Morgunblaðið - 03.12.2000, Side 21

Morgunblaðið - 03.12.2000, Side 21
Heimskona og hvunndagshetja Ung kvaddi Ragna Bachmann æskuslóðir sínar í braggahverfinu Kamp Knox með erfiða reynslu að baki og hélt út í heim, þar sem kún kynntist spennu og hættum hins ljúfa lífs. I Svasílandi og á Sri Lanka, á Jótlandi og í Jóhannesarborg, í Belgíu og Botsvana, í Reykjavík og víðar rataði hún í ótrúlegar raunir en fann jafnframt dýpstu gleði. Saga skemmtilegrar og kjarkmikillar konu sem hefur notið glæsileika ævintýranna, látið ginpast af blekkingum þeirra og sjónhverfingum, leyst hinar bitru þrautir og hlotið að launum dýrmæta reynslu og þroska. Oddný Sen hefur skrifað reisubók Rögnu Bachmann á afar lifandi og nærfærinn hátt. Veröld átaka og andstæðna örstutt frásögn úr fornum ritum verður Iðunni Steinsdóttur uppspretta að áhrifamiklu skáldverki um baráttu mæðra, feðra, dætra og sona í vægðarlausri veröld átaka og andstæðna - veröld allra tíma. Haustgríma er ekki saga um glæstar hetjur sem ríða um héruð, heldur um ffamtíðarhallir sem hrynja til grunna á einu andartaki og sterkar tilfinningar. Mikil örlög eru stvmdum fólgin í fáum orðum. Öldin fímmtánda - glæsileg viðbót við Aldirnar Öld sægreifa, kvenskörunga, ribbalda og ríkismanna. Bókaflokkurinn Aldirnar er löngu orðinn sígildur enda hefur hann átt drjúgan þátt í að vekja og efla áhuga þjóðarinnar á sögu sinni. Aðalsmerki Aldanna er hin aðgengilega framsetning efnisins. Að þessu sinni kemur út Öldin fimmtánda. Fimmtánda öldin hefur í vitund margra verið sveipuð dulúð og jafnvel kölluð myrka öldin. í raun réttri var hún öld stórbrotinna andstæðna, viðburðaríkur tími hatrammrar valdabaráttu og auðsöfnunar en jafnffamt þokka og reisnar. Með ffumlegum og ffæðilegum efnistökum sýnir Óskar Guðmundsson hve fjölskrúðugt og spennandi tímabil fimmtánda öldin var. díiinuislrcrb t&hibi \

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.