Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ Á rífandi gangi Fólk getur verið í mörg ár í hestamennsku án þess að frelsast. Sumir lenda í því að horfa alltaf í flórinn og langa aldrei að yrkja, segir Guðmundur Einarsson. Það er af því þeir hafa ekki eignast nógu góðan hest. s hestbaki á harðastökki nær maðurinn hámarks- hraða sínum. Ekki lögleg- um heldur tilflnningalegum. Það fæst engin slík upplifun inni í bfl á hundrað kflómetra hraða eða flugvél á þús- und. Heilinn skynjar ekki svoleiðis enda voru ekki til bflar og flugvélar í upphafi alls. En hestar voru til því Guð hlýtur að hafa verið ríðandi þegar hann skapaði manninn. Öðru- vísi væru þessi tengsl óskiljanleg. Aðeins á hestbaki veit maður hvernig það er að þjóta áfram. Sama gildir um hægaganginn. Minnsti hraði í heimi næst þegar farið er fetið á góð- um hesti. Fólk, sem ærist í augnabliksbið á grænu ljósi, er hamingjusamt á fetgangi. Allt stendur kyrrt. Lífið er allt í nútíð. Enginn gærdagur er til og framtíðin skiptir ekki máli. Eg þekki mann sem stóð á fjallstindi í út- löndum, var bent um heilt konungsríki og við hann var sagt: Þú færð dóttur mína og hálft ríkið nú og allt ríkið eftir minn dag. En svo reið hann fram þúsund ára gamlar göturnar á Lyngdalsheiði á fljúgandi tölti á sólardegi og hugsaði: Konur og kóngsríki. Hvaða rugl. Þetta er allt sem ég þarf. Engir urðu skáld á íslandi fyrr en þefr höfðu ort vel um hesta. Fram að þvi voru menn efnilegir. Eftir það voru menn þjóð- skáld. En fólk getur verið í mörg ár í hesta- mennsku án þess að frelsast. Sumir lenda í því að horfa alltaf í flórinn og langa aldrei að yrkja. Það er af því að þeir hafa ekki eignast nógu góðan hest. En einn dag kemur hann. Hesturinn með stórum staf. Frá Hindisvík eða Króknum. Eða bara ofan úr Víðidal. Einn með öllu. Minn Hestur með stórum staf kom norðan úr Skagafirði. Eg var búinn að eiga hesta í nokkur ár, sæmilega klára, en enginn þeirra kom blóðinu verulega á hreyfingu. Þessi gerði það. Hann var skírður Rífandi Gangur en daglega kallaður Gangurinn. Hann hafði allan gang og bar því nafn með rentu. En töltið var það sem kom manni í samband við Guðdóminn. Rokviljugur en svo taumléttur að nóg var að hafa örþunnan silkitvinna í taums stað. Og þýður var hann, því hægt var sitja hann á fullri ferð og syngja hátt og snjallt upp úr söngbók menntaskólanema, en sú bók er með afar smáu og daufu letri enda ætluð fólki með óbilaða sjón. angurinn hafði mannsvit. Syni mínum barnungum sýndi hann mikla vin- semd. Ef strákurinn var settur á bak honum, fór klárinn að öllu með gát og gætti þess venju fremur að hnjóta hvorki né hreyfa sig óvarlega. Og svo ljúfur var hann þá í taumi að drengurinn, allt frá sex mánaða aldri, hefði hestsins vegna getað farið allra sinna ferða á honum. Sömu nærgætni sýndi Gangurinn utanríkisráðherra lýðveldisins þó HUGSAÐ UPPHÁTT Morgunblaðið/RAX væri hann sýnu eldri. Sá átti þá í flóknum og mikilvægum milliríkjasamningum um hags- muni þjóðarinnar og það var eins og blessuð skepnan skildi að óhamingju Islands mætti ekki verða það að vopni að ráðherrann og einn helsti forystumaður íslenskra stjórn- mála mætti flumbraður og fumandi til leiks eftir kvöldreið á Rífandi Gangi. g ég veit að Gangurinn hafði húmor. Þegar honum fannst eitthvað fyndið, hneggjaði hann á alveg sérstakan hátt. Hann hneggjaði einmitt þannig þegar ég sagði honum frá óförum okkar krata eftir að hafa viðrað álagningu sérstaks hesta- skatts í fjárlagaundirbúningi eitt vorið. Og mér er sem ég heyrði hneggið í honum ef ég segði honum nú frá nýju áformunum um hestalandslið til móttöku þjóðhöfðingja. Kon- ungleg reiðlist er um stóra stríðshesta og riddara í fullum herklæðum. Kóngar halda að litlir hestar séu fyrir barnaheimili og hring- leikahús. Og ekki batnar það þegar íslensku knaparnir birtast eins og ballettdansarar á hestbaki, í nærskornum sokkabuxum eins og álfamir í bókinni um dverginn Rauðgrana. Gangurinn myndi skynja hið skoplega í þessu og úr augunum myndi ég lesa spuminguna: Viljið þið ekki fara alla leið og búa til kóng og drottningu, riddaralið og hermenn, hirð og húmbúkk? angurinn er enn á lífi þótt ég hafi talað um hann í þátíð. Hann er orðinn gam- all og kominn á eftirlaun. Og hann unir sér vel í hópi höfðingja á líkum aldri á útigangi í uppsveitum í kjördæmi landbúnað- arráðherrans í nokkurskonar félagsstarfi aldraðra töltara. Hann er við góða heilsu. Þyngsli, sem hann hafði fyrir brjóstinu, hrjá hann ekki í tæi-u fjallaloftinu. Og þótt fót- lúinn sé eftir frækilegan gang, er hann óhalt- ur og kvikur í spori. Ég á varla eftir að eign- ast annan Hest með stórum staf. ALLT 24 trélitir A4 Verð kr. 198 Allt í einu setti Pennaveski, blýantur, yddari, reglustika og strokleður. Verð kr. 198 í SKÓLAm 1. Vasareiknir Verð kr. 198 2. Fullkominn vasareiknir Verð kr. 398 3. Allt í einu setti Vasareiknir, 2 reglustikur, yddari, strokleður, blýantur og sirkill. Verð kr. 498 Wildlife gorma harðkiljustílabækur A4 Verð kr. 198 A5 Verð kr. 99 20 x 12,5 cm Verð kr. 99 Teikniblokk A3 40 bls Verð kr. 198 Leiðréttingaborði og blek Verð kr. 99 Wildlife skjalamappa A4 Verð kr. 198 Wildlife dagbók með lás Verð kr. 198 Einstakt skólatilboð Skólabakpoki með fullt af hólfum, auk pess plastmappa A4, reglusti- ka, blýantasett og strokleður. Allt þetta fyrir aðeins Verð kr. 998 1. Skólataska m/axlaról mikið af hólfum Verð kr. 998 2. Skólabakpoki m. 2 stórum hólfum, hólfi fyrir gsm f ól o.fl. Verð kr. 998 3. Taska m/hliðaról,hólfi fyrir gsm o.H. Verð kr. 998 Kringlunni, s. 588 1010 - Laugavegi, s. 511 4141 - Keflavík, s. 421 1736 Mjúkdýrs pennaveski í úrvali Verð kr. 198 Ég hef hafið störf á hársnyrtistofunni Hlíðasmára 17, Kópavogi. Birna Ólafsdóttir Heim að dyrum • Vtð sækjum póstinn eða pakkunn til pín og komum honum heim að dyrum samdægurs • Forgangsmeðhöndlun hraðsendinga f” \ ; *\ • Frysti- og kæligeymslur • Fullkomið tölvukerfi (upplýsinga- og farmbréfakerfi) • Fjöldi ferða á dag Hraðþjónusta - ódýrari en þiggrunar Akureyri 460 7060 • Egilssltlir 4711210 • IsufjtrSur 456 3000 Vcstmannacyjar 481 330 • Höfn 478 1250 • Rcykjavík 570 3400 FLUGFÉLAG ÍSLANDS Flugfrakt - gott forskot!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.