Morgunblaðið - 22.07.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ [77T77TI LAUGARDAGUR 22. JULI 2000 29
'lll iCvfi
LAlU
Sykursýki í börnum rannsökuð í Finnlandi
Telja kúamjólkina
geta aukið hættuna
New York. Reuters.
MIKIL neysla kúamjólkur fyrstu
æviárin getur aukið hættuna á
insúlínháðri sykursýki í börnum
sem eiga ættingja með sjúkdóm-
inn, samkvæmt finnskri rann-
sókn.
Vísindamenn við Tampere-há-
skóla í Finnlandi komust að
þeirri niðurstöðu að bömum, sem
eiga systkin með sykursýki, sé
meira en fimm sinnum hættara
við insúlínháðri sykursýki ef þau
drekka meira en hálfan lítra (um
það bil þrjú glös) af kúamjólk á
dag, en börnum sem drukku
minna.
Niðurstöður rannsóknarinnar
voru birtar í grein í júníhefti
tímaritsins Diabetes og sagði
Suvi Virtanen, aðalhöfundur
hennar, að þetta væri fyrsta
rannsóknin sem benti til þess að
tengsl væru á milli „kúamjólkur-
neyslu í æsku og þróun sykursýki
í systkinum bama sem em með
sjúkdóminn". Hann bætti þó við
að frekari rannsókna væri þörf á
hugsanlegri samverkan erfða og
mataræðis í þróun sjúkdómsins.
Prótín að verki?
Virtanen sagði að ekki væri ljóst
hvaða efni í kúamjólkinni yki hætt-
una á sykursýki en vísindamenn
teldu hugsanlegt að einu nokkurra
prótína væri um að kenna.
Insúlínháð sykursýki er algengari
hjá börnum og ungu fólki. Sjúkdóm-
urinn stafar af því að fmmur, sem
Associated Press
Ef nánustu ættingjar þjást af sykursýki
er ráðlegt að stilla mjólkumeyslu
barna í hóf samkvæmt nýrri finnskri
rannsókn.
framleiða insúlín í briskirtlinum,
eyðileggjast og hann veldur því að
sykurmagnið í blóðinu er meira en
venjulega. Fólk með insúlínháða
sykursýki tekur yfirleitt inn lyf í
sprautuformi alla ævina til að hafa
áhrif á insúlínbúskap líkamans, sem
stjórnar blóðsykrinum.
Vísindamennirnir rannsökuðu
börn sem drukku kúamjólk á fyrsta
ári ævinnar og fylgdu rannsókn-
inni eftir þegar bömin vom
þriggja og nítján ára. Nokkur
barnanna áttu systkin með syk-
ursýki og rannsakað var hversu
næm þau væra fyrir sjúkdómn-
um.
Flest barnanna sem fengu syk-
ursýki vom erfðafræðilega næm
fyrir sjúkdómnum. 79% þessara
bama vom með erfðafræðileg
frávik, sem em talin tengjast
sykursýki, en aðeins 30% þeirra,
sem fengu ekki sjúkdóminn,
reyndust vera með frávikán.
Sjaldgæfari á íslandi
Því má bæta við að insúlínháð
sykursýki er sjaldgæfari á ís-
landi en í mörgum öðmm lönd-
um, þar á meðal hinum Norður-
löndunum. Mjólkin úr íslenskum
kúm hefur einnig talsvert aðra
samsetningu en kúamjólk annars
staðar og meðal annars em
prótínin öðra vísi að samsetn-
ingu. Ekki er vitað með vissu
hvort þessi mismunandi samsetn-
ing kúamjólkur skýrir að einhverju
leyti mismunandi tíðni sykursýki
milh landa, en margir telja að svo
gæti verið.
TENGLAR
Um börn og sykursýki:
www.childrenwithdiabetes.com
Um insúlínháða sykursýki:
netdoktor.is/Sjukdomar/
Börn borða ekki nóg grænmeti
Hætta á heilsu-
bresti síðar á
ævinni
BÖRN eiga á hættu að verða fyrir
alvarlegum heilsubresti síðar á
ævinni ef þau neyta innan við
helmings af meðmæltum skammti
af grænmeti, að því er bresk heil-
brigðisyfirvöld segja.
Fyrsta könnunin sem gerð hef-
ur verið á neysluvenjum barna í
Bretlandi í tæp tuttugu ár bendir
til þess að einn af hveijum fimm á
aldrinum fjögurra til átján ára
borði aldrei ávexti. Einnig kom í
ljós að flest börn borðuðu innan
við helming meðmælts dag-
skammts af ávöxtum og græn-
meti.
Þá kom í ljós að offita er vaxandi
vandamál meðal barna og stunda
mörg þeirra allt of litla lík-
amsrækt. Könnunin sýndi enn
fremur fram á að megnið af því
sem börn borða er fitu- og kolefna-
ríkur matur, t.d. íransbrauð,
kartöfluflögur, súrar gúrkur, kex
og súkkulaði. Þá kom einnig íram
að saltneysla er hættulega mikil.
Sum fjögurra ára gömul böm
neyttu 8,5 gramma af salti á dag
en meðmæltur saltskammtur fyrir
fuhorðna er sex grömm á dag.
Tengsl em á milli mikillar
saltneyslu og hás blóðþrýstings.
Aftur á móti leiddi könnunin í ljós
að fituneysla bama hafði minnkað
frá því síðasta könnun var gerð ár-
ið 1983.
Höfundar könnunarinnar segja
að matvælaframleiðendur auglýsi
mikið mat fyrir böm, sem hafi htið
næringargildi. „Ef framleiðendur
em að reyna að grafa undan heil-
brigði barna gætu þeir varla stað-
ið sig betur,“ sagði einn höfunda
skýrslunnar.
TENGLAR
Um fæðu barna:
www.nal.usda.gov/fnlc/
etext/fnic.html
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Ljósritun-
arvélar
ekki
hættulegar
The New York Times Syndicate.
LJÓSRITUNARVÉLAR spúa frá
sér fjölda efna sem geta verið
hættuleg, en magnið er yfírleitt
margfalt minna en opinberar
reglugerðir í Bandaríkjunum
segja það ekki mega fara yfir.
Kemur þetta fram í nýrri rann-
sókn sem greint er frá í júní-
hefti Environmental Research.
Loftmengun innanhúss
Einstök efni sem ljósritunar-
vélar gefa frá sér við notkun
eru ekki hættuleg, en minna er
vitað um áhrif samverkandi
þátta þessara efna, að sögn að-
alhöfundar rannsóknarinnar, Al-
eksandrs Stefaniaks, doktors-
nema við heilbrigðisdeild Johns
Hopkins-háskóla f Banda-
rfkjunum.
Bandariska umhverfisvernd-
arskrifstofan (EPA), hefur bent
á að efni sem ljósritunarvélar
gefa frá sér séu ein helsta orsök
loftmengunar innanhúss, en við
rannsóknir hafa litlar sem engar
vísbendingar fundist um að
þessi efni séu hættuleg.
Sumir sérlega næmir
Stefaniak segir að þrátt fyrir
þessar niðurstöður kunni að
vera að sumt fólk sé einstaklega
næmt fyrir áhrifum efnanna og
finni því fyrir höfuðverk, of-
næmisviðbrögðum og öðrum
einkennum eftir að hafa komist
f snertingu við þau f mjög litlu
magni.
Talsmaður bandarfska fyrir-
tækisins Ricoh, sem framleiðir
ljósritunarvélar, lýsti ánægju
sinni með niðurstöðurnar úr
rannsókn Stefaniaks.
KRT
Líklegt þykir að innan fimm ára geti karlmenn farið til læknisins og
fengið „karlapilluna".
„Karlapillanu á
markað innan
fimm ára
London. Reuters.
BRESKIR vísindamenn greindu
frá því í byrjun vikunnar að fyrsta
nothæfa getnaðarvarnarpillan fyrir
karla muni að öllum líkindum
koma á markað innan fimm ára.
Vísindamenn við Edinborgarhá-
skóla hafa þróað pilluna og segja
að tilraunir með hana á 60 körlum í
Skotlandi og Shanghai bendi til
þess að hún virki í öllum tilfellum
og hafi engar aukaverkanir.
Sæðisframleiðsla stöðvuð
„Hjá öllum körlunum sem not-
uðu pilluna fór fjöldi sæðisfmmna
niður í núll,“ sagði einn vísinda-
mannanna, Richard Anderson.
Sagði hann pilluna gerða úr blöndu
af karlhormóninu testósteróni og
desogestrel, gervistera sem er að
finna í getnaðarvarnarpillum fyrir
konur, og stöðvar sæðisframleiðslu
tímabundið.
Ekki sambærileg bylting
Mun erfiðara er að búa til pillu
fyrir karlmenn en konur. Meðal-
maðurinn framleiðir um það bil
1.000 sæðisfmmur á mínútu en yf-
irleitt losnar aðeins eitt egg í konu
við hvert egglos.
Breska mæðraeftirlitið fagnaði
hinni nýju pillu, en talsmaður þess
kvaðst ekki telja að þetta yrði
sama byltingin og getnaðarvarnar-
pillan fyrir konur var á sjöunda
áratugnum.
Nuddpottar
Fullbúnir acryl nuddpottar
Vatnsnudd, hreinsitæki,
ozintor, Ijós, höfuðpúðar,
trégrind, full einangraðir
með einangruðu loki.
Uppsettir í sýningarsal okkar
OPIBÖLLKVÖLDTILKL. 21
JiÍt METRO
Skeifan 7 • Sími 52S 0800