Morgunblaðið - 20.08.2000, Side 4
4 B SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Vísindaskáldskaparhöf-
undurinn H.G. Wells var
fátt framandi óviðkom-
andi og skrifaði sem
kunnugt er vinsæla skáldsögu um
efnið á sínum tíma en hugmyndin
um ósýnileika er heillandi viðfangs-
efni í biómynd og mógúlarnir í
Hollywood voru tiltöluleg fljótir að
átta sig á þvi. Árið 1933 hafði breski
hrollvekjuleikstjórinn James
Whale flutt til Hollywood frá Bret-
landi og hann gerði klassíska mynd
úr sögu Wells sem hét The Invisi-
ble Man eða Ósýnilegi maðurinn
(Whale var merkilegur leikstjóri á
sinni tíð og gerði m.a. tvær myndir
byggðar á sögunni um Franken-
stein en áhugamenn um leikstjór-
ann ættu að leigja sér Gods and
Monsters sem fjallar um hann í
elli). Claude Rains fór með hlutverk
ósýnilega mannsins en myndin
sagði frá vísindamanni sem finnur
upp aðferð til þess að gera sjálfan
sig ósýnilegan og fyllist um leið
mikilmennskubrjálæði.
Tölvubrellur og ósýnileiki
Fjöldinn allur af framhalds-
myndum og eftirlíkingum hafa ver-
ið gerðar síðan, m.a. The Gemini
Man árið 1976, og John Carpenter
gerði um árið mynd með Chevy
Chase sem byggði á sömu hug-
mynd. Nú hefur hollenski leikstjór-
inn Paul Verhoeven, sem átt hefur
ákaflega brokkgengan feril í Holly-
wood, gert Huldumanninn eða
Hollow Man með Kevin Bacon í
hlutverki ósýnilega mannsins en
myndin var frumsýnd fyrir nokkru
í Bandaríkjunum og nýtur vin-
sælda. Hún segir frá Sebastian
Caine, sem fínnur upp aðferð til
þess að gera sjálfan sig ósýnilegan
og um leið verður hann siðblindur.
„Það er ótrúlegt hvað maður getur
gert,“ segir hann, „ef maður þarf
ekki að horfa framan í sig í spegli."
Með önnur hlutverk í myndinni
fara Elizabeth Shue og Josh Brolin
en handritshöfundur er Andrew W.
Marlowe. Nýjasta tækni og vísindi í
tölvuteikningum eru óspart notuð í
myndinni enda efniviðurinn tilval-
inn fyrir tölvuteiknara.
Það var einmitt þróunin í tölvu-
teikningum sem varð til þess að
kveikja hugmyndina að Huldu-
manninum. Framleiðandinn,
Douglas Wick, tók að velta því fyrir
sér árið 1989 hvernig hægt væri að
beita henni í kvikmynd um ósýni-
leika. „Um það leyti varð bylting í
gerð tölvuteikninganna og mér
varð ljóst að hægt var að fjalla um
ósýnileika á hvíta tjaldinu með að-
ferðum sem aldrei höfðu verið
reyndar áður. Hann fékk Marlowe
til þess að skrifa handrit byggt
lauslega á hugmynd H. G. Wells og
sendi það til Verhoevens.
„Ég hafði alltaf reiknað með því
að Verhoeven gerði myndina," er
haft eftir framleiðandanum Wick.
Hollenska leikstjóranum leist vel á
hugmyndina enda hefur hann mjög
fengist við vísindaskáldskap frá því
hann flutti frá Hollandi til Banda-
ríkjanna að fást við kvikmynda-
gerð. „Paul er ekki aðeins stærð-
fræðingur og vísindamaður sem
veit hvernig á að vinna með tækni-
brellur heldur er hann einnig sér-
staklega myndrænn í hugsun og
veit hvemig á að halda áhorfendun-
um í spennu,“ segir framleiðandinn.
Verhoeven sá í myndinni athygl-
isverða úttekt á illsku. „Hún byrjar
sem skemmtilegt vísindaævintýri
með svolitlum húmor,“ er haft eftir
honum. „Svo fylgjumst við með því
hvernig hinn gáfaði og góðlyndi
Sebastian Caine breytist í brjálað
skrímsli. Hann verður eins og djöf-
ullinn sjálfur.“
Brokkgengur ferill
Verhoeven er fæddur í Amster-
dam árið 1938 og byrjaði Sína kvik-
myndagerð með því að gera heim-
ildarmyndir fyrir hollenska flotann.
Hann gerði sína fyrstu bíómynd í
fullri lengd árið 1971 og vakti mikla
athygli með Turks Fruit, betur
þekkt sem Turkish Delight, árið
1973. Rutger Hauer, sem síðar
flutti einnig til Hollywood, fór með
aðalhlutverkið og einnig í næstu
mynd Verhoevens, Keetje Tippel.
Áður en hann flutti til drauma-
verksmiðjunnar í upphafi níunda
áratugarins gerði Verhoeven þrjár
myndir í heimalandi sínu, Soldier of
Reuters
Ósýnilegur Bacon læðist á toppinn. Það er undarlegt ástarsambandið milli Elisabeth Shue og hins vart sýnilega Kevin Bacon í Hollow Man.
Ósýnileikinn
og illskan
Hollenski leikstjórinn Paul Verhoeven hefur gert spennumyndina
Huldumanninn eða Hollow Man sem fjallar um vísindamann er
tekst að gera sig ósýnilegan. Arnaldur Indriðason skoðaði um
hvað myndin snýst og feril Verhoevens í kvikmyndunum.
Orange eða Sold-
aat Van Oranje,
Spetters og Fjórða
manninn eða De
Vierde Man.
Fyrsta myndin
sem hann gerði fyr-
ir bandarískt fé var
Flesh and Blood,
sérstaklega ofbeld-
isfull fantasia frá
miðöldum, og ekki
minnkaði blóðbaðið
með næstu tveimur
myndum, RoboCop
og Total Recall; báð-
ar voru góðar hasar-
myndir á sínum tíma
en sú síðarnefnda
hefur elst verr. Þær
settu Verhoeven í
fremstu röð hasar-
myndaleikstjóra í
Hollywood og ekki
minnkaði orðspor
hans þegar hann sendi
frá sér spennutryllinn
Basic Instinct með
Sharon Stone.
Síðan hefur heldur
betur hallað undan fæti hjá Ver-
hoeven í kvikmyndaborginni. Hann
fylgdi Basic Instinct eftir með
furðulega lélegri mynd um dans-
stúlkur í Las Vegas sem hann kall-
aði Showgirls. Sagan bæði og leik-
urinn voru afleit og leikstjóm
Verhoevens í molum en tilgangur-
á nýjustu mynd þeirra „no.
Hann gerði
inn með gerð myndar-
innar var mjög óljós nema í henni
var fullt af hálfnöktum ungum leik-
konum.
Verhoeven ætlaði líklega að
koma sér aftur á öruggari grundir
þegar hann gerði Starship Troop-
ers en hafði ekki erindi sem erfíði.
úr því
geimævintýri fasistalega sápuóp-
eru um sérstaklega sviphrein og
snyrtileg ungmenni í baráttu við
pöddur og enn var tilgangurinn
óljós.
Með Huldumanninum virðist
honum hafa tekist að ná aftur að
gera vinsæla kvikmynd fyrir allan
almenning en myndinni hefur vegn-
að vel í miðasölunni. Hann vonar að
myndin veki upp spurningar um
mannlegt eðli um leið og hún
skemmtir áhorfendum.
Huldumaður
Verhoevens
„Fyrir þúsundum ára sagði Plató
um ósýnileika að siðferði okkar
byggi ekki innra með okkur heldur
sé það ákvarðað af því sem aðrir
vita um okkur og búast við af okk-
ur,“ er haft eftir Verhoeven þegar
hann ræðir um Huldumanninn.
„Hann sagði að ósýnileg mannvera
myndi fyllast valdagræðgi og mis-
nota völd sín einfaldlega vegna þess
að hún kæmist upp með það. Hún
mundi stela og brjótast inn á heim-
ili fólks og nauðga og drepa að vild.
Plató sagði að ekki væri til nein
innri siðferðisvitund sem gerði okk-
ur góð og réttlát. Við högum okkur
vel vegna þess að við viljum ekki
lenda í fangelsi."
Og þannig hugsar aðalpersón-
an í Huldumanni Verhoevens.
„Sebastian getur ekki haldið aft-
ur af sér, af eðli sínu, einfaldlega
vegna þess að hann veit að hann
kemst upp með allt sem hann
vill. Það mótar alla hans illsku.“
Myndin byggir mjög á nýj-
ustu tækni í gerð tölvubrellna
og það var ein ástæða þess að
Verhoeven lagði kapp á að gera
Huldumanninn. „Við höfum
þróað tæknina mjög frá því að
við létum penna svífa í lausu
lofti og vatnsglas lyftast af
borðplötu,“ er haft eftir hand-
ritshöfundinum Marlowe. „Við
þurftum á öðrum brögðum að
halda ef myndin átti að virka.
Eitt svarið var að sýna í
smáatriðum hvernig Sebast-
ian verður ósýnilegur."
„Hann hverfur og birtist í
mörgum skrefum," segir
Verhoeven. „Þegar efninu
sem gerir hann ósýnilegan er
sprautað í líkama hans er
eins og holdið verði að
vökva, svo tekur vöðvakerfið
að leysast upp og æðakerfíð
og líffærakerfíð með þar til aðeins
beinagrindin verður eftir og loks
leysist hún upp í ekki neitt og
hverfur. Tölvubrellumennirnir sem
unnu við myndina kynntu sér ná-
kvæmlega líkamsbyggingu manns-
ins til þess að hafa allt sem ná-
kvæmast. Við höfum aldrei áður
séð jafn nákvæmlega inn í manns-
líkamann," lofar Verhoeven.
Reuters