Morgunblaðið - 03.12.2000, Side 5
HAlendiÐ
í NÁTTÚRU ÍSLANÐS
Guðmundur Páll Ólafsson^
Hálendið í náttúru íslands
Þessi glæsilega bók er fræðirit handa almenningi, tilraun til að opna sýn á náttúru hálendis-
ins í allri sinni dýrð og örva menn til óbyggðaferða. Frá smæsta blómi til hæstu fjalla lifnar
íslenska hálendið á síðum bókarinnar í einstæðu samspili fróðleiks og myndefnis. Höfundur
fléttar saman náttúrufræði, bókmenntir, þjóðtrú og sagnfræði og sýnir hvílíkan þjóðararf
íslendingar eiga í ósnortnum víðernum landsins. Þegar við bætast frábærar Ijósmyndir,
kort og töflur verður til ein stórkostlegasta bók sem nokkru sinni hefur komið út á íslensku.
„Mikill fróðleikur er hér saman kominn og heildarmyndin er skýr. Höfundi hefur tekist að hrífa
lesandann með sér og hann hefur lætt að honum þvi viðhorfi að hér sé fjársjóður sem standa berí
vörð um. Ágúst H. Bjarnason, Mbl.
„Meistaraverk sem lengi mun lifa með þjóðinni."
Björgvin G. Sigurðsson, strik.is
Kristján Eldjárn
Kuml og haugfé úr heiðnum sið á íslandi
Ný og endurskoðuð útgáfa á þessu undirstöðuriti
Kristjáns Eldjárns. Heimildarrit fornleifafræðinga um
íslenskar minjar vikingaaldar og fróðleikslestur fyrir
almenning. Grundvallarrit um upphafssögu þjóðarinnar,
nauðsynleg handbók og fræðirit öllu áhugafólki um
fornmenningu íslendinga. Bókina prýða um 400 mynd-
ir, Ijósmyndir, teikningar og kort. Ritstjóri er Adolf Frið-
riksson fornleifafræðingur.
Árni Björnsson
Wagner og Völsungar
Niflungahringurinn og islenskar bókmenntir
Lengi hafa menn talið að Wagner sækti efnivið
Niflungahringsins í þýskan miðaldakveðskap. Árni
Björnsson sýnir hins vegar fram á að langstærstur hluti af aðfengnum hugmyndum hans er
sóttur í íslenskar bókmenntir. Einnig segir frá ævi og samtíma Wagners og sögu norrænna fræða
1 Þýskalandi til að varpa Ijósi á tengsl Wagners við íslenskan menningararf.
J.R. Porter
Jesús Krístur
Jesús sögunnar - Kristur trúarínnar
í þessari bók er fjallað um líf og starf Jesú, gyðinglegar rætur hans og
samfélagið sem hann Lifði og hrærðist i. Greint er frá ævi hans, boðskap
og kennitíð samkvæmt frásögnum guðspjallanna, og vísað er tiL merkra
heimilda í sagnfræði og fornleifafræði. Loks er fjallaó um túlkunarleiðir:
Hvaða augum leit Jesús sjáLfan sig og hvernig hafá menn kosið að nálgast
og skilja persónu hans og boðskap? Bókina prýða rúmlega 180 litmyndir
og landakort af sögustöðum. Ingunn Ásdísardóttir þýddi.
„Aðalpersóna bókarínnar hefur veríð og mun verða óendanleg uppspretta
pælinga, tilfinninga og sköpunar. Bók Porters er verðug viðbðt við þá auðugu
flóru, og ég mæli hiklaust með henni, jafnt fyrir þá sem þekkja efnið vel og
hina sem vilja kynnast því betur."
Ármann Halldórsson, Mbl.
Mál og menning
Siðumúla 7-9 * laugavegi 18