Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 13
4 MORGUNBLAÐIÐ I var mikill völundur og þjóðhagi og er okkur sýnd fiðla, er hann smíðaði ásamt fiðluboga með hrosshári. Kona Kristins Indriðasonar var dóttir Boga, Elinborg Magnúsen (1895- 1984). Við kveðjum hina ágætu íylgd- arkonu okkar um leið og við virðum fyrir okkur hinar fögru klettaborgir, Manheima, sem eru fyrir ofan Skóg- argötur upp undir hlíðinni. VI Kristinn Indriðason bóndi á Skarði var ekkert sérstaklega hrifinn af em- inum og reit eitt sinn grein í Morgun- blaðið, þar sem hann lýsti viðskiptum sínum við öminn. Bogi tengdafaðir hans sendi hann inn í Gilsfjörð að inn- heimta leigugjöld af jörðum í eigu Skarðs. Þegar í réttina kom hjá Ólafs- dal, þurfti Kristinn að bjarga brókum sínum. Sem hann situr þar í hægðum sínum kemur ekki örn fljúgandi á kasti miklu og ræðst að honum í rétt- inni. Minnir mig, að úlpa Kristins hafi bjargað honum, en inn úr henni komst öminn ekki með klær sínar. Hin sagan var frá Ballarárárum Kristins. Hann var á leið til Skarðs, þegar við honum blasti ófögur sjón: .Afvelta hryssa, sem þó var á lífi, og þrír fuglar önnuðust aðhlynningu hennar. Hrafninn var í augunum, öm- inn í kviðnum og veiðibjallan í enda- þarminum.“ „Svo er von, að þeir stofni fuglaverndunarfélög,“ reit Kristinn í greininni, sem ég auglýsti einu sinni eftir í Velvakanda, en fékk engin viðbrögð. Greinin hlýtur að hafa birst á 6. eða 7. áratugnum og skora ég enn á þá, sem skil kunna á greininni að gera mér viðvart. Þetta var skoðun Kristins á Skarði á eminum og talaði hann af biturri reynslu. Ég tel aftur á móti, að emir, hrafnar og veiðibjöllur séu hluti af líf- ríkinu og verði að fá að lifa eins og aðrir einstaklingar í hinni miklu lífs- keðju. Þegar arnarhjónin tóku á móti okkur við Ballarárhh'ð rifjaðist upp í huga mér gömul bemskuminning. Það var á árunum 1936-9 að ég stund- aði nám í Miðbæjarskólanum í Reykjavík. Eitt sinn að áhðnu sumri var hengd þar upp auglýsing um að næsta sunnudag yrði sýndur þar am- arungi í búri., Alveg hættulaus" stóð. Eg fór á sýningu þessa og enn þann dag í dag sýður reiðin svo niðri í mér við tilhugsunina, að ég svitna. Þama braust amarunginn um í allt of þröngu vímetsbúri, blóðugur á vængjum og stóð eigandinn þar hjá og innheimti 25 aura fyrir að sjá ung- ann kvalinn. Hvar vora fuglavemd- unarfélögin þá? Síðan þá hefi ég verið arnarvinur og án amarins væri ís- land fátækt land. Nú fer eminum fjölgandi og er það vel. Það er skiljan- legt að varpbændur séu þreyttir á þeim ömum, sem valda þeim skaða, en í sland er það stórt að það á að vera rúm fyrir alla og fomt spakmæh seg- ir: „Þeir verða að missa, sem eiga“. VII Nú hggur leiðin frá Skarði í Saur- bæinn og þaðan eftir Svínadal að Laugum í Sælingsdal. Frábært her- bergi bíður okkar í nýrri gistiálmu á Edduhótelinu. Ættarmót mikið er haldið á Laugum þessa helgi, en það truflar okkur ekki, við fáum dýr- indismáltíð um kvöldið í veitinga- salnum. Ógleymanlegur dagur er að baki, Dalimir stóðu fyrir sínu og vel það. HEIMILDIR 1. Bjami Sæmundsson, Fuglamir, bls. 283- 90, Bókaverslun Sigfiisar Eymundssonar, Iteykjavík, 1936. 2. Þórbergur Pórðarson, Indriði miðili. End- urminningar Brynjólfs Þorlákssonar söng- kennara, Víkingsútgáfan, Reykjavík, 1942. 3. Breiðfirðingur, tímarit, 3. árg. 1944, bls. 86-9: Kvennaskólinn á Staðarfelli eftir Magnús Friðriksson. 4. Arbók Ferðaflégs íslands, MCMXLVII, Dalasýsla eítir Þorstein Þorsteinsson sýslu- mann, ísafoldarprentsmiðja 1947. 5. Jón Guðnason, Dalamenn, Æviskrár 1703-1901, Reykjavík 1961-1966 gefið út á kostnað höfundar. 6. Bjöm Magnússon, Guðfræðingatal 1847- 1976, Prentsmiðjan Leiitur, Reykjavík 1976. 7. Séra Magnús Bl. Jónsson, Endurminn- ingar I—II, Ljóðhús, Reykjavík, 1980. 8. Landið okkar, bls. 87-9, bindi S-T, Öm & Örlygur, Reykjavík, 1983. 9. Ljósmæður á íslandi, I—II, Ljósmæðrafé- lag Isl., Reykjavík, 1984. 10. Páll Líndal, Sögustaðir við sund, R-Ö, bls. 183, Öm & Örlygur 1991. MYNDLISTASKOLINN THE REYKJAVÍK SCHOOL OF ART í REYKJAVÍK HRINGBRAUT 121 • 107 REYKJAVÍK • SÍMI 551 1990 Námskeið haustannar 2000 hefjast 25. september. Innritun stendur yfir. Fjölbreytt námskeið fyrir börn og unglinga 6-16 ára í húsnæði skólans að Hringbraut og við Gerðuberg, Breiðholti. Byrjenda- og framhaldsnámskeið fyrir nemendur á framhaldsskólastigi, fagfólk og áhugafólk. Undirbúningurfyrir nám á háskólastigi. Teikning, módelteikning, leirmótun/keramík, skúlptúr, málun, litafræði, formfræði, listasaga. Opnunartími skrifstofu mán,- fös. 14-17. Sími: 551 1990og551 1936 Sjá nánar í blaðauka Mbi. um menntun 26. ágúst n.k. www.isholf.is/myndlistaskolinn SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 B 13 TILBOÐ OSKAST í Jeep Wrangler SE 4x4 árgerð ‘99 (ekinn 19.600 mílur), Dodge Caravan SE árgerð ‘95 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 22. ágúst kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. TJÓNABIFREIÐ Ennfremur óskast tilboð í GMC Suburban 2500 SLE 4x4 (tjónabifreið) árgerð ‘92. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA □pið Koakal Imitz Oiessl Tark All Saints Tara Jarmon Paul Smith Van Bils 4-yau French Connection OKNY mens Llayd Billi Bi Shelly's Bull Boxer Vagabond Famarina Knnkai Shoes cafésautján frítt í dag O.m-IB.DD á laugaveginum Allra síðasti dagur útsölunnar ALEJÚRT VERÐHRUN buxur bolir skyrtur jakkar skbr stígvél ásamt fleiii btrúlegum tilboðum frá ].□□□ frá 5DD frá □□□ frá 1.9ÍX) frá □□□ frá ggn gallerisauTián Laugavegi 91. 511 1717 Höfundur er lögfræðingur í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.