Morgunblaðið - 22.07.2000, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 22.07.2000, Blaðsíða 54
í^4 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 FRÉTTIR I DAG MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Arnaldur * Ný kirkja í Vatnsendalandi KEFAS, Kristið samfélag, tók fystu Kirkjan á að rísa í Vatnsendalandi, skóflustungu fyrir kirkju samfé- Vatnsendabletti 601. lagsins fimmtudaginn 20. júlí sl. Þriðja sumarganga Samfylkingarinnar á Reykjanesi öAMFYLKINGIN á Reykjanesi stendur fyrir mánaðarlegum gönguferðum um Reykjanes nú í sumar. Sú þriðja verður farin á morgun, sunnudaginn 23. júlí. Genginn verður syðri hluti Sel- vogsgötunnar, hinnar fornu þjóð- leiðar milli Hafnarfjarðar og Sel- vogs, þ.e. frá Bláfjallavegi að Stakkavík við Hlíðarvatn í Selvogi. Göngustjóri og leiðsögumaður er Eyjólfur Sæmundsson. Farið verður frá bílastæðinu við Hafnarfjarðarkirkju kl.10.30 og stefnt að því að hefja gönguna frá Bláfjallaveginum um kl. 11. Gengn- ir verða um 15 km og má reikna með að það taki allt að 7 tíma að meðtöldum hvíldarstundum. Gang- an er ekki nema miðlungserfið, gengið er um fremur slétt land og hallar undan fæti mestalla leiðina eftir að komið er upp í Kerlingar- skarð sem er hæsti hluti hennar. Búa skal sig eftir veðri og hafa með sér nesti, gert er ráð fyrir góðum hléum til næringar og skemmtunar. Pað er markmið Samfylkingar- innar á Reykjanesi að halda uppi öflugu félagslegu starfi árið um kring og hafa tvær fyrri sumar- göngur reynst afar vel heppnaðar. Allt félagsfólk sem og stuðnings- menn Samfylkingarinnar er ein- dregið hvatt til að mæta í gönguna. Garða- skoðun á Akranesi ÁRLEG garðaskoðun Garð- yrkjufélags íslands fer fram á Akranesi sunnudaginn 23. júlí milli kl. 13 og 17. „Það er ekki tekið út með sældinni að rækta fjölbreyttan gróður við sjávarsíðuna. Akra- nes stendur á skaga sem er um- vafinn brimlöðri á alla kanta. En það er ótrúlegt sjá hversu miklum árangri margir garð- eigendur hafa náð í garðrækt með natni og mikilli vinnu,“ segir í fréttatilkynningu frá Garðyrkjufélaginu. „Göngin hafa breytt fjar- lægðum svo um munar og eru nú aðeins 49 km frá Reykjavík til Akraness. Þrír einkagarðar verða til sýnis og að auki verður útivistasvæði bæjarins skoðað. Einkagarðamir eru að Króka- túni 13 og Sunnubraut 17, þar má fínna margar tegundir og að auki er skemmtilegt steina- safn á Sunnubraut. Að Melteig 4 er garður sem býr yfir ákveðnni dulúð með trjágöng- um og tjöm. Útivistasvæðið í Garðalundi er rétt ofan við kirkjugarðinn norðaustan við bæinn. Þar verður hægt að fá kort af Akranesi og upplýsing- ar um hvað er að gerast í kaupstaðnum. Garðarnir eru ólíkir að gerð og tegundafjölda en eitt eiga þeir allir sameigin- legt; að vera í góðri rækt og bera vitni um hvað hægt er rækta við erfið skilyrði." Fjölskyldu- hátíð í Garðabæ SUNNUDAGINN 23. júlí nk. kl. 16.00 verður haldin á hátíðarsvæð- inu við Garðaskóla í Garðabæ opn- unarhátlð verkefnisins „Fjölskyld- an saman“, sem er samvinnu- verkefni UMFÍ og íslands án eiturlyfja. Stjarnan í Garðabæ ann- ast framkvæmd hátíðarinnar og hefur gert hana sem glæsilegasta. A dagskránni eru m.a. tónleikar, Ásta Hrafnhildur úr Stundinni okkar, hestar, minigolf, risaleik- tæki, grillveisla í boði Pepsi og margt margt fleira. Forseti Islands, Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari verkefnisins og mun hann flytja ávarp á hátíð- inni. Þetta er fjölskylduhátíð og leggjum við mikla áherslu á að fjöl- skyldan öll mæti og eigi góðan dag í Garðabænum. Um kvöldið verður frítt inn á leik Stjörnunnar og ÍBV fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Dagskráin verður færð inn í íþróttahúsið Ásgarð ef þurfa þykir. Lýst eftir vitnum LÝST er eftir vitnum að umferðar- óhappi sem varð á Sæbraut á móts við gatnamót Langholtsvegar um kl. 13:30 þriðjudaginn 11. júlí s.l. þar sem árekstur varð með blárri MMC Colt fólksbifreið og svartri Nissan Micra fólksbifreið. Þeir sem sáu að- draganda óhappsins eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Fréttir á Netinu & mbl.is 1 ALLTAf= eiTTHVaO NÝTl VELVAKAJVÐI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Málefni aldraðra og öryrkja ÞANN 7. júlí sl. er minn gamli prestur, Svavar Stef- ánsson, að minna á grein Magna Kristjánssonar. Það ætti að vera öllum hollt að lesa þá grein. Það er nú einu sinni svo að það er allt í lagi að hafa skoðun á hlut- unum svo lengi sem hún er ekki látin í ljós. Oft er nauð- synlegt að láta skoðanir sínar í ljós og vekja máls á þeim málefnum sem ekki eru í lagi í þessu þjóðfélagi, það ýtir kannski við sam- visku hjá einhverjum sem málið varðar. Til dæmis eru húsnæðismál öryrkja ekki í nógu góðu lagi. Málefni aldraðra í húsnæðismálum hér á höfuðborgarsvæðinu ætlar ríkið að leysa með út- boði til einkaaðila. Það gæti skert þjónustuna á kostnað hagræðingar. Nei, ráða- menn þessa þjóðfélags þurfa mikið aðhald frá þjóðfélagsþegnunum. Þeir sem stjórna þessu landi voru kosnir til að vinna fyr- ir fólkið í iandinu, að minnsta kosti sögðu þeir það þegar þeir voru að fal- ast eftir atkvæðum. Kosn- ingaloforðin eru kannski eitthvað sem þeir höfðu ekki ætlað sér að standa við. Stjórnarsamstarfið stendur mjög tæpt en á að vera slétt og fellt á yfir- borðinu. Það er nauðsyn- iegt að flestir hafi skoðun á hlutunum og haldi þessum herrum við efnið, annars verður lognmolla og það af hinu slæma. Gunnar. Hrifin af landi og þjóð VELVAKANDA barst póstkort frá Ursulu Voll- mehr þar sem hún segist vera eftirlaunaþegi sem ferðist mildð og hafi komið í fyrsta skipti til Islands í sumar. Segist hún vera mjög hrifin af landi og þjóð, náttúran sé falleg og hún segist eins og endurfædd eftir heimsóknina. Vill hún senda kveðjur sínar til allra þeirra sem hún hitti í ferð sinni, sérstaklega land- vörðunum í Landmanna- laugum, og þakkar hún fyr- ir gestrisni í sinn garð og umhyggju þeirra fyrir landi sínu. Þakkir fyrir frábæra þjónustu VIÐ hjónin fórum laugar- daginn 15. júlí sl. að Hótel Geysi ásamt öðrum og borðuðum þar. Þegar heim var komið uppgötvaði frúin að hún hafði týnt gullkross- inum sínum. Við hringdum strax á sunnudeginum og okkur var tjáð að hann hefði ekki fundist, en við skyldum hringja aftur á mánudeginum. Það gerðum við og viti menn, gullkross- inn hafði komið í leitirnar. Sá sem svaraði í símann bauðst til þess að senda okkur hann, sem hann og gerði. Okkur langar að senda þeim okkar bestur þakkir fyrir frábæra þjón- ustu og góðan mat. Við komum örugglega aftur. Magnús og Höbby. Hólmar á Reyðarfirði ÞAÐ er stórbýli austur á fjörðum sem heitir Hólmar og er við Reyðarfjörð. Býlið er í eigu Reyðarfjarðarbæj- ar. Það eru frábærar að- stæður til þess að þarna fari fram starf fyrir ungl- inga, sem lent hafa út af sporinu. Þarna mætti iíka reka einhvers konar bú- skap. Þarna væri líka hægt að rækta skóginn að Björg- um og út að Hólmahálsi. Fyrir neðan veg mætti rækta alaskaaspir, fjalla- rifs og lerki og fyrir ofan veg mætti rækta íslenska birkið. Það væri óskandi að Reyðarfjarðarbær myndi vilja láta jörðina íyrir slíkt starf. Þetta er kjörinn stað- ur fyrir unglinga, sem þurfa að takast á við lífið á ný Kona. Tapad/fundid Karlmannskeðj a tapaðist KARLMANNS silfurkeðja tapaðist við Hlemm eða á Laugaveginum fyrir stuttu. Keðjan er merkt með nafn- inu Haraldur og hinum megin stendur þín Mar- grét. Keðjan er eigandan- um afar kær. Skilvís finn- andi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Harald eða Margréti í síma 552-5465. SKAK Uinsjön Ilelgi Áss Grétarsson STÓRMEISTARINN Mikhail Gurevich (2667) hefur verið lengi að sem atvinnuskákmaður. Eins og nafnið gefur til kynna er hann af rússnesku bergi brotinn en skömmu eftir fall Ráðstjórnarríkjanna flutti hann búferlum til Belgíu. Fyrstu árin eftir komuna í hið nýja land var árangur hans á skákborð- inu öllu lakari en áður og gerðu þá fyrrum landar hans og kollegar grín að honum. Hins vegar á síð- ustu árum hefur þessi geð- þekki náungi unnið hvert skákmótið á fætur öðru og komst m.a 1. janúar sl. á topp tíu á stigalista FIDE. I stöðunni hafði hann svart gegn rússneska undra- barninu Alexander Grischuk (2606) á Norðursjávarmótinu í Esbjerg. 27...Hxh2+ ! 28.Kxh2 Hvítur verður mát eftir 28.Kgl Rf3#. 28...Hh8+ 29.Kg3 Bh4+ 30.Kg4 Dh6 og hvítur gafst upp enda verður hann mát eftir t.d. 31.Bxd4 Dh5+ 32.Kh3 BÍ2#. Víkverji skrifar... VÍKVERJI er maður umburðar- lyndur, svo mjög raunar að honum er stundum nóg um. Eitt af því sem einkennir umburðariyndi Víkverja er virðing hans fyrir áhuga- málum annarra. Víkverji gerir sér ljóst að áhugamál hans, söfnun límmiða og garðvinna, höfða ekki til allra og hann er ætíð tilbúinn til að reyna, hið minnsta, að kynna sér það sem aðrir telja áhugavert. Það var í anda þessa sem Víkverji settist niður um liðna helgi til að horfa ákappaksturskeppni í ríkis- sjónvarpinu sem mun njóta veru- legra vinsælda og nefnist Formúla-1. Skemmst er frá því að segja að Víkverja þótti lítið til þessarar keppni koma og þrátt fyrir verulegar rannsóknir og fyrirspumir er honum enn hulið í hverju spennan í þessari íþrótt er fólgin. Óvissan í þessari keppni entist í á að giska 20 sekúnd- ur en strax á fyrstu beygju rákust nokkrir kappakstursbflar saman og ein aðaihetjan neyddist til að hætta akstrinum. Eftir það gerðist ná- kvæmlega ekkert í þá tæpu tvo klukkutíma sem keppnin stóð yfir. Bflarnir runnu sama hringinn rúm- lega 70 sinnum og öðru hvoru misstu einhverjir minni spámenn, sem enga möguleika áttu á sigri, vald á bflum sínum og óku út af eða urðu að hætta keppni vegna vélarbilunar. Þrátt íyrir umbm-ðarlyndið annál- aða og jákvæðnina sem ætlar hann lifandi að drepa fær Víkverji ekki skilið þá spennu sem felst í því að sjá sömu mennina keyra sama hringinn 70 sinnum. Raunar gat Víkverji varla séð að þessi keppni stæði undir nafninu „kappakstur" því lítið fór fyrir framúrakstri. Því síður fær hann skilið að menn horfi á þessa keppni og bíði þess að ökuþórarnir verði að hætta keppni sökum vélar- bilunar. Ekki horfir Víkverji á knatt- spyrnu sökum þess að hann telji spennandi að fýlgjast með meiðslum leikmanna. En svona eru mennirnir undur- samlega misjafnir. xxx AÐ var hins vegar annað sem vakti athygli Víkverja þegar hann fylgdist með þessari undarlegu íþrótt um liðna helgi. Eftir nokkra óvissu í byrjun gerði hann sér ljóst að lýsingin á keppninni fór fram á ís- lenskri tungu. Víkveiji var nokkra stund í vafa um þetta, sérstaklega virtist annar umsjónarmaður út- sendingarinnar tala torkennilegt tungumál. Bar mjög á því að hann notaði sagnorð sem voru Víkverja framandi og hann kannaðist ekki við af því málsvæði sem hann tilheyrir. Þannig notaði þessi umsjónarmað- ur sögnina „að tjóna“ óspart. Talaði hann um að tiltekið ofurmenni hefði „tjónað bflinn“ og stundum hafði hann á orði að ákveðið ökutæki væri „tjónað“. Komst Víkverji að þeirri niðurstöðu eftir nokki-a umhugsun að líklegast væri hér átt við að við- komandi ökuþór hefði skemmt eða skaddað bfl sinn. Einnig þótti Víkveija forvitnilegt þegar honum var tilkynnt að ein hetjan á kappakstursbrautinni hefði „sett hraðasta hring“. Þessi mál- notkun varð Víkverja mikið umhugs- unarefni. Enn er honum ekki fylli- lega ljóst hvað átt var við með þessu og útskýringar samstarfsmanna hans hafa ekki reynst fullnægjandi. Vanþekking Víkverja á íþróttinni kom svo aftur í ljós þegar umsjónar- maðurinn títtnefndi upplýsti áhorf- endur um að einhver ökumaðurinn hefði „hringað" annan. Gerði hann ítrekað heyrinkunnugt að tiltekið mikilmenni væri „að hringa" annað. Hallast Víkverji einna helst að því að þarna hafi verið átt við að viðkom- andi væri kominn hring á undan öðr- um ökumanni eða við það að fara fram úr þeim hinum sama. Víkverji kannast að vísu við sögnina „að hringa" en þá er átt við að eitthvað sé sett í hring. Önnur merking sagn- arinnar er honum hins vegar með öllu ókunnug. Þegar kappakstrinum lauk loksins var komið að því að upplýsa áhorf- endur um stöðuna í keppninni en ökumenn fá stig eftir því hvernig gengur og verður sá heimsmeistari sem flest stig hlýtur þegar keppnis- tímabilinu lýkur. Þá var áhorfendum tilkynnt að tiltekinn ökumaður væri „á 50 stigum“ en næstur kæmi annar „á 40 stigum“. Á málsvæði Víkverja hefur löngum tíðkast að tala um að menn eða lið séu „með“ tiltekinn fjölda stiga í ákveðinni keppni. Vík- verji veit hins vegar að á ensku er talað um að lið eða einstaklingar séu „on 50 points“ eða hvaðeina þegai' gerð er grein fyrir stöðu í keppni. XXX VÍKVERJA varð ljóst þegar hann horfði á þessa keppni að ríkissjónvarpið nýtur óneitanlega mikillar sérstöðu. Þannig má það eitt miðla á íslandi auglýsa tóbak en Formúla-1 keppnin er í raun ein risastór tóbaksauglýsing. Raunar þykir Víkverja fráleitt að banna áfengis- og tóbaksauglýsingar en það er önnur saga. Víkverji vissi hins vegar ekki að ríkissjónvarpið hefði fengið undanþágu frá þeirri reglu. Hana hefur stofnunin líklega fengið um leið og ákveðið var að útsending- ar frá Formúlu-1 keppninni þyi'ftu ekki að fara fram á íslensku í „sjón- varpi allra landsmanna".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.