Morgunblaðið - 03.12.2000, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
MYNPBONP
Makalaus mark-
aðsblekking
Aðskellaá
(Hanging Up)______
Gamanmynd/Drania
★%
Loikstjóri Diane Keaton. Handrit
Delia og Nora Ephron. Aðal-
hlutverk Meg Ryan, Walter Matt-
hau, Lisa Kudrow og Diane Keaton.
(94 mín.) Bandaríkin 2000. Skífan.
Öllum leyfð.
ÞEGAR setja þarf niður nokkrar
h'nur um þessa mynd kemur fyrst upp
í hugann hvers konar alls herjar
markaðsblekking
hér er á ferð. Af
allri auglýsingaher-
ferð, veggspjöldum
og myndbandskápu
að dæma var manni
gefin sú mynd að
hér væri á ferð létt
og hressileg gam-
anmynd þar sem á
kostum færu þijár
annálaðar gamanleikkonur og það
sem meira er einn af konungum
grínsins - hinn aldni Walter Matthau.
Það var síðan ekki íyrr en ég hafði
lokið við að horfa á hana til enda sem
ég áttaði mig á því hvers vegna grípa
þurfti til slíkra aðgerða. Framleið-
endumir gerðu sér einfaldlega fulla
grein fyrir hvers konar gallagrip þeir
höfðu í höndunum og gripu því til ör-
þrifaráða til þessa að reyna að tendra
áhuga - narra fólk á mynd sem ann-
ars átti vafalítið eftir að spyrjast iila
út, sem hún gerði. Málið er að þegar
rykið hefur verið dustað úr augunum
þá birtist í gegnum tárbólgin augun
þunglyndislegt og þumbaralegt
drama um óhamingjusama miðaldra
konu (Ryan) sem á allt til alls, góðan
eiginmann, yndisleg böm, frama og
veraldlegan auð. Málið er að faðir
hennar (Matthau) liggur á dánarbeð-
inum, faðir sem fælt hefur burt alla
aðra nákomna ættingja vegna óbæri-
legra leiðinda og drykkju. Og vandinn
er að honum tekst líka að fæla burt
áhorfendur. Vissulega er Matthau
magnaður í sínu hinsta hlutverki og
Ryan þolanleg en ég fæ bara ekki
skilið hvað hin hæfileikum gædda
Keaton er að gera í slagtogi við þær
Ephron-systur.
Skarphéðinn Guðmundsson
„FRÁBÆRT, vá, [hlátur] það er al-
veg rosalegt," þannig brást Jonny
Buckland, gítarleikari Coldplay, við
þeim fréttum að nýjasta smáskífu-
lag þeirra „Trouble" hefði náð toppi
íslenska listans. Það er þá annað
lag sveitarinnar til þessa sem nær
þeim árangri.
„Það var búið að segja okkur að
við væram vinsælir þama og ef ég
segi þér alveg eins og er þá dauð-
langar okkur að koma.“
Þegar ég hlusta á Coldplay,
skypja ég áhrif frá gömlu góðu
„Indie“-rokk senunni sem gekk yfir
Bretland fyrir tíu árum. Er eitthvað
til í því?
„Já, kannski. Hljómsveitir á borð
við My Bloody Valentine, Boo Radl-
ey’s eða Ride höfðu vissulega áhrif
á okkur. Ég hlusta nú ekki mikið á
þessa tónlist í dag. Ég skelli þessu
stundum á þegar við eram að
djamma. Þá enduruppgvötar maður
þessar plötur.“
Voru þetta hljómsveitirnar sem
þið hlustuðuð mest á sem ungling-
ar?
„Já, fyrsta alvöra hljómsveitin
sem ég var í spiiaði líka svona tón-
list.“
Hvað eruð þið að hlusta á í dag?
„Núna er ég mest að hlusta á
Gram Parsons, Grandaddy og svo
er ég stórhrifinn af Sigur Rósar
plötunni. Hún er ótrúleg.“
Heldur þú að þeir séu að hafa
áhrif á einhverjar hljómsveitir
þarna í Bretlandi?
„Já, alveg bókað mál.“
Eg las líka einhverstaðar að þú
hefðir ekki byrjað að taka þig al-
varlega sem gítarleikara fyrr en þú
heyrðir í Stone Roses.
„Ég spilaði eiginlega aldrei á
gítarinn. Ég kunni að spila „Desire"
með U2 en ekki mikið meira en
það.“
Eru ekki bara þrír hljómar í því
lagi?
„Jú.“ [hlátur]
Það er nú ekki mikill Stone Roses
keimur yfír ykkur.
„Nei, í rauninni ekki. Stundum
heyri ég smávægileg áhrif. Það er
öragglega allt komið frá mér samt.
Ég held reyndar að Will trommari
hafi líka verið hrifinn af þeim.“
Á túr með Bellatrix
Eruð þið ekki vinahljómsveit
Bellatrix (Kolrassa Krókríðandi)?
„Jú, við fórum saman í hljóm-
leikaferð í nóvember í fyrra.“
Myndir þú segja að þið væruð frá
svipaðri tónlistarsenu og þau?
A MYNDBANDI5. DESEMBER
LAUGAVEGUR 164
SIMI: 552-8333
ÆGISSÍÐU 123
SÍMI: 551-9292
HAFNARFIRÐI
SIMI: 585-4460
FURUGRUND 3 KÓP.
SlMI: 554-1817
MOSFELLSBÆ
SÍMI: 586-8043
NÚPALIND 1 KÓP.
SlMI: 564*5680
ÞAR SEM NÝJUSTU MYNDIRNAR FÁST
„Halló íslendingar, við erum alveg á leiðinni!"
„Otrúlegt að
eiga vinsælasta
lagið á Islandi‘
✓
Islendingar hafa tekið vel á móti tónum
bresku sveitarinnar Coldplay. Birgir Öm
Steinarsson hringdi í gítarleikara sveitar-
innar Jonny Buckland og spurði hann m.a.
hvort þeir ætluðu ekki að fara drífa sig
hingað á klakann.
SímaviötaJ víd gítarleikaara Coldplay
„Já, ætli það ekki. Ég er samt
ekki viss, það er frekar erfitt að
skilgreina þetta svona nákvæmlega.
Sérstaklega þegar þú ert í miðri
senunni. Það er örugglega auðveld-
ara fyrir utanaðkomandi."
Kynntust þið vel?
„Já, ég myndi segja það. Tón-
leikaferðalagið stóð yfir í þrjár vik-
ur eða svo. Við fylgdumst oft með
þeim spila, en við höfum ekki hitt
þau í einhvern tíma núna.“
Þið í Coldplay eruð allir hver frá
sínum landshlutanum.
„Já, við kynntumst allir í mennta-
skóla í London."
Mér hefur alltaf fundist eins og
það skipti miklu máli þarna í Bret-
landi hvaðan hljómsveitirnar eru.
„Já, stundum skiptir það máli. En
ég held að það skipti ekki máli í
okkar tilviki. Við eram héðan og
þaðan þannig að það tengir okkur
enginn við einhvem ákveðin stað.
Við ólumst allir upp á mismunandi
stöðum við mismunandi aðstæður."
Finnst þér það hafa komið sér vel
fyrir ykkur?
„Ég hef ekki hugmynd það, en
það hefur náttúrlega mikil áhrif á
það hvemig við eram. Við höfum
allir upplifað svo mismunandi hluti.
Við ólumst t.d. allir upp við mis-
munandi tónlist en samt voram við
allir komnir í svipaðar pælingar
þegar við kynntumst. Ég myndi al-
gjörlega skrifa undir það að það
hafi sitt að segja. Við komum allir
með mismunandi hugmyndir inn í
tónlistina."
Skyndifrægð og framhaldið
Þið hafíð risið til frægðar á nokk-
uð skömmum tíma. Eruð þið eitt-
hvað smeykir við það?
„Við eram í rauninni bara hissa.
Það er t.d. alveg ótrúlegt að við eig-
um vinsælasta lagið á Islandi."
Hvað eruð þið komnir langt við
vinnsluna við næstu plötu?
„Ekki mjög langt. Við eram með
fullt af hugmyndum en við þurfum
að fá tíma til þess að klára þær. Við
eram reyndar byijaðir að spila
nokkur ný lög á tónleikum en við
þurfum líka að vinna meira í þeim.
Þannig að við eigum langa leið eftir
en ég er að vonast til þess að við
verðum búnir að taka upp um 20
lög fyrir lok næsta árs.“
Hvernig er vinnuferlið hjá ykk-
ur?
„Það er mjög mismunandi.
Stundum kemur Chris söngvari
með einhverja litla hugmynd að lagi
sem ég og hann prafum þá að spila
saman til þess að sjá hvemig hún
virkar. Stundum era lögin frá hon-
um nokkuð tilbúin. En þau þróast
alltaf þegar við byrjum að æfa þau.
Þetta virkar ekki þannig að hann
komi með lag og segi; „héma er
lagið, spilið þetta svona!“. Þetta ein-
hvem veginn bara vex og þrosk-
ast.“
Finnið þið fyrir pressu við laga-
smíðamar út af vinsældunum?
„Já, ætli það ekki. Við eram samt
ekld með áhyggjur yfir því að þetta
verði ekki nægilega mikið vinsælda-
popp. Þetta er miklu meiri pressa
innan hljómsveitarinnar því okkur
langar til þess að gera betri plötu.“
Hvernig er tónlistin að þróast?
„Það verður eitthvað um önnur
hljóðfæri, en ég get eiginlega ekk-
ert sagt hvemig platan verður. Við
eram ekkert búnir að ákveða hvort
hún eigi að innihalda þyngra rokk
eða eitthvað svoleiðis. Við ætlum
bara að bíða og sjá hvert lögin leiða
okkur, heyra hvemig þau hljóma og
útsetja þau eins vel og við mögu-
lega getum.“
Þið útsetjið þá lögin ykkar sjálfír.
„Bæði og, við vinnum með öðram
manni sem heitir Ken Nelson.“
Kemur hann snemma inn í ferlið,
eða eftir að þið klárið lögin?
„Ég held reyndar að þú hafir
aldrei klárað lag fyrr en þú ert
búinn að taka upp lokaútgáfu þess.
Lögin era alltaf að breytast í hljóð-
verinu. Áferðin á þeim og tilfinning-
in er alltaf að breytast hjá okkur.
Við útsetjum lögin mjög mikið bara
í hljóðverinu, það er svo auðvelt, því
þá er alltaf hægt að halla sér aftur
og hlusta á það sem maður er búinn
að gera.“
Þá er komið að þessari sígildu
síðustu spumingu, hvenær á svo að
kíkja á klakann til þess að spila?
„Það era einhverjar þreifingar í
gangi varðandi tónleikahald í
Reykjavík á næsta ári, ég get stað-
fest það, en ég er bara ekki viss um
hvernig þær ganga,“ segir Jonny
Buckland sáttfús að lokum.
nafngylling
fylgir Atson
leðurvörum
Drangey Laugavegi
Penninn Kringlunni