Morgunblaðið - 03.12.2000, Síða 30

Morgunblaðið - 03.12.2000, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/RAX Garðar Eggertsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs hf. SAUÐAFIÐLUR OG SMÆL- INGJAR Á JÓLABORÐIÐ VJÐSKDrn A3VINNULÍF Á SUNNUDEGI ►Garðar Eggertsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs hf. á Kópaskeri, fæddist í Laxárdal í Þistilfirði árið 1954 og ólst þar upp. Hann varð búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1972, lærði síðan húsasmiði á Kópaskeri og tók sveinspróf 1975. Hann starfaði við smíðar hjá Trésmiðju Kaupfélags Norður-Þingeyinga og var deildarstjóri hennar 1980-89. Garðar starfaði í eitt ár hjá fiskeldisfyrirtækinu Árlaxi, vann síðan við smíðar þar til Fjallalamb hf. var stofnað í ágúst 1990. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri og hefur stýrt fyrirtækinu síðan. Garðar er kvæntur Iðunni Antonsdóttur og eiga þau ljögur uppkomin börn. Ingólfur Þórsson kjötvinnslustjóri aðgætir Hólsfjallahangikjötið. Eftir Guðna Einarsson JALLALAMB hf. á Kópaskeri hefur sér- hæft sig í sauðfjárslátr- un og framleiðslu mat- vara úr kindakjöti. Fyrirtækið hefur skapað sér sér- stöðu á íslenskum matvælamarkaði með þróun nýstárlegra vöruteg- unda. Auk hins rammíslenska Hólsfjallahangikjöts er boðið upp á vörur sem bera nöfn eins og Höfð- ingi, Æringi, Smælingi og Sauða- fiðla. Þessar vörur eru sumar framleiddar úr lambakjöti, en aðr- ar úr kjöti af veturgömlu fé og full- orðnu. Forsaga stofnunar Fjallalambs hf. er að Kaupfélag Norður-Þing- eyinga varð gjaldþrota 1988. Kaup- félagið hafði þá ekki rekið slátur- hús í eitt ár heldur hafði sláturfé verið ekið til Húsavíkur. Kaupfélag Langnesinga rak sláturhús á Þórs- höfn sem var orðið úrelt og var lagt niður. Þegar svo var komið náðist samstaða á meðal bænda í Norður-Þingeyjarsýslu, austan Jökulsár og austur að Langanes- strönd, um stofnun Fjallalambs hf. Að sögn Garðars eru allir sauðfjár- bændur á svæðinu, um 80 talsins, hluthafar og eiga þeir flestir hlut í hlutfalli við innlegg sín. Fjallalamb hf. fæst eingöngu við slátrun sauð- fjár enda nánast engin önnur kjöt- framleiðsla á svæðinu og engin mjólkurframleiðsla að sögn Garð- ars. „Það má segja að Norður- Þingeyjarsýsla sé hreint sauðfjár- ræktarsvæði." Ekta sauðahangikjöt Hjá Fjallalambi hf. starfa að jafnaði 18 til 20 starfsmenn. Til samanburðar má nefna að á Kópa- skeri búa um 170-180 manns. Með- an á sláturtíð stendur fjölgar starfsmönnum upp í um fnnmtíu. Venjulega er slátrað um 25 þúsund fjár, þar af er um einn tíundi full- orðið fé. Fjallalamb hf. hefur hvatt bændur til að framleiða veturgamla sauði. Garðar segir að á hverju ári komi talsvert af þeim til slátrunar. Hrútlömbin sem valin eru í þetta eldi eru oft rýr og verðlítil smá- lömb sem eru gelt að hausti. Þau þroskast vel og eru orðin væn að ári. Garðar segir að greitt sé fyrir þetta kjöt eins og dilkakjöt og þetta því hagkvæmt fyrir bændur. Þessi framleiðsla hefur skapað Fjallalambi hf. nokkra sérstöðu á markaðnum. „Þetta hefur gert okk- ur kleift að bjóða upp á ekta sauða- hangikjöt af veturgömlu, segir Garðar. „Þetta hangikjöt þykir sér- staklega gott. Það er bragðmikið en heldur mýkt lambakjötsins. Þeir sem byrja að borða þetta leita eftir því aftur. Viðskiptavinahópurinn er því afskaplega tryggur." Samhliða þessari framleiðslu er Fjallalamb hf. einnig með hangi- kjöt af völdum fullorðnum ám. Að sögn Garðars hefur það einnig náð miklum vinsældum. „Það er ódýr- ara en annað hangikjöt, vöðvamikið og bragðmesta kjötið. Þetta er það hangikjöt sem er líkast gamla kofa- reykta kjötinu. En það þarf að sjóða það töluvert lengur en annað hangikjöt. Ég segi minnst þrjá tíma, en aðrir sjóða það skemur.“ Vel hangið hangikjöt Kjötið hjá Fjallalambi er kald- reykt í nútíma reykofnum. Við reykinguna er notuð blanda af sauðataði og íslensku birki. „Við teljum að reykingaraðferð okkar hafi meiri áhrif á sérstakt bragð hangikjötsins okkar en reykurinn sjálfur. Við gefum reykingunni góðan tíma. Kjötið er látið hanga á milli þess sem kveikt er undir og það látið þorna. Eftir reykinguna er það síðan látið hanga í nokkra daga áður en það er selt. Fyrir vik- ið teljum við að það standi undir nafninu hangikjöt, en sé ekki bara saltað og reykt kjöt.“ Garðar segir að kjötið sé pækilsaltað og lögð áhersla á að það verði ekki of salt. Það sé helsta umkvörtunarefni vegna hangikjöts, að það sé of salt. Eins og vænta má er desember aðal sölutími hangikjöts. Fjalla- Nokkrir réttir afmatseðli Fjaílalambs hf Hólsfjallahangikjöt Bragðmikið, pækilsaltað og hægreykt við blöndu af taði og íslensku birki. Sauðahangikjöt Valiðkjötaffullorðnum kindum. Bragðmikið og vöövafyllt. Helgarsteik - Kryddaður fram- partur, tilbúinn í ofninn. FORRÉTTIR Höfðingi Reyktur sauðahryggvöðvi. Æringi Grafinn sauðahryggvöðvi. Smælingi Reykt sauðalund. Græníngi Sauöalund reykt með grænu kryddi. Sauðafiðla Reykt og kryddað sauöalæri sem látið er hanga í 7-9 vikur. Hrátt hangikjöt Hangikjöt sem er sérverkað til að boröast hrátt. Svlð - með gamla bragðinu. Ufrarpylsa og blóðmör - eftirfornfrægri uppskrift. Hangiálegg, kæfa, rúllupylsa Auk þess flestar algengustu vörurúrlambakjöti. lamb hefur markaðssett hangikjöt sitt sem Hólsfjallahangikjöt. Nafn- ið tengist landshorninu og var hangikjöt af Hólsfjöllum rómað fyrir vænleik og gæði. Nú til dags er ekki margt fé á Hólsfjöllum, en þeim fáu kindum, sem þaðan koma til slátrunar, er slátrað hjá Fjalla- lambi. Garðar segir að Fjallalamb hafi átt svolítið í vök að verjast vegna þess að aðrir framleiðendur hafa markaðssett kjöt undir líku nafni. Að minnsta kosti hafi fólk hringt til Fjallalambs og kvartað þegar eitthvað þótti að kjöti keppi- nauta! Fjallalamb hf. hefur flutt óunnið og lítið unnið dilkakjöt til Færeyja og Japan. Fyrirtækið er einnig í samstarfi við Sláturfélag Suður- lands, sem á hlut í Fjallalambi hf., um útflutning á dilkakjöti. Slátur- félagið flytur út dilkakjöt á góða evrópska markaði og Fjallalamb lætur þá hafa innanlandsverkað kjöt í staðinn. „Þannig njótum við góðs verðs í útflutningnum og get- um skilað bændum hærra afurða- verði en ella,“ segir Garðar. „Þetta gerum við vegna þess að sláturhús- ið okkar er ekki með ESB-vottun. Við gætum því ekki náð jafngóðu verði til bænda nema með þessum samningi við Sláturfélagið." Forvitnilegir réttir og fornir Garðar sagði að töluverð áhersla hefði verið lögð á að þróa nýstár- legar vörur hjá Fjallalambi hf. og ekki síst að velja þeim nöfn sem vekja athygli kaupenda. „Við höf- um reynt að nota gamlar hefðir við þessa vöruþróun, til dæmis í for- réttunum, þar sem hangikjötsreyk- urinn spilar stórt hlutverk. Einnig sú vitneskja að það var nánast sið- ur hér um slóðir að skera sér sneið af hangilærinu áður en það var sett í pottinn. Þetta gaf manni þá hug- mynd að það væri gaman að þróa forrétti út frá hangikjötinu. For- réttimir eru úr bestu vöðvum ær- kjötsins.“ Að sögn Garðars er gömul hefð fyrir sláturgerð á Kópaskeri og var þar framleitt slátur fyrir Samband- ið meðan það var og hét. Hjá Fjallalambi hf. er gert slátur sam- kvæmt sömu uppskrift. Meðal ann- ars er boðið upp á langa keppi sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.