Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 10

Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 10
10 ’LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Verulegar breytingar hafa orðið hjá Landsbanka Islands hf. Fjárfesting- arbankivar óhugsandi Miklar breytingar hafa orðið hjá Landsbanka Is- lands hf. á síðustu mánuðum og misserum, nú síð- ast með kaupum bankans á meirihluta í fjárfesting- arbanka í London. Rætt var við forsvarsmenn fjárfestingarhluta bankans um breytingarnar. LANDSBANKINN fær inn á borð til sín margs konar beiðnir frá fyrirtækjum sem ekki eru hrein lánamál, þ.e. frá fyrirtækjum sem eru lítil, ný- lega byrjuð og ekki komin með nægi- lega veltu eða eignir þannig að ekld er hægt að taka veð í þeim. Þegar svo er skoðum við málið,“ sagði Ólafur Sörli Kristmundsson, framkvæmdastjóri Landsbankans-Framtaks hf., í sam- tali við Morgunblaðið. Fyrirtækið Landsbankinn-Framtak hf. var stofn- að í byrjun árs 1999 til að geta komið að fjármögnun vaxtargreina með nýj- um hætti. „Landsbankinn-Framtak starfar á sviði framtaksfjármögnun- ar, sem er þýðing á enska hugtakinu „venture capital financing“. Ætlunin er að vera virkur þátttakandi í nýja hagkerfinu svokallaða og byggja upp þekkingu og reynslu á því sviði. Sam- tímis er verið að tryggja aðgengi bankans að nýjum atvinnuvegum. Við munum fjárfesta í fyrirtækjum sem eru að vaxa upp í þessu nýja þekking- arsamfélagi og þannig meðal annars stuðla að nýsköpun í atvinnulífinu,“ bætti Ólafur Sörli við. „Eitt af íyrstu verkefnum fyrir- tækisins var að gera rekstrarsamning við íslenska hugbúnaðarsjóðinn hf. um daglegan rekstur og að sjá um fjárfestingarmál fyrir þennan sjóð og leggja þau fyrir stjóm hans. Sjóðnum hefur gengið vel, bæði hvað varðar fjárfestingarákvarðanir og einnig hafa fjárfestar verið áhugasamir, sem sést best á góðri ávöxtun. Árangurinn felst í þekkingu og reynslu á rekstri og útrás hugbúnaðarfyrirtækja svo og þeirri stefnu sem sjóðurinn hefur hvað fjárfestingar varðar, en sjóður- inn fjárfestir í hugbúnaðarfyrirtælq- um með vaxtarmöguleika, þ.e. skalan- leika á aðra markaði. Annað sem við erum með er Framtakssjóður Lands- bankans og Nýsköpunarsjóðs, sem er með 375 milijóna króna eigið fé og er að tveimur þriðju í eigu Nýsköpunar- sjóðs og einum þriðja í eigu Lands- bankans. Sjóðurinn hóf starfsemi síð- astliðinn nóvember og er ætlað að fjárfesta í upplýsinga- og hátæknifyr- irtækjum á Islandi. Hann hefur nú fjárfest í tveimur félögum og nokkur eru í skoðun.“ Taka þátt í vexti fyrirtækjanna „Helstu markmið hjá okkur á næstunni er að stækka og fjölga sjóð- um. í dag erum við með tvo sjóði sem við fáum þóknun fyrir að sjá um, þ.e. íslenska hugbúnaðarsjóðinn og Framtakssjóðinn, og við erum sem sagt að vinna í því að þeir verði fleiri. Við erum einnig að skoða þann möguleika að hefja starfsemi úti í London, en það er í raun stærsti markaðurinn á sviði upplýsinga- og hátækni í dag. Þar er mildl geijun og mörg tækifæri og mikilvægt að ná góðum samböndum þar. Við reiknum með að verða með mann í The Herit- able and General Investment Bank, sem Landsbankinn keypti meirihluta í nýlega, til að sinna þessu.“ Ólafur sagði Landsbankann-Fram- tak fá mikið af umsóknum. „Menn koma til okkar með viðskiptaáætlanir sem við setjum í ákveðið ferli. Fyrst spyrjum við okkur - burtséð frá því hvort hún er góð eða ekki - hvort hug- myndin samræmist þeirri stefnu sem við höfum sett okkur, t.d. hvort fata- verksmiðja eða tölvufyrirtæki hentar okkur. Ef hugmyndin er af því tagi sem við viljum fjárfesta í förum við yf- ir þau almennu skilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi. Svo dæmi séu tekin gerum við ríkar kröfur til þess að hæfir stjómendur séu í fyrirtækinu, þá skoðum við vaxtarmöguleika og markaðsstærð, þ.e. hvort viðkomandi markaður er yfirleitt nógu stór. Við viljum koma inn á ákveðnu ævi- skeiði fyrirtækjanna, þar sem vöru- þróun er komin vel á veg og þar sem fyrirtæki eru að hefja markaðssókn og sölu. Við viljum vera með á fyrri- hluta vaxtarskeiðs fyrirtækisins og selja síðan. Útgangur úr fyrirtækinu getur verið með ýmsum hætti; fyrir- tækið getur farið á markað, við selt eignarhlutann, samruni orðið eða yf- irtaka. Stærri eða sérhæfðari fyrirtæki Morgunblaðið/Golli Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans og staðgengill bankastjóra, og Ólafur Sörli Kristmundsson, fram- kvæmdastjóri Landsbankans-Framtaks. Nýtt árangursstjórnimarkerfí Tekið upp fyrir árslok STEFNT er að því að svonefnd al- tæk árangursstjómun verði inn- leidd hjá Landsbanka íslands fyrir árslok, að sögn Kristínar Rafnar, starfsmannastjóra Landsbankans. Hún segir að verið sé að skoða alla þætti í rekstri bankans. Liður í þessu nýja kerfi er kaup- réttarsamningar sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær. Þeir fela í sér að starfsmenn bankans og fé- lagasamstæðunnar fá kauprétt á hlutabréfum í bankanum að nafn- virði kr. 35.000 árlega næstu tíu árin. Kristfn segir að uppbygging al- tækrar árangursstjómunar sé hluti af samstarfí Landsbankans við Royal Bank of Scotland, sem hafí hafist í fyrrasumar. Starfsmenn frá skoska bankanum hafi komið til landsins, aðstoðað við úttekt á nokkrum þáttum starfsemi Landsbankans og sett fram tillögur að úrbótum. Ein þeirra var að inn- leiða altæka árangnrsstjórnun. Það kerfi byggist á því að setja öllum starfseiningum mælanleg markrnið sem byggjast á framtíðarsýn stjórnenda bankans. Að sögn Kristínar eru sett ferns- konar markmið í altækri árangurs- stjórnun: Fjárhagsleg markmið, markmið sem tengjast viðskipta- vinum bankans, innri virkni og starfsfólki. Stærsta verkefnið sem lýtur að starfsfólki er árangurs- stjórnun starfa. Allir starfsmenn setja sér markmið sem tengjast rekstri bankans, eigin starfsein- ingu auk persónubundinna mark- miða. Frammistaða starfsmanns verð- ur síðan metin og ræður kaupauka hans. „Við erum að skrá alla verk- ferla og fara yfir allar starfslýsing- ar,“ segir Kristín, „undanfarið hafa verið haldin námskeið fyrir stjórnendur og starfsmenn í tengsl- um við þessi verkefni," segir hún. Verkefnavinnan hefur staðið yfir sleitulaust frá áramótum, en fjórir starfsmenn hafa sinnt henni í fullu starfi, auk þess sem fjöldi annarra starfsmanna hefur tekið þátt í verkefninu. „Landsbankinn er í dag vel f stakk búinn til að miðla öðrum fyrirtækjum og stofnunum af reynslu sinni við sambærileg verkethi," segir Kristín Rafnar. Ef samkomulag næst við frum- kvöðulinn um verð förum við í samn- ingagerð og áreiðanleikaskoðun. Þetta ferli tekur yfirleitt frá tveimur vikum upp í tvo mánuði eftir því hvers eðlis verkið er. Við erum svo inni í fyr- irtækinu í á að giska þrjú til sjö ár og við leggjum mikið upp úr að þetta sé sameiginlegt markmið frumkvöðl- anna og okkar." Um framtíðarsýnina í upplýsinga- og fjarskiptageiranum sagði Ólafur að hann teldi að á næstu árum færu fyrirtæki í þessum geira að þróast í tvær áttir. Annars vegar muni fyrir- tækin sameinast og verða stærri og líta meira til alls heimsins en ekki að- eins einstaks lands. Hins vegar verði þau h'til á þröngu og vel skilgreindu sviði Brynjólfur Helgason, fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Lands- bankans og staðgengill bankastjóra, var spurður út í skipurit bankans og sagði bankanum samkvæmt skipurit- inu, sem tók gildi um síðustu áramót, skipt upp í fimm svið: „Útibúastarf- semin er uppistaða viðskiptabanka- sviðsins, Landsbréf hf. og sérbanka- þjónusta fyrir efnaða einstakhnga heyrir undir sjóðasvið, ýmis innri rekstrarmál eru undir upplýsinga- og rekstrarsviði, alþjóðaviðskipti, áhættustýring, fjárstýring, fjármála- markaðir og afgreiðsla viðskiptastofu telst til alþjóða- og fjármálasviðs, en undir fyrirtækjasvið heyra meðal annars fyrirtækjatengsl, Úandsbank- inn-Framtak hf„ Landsbankinn- Fjárfesting hf„ fjármálaráðgöf og lánaafgreiðsla. Þessi tvö síðastnefndu svið, alþjóða- og fjármálasvið og fyrir- tækjasvið, teljast svo saman til fjár- festingarbankastarfsemi Landsbank- ans og eru á Laugavegi 77. Mesta breytingin á skipulaginu síðustu árin var þó þegar einn bankastjóri tók við af þremur á fyrri hluta árs 1998 en undir hann heyra beint tvær deildir, þ.e. starfsmannadeild og fjárhags- deild.“ Erfítt að draga úr útlánum Brynjólfur sagði miklar breytingar hafa orðið með endurskipulagnmgu í bankanum, meðal annars með til- komu fyrirtækjasviðs. Bankinn sé með þessu að bæta þjónustu sína við fyrirtæki en hann stefni þó um leið að því að draga úr beinni útlánastarf- semi. Að vísu hafi það markmið fjar- lægst nokkuð að undanfömu, því skuldabréfamarkaður hafi verið erf- iður og stór fyrirtæki og sveitarfélög sem hafi verið farin að fjármagna sig með skuldabréfaútgáfu hafi þurft að hverfa frá því þegar sá markaður þomaði upp. „Viðskiptavinir fyrirtælqasviðs era um það bil 300 stærstu fyrirtæki og stofnanir í landinu og þar við bætast sprotafyrirtækin sem era á vegum Landsbankans-Framtaks hf. og Olaf- ur var að tala um,“ sagði Brynjólfur, sem jafnframt er stjómarformaður Landsbankans-Framtaks hf. Hann sagði Landsbankann-Fjár- festingu hf. hafa verið stofnað sem sjálfstætt hlutafélag sem geti komið beint inn í stöðutöku í félögum, yfir- leitt miklu stærri félögum en Fram- tak er í, og yfirleitt félögum sem búin eru að vera lengi í rekstri. „Við föram inn í þessi fyrirtæki til að taka þátt í endurskipulagningu þeirra og stefn- um að því að eiga í þeim í þrjá til átján mánuði eftir því hvemig landið hggur. Stundum getur þetta líka verið þann- ig að við eigum í fyrirtæki í skemmri tíma og seljum fljótt aftur án þess að endurskipuleggja reksturinn, en það getur til dæmis verið vegna aðstoðar við eigendaskipti. Þetta getur átt við kynslóðaskipti í fyrirtækjum. Það era mörg einkafyrirtæki hér sem era orð- in nokkuð stór en era ekki komin á markað heldur í fjölskyldueign, til dæmis flest bílaumboðin. Við gætum komið inn í slík fyrirtæki og til dæmis unnið að samrana við skylt fyrirtæki eða að því að koma fyrirtækinu á markað. Aherslan á þessa hluti og svo á ráð- gjöf um bætta skuldastýringu fyrir- tækja, útboð og fleiri þætti er orðin meiri hjá okkur en á beinar lánveit- ingar.“ Kaupa í fyrirtækjum til að hafa áhrrf „í raun má segja að ijárfestingar- banki Landsbankans geti tekið allt sem viðkemur fjármálaþjónustu við fyrirtæki frá a til ö. Hann getur með ákveðnum skilyrðum,“ sagði Ólafur, „gert viðskiptaáætlun, séð um útboð fyrir viðkomandi fyrirtæki, fjárfest í því og komið því á markað, þannig að bankinn býður í raun upp á allt ferl- ið.“ „Hér má bæta því við,“ sagði Brynjólfur, „að það era ekki mörg ár síðan það hefði ekki verið inni í mynd- inni í Landsbankanum að vera með starfsemi eins og þá sem fer fram hér í Landsbankanum-Fjárfestingu og Landsbankanum-Framtaki þar sem við eram að fjárfesta beint í fyrir- tækjum. Þetta er nýtt fyrir bankann enda bæði fyrirtækin stofnuð á síð- asta ári.“ Spurður að því hvort starfsemi sjóðasviðs og fyrirtækjasviðs skörað- ust ekki sagði Brynjólfur svo ekki vera. „Náið samstarf er við sjóðasvið- ið. Landsbréf era bæði í verðbréfavið- skiptum og sérbankaþjónustu við ein- staklinga og í sjóðarekstri, en þau reka til dæmis sjö lífeyrissjóði og tvo hlutabréfasjóði. Hlutabréfasjóðimir era reknir með það fyrir augum að bjóða hverjum sem vill að fjárfesta í þeim og þau kaupa ekki fyrir hönd bankans eins og við í fjárfestingar- bankahlutanum." „Við kaupum í fyrirtælqum til að hafa áhrif á rekstur þeirra, til dæmis með því að setja menn í stjóm þeirra og veita þeim aðstoð og ráðgjöf,“ bætti Ólafur við, „en Landsbréf kaupa í fyrirtækjum sem þeim líst vel á með tilliti til ávöxtunar, en taka al- mennt ekki þátt í stjómum þeirra.“ Nokkrir sameiningar- mögnleikar í myndinni Brynjólfur var spurður út í hugsan- lega sameiningu Landsbankans og annarra banka og hvort hætta væri á að þá kynni að koma upp sama vanda- mál og þegar reynt var að sameina Deutsche Bank og Dresdner Bank í Þýskalandi, þ.e. að íjárfestingar- bankahlutamir geti valdið vandræð- um við samrana. Brynjólfur taldi að samranaviðræður í Þýskalandi hefðu verið óvenjulega erfiðar og átti ekki von á slíku hér. „Þetta er misjafnt eft- ir því um hvaða fyrirtæki er að ræða,“ bætti hann við, „en ég sé fyrir mér að sameining Landsbanka og annars viðskiptabanka gæti gengið mjög vel að þessu leyti. Nokkrir sameiningar- möguleikar era hins vegar inni í myndinni, ekki síst á þessu sviði.“ Brynjólfur bætti því við að með til- komu men-ihlutaeignar Landsbank- ans í The Heritable and General In- vestment Bank skapist ný sóknar- tækifæri, sem tengist bæði sérbanka- þjónustu og ýmsum öðrum þáttum í þjónustu við viðskiptavini. „í gegnum þessa eign geta myndast ýmis tengsl og þetta býður upp á víðtækari þjón- ustu fyrir viðskiptavini okkar og um leið ný starfstækifæri fyrir Lands- bankamenn," sagði Brynjólfur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.