Morgunblaðið - 22.07.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 3íf
UMRÆÐAN
Dylgjur
í stað raka
FLUTNINGUR ríkisstxtfnana frá
Reykjavík tit landsbyggðarinnar
hefur verið allmjög til umræðu und-
anfarið í kjölfar ákvarðana tveggja
ráðheira þess efnis. Félagsmálaráð-
herra hefur ákveðið að flytja skrif-
stofu jafnréttismála til Akureyrar
undir nýju nafni, Jafnréttisstofa, og
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Byggðastofnun til Sauðárkróks.
Skammt er einnig að minnast flutn-
ings Landmælinga Islands og
íbúðalánasjóðs. Ástæða er til að
fjalla nokkuð um þessar ákvarðanir
en þó sérstaklega hvernig að þeim
er staðið.
Ljóst er að engar reglur gilda
hérlendis um hvernig staðarvali
nýrra eða starfandi stofnana skuli
háttað. Ráðherrar hafa því gjarnan
talið sig hafa frjálsar hendur um
slíkt og vísað til þess að um pólitíska
ákvörðun sína sé að ræða. Það er að
sjálfsögðu fráleitt, Hæstiréttur hef-
Ríkisstofnanir
Félagsmálaráðherra,
segir Ómar Harðarson,
dylgjar um hæfni
starfsmannanna í stað
þess að rökstyðja flutn-
ing Jafnréttisstofu.
ur vegna flutnings Landmælinga
ríkisins þegar kveðið upp úr með að
það sé einungis Alþingi sem getur
ákveðið slíkt. Að því gefnu að Al-
þingi geti framseít slíkt vald eru
ákvarðanir um staðarval í eðli sínu
stjórnsýsluákvarðanir en ekki póli-
tískar. Um stjómsýsluákvarðanir
gilda almennar formreglur, s.s. um
rannsóknarskyldu, andmælarétt
o.þ.h. sbr. stjórnsýslulög nr. 37/
1993.
Við val á staðsetningu ríkisstofn-
ana þarf að taka tillit til ýmissa at-
riða, s.s. kostnaðar, hvort stofnun
geti sinnt starfí sínu á staðnum mið-
að við aðra valkosti, aðgengi al-
mennings að þeirri þjónustu sem
veitt er og hvort hægt sé að ráða
hæfa starfsmenn til starfa á staðn-
um. Þá skiptir máli hver tekur
ákvörðunina, ráðherra eða Alþingi,
og hverjir hafa umsagnarrétt þar
um. í opinni stjómsýslu þarf einnig
að koma fram hvaða hagsmunaaðil-
ar hafa ávinning eða tap af staðar-
valinu. Við flutning á stofnun sem
þegar er starfandi þarf auk þess að
taka sérstakt tillit til þeirra starfs-
manna sem starfa á viðkomandi
stofnun. Ég vil taka hið síðastnefnda
til umfjöllunar í þessari grein.
Ríkisstofnanir era fremur en önn-
ur fyrirtæki fyrst og fremst upp-
söfnuð þekking og reynsla starfs-
manna sinna. Við flutning
ríkisstofnana þarf því að hyggja
vandlega að því hvemig varðveita
megi þá auðlind sem býr í starfs-
mönnunum. ísland er lítið land og
sérfræðingar sem geta sinnt hinum
OTTO pöntunarlistinn
Laugalækur 4 • S: 588-1980
ýmsu störfum era ekki á hverju
strái. Það er því glapræði að kasta
slíku á glæ nema það sé alveg Ijóst
að kostirnir fyrir þjóðfélagið séu
þeim mun meiri.
Það er ljóst að félagsmálaráð-
herra var þetta vel ljóst þegar hann
ákvað að flytja Jafnréttisstofu af
höfuðborgarsvæðinu. En í stað þess
að draga fram þá kosti sem rétt-
lættu flutning stofnunarinnar, þrátt
fyrir að þekking og reynsla starfs-
manna glataðist, fór ráð-
herrann hins vegar þá
leið að gera lítið úr
starfsmönnunum og
starfi þeirra og stofnun-
arinnar undanfarin ár.
Hann gaf í skyn í hverju
útvarpsviðtalinu á fætur
öðra að starfsmenn væra
„þreyttir" og „útbrunn-
ir“, að stofnunin væri
„sjálfhverf ‘ og lítið hefði
áunnist í jafnréttismál-
um í hennar umsjón.
Ummæli ráðherrans
eru að sjálfsögðu ekkert
annað en atvinnurógur.
Þau dæmi sem hann not-
aði til að styðja mál sitt falla öll á
hans borð sjálfs og ríkisstjórnarinn-
ar eða eru þess eðlis að engum sér-
stökum er um að kenna. Það er til
dæmis óheyrilegur
málflutningur hjá
ráðherranum að
brigsla starfsmönn-
um jafnréttisráðs um
að launamunur kynj-
anna hafi ekki
minnkað á undan-
fömum áram. Stað-
reyndin er sú að frá
upphafi hefur skrif-
stofa jafnréttismála
starfað eftir lögum
sem hafa takmarkað
mjög svigrúm henn-
ar til athafna. Engu
að síður hefur hún og
starfsmenn hennar
unnið gríðarlegt verk við fræðslu og
hvatningu til aukins jafnréttis.
Stuðningur þeiira við jafnréttis-
verkefni hjá ýmsum sveitarfélögum,
Ómar Harðarson
stofnunum og fyrirtækjum hefur
verið ómetanlegur. Starfsmenn hafa
verið síður en svo þreyttir heldur átt _
framkvæði að mörgum framfara^*
málum. Til dæmis má taka að nýsett
lög um fæðingarorlof sem ráðherr-
ann stærir sig nú af áttu upphaf sitt
innan skrifstofu jafnréttismála.
Rógsherferð félagsmálaráðherra
gegn starfsmönnum skrifstofu jafn-
réttismála og því starfi sem þar hef-
ur verið unnið er honum til ævar-
andi skammar. Það er sömuleiðis
ljótur blettur á íslenskri stjórnsýslu
að atvinnurógur og dylgjur skuli
geta komið í stað rökstuðnings fyrir
jafnveigamiklum ákvörðunum sem
flutningur ríkisstofnana er.
'Sp
Höfundur er formaður Félags
fslenakra félagsvísindamanna.
Ébtjöld
VAUDÍ )
14.990.-
göngubuxur
\ Nýjar göngubuxur
I ■
J / Barnastærðir kr. 4.950,-
Kynningarverð
gönguskor
■H
cmsr/
gæðagönguskór
Gabel göngustafir
frá:
öndunarjakkar
Keílir 9AAmcll7wcT«VM
ÚsS'iisÖs
6600
pa
Söluaðilar um allt land