Morgunblaðið - 22.07.2000, Qupperneq 28
MÖRÖtJNBLAfjlÐ
28 LAUÓÁábÁGÖii 2z.'jljLi zuuti
Fíkn
Alkóhólismi rótskyldur
spilaflkn?
Sálfræ^=
Um þus, rei
amr
Lækningar
Vélmenni notað við skurð-
aðgerðir
Börn
Auka verður grænmet-
isneysluna
Bandariskur læknir notar vélmennið da Vinci tii að fjarlægja gallblöðru úr sjúklingi. Bandarísk yfírvöld hafa
heimilað notkun vélmennisins við kviðskurðaðgerðir.
Vélmenni fjarlægir
gallblöðru úr konu
Richmond. AHSociated Press.
BANDARÍSKIR læknar notuðu vél-
mennið da Vinci til að fjarlægja gall-
blöðru úr sjúklingi í fyrsta sinn í vik-
unni sem leið eftir að bandarísk
yfirvöld heimiluðu slíkar skurðað-
gerðir á fimm sjúkrahúsum.
Da Vinci gerir læknum kleift að
skera upp sjúklinga með því að nota
stýripinna á tölvuútstöð. Linsum er
stungið inn í líkamann til að skurð-
læknamir geti skoðað innyflin í þrí-
vídd á tölvuskjá.
William E. Kelley stjómaði skurð-
aðgerðinni við Henrico-sjúkrahúsið í
Richmond í Virginíu, en áður hafði
hann aðeins notað da Vinci til að
skera upp lík og svín. „Ég var mjög
ánægður. Eg tel að þetta hafi gengið
mjög greiðlega," sagði hann.
Kimberley Briggs, 35 ára kona
sem skorin var upp með hjálp vél-
mennisins, var einnig ánægð eftir
skurðaðgerðina. „Mér líður mjög
vel,“ sagði hún tæpum fjórum
klukkustundum eftir aðgerðina. Hún
jafnaði sig svo fljótt að hún gat farið
heim til sín daginn eftir til að halda
upp á sex ára afmæli sonar síns.
Stórir skurðir verða óþarfir
Vélmennið kostar andvirði tæpra
80 milljóna króna og hefur aðeins
verið heimilað við kviðaraðgerðir í
Bandaríkjunum. Vélmennið hefur þó
verið notað meira í Evrópu, að sögn
Kellys. Búist er við að bandarísk yfir-
völd heimili að vélmennið verði notað
við hjartaskurðaðgerðir síðar á árinu.
Nokkur sjúkrahús hafa þegar hafið
slíkar tilraunaaðgerðir.
Fremst á örmum vélmennisins er
búnaður, sem líkist úlnlið, og gerir
hann mjög nákvæmar hreyfingar
mögulegar.
Skurðlæknirinn Marc Katz sagði
það „ótrúlega spennandi" að geta
skoðað innyflin í tölvuskjá, sem sýni
þau í tífaldri stærð, og látið vélmenn-
ið framkvæma aðgerðina með mikilli
nákvæmni. „Þetta gerir okkur kleift
að færa tækin þangað sem þau þurfa
að vera,“ sagði Katz, sem hefur verið
þjálfaður í notkun da Vinci.
Hann bætti við að með tímanum
myndu stórir skurðir nánast algjör-
lega heyra sögunni til og aðeins þyrfti
að setja „nokkra plástra“ á skurðina.
Tengsl alkóhól-
isma og spila-
fíknar
New York. Reuters.
ALKÓHÓLISMI og spilafíkn
kunna að eiga sér að nokkru leyti
sömu rætur, að því er rannsakend-
ur segja. Þessar tvær gerðir fíknar
eru oft arfgengar og niðurstöður
nýrrar rannsóknar benda til þess
að sumar, en ekki allar, arfgengar
orsakir þeirra séu þær sömu.
„Við komumst að því að það eru
að öllum líkindum arfgengar orsak-
ir sem auka líkurnar á alkóhólisma
og auka líkumar á spilafíkn," sagði
aðalhöfundur rannsóknarinnar, dr.
Wendy S. Slutske, við Háskólann í
Missouri í Bandaríkjunum.
Margar rannsóknir hafa sýnt
fram á að arfberar geti aukið hætt-
una á alkóhólisma, að sögn Slutske
og rannsóknir hafa einnig sýnt
fram á að spilafíkn kunni að eiga
sér rætur í arfberum en þær rann-
sóknir hafa ekki verið eins víðtæk-
ar.
Slutske segir það ekki fráleita
ályktun að alkóhólismi og spilafíkn
eigi sér að einhverju leyti sömu
rætur í arfberum því margir spila-
fíklar séu einnig alkóhólistar.
Rannsóknin útiloki þó ekki að ein
fíknin kunni að hafa áhrif á aðra án
tengsla við arfbera.
Þannig fari drykkja og fjár-
hættuspil oft saman, til dæmis í
spilavítum og þannig kunni mikil
drykkja að leiða menn til að spila
meira eða öfugt en þetta hafi ekki
verið rannsakað.
TENGLAR
Alþjóösamband spilafíkla:
wyvyv.gamblersanonymous.org/
SAA:www.saa.is
Associated Press
Spilafíkn og alkóhdlismi virdast eiga sér svipadar rætur.
Eru skammirgóð uppeldisaðferð?
Gylfi Ásmundsson sálfræðingur svarar spurningum lesenda
Spurning: í pistli þínum fyrir
skömmu fjallar þú um refsingar í
uppeldi barna. Hvergi minnist þú á
skammir, sem þó eru líklega al-
gengustu viðbrögð foreldra þegar
þau eru að reyna að aga böm sín.
Eru skammir ekki ein tegund refs-
inga? Hvaða áhrif hafa þær á börn
og hversu gagnlegar eru þær til að
stýra hegðun þeirra?
Svar: Það er rétt að skammir eru
ein tegund refsinga á börnum og
líklega sú algengasta eins og
spyijandi nefnir. Hversu áhrifarík-
ar og þroskandi þær eru fyrir
bamið ræðst af því, eins og gildir
um aðrar refsingar, hvemig þeim
er beitt. Það er lítið gagn í því að
skamma böm sem hafa ekki náð
þeim aldri og þroska að skilja hvað
þau hafa gert af sér, en gagnvart
eldri böraum geta þær oft átt rétt
á sér og verið eðlileg viðbrögð for-
eldra sem bamið jafnvel skynjar
sem umhyggju.
Gera verður greinarmun á mild-
um skömmum, sem frekar mætti
kalla umvandanir, og skömmum
sem eru sagðar í reiði eða upp-
námi. Umvandanir eru þá fremur
fólgnar í því að leiða baminu fyrir
sjónir hvað það hefur gert af sér og
hvers vegna það er rangt. Skamm-
ir, sem hellt er yfir barnið í reiði,
blóðugar skammir, geta hins vegar
verið tvíeggja. Foreldrið er í upp-
námi og kannski hrætt vegna ein-
hvers sem bamið hefur gert,
stundum eitthvað hættulegt.
Flestir kannast við það þegar
barnið hleypur út á götu og er
hætt komið í umferðinni, eða þegar
það leggst í flakk og týnist. For-
eldramir eru miður sín og fá oft
útrás fyrir tilfinningar sínar með
því að hundskamma bamið, jafnvel
þótt feginleikinn við að fá barnið
heilt til baka sé í fyrirrúmi. Ef
bamið er nógu gamalt til að vita
upp á sig skömmina, þurfa slík
reiðiköst foreldra ekki að vera
þeim til skaða nema síður sé. Reið-
in sýnir tilfinningar sem barnið
tekur mark á, miklu fremur en
orðunum sem sögð eru, og það get-
ur skynjað reiðina sem umhyggju
og ást. Barnið getur þó orðið ótta-
slegið og þarfnast huggunar, og þá
skiptir miklu máli að þegar for-
eldrið hefur fengið sína útrás að
það taki bamið í fang sér og láti
það finna hversu dýrmætt það er.
Málið er þá afgreitt og áframhald-
andi skammir löngu eftir að barnið
er móttækilegt fyrir þær hafa enga
þýðingu og geta jafnvel gert illt
verra. Skammir, ef þeim er beitt á
annað borð, þurfa því að vera í
samræmi við tilefnið, koma strax á
eftir brotinu, og barnið þarf alltaf
að geta fundið jafnframt að það sé
elskað af foreldram sínum.
Skammir í tíma og ótíma fyrir
smávægilegustu ávirðingar em
hins vegar í besta falli gagnslaus-
ar, og í versta falli eru þær til
skaða. Slíkar skammir eða þus eru
ákaflega algengar og margir for-
eldrar fylgja aldrei eftir hótunum
sínum eða kunna að setja börnum
sínum mörk sem móta hegðun
þeirra til lengri tíma. Börnin hætta
fljótt að taka mark á þeim, fara
sínu fram og heyra ekki lengur
skammirnar og þusið. Þá er verr
farið en heima setið.
Börn þurfa aðhald, ekki aðeins
til að móta æskilega hegðun þeirra
heldur ekki síður til að skapa þeim
öryggi í tilvemnni og skýrari
sjálfsmynd. Þótt skammir séu
kannski ekki æskilegasta aðferðin
til að þroska þau, geta þær átt rétt
á sér ef þeim er beitt af markvísi
og hófsemi og barnið skynjar í
þeim ást og umhyggju foreldra
sinna.
• Lesendur Morgvnblaðsins geta spurt sál-
fræðinginn um það sem þcim liggur á
hjarta. Tekið er mótispurningum á virkum
dögum milli klukkan 10 og 17 (síma 569110
og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok,
Fax: 5691222. Einniggcta lesendur sent
fyrirspumir súiar með tölvupósti á netfang
Gylfa Ásmundssonar: gylfias@li.is.