Fallegustu konumar? Island nátt-
úrlega.
Og núna getum við farið að bæta
enn einni ijöður í hattinn. Bestu bíó-
myndimar? ísland, náttúrlega.
Það segir F.X. Feeney að minnsta
kosti. Feeney er kvikmyndagagn-
rýnandi og handritshöfundur í Los
Angeles. Hann var einn af gestum á
fyrstu íslensku kvikmyndahátíðinni í
Hollywood. Hátíðin, sem lauk um
helgina, var haldin í Egyptanum,
safnabíóinu í Hollywood. „Það era
tvö evrópsk lönd sem skara fram úr
öðram í kvikmyndagerð í dag,“ segir
Feeney. „Þetta era Spánn og ísland.
Það er eins konar nýbylgja i gangi í
þessum löndum, svipað og nýbylgjan
í Frakklandi á sjöunda áratugnum.
Það sem einkennir íslenskar myndir
er sköpunarorkan sem streymir frá
þeim og hefur áhrif á áhorfandann,“
bætirFeeneyvið.
Flestir sem Bíóblaðið hafði tal af á
meðan á hátíðinni stóð vora að ein-
hverju leyti sammála F.X. Feeney.
„Þetta var góð mynd,“ segir Anne
Cartegne, um Dansinn. „Ég er
frönsk og sakna Evrópu. Þessi mynd
er eins og ferskur andvari fyrir mig.“
Á Dansinum vora einnig Karl Torfi
Esrason og Helga Magnúsdóttir,
sem hafa búið í Bandaríkjunum frá
1986. „Við eram sjaldnast á íslandi
lengi í senn og höfum ekki getað
fylgst með hvað er að gerast. Þetta er
því kjörið tækifæri fyrir okkur,“ seg-
ir Karl sem starfar sem læknir í Los
Angeles. „Ég hafði gaman af Dansin-
um,“ segir Helga. „Ekki síst vegna
þess að ég kenndi Pálínu Jónsdóttur
(aðalleikkonu myndarinnar) í grann-
skóla. „Hún stóð sig vel,“ segir Helga
um sinn gamla nemanda. Karl og
Helga vora sammála um að Ungfrúin
góða og húsið og Englar alheimisins
hefðu verið bestu myndimar sem
þau sáu á hátíðinni. „Og Perlur og
svín,“ bætir Karl við.
Maður var glottandi næstum alla
sýninguna.“ Perlur og svín var sýnd
ásamt Blossa á „double feature“ sýn-
ingu (e.k. tvær fyrir eina). Einn gest-
ur á sýningunni, Jane Harris hafði
unnið miðann sinn í spumingaleik
hjá útvarpsstöðinni KCRW. „Ég er
bíófíkill,“ segir hún um ástæðu þess
að hún varð sér úti um miðann góða.
„Einu sinni sá ég 189 myndir á 6 vik-
um. „Ég datt í það,“ bætir hún við áð-
ur en hún drífur sig inn í salinn. Hún
leynist víða, fíknin.
Þó að Jane sé kannski ekki alveg
dæmigerður gestur á íslensku kvik-
myndahátíðinni, þá eiga þeir það
flestir sameiginlegt að vera mikið
bíóáhugafólk. Tony Lucero, teppa-
sölumaður frá Santa Monica, er t.d.
meðlimur í Egyptanum og kemur
til að horfa á myndir við hvert tæki-
færi. „Ég hef mjög gaman af erlend-
um myndum. Þær era ólíkar banda-
rískum myndum og gefa mér innsýn í
heim sem ég myndi ekki kynnast
annars.“ Það lætur nærri að Tony
hafi verið þama á hveiju kvöldi á
meðan á íslensku hátíðinni stóð.
Hann var mjög ánægður með
myndimar sem hann sá og hreint í
skýjunum yfir Ungfrúnni góðu.
„Þetta var djúp og hjartnæm mynd.“
I sama streng tóku Ann Ling kvik-
myndaklippari og Marge Kershaw
vinkona hennar. „Þetta var yndisleg
mynd. Kvikmyndataka og leikur
mjög góð,“ segir Ann sem jafnframt
var hrifin af hinni sérstöku íslensku
birtu.
Það þarf ekki að koma neinum á
óvart að myndir Friðriks Þórs Frið-
rikssonar hafi vakið mesta athygli
gesta Egyptans. Hann er þekktur
meðal þeirra sem fylgjast grannt
með í kvikmyndaheiminum, auk þess
sem hann var sjálfur viðstaddur sýn-
ingar á Bömum náttúrannar og
Englum alheimsins.
„Ég set Friðrik Þór í flokk með
Tarkovski, Kurosawa og Wenders."
segir FX Feeney. „Hann hermir
ekki eftir neinum, heldur hefur sinn
eigin stfl. Það sem hann segir kemur
frá hans eigin innsta kjama og úr
kjarna leikaranna.“ Feeney segir að
Englar alheimsins sé besta mynd
Friðriks til þessa. Meðal annarra
gesta á sýningunni á Englum al-
heimsins, vora Curtis Hanson, leik-
stjóri L.A. Confidential, og Monte
Hellman, framleiðandi Reservoir
Dogs, sem báðir létu vel af myndinni.
Englar alheimsins var langbest
sótta myndin af þeim sem sýndar
vora. Ætla má að um 3-400 manns
hafi verið í salnum enda var haldin
sérstök móttaka í tengslum við sýn-
inguna. Þar sem vora viðstödd, auk
Friðriks, leikaramir Ingvar Sigurðs'- ’
son og Baltasar Kormákur, Olafur
Ragnar Grímsson, forseti íslands,
Jón Baldvin Hannibalsson sendi-
herra og Bryndís Schram, kona hans.
Þá vora Siguijón Sighvatsson kvik-
myndaframleiðandi og kona hans,
Sigríður Þórisdóttir, ræðismenn ís-
lands í Los Angeles, viðstödd.
Sigurjón var ekki einasta drif-
fjöðrin á bakvið þessa veglegu ís-
landshátíð í Los Angeles heldur einn-
ig lykilmaður í endurbyggingu hins
sögulega kvikmyndahúss sem mynd-
imar vora sýndar í.
Forseti Islands, Ólafur Ragnar
Grímsson, var einnig viðstaddur
heimsfrumsýningu myndar Baltas-
ars Kormáks, 101 Reykjavík. SÍ
mynd sýnir Island í öðru ljósi en
myndir Friðriks. „101 er nútíma-
saga. Við þekkjum öll einhvem eins
og aðalpersónuna i myndinni. Mann
sem virðist ósköp venjulegur en
ákveðinn hluti lífs hans er alveg út úr
kú,“ segir F.X. Feeney.
Feeney sá einnig Fíaskó og fór lof-
samlegum orðum um hana. En er
eitthvað sem hann saknar úr íslensk-
um myndum? „Ég myndi vilja sjá
meira landslag. Meira samband á
milli fólksins og þessa stórkostlega
lands sem þið búið í,“ segir hann. f
Er þá kominn tími til að hætta að"
fela landslagið? Eram við orðin nógu
góð til að skrifa sögur sem ekki verða
étnar upp af landslaginu. Hví ekki?
Hvar er flottasta landslagið? Á ís-
landi, náttúrlega.
Hveijir skrifuðu bestu sögumar?
íslendingar, náttúrlega.