Morgunblaðið - 22.07.2000, Síða 33

Morgunblaðið - 22.07.2000, Síða 33
32 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. KRÖFTUGT FRAMFARASKEIÐ SIGURÐUR B. Stefánsson, fram- kvæmdastjóri VÍB hf., sem er hluti af Íslandsbanka-FBA- samsteypunni, skrifar grein í Við- skiptablað Morgunblaðsins sl. fimmtudag, þar sem hann vekur athygli á því kröftuga framfaraskeiði, sem þjóðin hefur búið við allmörg undanfarin ár, og segir: „Velgengni íslendinga í efnahags- málum núna á sér rætur á stöðnunar- skeiðinu frá 1987 til 1992. Á þeim tíma fór íslenzkt atvinnulíf í gegnum gagn- gera endurhæfíngu, sem leiddi til miklu sterkari samkeppnisstöðu þjóð- arinnar en fyrr. Stjórnvöld tryggðu jafnframt stóraukið frelsi til viðskipta innanlands, sem út á við, svo og stöð- ugleika og lága verðbólgu. Þetta þrennt ásamt stökkbreytingu í tækni og fjarskiptum hefur leitt til byltingar í framleiðni á árunum 1995 til 2000 og hún mun án efa leiða til hagvaxtar á næstu árum, sem verður yfir meðal- tali gamla tímans.“ Síðan bendir Sigurður B. Stefáns- son á, að á árunum 1996 til 2000 hafí orðið 26% aukning á árlegri fram- leiðslu í landinu. Það hafí stundum tekið aðrar þjóðir 10 ár eða jafnvel 20 ár að ná slíkum árangri og telur greinarhöfundur að þetta kröftuga framfaraskeið frá 1992 sé líklega aðeins fyrri hlutinn eða fyrsti hlutinn á leið Islendinga í átt til nýrra tíma. Undir þetta mat Sigurðar B. Stefánssonar má taka, þótt þjóðin hafí sennilega upplifað samdráttarskeiðið í íslenzku efnahags- og atvinnulífí á þann veg, að það hafi staðið töluvert lengur, eða fram á árið 1995. En það er önnur saga. Svo örum vexti sem framkvæmda- stjóri VIB lýsir í grein sinni fylgja óhjákvæmilega margvísleg vandamál. Sjálfsagt er því svo farið með marga landsmenn, að um leið og þeir fagna því mikla góðæri, sem við höfum búið við í nokkur undanfarin ár, spyrja þeir sjálfa sig og aðra, hvort við höfum gengið of hratt um gleðinnar dyr, ekki kunnað okkur hóf og hvort nauðsyn- legt sé að koma einhverjum böndum á þessa hröðu þróun. Það er ekki óalgengt að menn gleymi sér, þegar velgengnin virðist ekki eiga sér nein takmörk. Að þessu vék Davíð Oddsson forsætisráðherra í 17. júní-ræðu sinni á þjóðhátíðardag- inn, þegar hann sagði: „... við (ætlumst) til þess, að réttra leikreglna sé gætt og óhófsæði eins skaði ekki annan... Að þessu skulum við hyggja... Við skulum gleðjast hóf- lega við heimsins gæði...“ Á tímum, þegar allt leikur í lyndi og velgengni þjóðarinnar er mikil, er ástæða til að minna á og taka undir þessi varnaðarorð forsætisráðherra. Bylting á fjármálamarkaði á þess- um áratug á mikinn þátt í velmegun þjóðarinnar um þessar mundir. En um leið og frelsið á fjármálamarkaðn- um hefur opnað íslenzku atvinnulífí nýja sýn og ný tækifæri eru vísbend- ingar um, að þar þurfi aukið aðhald að koma til. Þær vísbendingar mátti m.a. merkja í umræðum um verklagsregl- ur fjármálafyrirtækja fyrr á þessu ári. HLUTUR HINS OPINBERA DREGST SAMAN IGREIN sinni í Viðskiptablaði Morgunblaðsins sl. fimmtudag víkur Sigurður B. Stefánsson að stöðu hins opinbera og segir: „Þá eru stjórnvöld gagnrýnd fyrir slaka stefnu í ríkisfjármálum. Skuldir hins opinbera (þ.e. ríkissjóðs og sveitarfélaga saman) fara þó hratt lækkandi... svo hratt að þær hafa lækkað um nálægt 15% af lands- framleiðslu síðan á árinu 1998. Sé haldið áfram á þessum hraða byrjar hið opinbera að safna vaxtaberandi eignum árið 2002 eða þar um bil. Á aðeins sex síðustu árum hafa ríkis- sjóður og sveitarfélögin saman bætt rekstur sinn frá því að vera í fimm milljarða halla árið 1995 í tveggja milljarða afgang árið 2000. Öfugt við það, sem oft er haldið fram í blöðum og útvarpi, er hlutur hins opinbera í landsframleiðslu að skreppa saman en ekki aukast; úr um 40% af VLF árin 1992 til 1994 í um 35% núna.“ Þetta eru sláandi tölur. Það munu þykja tíðindi, ef sá spádómur Sig- urðar B. Stefánssonar stenzt að ís- lenzka ríkið fari að safna vaxtaber- andi eignum innan 2-3 ára. Það vekur m.a. spurningar um, hvort þjóðin eigi að huga að því að koma sér upp sameiginlegum sparnaði á þann veg, sem Norðmenn hafa gert með myndun hins svonefnda olíu- sjóðs. Það gæti t.d. verið áhugaverð ráðstöfun á hugsanlegu auðlinda- gjaldi frá sjávarútvegi, fjarskipta- geiranum og öðrum atvinnugreinum að leggja það gjald í slíkan sameig- inlegan sparnað. Það getur verið gott að eiga slíkan sjóð, þegar erfið- lega árar á nýjan leik. Það má ganga út frá því sem vísu, að svo verði. Þá er ekki síður eftirtektarvert, að hlutur opinberra aðila í lands- framleiðslu er að dragast svo mjög saman. Að því er stefnt í flestum löndum í kringum okkur en gengur misjafnlega vel. Gera má ráð fyrir, að á næstu mánuðum og misserum verði stigin ný skref í þá átt. Þótt allt sé á huldu um framtíð ríkisbankanna verður að ætla, að hlutur ríkissjóðs í þeim verði seldur innan ekki langs tíma, og hið sama á við um Landssímann. Þetta eru vel seljanlegar eignir, sem nauðsynlegt og æskilegt er að ríkið losi sig við. Þegar horft er til þeirra stað- reynda, sem Sigurður B. Stefánsson dregur fram í dagsljósið, svo og vís- bendinga um, að aukin verðbólga hafi ekki náð að festa sig í sessi heldur byggist að verulegu leyti á tímabundnum aðstæðum svo sem fasteignaverði, sem er a.m.k. ekki lengur að hækka, og olíuverði, sem sennilega fer að lækka, er vissulega ástæða til nokkurrar bjartsýni. Viðlagatrygging byrjuð að gera upp við þá húseigendur sem urðu fyrir mestu tjóni í jarðskjálftunum Fólk er misánægt með tjóna- bætur Viðlagatrygging hefur nú lokið mati á 40-50 húsum í Rangárvallasýslu og öðr- um eins fjölda tjóna í Arnessýslu. Starfs- menn stofnunarinnar eru þessa dagana að birta húseigendum niðurstöður mats- ins. Sumir samþykkja matið strax með undirskrift og fá jafnvel borgað inn á tjón sitt á meðan aðrir taka sér umhugsunar- frest eða lýsa jafnvel óánægju sinni með niðurstöðuna. STARFSMENN Viðlaga- tryggingar íslands eru þessa dagana að birta eigendum húseigna á Suðurlandi mat á tjónum vegna landskjálftanna. Starfsmenn tryggingafélagsins í Rangárvalla- sýslu byrjuðu í gærmorgun að kalla til sín það fólk sem varð fyrir mesta tjóninu. Að sögn Níelsar Indriðasonar, sem í gær var að gera upp tjón á Hellu, er búið að reikna út 40-50 tjón af á annað hundrað sem búið er að skoða og verður meginhluti þeirra lagður fyrir tjónþola næstu daga. Verður þeirri vinnu haldið áfram sam- hliða áframhaldandi matsvinnu. Svipaður fjöldi tjóna mun vera út- reiknaður í Árnessýslu og þar er einnig byrjað að birta fólki matið. Níels sagði að fólk tæki niður- stöðunni almennt vel. Búið var að ræða við átta húseigendur síðdeg- is í gær og höfðu sex þeirra sam- þykkt matið með undirskrift en tveir vildu kanna málið frekar. Jafnframt var borgað inn á sum tjónin. Guðmundur Ingi Gunn- laugsson, sveitarstjóri á Hellu, sagði að fólk virtist misjafnlega ánægt. Kvaðst hann hafa heyrt í tveimur fjölskyldum, önnur hefði verið ánægð en hin óánægð, með mat Viðlagatryggingar. „Það er verið að reka smiðs- höggið á uppgjörið og þeir munu hafa samband við okkur í dag. Það verður jafnvel gert upp við þá sem eru með ónýt hús,“ sagði Sigurður Ragnar, starfsmaður glei-verk- smiðjunnar Samverks, í samtali við blaðamann í gær en hús móður hans, Lóu Jónsdóttur, á Hóla- vangi 4 á Hellu, eyðilagðist í fyrri stóra jarðskjálftanum. Eðlilegt að taki tíma Ákveðinnar óþolinmæði hefur gætt hjá fjólki sem varð fyrir tjóni á skjálftasvæðunum. Eftir skjálft- ann var talað um að mati og upp- gjöri tjóna yrði hraðað en eigend- ur húsa hafa lítið getað undirbúið viðgerðir eða nýbyggingar vegna óvissu um bótafjárhæðir. Sigurð- ur vildi þó ekki gera mikið úr þessu, sagði ekki óeðlilegt að þessi vinna tæki tíma. „Það gerði sér enginn grein fyrir því í upphafi hversu víða væri skemmt. Þeir héldu að nokkrir ónýtir kofar hefðu hrunið en smám saman hef- ur verið að koma í ljós að tjónið er miklu meira. Stofnunin hefur ekki burði til að hespa af svona verk- efni,“ sagði Sigurður Ragnar. Níels hjá Viðlagatryggingu sagðist skilja vel að fólk væri óþol- inmótt. Hins vegar teldu starfs- menn Viðlagatryggingar að vinn- an hefði gengið vel, uppgjör tjóna hjá stofnuninni hefði aldrei gengið jafn vel fyrir sig og nú. Valtýr Val- týsson, sveitarstjóri í Holta- og Landsveit, sagði að biðin væri óþolandi og hver dagur sem fólk þyrfti að bíða í óvissu margfaldað- ist í huga þess. Hins vegar þyrfti að gefa uppgjörsvinnunni sinn tíma og gæta þess að hún væri vel unnin. Það væri ekki síður hagur fólks sem orðið hefði fyrir tjóni. Hreppurinn býður fólki ráðgjöf og bjóst Valtýr við að margir húseig- endur myndu leita til sérfræðing- anna áður en þeir skrifuðu undir tjónamatið. Bæturnar duga fyrir grunni og bflskúr Hús Lóu og Sigurðar Ragnars eyðilagðist í skjálftanum. Miðað við þær upplýsingar sem Sigurður hafði kvaðst hann búast við að fá um fimm milljónir í bætur, varla helming þess sem kostaði að byggja að nýju. Bæturnar dygðu vel fyrir grunninum og kannski einnig fokheldum bflskúr. „Ætli það verði ekki úr að maður reyni að byggja upp, en ég á eftir að tala við bankastjórann,“ sagði Sigurð- ur. Hann sagði að ekki þýddi að segja fólki að kaupa gömul hús, það væru einfaldlega engin hús til sölu á Hellu og þau sem væru í sama verðflokki og hús þeirra mæðgina hefðu eyðilagst í skjálft- anum. „Ég hefði verið sáttur við að selja húsið á þessu verði en það var einfaldlega ekki til sölu. Ég ætla að búa hér áfram, hér er maður í vinnu og hefur baksað í gegnum þykkt og þunnt,“ segir Sigurður. Sigurður Ragnar og Lóa búa í hjólhýsi en vonast til að sveitarfé- laginu takist að útvega húsnæði fyrir veturinn. Kvaðst hann vflja koma vinnu við grunn af stað í haust og yrði sáttur við að geta flutt inn í nýtt hús næsta sumar. Þurfti að vinna af krafti Vinnufélagi Sigurðar Ragnars í glerverksmiðjunni Samverki, Sveinbjörn Jónsson, var að koma úr viðtali við Viðlagatryggingu þegar blaðamaður hitti hann í verksmiðjunni um hádegisbilið í gær. Hús hans á Freyvangi 12 var úrskurðað ónýtt og hann fær brunabótamatsverð sem er rúmar 10 milljónir að frádregnum 5% sem allir þurfa að taka á sig. Eftir atvikum var hann sáttur við það. Morgunblaðið/Július Fjölskyldan á Syðri-Hömrum 2 í Ásahreppi notar rigningardaga til að rífa önýta milliveggi í íbúðarhús- inu, f.v. Björn Guðjónsson, Vigdís Þorsteinsdóttir og Guðjón Björnsson. Morgunblaðið/Júlíus Vinnufélagamir í glerverksmiðjunni Samverki á Hellu bera saman bækumar um mat Viðlagatrygging- ar á íbúðarhúsunum sem eyðilögðust í þjóðhátiðarskjálftanum. Hægt var að horfa inn í hús Sveinbjörns Jónssonar eftir skjálftann en það hefur nú verið rifið. Sveinbjörn og Heiðrún Ólafs- dóttir, kona hans, hafa undanfarin átta ár verið að gera upp húsið og var því verki að mestu lokið. Þau búa nú með sonum sínum hjá for- eldrum hans á Rauðalæk og sagði Sveinbjörn að það væri þreytandi til lengdar að sofa í flatsæng í einu herbergi. „Eldri strákurinn byrj- ar í skóla í haust og maður verður að komast sem allra fyrst á stað- inn,“ sagði Sveinbjörn. Hann lætur ekki sitja við orðin tóm. Búið er að rífa gamla húsið og grafa fyrir nýjum grunni og fylla upp í hann. Fékk Sveinbjörn til þessa verks verktaka með þrjá stóra vörubíla og stóra gröfu. Kvaðst hann reikna með að grunnurinn kostaði um þrjár milljónii-, og sá kostnaður væri al- veg utan við brunabótamatið. Þau hjónin ætla að byggja timburein- ingahús, til þess að láta það taka sem stystan tíma að koma sér upp nýju heimili. Hann áætlaði að heildarkostnaður við að koma hús- inu í það stand sem var yrði um þrettán milljónir kr. Vel gekk hjá Sveinbimi að fá verktaka og semja um kaup á timbureiningahúsinu. Sagðist hann hafa þurft að fara í þetta af krafti og því væri erfiðara að semja við verktaka um verð og framkvæmdin því sjálfsagt dýrari en ella. Hann sagði að vissulega væri þreytandi að eiga við stofn- anir eins og Viðlagatryggingu. Erfitt væri að ná í menn og svo hefðu þeir ekki nægan skilning eða áhuga á að málin þyrftu að ganga hratt fyrir sig við þessar aðstæður. Rigningardagarnir notaðir í að rífa „Maður verður að skilja að þetta tekur allt sinn tíma en mér hefði fundist að það hefði mátt láta þá ganga fyrir sem ekki geta búið í húsunum," sagði Vigdís Þorsteinsdóttir á Syðri-Hömrum 2 í Ásahreppi. Miklar skemmdir urðu á íbúðarhúsi þeirra Björns Guðjónssonar í seinni jarðskjálft- anum og sofa þau í bráðabirgða- húsi sem komið var með eftir skjálftann. Bjöm sagði að matsmenn hefðu komið fyrir hálfum mánuði og sagt að þau yrðu kölluð fyrir eftir hálfan mánuð. Einhver dráttur virtist ætla að verða á því. Þá væri ekki búið að greiða út tjón á innbúi sem ætlunin hefði verið að gera strax. Björn og Vigdís sögðust reyndar ekki hafa haft samband við starfsmenn Viðlagatryggingar enda væra sjálfsagt nógir til þess og mikið hefði verið að gera að undanförnu, ekki síst við heyskap. Björn er trésmiður og hefur notað rigningardagana til að hefja viðgerðir á húsinu. Gólfplatan seig með þeim afleiðingum að flestir hlaðnir milliveggir í húsinu sprangu frá lofti eða gólfi. Björn er byrjaður að rífa veggina og hyggst smíða timburskilveggi í staðinn, auk þess sem hann þarf að rétta af gólfið. Hann sagði að viðgerðin væri tímafrek og kostn- aðarsöm, til dæmis við að færa til lagnir sem væra í veggjunum. Hann sagðist þó ekki vera búinn að áætla kostnaðinn en myndi gera það um það leyti sem hann fengi niðurstöður úr mati Viðlaga- tryggingar. Hjónin sögðust vera búin að taka íbúðarhúsið aftur í sátt eftir jarðskjálftana og vonuðust til þess að geta flutt aftur inn í hluta þess í september. LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 33 . Dagbókarblöd SPANN Iþessu húsi upplifðum við, þrátt fyrir allt, kransakökuna á þessu ferðalagi 5. maí, föstudagur Þrumur og eldingar í nótt. Gekk á með ausandi rigningu síðdegis, en við létum það ekki á okkur fá. Regn- hlífamar komu í góðar þarfir. í svona úrhelli taka svartir sölumenn regnhlífa við af þeim sem selja sól- gleraugu og setja sinn svip á götu- söluna. Þegar upp stytti gengum við niður í Lorea-garðinn syðst í borginni, en þar stóð heimili fjölskyldunnar og er nú orðið að safni, Huerta de San Vicenta, Casa-Museo Federico Garcia Lorca. Það hefur verið tals- vert utan við borgina á sínum tíma, en nú stendur það í miðjum garðin- um í námunda við einhver fegurstu rósabeð sem ég hef séð. Það er við hæfi. I safninu er svefnherbergi Lorca á efri hæð, eldhús, stofa og önnur herbergi á neðri hæð. Mörg handrit í glerskápum, bækur með ljóðum skáldsins og leikritum, auk fjölda teikninga eftir skáldið og nokkurra stórra málverka á veggjum. í þessu húsi upplifðum við, þrátt fyrir allt, kransakökuna á þessu ferðalagi. Allt vai’ þó á spænsku, leiðsögumaðurinn talaði enga ensku, en ég náði þó í enska bók um h'f Lorca, teikningar og skáldskap. í henni era margar skemmtflegar myndir, ekki sízt af Lorca og Dali sem vora miklir vinir upp úr 1920, en svo slettist upp á vinskapinn þegar Lorca gaf út sí- gauna-ballöðumar; þá skrifaði Dali vini sínum langt gagnrýnisbréf þar sem hann setur út á tengsl hans við hefðina og segir að ljóðin fullnægi ekki hinum nýju þörfum módemis- mans. „Ljóð þín era bundin á hönd- um og fótum við fortíðina," sagði Dali. En Lorca sagði að athuga- semdin væri „skynsamleg og for- dómafull“ - eða eitthvað í þá áttina. I íyrmefndri bók er ljóðið um Cordóba sem Lorca samdi á árunum 1921-24 undir fyrirsögninni Söngur riddarans eða Söngur hestamanns- ins. Þar er ijallað um aðra Cordóba en við upplifðum, borg sorgar og fjarlægðar. Nú er þar annað andrúm en Lorca lýsir: Cordóba Fjarlæg og ein. Svartur hestur, stórt tungl og ólívur í hnakktöskunni. Þó að ég þekki leiðina kemst ég aldrei til Cordóba. Yfir sléttuna, gegn vindinum, svartur hestur, rautt tungl. Dauðinn fylgist með mér úr turnum Cordóba. Ó, hversu leiðin er löng! Ó, minn hugrakki klár! Ó, dauðinn bíður mín áður en ég kemst til Cordóba. Cordóba. Fjarlæg og einmana. Ingó segh- að teikningar Lorca geti alveg eins verið eftir Miro, þeir séu svo líkir. Þær eru náttúralega uppfullar af súrrealisma. Lorca hafði hann í blóðinu og þess vegna átti hann erfitt fyrir heima á Spáni þó að sígauna-ballöðurnar hafi orðið einhver vinsælasta ljóðabók sem um getur. En súrrealisminn hefur ekki verið auðmeltur og kannski er Lorca betur þekkur með bókmenntafólki í öðram löndum en alþýðu manna á Spáni, eða eigum við að segja: anda- lúsíu. En tfl hennar sækir hann hina andalúsisku arfieifð sem hann breyt- ir í klassíska nýlist. FEDERICO GARCIA LORCA OG SALVADOR DALI. Það vora engar hópferðir í þetta safn eins og í Alhambra, þar vora einungis hljóðir einstaklingar sem íhuguðu hverja mynd, sérhvert handrit og bára saman við prentað mál. Skrift Lorca er heldur bama- leg þegar hann notar penna og blek, en mun þroskaðri þegar hann skrifar með blýanti. Það er hnýsi- legt að sjá hvemig hann strikar út, breytir og lagfærir; hann hikar ekki við útstrikanir frekar en önn- ur góðskáld. Það era einungis meðalskáldin og þaðan af verri sem tíma ekki að breyta neinu, en telja allt fullkomið sem lendir á pappímum í íyrstu atrennu. Hún er venjulega einnig síðasta gerðin í handritum vondra skálda. Þau skortir vandfýsnina, tilfinninguna, smekkinn. Þau gleypa allan inn- blástur eins og kýr sem kunna ekki að jórtra. Þær þrífast ekki og hefðu betur orðið hestar! 6. iriðíy laugardagur Alhambra Palace-hótel stendur á hæðinni og rís eins og kastah yfir borgina. Það er rauðbrúnt með grænum gluggum. Það er ævintýri líkast. Það minnir einna helzt á skemmtiferðaskip, matsalurinn ekki opnaður fyrr en klukkan hálf- níu á kvöldin. Kvöldverðurinn og allir þjónai-nir eins og á Queen El- isabetii. Frá hótelinu að Ál- hambra-virki er steinsnar. Hótelið var byggt 1910. Það var í þessu hóteli sem tekin var mynd af Lorca 5. maí 1929, ásamt fjölda gesta sem viðstaddir vora í tilefni af því að þá hafði leikrit hans, Mariana Pineda, verið framsýnt. Á miðri myndinni, sitj- andi, eru Margarita Xirgu, sem setti upp flest leikrit hans, og Frederico Garcia Rodrigues, faðir hans. Allt prúðbúið fólk, mest karl- ar. Ég sé ekki nema þrjár konur á myndinni, t.a.m. vantar móður hans, en að henni var hann mjög hændur. Hún hét Vicanta Lorca Romero. Til er mjög skemmtileg mynd af henni og heimili fjölskyld- unnar þar sem skáldið birtist í speglinum bak við hana. Táknræn mynd á margan hátt. Lorca átti bæði bróður sem virðist vera mjög áþekkur honum og systur. Fyrsta leikrit Lorca féll eftir fjórar sýningar í Madrid 1922 og ljóðasafn sem foreldrar hans kost- uðu og út kom í Madrid 1921 vakti enga athygli. Á þessum áram var Lorca í vinfengi við Dali og Bunu- el. Hann heimsótti Dali þar sem hann bjó í litlum fiskibæ í Katalón- íu, Cadaqués; bæði 1925 og 1927 en þá stóð vinátta þeirra í blóma. Hann orti lítið, fallegt Ijóð til vinar síns þar sem hann lýsir bænum. Eftir fræga ferð til Ameríku, einkum Kúbu, þar sem Lorca var tekið með kostum og kynjum, kom hann aftur heim til Madrid og gerðist aðili að leikflokki sem fór um landið til að sýna verk gamalla meistara eins og Lope de Vega og Calderónes. Þegar lýðveldið var stofnað 1931 varð einn helzti mentor Lorca menntamálaráðherra. Leik- flokkurinn var því styrktur af hinni nýju vinstristjóm lýðveldissinna, nefndist Barraca og fór víða um landið. Þá byrjuðu tengsl Lorca við vinstri stjómina, en þau leiddu tfl harmsögulegra endaloka. Lorca hafði upplifað verðbréfa- hranið í New York 1929 og þar fannst honum fátt minna á þá kristi- legu siðmenningu sem hann var al- inn upp við. Alls staðar er fólk öskr- andi og grenjandi eins og dýr, skrifaði hann heim. Einnig konurn- ar. „Þegar ég komst út úr þessu hel- víti,“ heldur hann áfram, „var öll umferð bönnuð um Sixth Ávenue. Bankastarfsmaður hafði kastað sér út um glugga á 16. hæð í Hótel Ast- or.“ Hann kom að þegar verið var að lyfta manninum af götunni. „Hann var mjög stór, rauðhærður, og ég gleymi ekki stóram hvítum höndum hans á sementsgrárri götunni. Við þessa sjón fékk ég nýja hugmynd um bandaríska menningu, ...það var eins og skip væri að sökkva og allt kristið andrúm horfið." Nú fylgdu harmleikir Lorca, Blóðbrallaup var sett upp í Barce- lona 1933 og síðan flutt til Buenos Aires þar sem það var sýnt meira en 100 sinnum. Yerma fylgdi í kjölfarið árið eftir og Margarita Xriga í höf- uðhlutverkinu. Það var sýnt yfir hundrað sinnum í Madrid og síðan farið með það til Barcelona og Val- encia. Þriðja leikritið Hús Bernarda Alba, skrifað 1936 eða sama ár og Lorca var myrtur, en ekki sýnt fyrr en 1945. Þávora MargaritaXriga og leikflokkur hennar komin í útlegð til Buenos Aires og þar var Bern- arda Alba ekki sýnt fýrr en 1945. Spænski herinn gerði uppreisn gegn lýðveldisstjórninni í júlí 1936. Þá var Lorca í Madrid, en fór til Granada skömmu síðar, eða 13. júlí. Nokkra síðar gerði herliðið í Gran- ada uppreisn og náði borginni 23. júh'. Mágur Lorca, Monte Sinos, nýkjörinn borgarstjóri, var hand- tekinn og drepinn 16. ágúst, eða sama dag og Lorca var handtekinn í Granada. Margt er á huldu um dauða Lorca en talið að hann hafi verið drepinn í bænum Viznar. Mér skilst að enginn hafi rannsakað dauða hans jafn vandlega og ævisöguritari hans, Ian Gibson, sem skrifaði bókina The Assassination of Federico Garcia Lorca, en ég hef ekki lesið hana. Hún bíður betri tíma, þegar minn- ingar úr þessari ferð ryðjast fram og kalla á nýjan farveg eins og gam- alt fljót. Hið mikla skáld Spánverja, Antonio Machado, sem sumir telja eitt helzta skáld þessarar aldar og lézt u.þ.b. sem lýðveldið hrundi, orti bitur eftirmæli um Lorca þegar hann frétti lát hans: Hann sást á gangi... vinir, reisið minnismerki úr steini og draumum Alhambra, yfir gosbrann þar sem vatnið syrgir og segir að eilífu: glæpurinn var framinn í Granada, í hans Granada. Sjálfur hafði Lorca ort: Ef ég dey hafið svalirnar opnar barnið borðar appelsínur (ég sé það af svölunum). Uppskeran hafin og kornið þreskt (ég heyri það af svölunum); ef ég dey hafið opið út á svalimar! M. n

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.