Morgunblaðið - 22.07.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.07.2000, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Menn eða málefni Súgóða list að bera virðingu fyrirskoð- unum annarra, þó maðursé ósammála, erá undanhaldi. Fyrst og fremst vegna þess að menn telja sig hafa ástæðu til að trúa því að aðrar leiðir séu líklegri til árangurs ogþað er mið- ur. Ekki ersíður miðurað eðlilegt erað draga þá ályktun íframhaldinu að rök- ræðulistin sé í útrýmingarhættu. UPP á latínu er það kallað argumentum a d hominem þegar menn í rökræðum ráðast að persónu þess sem heldur fram mótrökum, fremur en röksemdunum sjálfum. ~ ' Þessi vörn getur tekið á sig margvíslegt form, þeirra þekkt- ust eru líkast til þau þegar áherslan er lögð á persónulega eiginleika viðkomandi, þjóðemi eða trú, fremur en það sem hann hefur málefnalega fram að færa. Enn eitt þekkt formið er þegar gefið er í skyn að viðkomandi sé með rökum sínum að gæta ákveð- inna hagsmuna og sé því ekki marktækur. VIÐHORF Sammerkt ------ eiga þau hins Eftlr Hönnu vegar öll að Katrínu allt kapp er Frlðriksen lagt á menn fremur en málefni. Litlar líkur eru á að mál séu tii lykta leidd á skynsamlegan hátt. Tilgangurinn með þessari „rök- ræðulist" er sem sagt sá að beina athyglinni frá sjálfu málefninu eða öllu heldur fram settum rök- semdum. I stað þess að bera þá virðingu fyrir andmælandanum að gera ráð fyrir að hann hafi eitthvað til síns máls, viti að minnsta kosti hvað hann er að tala um, og reyna að svara rökum hans á skynsamlegan og málefna- legan hátt, er talið vænlegra til ■4' árangurs að ráðast að honum persónulega, benda á að einhverj- ar grunsamlegar ástæður hljóti að liggja að baki röksemdum hans eða að gefa í skyn að hann sé ekki heill í mótrökum sínum. Þessi aðferð gengur of oft upp, að beina sjónum fólks frá aðalatrið- um mála sem eru til umræðu með því að kaffæra staðreyndir með útúrsnúningum sem of sjaldan koma umræðunni beint við. Best er að hafa mælskuna sem mesta, þannig dugar dulbúningurinn best. Það er ekki síst í fjölmiðlum sem ad hominem röksemdir eru notaðar á árangursríkan hátt til 1 s þess að hafa áhrif á lesendur eða áheyrendur. Margir þeirra sem hafa lifibrauð sitt af því sannfæra almúgann um réttmæti skoðana sinna hafa nánast fullnumið sig í þessari list og komast á stundum upp með ótrúlegasta skrípaleik þegar fólk er illa á verði. En þess- ir atvinnumenn eru ekki þeir einu sem beita brögðunum fyrir sig. í raun er málum svo komið að það er fátt um fína drætti í rökræðum í íslensku þjóðlífi. Það er sterk hefð fyrir því á J Islandi að fólk eigi góðan aðgang að fjölmiðlum, sérstaklega dag- blöðum. Þegar skoðanaágreining- ur kemur upp ber meira á því að menn einblíni á mælskulistina, með það fyrir augum að gera mótmælandann að aðalatriði um- ræðunnar á sem áhrifaríkastan hátt, en því að menn beiti skyn- samlegum rökum á þá sem eru á annarri skoðun. Sú góða list að bera virðingu fyrir skoðunum annarra, þótt maður sé þeim ósammála, er á undanhaldi. Fyrst og fremst vegna þess að menn telja sig hafa ástæðu til þess að trúa því að aðrar leiðir séu lík- legri til árangurs og það er mið- ur. Það er svo ekki síður miður að eðlilegt er að draga þá ályktun í framhaldinu að rökræðuhstin sé í útrýmingarhættu. Fomgrískir ræðusnillingar notuðu gjaman upphaf ræðutím- ans til þess að reyna að öðlast traust áheyrenda sinna. Þetta hefur skilað sér til samtímans þó tæknin sé sýnu öðruvísi en sú sem ræðusnillingarnir beittu. Nú er traustsins helst leitað með því að grafa undan trúverðugleika andstæðinganna. Persónulegar árásir, allt frá litlum og lævísleg- um athugasemdum upp í lítt duldar æmmeiðingar, em allt of algengar hvar og hvenær sem menn greinir á um ákveðin mál- efni. Það þarf ekki stærstu þjóð- málin til. Ekki umdeildar virkjan- ir, fiskveiðistjómun eða gagna- gmnn. Heilbrigðismál, líf- eyrismál, bílatryggingar eða bensínverð. Em þó átökin í þess- um málaflokkum nóg til þess að stilltasta fólk missi stjóm á sér. En það er líka mergurinn máls- ins. Fólk grípur ekki til þessara aðferða af því að það missir stjórn á sér, heldur af fullkominni yfirvegun vegna þess að það telur að vænlegra sé að etja kappi við menn en málefni. Jafnvel þegar málefnarökin virðast yfrið næg til þess að vinna ákveðnu máli brautargengi heykjast menn á því að beita þeim einum. Auðvitað á þetta ekki að vera hægt. Við sem fylgjumst með skoðanaágreiningi á opinbemm vettvangi eigum að byggja ákvarðanir okkar á skynsamlegu mati á gildi þeirra raka sem þar koma fram fremur en tilfinninga- legum viðbrögðum við frammi- stöðu leikenda. Slíkt gerir nátt- úrulega töluverðar kröfur á hendur okkur, við þurfum að beita gagnrýnni hugsun. Það er kannski full ástæða til þess að lýsa eftir henni um leið og lýst er eftir rökræðulistinni. Spurningin er þá sú, hvort er það skortur á vitrænni rökræðu sem slævir gagnrýna hugsun, eða skortur á gagnrýnni hugsun sem er að út- rýma rökræðulistinni? Hvað sem svarinu líður er ekki úr vegi að allt það ágæta heiðurs- fólk sem vinnur að mótun fram- tíðarstefnu menntamála á íslandi prediki mikilvægi þess að íslensk böm og unglingar læri að rök- ræða á skynsamlegan hátt, af sama kappi og það talar um mik- ilvægi þess að standa öðrum þjóð- um jafnfætis varðandi menntun í raungreinum. Það væri síðan ósk- andi að aukið vægi rökræðulistar- innar í almennri menntun skilaði sér fyrr en síðar í opinberri um- ræðu í íslensku þjóðlífi. JIKU IM / Á slóðum Ferðafélags íslands A Skaga norður Skaginn skagar norður í haf, með Húnaflóa og Skagafjörð sitt hvorum megin við sig. I þessari grein segir Krislján Sveinsson frá ýmsu sem á vegi verður þegar farin er þjóðleið eftir akveginum á vestanverðum Skaga. ^ÍAG^ Hann skag- ar norður í hafið Skag- inn. Langur en ekkert mjór og hef- ur Húnaflóa og Skaga- fjörð sitt hvorum megin við sig. Oldur flóa og fjarðar klappa honum stundum blíðlega og kjassandi, en lemja hann líka alveg jafn oft með látum og offorsi. Skvetta á hann og láta grjótið sarga í Skagafjörunum. Skaginn lætur þetta gott heita og heldur sér við að skaga norður í hafið. í þessum stúfi er sagt nokkuð frá ýmsu sem á vegi verður þegar farin er þjóðleið eftir akveginum á vest- anverðum Skaga. Vegurinn sá er malarvegur en vel fær öllum bif- reiðum að sumarlagi. Yfirleitt er ekki mikil bílaumferð um þennan veg og það eru ekkert minni líkur á að mæta sauðkindum og hrossum þar á sumrin heldur en bflum. Þessir ferfættu vegfarendur taka ekkert mark á umferðarreglum svo betra er að fara gætilega. Spákonufellið við Skagastrandar- þorpið sést víða á Skaganum. Fjallshausinn er sérkennilegur og sjómenn nota hann fyrir mið. Norð- ur af Spákonufelli eru Katlafjall, Steinnýjarstaðafjall og Fjallsöxl. Skaginn er annars ekki fjalla- land. Hann er láglendur og Skagaheiðin er allvel gróin. Nema þar sem eru grjóturðir. Þar sem heitir Bruni í heiðinni er grjót- urð. Tófan býr þar og víðar í Skagaheiði. Það hefur hún lengi gert og búnast víst þokkalega. Mannfólkið gerði sér bólstaði í heiðinni á fólksfjölgunartímanum eftir miðja 19. öld. Þá voru þónokk- ur sel og kot í byggð í Skagaheiði. Svo buðust aðrir kostir betri og heiðarhokri var hætt. Fjöldinn all- ur af vötnum og tjörnum er í Skagaheiði og silungur í mörgum þeirra. Langavatnið er stærsta vatnið í heiðinni. Það liggur í boga meðfram Fjallsöxlinni. Upp af vatninu er Þórhildardalur og þar átti Ólafur Þórhallason ævintýri með huldufólki sem sagt er frá í Ólafs sögu Þórhallasonar. Fyrstu nútímaskáldsögu sem samin var á íslensku og varðveist hefur. Höf- undur þeirrar sögu, Eiríkur Laxdal, ólst upp á kirkjustaðnum Hofi. Ólafs saga gerist að talsverðu leyti á Skaga og er gullvæg heimild um þjóðtrú og tíðaranda á Skagan- um í þá tíð. Hún lá í handriti frá því að Eiríkur gekk frá henni þar til Þorsteinn Antonsson og María Anna Þorsteinsdóttir unnu það þjóðþrifaverk að gefa hana út árið 1987. Annar Hofspiltur hafði líka áhuga á þjóðsögum. Sá var Jón Árnason bókavörður sem safnaði fjölda þeirra og gaf út í félagi við Konrad Maurer í Múnchen. Kirkjan sem nú stendur á Hofi var byggð á árunum 1868-1869. Kirkjusmiður- inn hét Sigurður Helgason og var bóndi á bænum í þá tíð. Þetta yfir- lætislausa hús hefur gegnt hlut- verki sínu við nokkrar kynslóðir Skagamanna með prýði og sóma og lítur nú vel og hraustlega út eftir gagngert viðhald á undanfömum Hofskirkja Kálfshamarsviti árum. Nýtt samkomuhús sveitar- innar stendur rétt innan við Hof. Það heitir Skagabúð. Undir Brekku eru nokkrir bæir. Páll Kolka segir í Föðurtúnum að gamla íbúðarhúsið á Örlygsstöðum sé fyrsta hús sem byggt hafi verið á Islandi með tvöföldum steinsteypu- veggjum og tróði á milli. Brekkan er byrjun eða endir á Króksbjargi eftir því hvort maður kemur utan- eða innanfrá. Útræði var fyrrum undir Brekku, en slæm þótti lend- ingin. Leiðin liggur eftir Króks- bjargi og nokkuð tæpt á brún þess sums staðar. Víða er skemmtilegt útsýni af bjarginu og gaman að líta þar til fugla á vorin og sumrin en betra að gæta fóta sinna á brúninni. Fulgatjörn heitir lítil tjörn rétt of- an vegarins. Eins og nafnið bendir til safnast þar fuglar saman, oft svo hundruðum skiptir. Mest ber á ritu og fýl úr Króksbjargi sem koma þarna til að fá sér þrifabað og hvíla vængina um stund, en oft má líka sjá þarna ýmsa andfugla og vað- fugla. Skaginn er mikið fuglaland. Og talsvert minkaland líka enda þykir minknum varið í að næla sér í fuglakjöt og fiskbita við vötn og sjó. Upp með Fossá, sem endar árlíf sitt með því að steypa sér fram af Króksbjargi og verða Atlantshaf, er fjárrétt sveitarinnar sem lokið var við að byggja árið 1977. Hún er stór og steinsteypt. Fremst á Kálfshamarsnesi stendur reisulegur viti sem Vita- málastofnun lét byggja árið 1939 og teiknaður var af Axel Sveinssyni verkfræðingi. Vitinn gegnir því hlutverki að vara sæfara við grynn- ingum, Hofsgrunni inn með Króks- bjargi og Skallarifi vestur af Rifi. Nýlega var hann valinn af arkitekt- um og lesendum Morgunblaðsins til að fylla flokk 50 íslenskra öndvegis- húsa. Áður en þessi viti var byggð- ur stóð þarna minni viti sem byggð- ur var árið 1913. Enn sér fyrir gamla vitastæðinu. byrjun 20. aldar myndaðist vís- ir að þorpi á Kálfshamarsnesi og í Kálfshamarsvík. Fólkið sem þar bjó lifði af sjávarfangi og lítilsháttar skepnuhaldi. Það settist þarna að vegna þess að í Kálfsham- arsvík er góð náttúruhöfn. Byggðin hér stóð með nokkrum blóma um þriggja áratuga skeið. Þar var salt- hús og verbúðir og þar var mál- fundafélag og félagar þess byggðu vandað samkomuhús sem lengi var notað sem skólahús. Og það var lestrarfélag. Svo kom kreppan og saltfiskurinn úr salthúsinu varð verðlaus. Og þeir frumstæðu at- vinnuhættir sem þarna voru tíðkað- ir stóðust ekki samjöfnuð við tækn- ina. Fólkið flutti brott og sumir tóku húsin sín með sér og reistu þau að nýju á Skagaströnd. Nú hafa húsarústirnar á Kálfshamars- nesi verið merktar til glöggvunar fyrir ferðamenn. Norðan við Kálfshamarsnesið er Framnes. Þar á að vera dys Spán- verja sem munnmæli segja að hafi verið drepnir þar. Vafalítið er það tilhæfulaus sögn sem sprottin er af Spánverjavígum þeim sem unnin voru árið 1615 handan við Húna- flóann. Þegar draugur komst á kreik síðla vetrar 1964 á bænum Saurum sem þarna er næstur mundu einhverjir eftir Spánverjun-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.