Alþýðublaðið - 20.06.1959, Blaðsíða 1
Fregn til Alþýðublaðsins,
Siglufirði í gær.
BORIZT hafa hingað fregnir
nmi það, að fyrsta síldin hafi
veiðst fyrir Norðurlandi í sum-
,ar. Er það báturinn Guðmund-
Þær norsku
í GÆR hófst Norðurlanda-
meistaramót í handknattleik
kvenna í Þrándheimi. Norður-
löndin ölí, að Finnum undan-
'skildum sendu lið á mótið.
Isienzku stúlkurnar léku
■’gegn þeim sænsku í gær og
sigruðu þær síðarnefndu með
8 mörkumi gegn 3. Gerða Jóns-
dóttir skoraði eitt af mörkun-
um, eitt var skorað úr víta-
kasti, en ekki er vitað hver skor
aði það Þriðja.
ur frá Sveinseyri, sem fékk 350
tunnur 45 mílur norðvaustur af
Horni.
Seint í gærkvöldi hafði frétzt
um fleiri báta, sem veitt höfðu
eitthvað af síld, en enn var
með öllu óvitað, hvað afli þeirra
var mikill. Búizt var við bátun-
um inn í nótt, en ekki var að
fullu víst hvar þeir kæmu inn.
Fyrst eftir mat síldarinnar verð
ur ákveðið, hvort hún verður
sett í bræðslu, söltuð eða fryst.
Ekki var heldur vitað, hvort
síldin var horuð eða feit, stór
eða smá, en frekar var búizt við
því að hún væri horuð.
Af þessari mynd er það að
segja, að hún er tekin þar
í veröldinni sem menn
tala nú hvað mest friðar-
tal, þ. e. a. s. austan járn-
tjalds og nánar tiltekið í
Austur-Þýzkalandi. Þar
læra unglingarnir í æsku-
lýðsfylkingu kommúnista
semsagt vopnaburð, og ef-
laust þá í þágu friðarins.
koma í veg fyrir alvarlegan rafmagnsskort á Suður-
landsundirlendi og í Reykjavík í sumar. Unnið er að
því dag og nótt að byggja nýjan várnargarð fyrir of-
an þann gamla og loka þannig fyrir skarðið.
Blaðið hringdi austur að
Efra-Falli í gær og hafði tal af
Árna Snævarr, yfirverkfræð-
ingi. Sagði hann, að unnið væri
dag og nótt við byggingu nýs
varnargarðs fyrir ofan hinn
gamla. Er jarðvegi ekið í vatn-
ið og stálplötur síðan reknar
niður í hann. Er vonast til, að
á þennan hátt verði hægt að
loka fyrir vatnsflauminn í
gegnum göngin. Ekki er vitað
hversu langan tíma verkið tek-
ur. Sagði Árni, að ekki hefðu
orðið meiri skemmdir en þeg-
ar hefur verið skýrt frá. Steypu
stöðin stendur enn og ekki
hafa meiri skemmdir orðið á
stöðvarhúsinu.
HELDUR DREGUR ÚR
RENNSLINU.
Árni Snævarr sagði, að held-
ur hefði dregið úr vatnsrennsl-
inu og lækkaði yfirborð Þing-
vallavatns nú um tæpan senti-
metra á klukkustund. Yfir-
| borð vatnsins hafði í gær lækk-
I að um rúman hálfan metra (kl.
6). Aðspurður sagði Árni, að
! fyrstu sendingarnar af stálplöt-
1 unum frá Sauðárkróki væru:
þegar komnar.
VERÐUR
RAFMAGNSSKORTUR?
Blaðið hafði einnig tal af Já*
kobi Gíslasyni, raforkumála-
stjóra, og spurði hann, hvort
búast mætti við rafmagns-
skorti. Sagði hann, að það færi
eftir því, hversu fljótt tækist
að loka fyrir skarðið og
hversu hátt væri þá í vatninu.
Sagði hann, að vonir stæðu til,
að verkið tæki um vikutíma.
HlimillIIIIIIIIIIIllllIIIIUIIIIIlIIIIlIllllIIIUIIIIIillHIIHUUIHi
Landsliðið sigraði
f GÆR fór fram á íþrótta-
leikvanginum í Laugardal
knattspyrnukeppni milli lands-
liðs og pressuliðs. Leikar fóru
þannig, að landsliðið sigraði
með 2 gegn 1.
BISKUPAVÍGSLA fer fram
í Dómkirkjunni á morgun 21.
júní. Hefst athöfnin klukkan 10
f.!h. og munu prestar mæta
hemipuklæddir. Næstu daga
verða síðan kirkjuhátíðir og
kirkiufundir.
Við biskupavígsluna verður
hinn nýi biskup, séra Sigur-
þjörn Einarsson, vígður af frá-
.farandi biskupi. Ásmundi Guð-
mundssyni. Séra Bjarni Jóns-
son vígsluhiskup lýsir vígslu
og vígsluvottar auk hans verða
séra Sigurður Ó. Lárusson próf
astur, séra Sigurður Stefánsson
prófastur, séra Jakob Jónsson
og séra Björn Ó. Björnsson.
Hinn nývígði biskup prédik-
ar og altarisþj ónusíuna á und-
an annast þeir séra Einar Guðna
son og séra Óskar J. Þorláksson,
en á eftir séra Jón Auðuns,
dómprófastur og séra Sigur-
björn Á. Gíslason.
Um kvöldið, klukkan 7, held
ur kirkjumálaráðherra, Friðjón
Skarphéðinsson, veizlu að Hót-
el Borg.
Á mánudaginn verður síðan
prestvígsla í Dómkirkjunni og
Framhald á 2. síðu.
EKKI kunnum við þar ;
frá að segja, hvar bolt- \
inn endaði hjá mannin-
um, en eftir tilburðunum
að dæma, liefur þetta ver- !
ið feiknmikið spark. Ann-
ars gegnir hann því hlut- \
verki hér á síðunni, að j
minna menn á ÍÞRÓTTA- \
SÍÐUNA, sem í dag er
með erlendar knattspyrnu
fréttir — meðal annars.
íþróftirnar
eru á 9. síðu
Hannibal er
kemmafefur
ÞAÐ eru liæg heimatök-
in hjá Þjóðviljanum þessa
dagana.
Fyrst ber hann það upp
á Alþýðublaðið, að það
hafi verið rekið fyrir ó-
frjálst fé.
Síðan snýr hann sér til
fyrrverandi ritstjóra Al-
þýðublaðsins, Hannibals
Valdimarssonar, og reynir
að leiða hann sem vitni í
málinu!
Þjóðviljanum sézt yfir
þann einfalda sannleika, að
Hannibal er ekki vitnis-
bær.
ÞVÍ AÐ HANNIBAL
VALDIMARSSON STEND
UR ÁKÆRÐUR OG Á-
KÆRANDINN ER ÞJÓÐ-
VILJINN. OG HANNIBAL
SJÁLFUR VÆRI SEKARI
EN ALLT SEM SEKT ER,
— EF NOKKUR SANN-
LEIKSÖGN FYRIRFYND-
IST f ÓHRÓBRI KOMM-
ÚNISTABLAÐSINS.
Hánnibal má prísa sig
' sælan — og skákar kann-
ski í því skjólinu — að
jafnvel harðsvíruðustu
kommúnistar trúa sögu-
burði Þjóðviljans varlega.
Þó skal hann minntur á
eftirfarandi:
Það tók Þjóðviljann eitt
ár að komast að þeirri nið-
urstöðu, að fjárreiður Al-
þýðublaðsins og Ingimars
Jónssonar væru skyldar.
Þá uppgötvun gerði hann
þremur vikum fyrir kosn-
ingar.
Við rannsókn Ingimars-
málsins, eins og það er
kallað, kom reyndar ekk-
ert fram, sem gæfi ástæðu
til að bendla Hannibal,
aðra ritstjóra blaðsins eða
blaðið sjálft við málið.
Hannibal Valdimarsson
var formaður Alþýðuflokks
ins í tvö ár og ritstjóri Al-
þýðublaðsins á því tímabili.
HANN HAFÐI MEÐ
HÖNDUM FJÁRREIÐUR
OG BÓKHALD ALÞÝÐU-
BLAÐSINS.
HANN SKILArÐI EKKI
UPPGERÐUM REIKN-
INGUM OG ER EKKI
FARINN AÐ SKILA ÞEIM
ENN.
Alþýðublaðið segir: Við
endurtökum, að það eru
hæg heimatökin hjá Þjóð-
viljanum. Kannski hann
vilji nú snúa sér til Hanni-
bals Valdimarsjonar og fá
að glugga í þessi plögg.
MMMWMWMMMWMMMMMMMMMMWMWMMtMIMWMMtWnWMMMMMMMMWWMWMMMWMMMIMMIMMMIMMMW
í GÆRDVÖLDI var þeirri spurningu enn ósvar-
að, hvort takast mundi í tíma að loka skarðinu í varn
argarðinum við Dráttarhlíð við Efra-Fall, til þess að