Morgunblaðið - 22.07.2000, Síða 23

Morgunblaðið - 22.07.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 23 ERLENT Þjarmað að trúfrelsi í Rússlandi TRÚFRELSI í Rússlandi hef- ur minnkað síðan Vladímír Pútín settist á forsetastól og sífellt algengara verður að am- ast sé við erlendum trúboðum og kristnum minnihlutahópum. Kemur þetta fram í skýrslu frá Keston-stofnuninni í Bret- landi en hún hefur lengi fylgst með ástandi trúmála í komm- únistaríkjunum núverandi og fyrrverandi. I henni eru nefnd dæmi um sjö trúboða, aðallega Bandaríkjamenn, sem reknir hafa verið frá Rússlandi en oftast eru þeir sakaðir um að vera á snærum bandarísku leyniþjónustunnar. Algengt er að litlum söfnuðum, einkum mótmælendasöfnuðum, séu meinuð afnot af opinberu hús- næði og öðru nema þeir fái til þess leyfi yfirmanna í rúss- nesku rétttrúnaðarkirkjunni. Eitrað fyrir þörungum BANDARÍSKIR vísindamenn sem berjast við að uppræta þörunga sem skotið hafa upp kollinum í lóni í Suður-Kali- fomíu hafa ákveðið að grípa til örþrifaráða. Ætla þeir að klóra allt lónið þótt það verði til að drepa allt líf í því. Þar sem þessi þörungategund nær að festa rætur bolar hún burt öllum öðrum lífverum og hefur hún nú þegar lagt undir sig um 4.000 hektara í Miðjarðar- hafi. Er hún ekki hættuleg mönnum en samt nægilega eitruð til að hrekja burt annan gróður og fisk. Svo harðger er hún að hún getur lifað á þurru í 10 daga og án sólarljóss í 30 daga. Dónalegur bílstjóri HÆSTIRÉTTUR ísraels kvað í gær upp stefnumark- andi dóm er hann sektaði leigubílstjóra fyrir dónalega framkomu við farþega, tvær konur. Fóru þær í mál við bíl- stjórann þegar hann neitaði að nota gjaldmælinn eins og lög kveða á um og sagði að lögum samkvæmt gæti hann kastað þeim út úr bílnum. Hefur mál af þessu tagi aldrei farið alla leið í hæstarétt fyrr en margir ísraelskir leigubílstjórar eru sagðir reyna að semja um far- gjöldin í stað þess að nota gjaldmælinn og þá í því skyni að stela undan skatti. Reiknaði skakkt FLUGSTJÓRI Airbus 310- þotu sem nauðlenti í Vín í síð- ustu viku reiknaði ekki rétti- lega hve mikið eldsneyti væri á vélinni. Skýrði talsmaður austurrísku rannsóknarnefnd- arinnar frá því í gær. Þotan, sem er í eigu þýska flugfélags- ins Hapag-Lloyd og var með 142 farþega og átta manna áhöfn, var á leið frá Krít til Hannover en eftir flugtak kom í ljós að ekki var unnt að draga hjólabúnaðinn upp. Samt var haldið áfram og ekki tekið tillit til þess við elds- neytisútreikninga að þegar hjólabúnaðurinn er niðri er bensíneyðslan rúmlega helm- ingi meiri en ella. Tvær aftökur sama daginn Houston. Rcutcrs. ÁÆTLAÐ er að tveir dæmdir morðingjar verði teknir af lífi í Texas níunda ágúst næstkomandi en sjaldgæft er að tveir menn séu líflátnir sama dag. í Texas eru fleiri menn teknir af lífi en í nokkru öðru ríki í Banda- ríkjunum. Grípi hvorki dómstólar né ríkisstjórinn, George W. Bush, í taumana verða Brian Roberson og Oliver Cruz líflátnir með banvænni sprautu í ríkisfangelsinu í Hunts- ville. Roberson var dæmdur til dauða fyrir morð á tveimur mönnum við innbrot í Dallas árið 1986 og Cruz fyrir að nauðga og myrða konu í San Antonio tveimur árum síðar. Að sögn Heather Brown, fulltrúa dómsmálaráðherra Texas, á alrík- isdómstóll enn eftir að fjalla um náðunarerindi beggja mannanna. Einnig er þess vænst að Roberson sendi sýknu- og sakaruppgjafaráði Texas náðunarbeiðni. Bush ríkisstjóri hefur vald til að fresta aftökum um mánuð en hann hefur aðeins einu sinni notfært sér það vald. í júní sl. frestaði hann af- töku til þess að DNA-rannsókn gæti farið fram. 137 teknir af lífi í ríkis- stjóratíð Bush Fréttaskýrendur telja líklegt að aftökurnar muni á ný vekja háværa umræðu um dauðarefsingar en Bush, sem er væntanlegur forseta- frambjóðandi Repúblíkanaflokks- ins, hefur sætt gagnrýni vegna þess hve mörgum dauðarefsingum hefur verið fullnægt í Texas. Alls hafa 137 menn verið teknir af lífi í ríkisstjóratíð Bush. „Vel framkvæmanlegt“ Verði báðum refsingunum full- nægt munu þær fara fram með um það bil einnar klukkustundar milli- bili. Að sögn Larrys Todds, fulltrúa saksóknara í Texas, er þetta „vel framkvæmanlegt“ þótt óneitanlega sé þetta óvenjulegt. Tilviljun ræð- ur því að aftökurnar eru báðar áætlaðar sama dag en dómarar í hverri sýslu fyrir sig ákveða af- tökudag og hafa þeir ekki samráð sín í milli. Ekkert grín . ... en alvöru golfsett, kerrur, hanskar, kúlur og fleira fyrir golfarann. fSSSO Olíufélagið hf www.esso.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.