Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 6
6 C FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍOBLAÐIÐ
The Godfather 2.
eftirminnilega heild. En ef Apocal-
ypse Now er afrek var sjálf gerð
hennar það ekki síður: Fárviðri
rústaði leikmyndum á tökustöðum á
Filippseyjum, leikmunir eins og
herþyrlur voru ítrekað teknir af
Coppola til að skjóta á kommúníska
hermdarverkahópa á eyjunum, einn
leikarinn, Martin Sheen, fékk alvar-
legt hjartaáfall, annar, Harvey
Keitel, var rekinn, sá þriðji, Marlon
Brando, var svo afmyndaður af fítu
að leikstjórinn varð að skjóta í
kringum hlassið, fjárhagsáætlunin
•t rauk úr 12 milljónum dollara upp í
30 milljónir og myndin fór svo langt
fram úr tímaáætlun að í Hollywood
var farið að kalla hana Apocalypse
Later. Coppola var sjálfur illa far-
inn af álagi en gafst aldrei upp og
lauk myndinni við illan leik. Apocal-
ypse Now fékk almennt góða dóma
en aðeins þokkalega aðsókn sem
hvergi dugði til að ná inn fyrir
kostnaðinum. Coppola tókst naum-
lega að bjarga Zoetrope af barmi
gjaldþrots.
Niður, upp, niður
í raun má halda því fram með
rökum að kvikmyndahöfundurinn
Francis Ford Coppola hafi aldrei
náð sér aftur á strik eftir þetta áfall.
Annar skellur fylgdi á eftir, mynd-
versmúsíkalið One From the Heart
(1982), sem varla nokkur maður
kann að meta. Hann reyndi að
bjarga fjárhagnum án þess að fóma
metnaðinum með því að fiska á þétt-
setnum miðum unglingamynda á
fyrri hluta 9. áratugarins með vönd-
uðum en hálfvandræðalegum út-
færslum á æskusögum S.E. Hint-
ons, The Outsiders og Rumble Fish
(1983) og kynntist því að unglingar
höfðu ekki áhuga á „listrænum “
unglingamyndum; það höfðu full-
orðnir ekki heldur. Fortíðarhyggjan
fann betri hljómgrunn í gamans-
amri fantasíu, Peggy Sue Got Marr-
ied (1986), en í millitíðinni kom enn
einn fokdýr skellurinn, The Cotton
Club (1984), sem þó hefur sitthvað
til síns ágætis og sama má segja um
Gardens Of Stone (1986). Coppola
gerði tilraun til að endurheimta
fyrri orðstír með þriðja hluta Guð-
föðursins (1990). Það var góð tilraun
en ekki meir. Hann gerði gamal-
dags ævisögumynd, Tucker: The
Man and His Dream (1988), gamal-
dags, útblásna, tæknilega fullkomna
en einkennilega gelda útgáfu af
Dracula (1992), sökk djúpt í formúl-
umar með hinni væmnu og vitlausu
Jack (1996) og rétt slapp þolanlega
frá The Rainmaker (1997) eftir sögu
Johns Grisham.
Þetta eru því miður heldur dap-
urleg örlög eins helsta kvikmynda-
höfundar Bandaríkjanna, manns
sem sannanlega hefur gert nokkrar
af bestu myndum sögunnar. Hann
er ekki lengur fremstur meðal sinna
gömlu jafningja. Þar stendur nú
Martin Scorsese. Francis Ford
Coppola virðist sem leikstjóri ofur-
seldur þörf fyrir að þéna peninga,
hvað sem það kostar. Sú var ekki
tíðin. En ugglaust hefur hann sínar
gildu ástæður. Hann hefur á hinn
bóginn verið mikilvirkur og örlátur
framleiðandi, veitt fjölda manna
tækifæri til að gera bíómyndir og
gerði m.a. Wim Wenders og Akira
Kurosawa kleift að koma myndum
sínum á bandarískan bíómarkað.
Hann er jafnframt vínbóndi góður
og gefur út bókmenntatímarit.
Að mörgu leyti minnir Francis
Coppola á annan jöfur bandarískrar
kvikmyndagerðar, Orson Welles.
Sameiginlega eiga þeir óbilandi
dirfsku og þrjósku, metnaðarmikla
hugsun og stórsniðna framkvæmd
hennar, báðir lífsnautnamenn og
fjárhagsbaslarar, óhræddir við að
bjóða ráðamönnum í Hollywood
birginn, mistækir og óheppnir, en
óviðjafnanlegir snillingar þegai'
best lætur.
Coppola er orðinn rúmlega sex-
tugur. Hann er ekki hættur að gera
sjálfur myndir eins og Welles. Hann
er heldur ekki dauður eins og Well-
es. Þótt hann geri ekki fleiri snilld-
arverk lifa þau sem að ofan eru
nefnd um ókomna framtíð, rétt eins
og bestu verk Welles. En hver veit?
Lengi er von á einum.
Frumsýning Laugarásbíó, Bíóborgin, Háskólabíó og
Borgarbíó Akureyri frumsýna gamanvestrann Shanghai Noon
með Jackie Chan og Owen Wilson.
Chan í villta
ÞEGAR prinsessunni Pei Pei (Lucy
Liu) er rænt frá Kína og hún flutt í
böndum til Bandaríkjanna sendir
keisarinn þrjá af sínum mestu og
bestu stríðsmönnum til þess að
greiða fyrir hana lausnargjaldið.
Chon Wang (Jackie Chan) er ekki
einn af hinum útvöldu en honum
tekst að flækjast með hópnum með
því að bera farangurinn fyrir
frænda sinn, túlkinn í ferðinni.
Ræningjarnir halda til í villta
vestrinu, myndin gerist á átjándu
öldinni, og þangað heldur hópurinn
með lausnarféð en er rændur á leið-
inni. Sjálfsvarnarlistir Chon koma
þó í veg fyrir að illa fari en hann er
skilinn einn eftir í Nevada-
eyðimörkinni. Hann rekst á Roy
(Owen Wilson), útlaga sem hann
treystir illa en verður félagi hans,
og kvænist óvænt indíánakonu
(Drandon MerriII) þegar hann
drýgir hetjudáðir og bjargar lífi
indíánadrengs.
Framundan er síðan prinsessan
sem bíður björgunar.
Þannig er söguþráðurinn í
gamanvestranum Shanghai Noon,
nýjustu mynd hasarmyndahetj-
unnar Jackie Chans. Með helstu
hlutverk auk hans fara Owen Wil-
son, Lucy Liu og Brandon MerriII
en leikstjóri myndarinnar er Tom
Dey og er þetta hans fyrsta mynd
en hann hefur áður unnið við gerð
auglýsinga.
Hugmyndin að Shanghai Noon
varð til þegar tökur stóðu yfir á
annarri mynd Jackie Chan, Rush
Hour. Framleiðendurir, Roger
Birnbaum og Jonathan Glickman,
ræddu þá við Chan um þær hug-
vestrinu
myndir sem þeir höfðu um áfram-
haldandi samstarf. „Jackie byrjaði
að segja okkur þessa sögu sem á
endanum fékk nafnið Shanghai
Noon og við vissum strax að var frá-
bært efni í kvikmynd," er haft eftir
Birnbaum. Ráðnir voru handrits-
höfundar til þess að víkka út söguna
og handritið þróaðist ogvarð
fullgert á mettíma. „Ég
held ég hafi aldrei vit-
að til þess að svo
stuttur
tími liði
frá því að
hugmynd
kynnt og þar til
fullbúið handrit
Stökkkraftur í Chan; Jáckie
Chan leikur Kínverja í villta
vestrinu í Shanghai Noon.
Shanghai Noon
Leikarar: ________
Jackie Chan, Owen Wilson,
Lucy Liu og Brandon Merrill.
Lelkstjórl:_____________________
Tom Dey
(fyrsta mynd).
Kínverji stekkur inn í
villta vestrið: Chan í
Shanghai Noon.
jfÖJ* var tilbúið," segir
framleiðandinn.
Jackie vissi svosem ekki mikið
um villta vestrið þegar hann setti
fram hugmynd sína en „það hefur
alltaf verið draumur minn að vera
kúreki og lifa lífi kúrekans,“ er haft
eftir honum. „Ég hef einstakt dá-
læti á kúrekum. Þegar ég var ungur
drengur í Hong Kong klæddi ég
mig í kúrekaföt og lét taka af mér
myndir.“
Owen Wilson sem leikur á móti
Chan er útlaginn í myndinni. „Hann
hefur mjög rómantískar hugmyndir
um hvað það er að vera útlagi," seg-
ir Wilson um persónu sína. „Síðan
kemur í Ijós að hann er ekkert sér-
staklega flinkur útlagi. Aðalmálið í
hans huga er að hanga inni á hóru-
húsum og láta mannalega og mér
fannst hann vera fyndinn karakter
að því leytinu.“
Frumsýning Bíóhöllin, Kringlubíó, Stjörnubíó, Nýja bíó
Akureyri og Nýja bíó Keflavík frumsýna bandarísku
kvikmyndina Coyote Uglymeð Maria Bello.
HIN 21 árs gamla Violet Sanford
(Piper Perabo) hefur góða rödd og
er komin til New York að láta þann
draum sinn rætast að gerast laga-
höfundur en þegar hún byrjar að
vinna á barnum Coyote Ugly fara
hlutirnir öðruvísi en hún ætlaði.
Coyote Ugly er vinsælasti barinn
í borginni þar sem starfar hópur
kynþokkafullra og uppátektasamra
ungra kvenna. Lil (Maria Bello) er
hinn harðsnúni eigandi staðarins og
yfirmaður stúlknanna. Þær eru
Cammie (Izabella Miko), Rachel
(Bridget Moynahan) og Zoe (Tyra
Banks). Þær eru
kallaðar „coyotes“
eða Sléttuúlfarnir
og vekja mikla at-
hygli og aðdáun
þeirra sem sækja
staðinn.
Myndin Coyote
Ugly, sem
frumsýnd er í
fimm kvikmynda-
húsum, fjallar um
stúlkurnar á sam-
nefndum bar og er henni leikstýrt
af David McNally en handritið gerir
Gina Wendkos. Framleiðandi er
Jerry Bruckheimer, kunnur fyrir
hasarmyndir sínar, en ungar og
efnilegar leikkonur fara með aðal-
hlutverkin eins og Piper Perabo,
Maria Bello og Tyra Banks.
„Þetta er saga um drauma," er
Coyote Ugly
Leikarar:
Piper Perabo, Maria Bello og
Tyra Banks.
Leikstjóri:
David McNally
(fyrsta mynd).
haft eftir framleiðandanum Bruck-
heimer sem á að baki myndir eins
og Top Gun, Con Air og nú síðast
Gone in 60 Seconds. „Þetta er saga
um að láta drauma sína rætast og
þær hindranir sem verða á vegi þín-
um.“
Leikstjórinn McNalIy er sama
sinnis. „Þetta er tilfinningaþrungin
saga og jafnvel þótt um gaman-
mynd sé að ræða er rauði þráðurinn
í sögunni mjög raunveruleg ástar-
saga. Ég lít svo á að ef þú hlærð á
gamanmynd þá ertu annaðhvort að
sjá eitthvað í sjálfum þér sem er
kómískt eða að
læra eitthvað um
sjálfan þig. Ef
rétt er að farið á
áhorfandinn að
dragast inn í sög-
una og gleyma
öllu öðru.“
Bruckheimer
hefur áður valið
sér leikstjóra úr
auglýsingageiran-
um sem ekki hafa
reynslu af gerð leikinna bíómynda
og leyft þeim að spreyta sig. Mc-
Nally var ákaflega spenntur yfir því
að fá tækifæri til þess að gera sína
fyrstu bíómynd og ekki var verra að
gera hana fyrir súperframleiðand-
ann Bruckheimer. „Jerry hefur svo
mikla reynslu að baki og þekkir
kvikmyndagerðina út og inn og
Piper Perabo í hlutverki Violet;
sleppir loks fram afsér beislinu á
Coyote Ugly-barnum en Lil (Maria
Bello) tekur undir með bargestum.
hann veitti mér mikinn stuðning,"
segir hann.
Myndin er lauslega byggð á grein
í tímaritinu GQ eftir Elizabeth Gil-
bert um barinn Coyote Ugly á Man-
hattan þar sem einungis starfa kon-
ur. „Coyote Ugly er frábært
sögusvið fyrir dramatíska mynd,“
segir Bruckheimer. „Barinn sjálfur
er einstakur í sinni röð og þegar
bætt hefur verið við hann persónum
handritshöfundarins Gina Wenkos
fellur allt í réttar skorður."
Með aðalhlutverkið í myndinni
fer nær óþekkt leikkona að nafni
Piper Perabo en hún hafði áður far-
ið með lítil hlutverk í myndunum
Ævintýri Rockys og Bullwinkles og
Hvíturn drengjum. „Piper lagði
mjög hart að sér,“ segir Bruck-
heimer um hina ungu leikkonu.
„Það fylgir því mikil ábyrgð að fara
með aðalhlutverk í mynd af þessari
stærðargráðu en hún stóð sig frá-
bærlega."