Morgunblaðið - 08.06.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000 47 f
LISTIR
Hallgerður
fær uppreisn
Morgunblaðið/Steinunn
Arthúr Björgvin Bollason í hlutverki Njáluhöfundar.
LEIKLIST
Sögusetrið á
Hvolsvelli
ENGIN HORNKERLING
VIL ÉG VERA
Höfundur: Arthúr Björgvin Bolla-
son. Flytjendur: Arthúr Björgv'in
Bollason, Signrður Sigmundsson,
Svala Amardóttir.
Leikstjórn: Svala Amardóttir.
Sögusetrið á Hvolsvelli 31. maí.
SÖGUSETRIÐ á Hvolsvelli stóð
að fyrstu söguveislu sumarsins á
miðvikudagskvöldið og var þar frum-
fluttur leikþáttur eftir óþekktan höf-
und sem reyndar gaf sig fram í upp-
hafi og reyndist vera forstöðumaður
Sögusetursins, Arthúr Björgvin
Bollason. Honum var heldur ekki
auðvelt að leynast þar sem hann lék
aðalhlutverkið, höfund Njálu, en
honum til fulltingis var Sigurður Sig-
mundsson í hlutverki Sigurðar
Breiðfjörð. Ekki verður um þetta
fjallað sem heilstæðan leikþátt, öllu
heldur sem leikræna framsetningu á
hugmyndum höfundarins á hlutverki
Hallgerðar langbrókar í Brennu-
Njálssögu, persónu hennar og því
lífshlaupi sem Njáluhöfundur leggur
henni til í sögunni. Kjarni hugmynd-
ar Arthúrs Björgvins er sá að Njála
sé skáldsaga, hún lúti þeim sömu lög-
málum og snerting hennar við raun-
verulega rás viðburða sé tilviljun.
Hvort þeir viðburðir sem Njála lýsir
áttu sér nokkurn tíma stað eður ei
má kannski einu gilda og ætlar sá er
hér ritar ekki að hafa skoðun á því.
Arthúr Björgvin er vel heima í
Njálu og ýmsu er hana snertir og
þáttur hans því allur hinn fróðlegasti
og á köflum skemmtilegur. Fram-
setningin er með einföldum hætti,
hann stendur í púlti klæddur munka-
kufli og undh’strikar með því þá
skoðun sína að höfundur Njálu hafi
verið munkur. Síðan ræðir hann við
áhorfendur um Hallgerði, eða
„Gerðu sína“, eins og hann kýs oftast
að nefna hana og er mildð í mun að
rétta hlut hennar og skipa henni
hærri sess en þjóðarsálin hefur gert
til þessa. Engin hornkerling vil ég
vera er því réttnefni á þættinum.
Arthúr Björgvin hefur samið
skemmtilegan texta og kryddar
hann síðan með leiknum hljóðupp-
tökum af brotum úr samtölum Njálu,
þar sem Hallgerður á orðaskipti við
menn sína, þeirra frægust eru að
sjálfsögðu á milli hennar og Gunnars
þar sem hann biður hana um hár-
lokkinn í bogastrenginn. Ekki er að
efa að mörgum á eftir að finnast þátt-
urinn fróðlegur en fyrir næsta flutn-
ing mætti hugsa fyrir því að stytta
hann nokkuð án þess að kæmi niður
á fróðleiksgildinu.
Hugmynd höfundar að þættinum
hverfist reyndar um athyglisverðan
ás sem er meðvitund höfundarins um
verk sitt. Höfundur Njálu er hér
sagður skáldsagnahöfundur en er þó
fremur bókmenntafræðilega vaxinn.
Einræða hans er á þeim nótum að
hann útskýrir hvað honum gekk til
og hvers vegna hann lagði persónun-
um þessi orð í munn og hafði rás at-
burða með þeim hætti sem lýst er í
sögunni. Hann er einnig hafinn yfir
tíma og rúm að því leyti að hann talar
með yfirsýn yfir þær aldir sem liðnar
eru frá ritunartíma Njálu og kallar
fram á sviðið Sigurð Breiðfjörð og
vitnar í Njálurímur hans.
Þeir sem verða á ferð um Suður-
land í sumar ættu að gæta að dag-
skrá Sögusetursins, hvort Njáluhöf-
undur muni þar stíga á svið, og ekki
síður að skoða hina stórfróðlegu og
fallegu Njálusýningu sem þar hefur
verið sett upp með myndum, textum,
munum og búningum og svo hvergi
mun jafngóða fræðslu að fá um
Brennu-Njálssögu og sögusvið henn-
ar.
Hávar Sigurjónsson
Tríótón-
leikar í
Hömrum
„LANDIÐ sem ekki er til“ er yfir-
skrift tríótónleika sem haldnir
verða í Hömrum, sal Tónlistar-
skóla ísafjarðar, í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20.30. Þar flytja
norrænu listamennirnir Susanna
Levonen mezzósópran, Bernt Wil-
helmsson píanóleikari og Magnus
Irving flautuleikari verk eftir
norræn tónskáld, bæði eldri og _
yngri, auk norrænna þjóðlaga. '
Flutt verða tvö ný verk: „Land-
ið sem ekki er til“ eftir Svein Lúð-
vík Björnsson við ljóð Edith
Södergran og „För nára“ (Of ná-
lægt) eftir sænska tónskáldið
Sven Ahlin við ljóð eftir Wislawa
Szymborska. Miðaverð er kr. 1200
en ókeypis fyrir skólafólk yngri
en 20 ára. Tónleikarnir njóta
stuðnings Tónlistarfélags Isa-
fjarðar og Norræna tónlistarráðs-
ins (Nomus).
ATVIMISIU-
A U G LÝ 5IMGAR
'A'
IHafnarfjarðarbær
Félagsleg
heimaþjónusta
Öldrunardeild
Vantartvo starfsmenn ífélagslega heimaþjón-
ustu. Um er ræða félagslega samveru og
stuðning fyrirtvo einstaklinga.
Annað starfið er 50% en hitt 60%
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
allra fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Húnbjörg í síma 585-
5735 og 585-5700 f.h. alla daga.
Öldrunarfulltrúi.
Lögmann vantar íbúð
til leigu í vesturbæ, 4 herb. eða stærri, í 1-2 ár.
Reglusemi og góð umgengni.
Áhugasamir hringi í síma 893 1121.
TILKYNNINGAR
Tungumálasérfræðingar
athugið!
Evrópumerkið
Viðurkenning fyrir nýbreytniverkefni í tungu-
málakennslu og námi. Umsóknarfrestur er
framlengdurtil 30. júní nk. Allar nánari upplýs-
ingar hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins,
sími 525 5813, netfang: rz@hi.is.
TIL SOLU
Barnafataverslun á
Selfossi til sölu
Á Selfossi erfalleg barnafataverslun til sölu.
Selur eingöngu góð og vönduð vörumerki á
hagstæðu verði. Fallegar innréttingar. Mjög
góð staðsetning. Hentugt fyrir aðila sem vill
skapa sér sjálfstæða atvinnu.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á afgreiðslu
Mbl. fyrir 15. júní nk. merktar:
„Barnaföt — Selfoss"
FELAGSSTARF
Norrænt ungmennamót
I#
k.
Menning og æska
Taktu þátt í
ógleymanlegu móti
í Reykjavík 21.-28. júní 2000
Um 2000 þátttakendur á aldrinum 14-24 ára frá
Norðurlöndunum skemmta sér við leik og störf í
Reykjavík dagana 21.-28. júní á norræna
ungmennamótinu Menning og æska. Mótið er
fullt af áhugaverðum dagskrárliðum sem
tengjast menningu, umhverfismálum og
íþróttum svo allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi.
Enn er pláss fyrir íslenska þátttakendur.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Menningar
og æsku (UMFÍ), Fellsmúla 26,108 Reykjavík,
sími 5682929 eða á heimasíðu
http://www.umfi.is/kultur.
Verð: 9900. Innifalið er fullt fæði og gisting í
skólum í nágrenni Laugardals, dagsferð um
Suðurland, gestakort Reykjavíkur sem og
aðgangur að öllum dagskrárliðum mótsins.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Snælandsskóli 1990
Laugardaginn 10. júní verða haldnir á Naust-
inu endurfundir hjá þeim, sem útskrifuðust
1990, f. 1974. Mæting er kl. 18.00 og borðhald
hefst kl. 19.30. Verð er u.þ.b. kr.3000. Vinsam-
lega látið vita hjá Katrínu, s: 861 6779.
Sjáumst hress.
ATVINNUHUSNÆOI
Til leigu — miðborgin
Verslunar-, skrifstofu og þjónustuhúsnæði.
Stærðareiningar: 150 fm, 400 fm og 600
fm.
Eignarhaldsfélagið
Kirkjuhvoll ehf.,
símar 562 3585 og
892 0160.
GAR
KENNSLA
Námskeið f Kriya yoga
Dagana 9.-12. júní verður haldið
námskeið í Kriya yoga tækni að
Bolholti 4, 4. hæð. Leiðbeinand-
inn Peter Van Breukelen mun
halda kynningarfyrirlestur 9. júní
kl. 20.00. Námskeiðið hefst svo
10. júní kl. 9.30 og stendur dag-
ana 10., 11., og 12. júní. Nám-
skeiðið kostar kr. 7.500 fyrir byrj-
endur en eldri nemendur eru
einnig hjartanlega velkomnir.
FÉLAGSLÍF
S5/
(íifflhjÁlp
Dorkas-samkoma
Samkoma i Þríbúðum, Hverfis-
götu 42, í kvöld kl. 20.00. Dorkas-
konur sjá um samkomuna.
Allir velkomnir.
www.samhjalp.is.
Kl. 20.30: Samkoma í umsjón
Paulinu imsland og Hilmars Sím-
onarsonar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fréttir á Netinu