Tíminn - 25.11.1965, Qupperneq 16

Tíminn - 25.11.1965, Qupperneq 16
Ætluðu í leikhús um kvöldið kvöldið, ég, konan mín og Jó- hann sonur minn. Var ég bú- inn að kaupa miða handa okk- ur, en þegar ég sá að það mundi dragast að Jóhann kæmi, sem var svo sem ekki mjög óeðlilegt, skilaði ég miðanum hans og skrifaði skilaboð á miða sem ég setti inn í herbergið til hans. Við vorum svo ekki búin að vera heima nema í um það bil fimm mínútur eftir leik húsferðina þegar okkur var til- kynnt að leit væri hafin að honum. Á þessa leið komst Þorsteinn Löve múrarameistari, Sigtúni 35, að orði, er fréttamaður Tímans ræddi við hann i kvöld. Og hann hélt áfram — Jóhann kom hingað til okkar á laugardagskvöldið um klukkan níu og fékk lánaðan hjá mér kíki, sem hann hafði með sér á skytteríið daginn eftir, en að öðru leyti vissum við ekkert um ferðir hans fyrr en tveir mjög alúðlegir lögreglu menn, Guðbrandur hét ann- ar þeirra, komu til okk- ar eftir leikhúsferðina, og sögðu okkur að leit væri hafin að Jóhanni. Þeir komu mjög vel fram, og tilkynntu þetta á mjög viðfelldinn hátt Því það er ekki sama hvernig komið er að fólki undir slík vonina77 KJ-Reykjavík, miðvikudag. — Við ætluðum að fara þrjú saman í leikhús á sunnudags- Þorsteinn Löve Mesta leit að einum manni MB-KJ-, Reykjavík, miðvikud. Svo sem sagt hefur verið frá í fréttum þá týndist Jóhann Löve á sunnudaginn, og sást síð ast til hans þá um morguninn klukkan ellefu. Allt frá því á sunnudagskvöldið hefur verið leitað að Jóhanni á Skjaldbreið og stóru svæði þar í kring. Hafa um fjögur hundruð leit- armenn tekið þátt í leitinni á jörðu niðri og auk þess voru notaðar tvær þyrlur og margar flugvélar til Ieitar úr lofti. Bjarki Elíasson lögregluvarð- stjóri hafði með höndum stjórn teitarinnar hér í Rcykjavík. en aðalleitarstjóri austur við Skjaldbreið hefur Magnús Þór- arinsson úr Flugbjörgunarsveit inni verið, og fjölmargir ein- staklingar sem stjórnað hafa einstökum hópum og einstökum þáttum Icitarinnar. Þeir fjögur hundruð cinstaklingar, sem leit að hafa á jörðu niðri, eru ým- ist í Flugbjörgunarsveitinni, Hjálparsveitum skáta í Reykja- vík og Hafnarfirði, Björgunar- sveit Ingólfs i Reykjavík, lög- reglumenn, nemendur frá Laug arvatni, eða þá sjálfboðaliðar, sem gefið hafa sig fram til leit- arinnar, cins og hópar úr Borg arfirði og af Akrancsi. Einn stór þáttur í leitinni hafa vcrið hin ir fjölmörgu fjallabílar með talstöðvar, en í gegn um þær hefur öll stjórn þessarar miklu leitar farið fram. Mun óhætt að segja, að aldrei áður hafi verið gerð svo umfangsmikil Ieit að einum manni hérlendis, enda mun leitarsvæðið allt vera ná- lægt 1000 ferkílómetrum að stærð. Eins og fyrr segir var það þyrla frá varnarliðinu, sem fann Jóhann, og leiðangurs- stjóri í þyrlunni var Jóhannes Briem, formaður björgunar- sveitar slysavarnadeildarinnar Ingólfs í Reykjavík. Jóhannes skýrði blaðinu í dag frá ferð- inni í stuttu máli. — Við lögðum af stað um Framhald á bls. 14 „Ég missti aldrei MB—Reykjavík, miðvikudag. Þau gleðitíðindi bárust til Reykjavíkur fyrir hádegið í morgun, að Jóhann Löve, lögregluþjónn, væri fundinn og við sæmilega heilsu. Það var þyrla frá varnarliðinu, sem fann Jóhann og gat lent rétt hjá honum og flutt hann að dyrunum á Landsspít- alanum í Reykjavík, þar sem læknar tóku hann til rannsóknar strax. Jóhann er furðu lítið kalinn, þó eitthvað á fótum, en enn er of snemmt að fullyrða um meiðsl hans. Blaðamenn Tímans fengu að ræða við Jóhann smástund á Landsspítalanum og var hann þá vel málhress, en eðlilega nokkuð máttfarinn. , Eg missti aldrei vonina“ sagði Jóhann. ,,Eg fann það alltaf á mér, að ég myndi finnast, þótt ekki liti vel út í gær, þegar ég sá vélamar vera að leita á öðru svaeði en ég var á. Það sem mest háði mér undir lokin var hungr ið og máttleysi út frá því en ég var búinn með nestið, áður en ég villtist á sunnudaginn “ Enginn vafi er á því, að það sem fyrst og fremst bjargaði Jóhanni, var það, að hann missti aldrei vonina á að hann fyndist og rósemi hans þá tvo og hálfan sólarhring, sem hann var einn á ferli í hríðarveðri og frosti, Öll um ber saman um, að hann hafi hegðað sér eins skynsamlega og unnt var, eftir að hann á annað borð var orðinn villtur, hann gaatti þess að ofreyna sig aldrei, en hélt sem mest kyrru fyrir, fullviss þess að fyrr eða síðar myndu leitarmenn koma á þær slóðir, sem hann var á, þar eð hann vissi að hann gat ekki verið kominn mjög langt frá þeim stað, er menn vissu síðast af honum á. — Við ætluðum að hittast við bílinn um miðjan dag á sunnu- dag. Hann var rétt vestan við Tindaskaga, og við Kristleifur Guðbjörnsson vorum á rjúpna veiðum uppi i Skjaldbreið, eins og komið hefur vist fraan í frétt um. Eg var ekki vel búinn, en þó sæmilega. Eg var i þykkum bómullarfötum innst, síðum nær buxum og tvennum skyrtum. Eg var í gúmmistígvélum og tvennum sokkum. Að ofan var ég i skinnjakka, sem var mjög Framhaid a bls 15 um kríngumstæðum sem þess um. Við biðum svo og vonuð um auðvitað allt það bezta, en ég verð að segja það eins og er, að ég var orðinn vonlitill í morgun. En svo bárust okkur þessar gleðifréttir, og það er kannski enn gleðilegra vegna þess að hann er andlega heill, og þessir hrakníngar hafa ekki truflað hann. Jóhann er svo til nýkominn í lögregluna, en er Framh á bls L4 Jóbann komlnn um borð í þyrluna, dúðaður í teppi, og sjúkraliði fylgist með honum. JóHann Löve á Landsspítalanum í gærkvöldi (Tímamynd K. J.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.