Alþýðublaðið - 01.07.1959, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 01.07.1959, Blaðsíða 1
 tWWWWWWWWMWVWWMt ŒG£St©> 40. árg. — Miðvikudagur 1. júlí 1959 — 135. tbl. Fitumagn síldarinnar orðið 16 prósent. 15 skip fengu veiði í gær. NOKKUÐ erfitt er nú að vita fjölda þeirra skipa, er Þátt taka í síldveiðunum fyrir Norðurlandi, þar eð afnumið hefur verið úr landlielgisreglu- gerðinni ákvæði um það, að skipin verði að sækja um veiði- leyfi til ráðuneytis. En talið er að skipin séu álíka mörg og í fyrra eða um 240 talsins. | Syngur í Lido. Veitingahúsið Lido hef- | ur nú enn fengið nýja | söngkonu. Að þessu sinni = er söngkonan bráðfalleg. | Heitir hún Jackie Lynn. | Verður hún hér á landi í | um það bil mánaðartíma | og mun syngja á Lido all- = an tímann. tiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimmi'viiiiiiiiiHiiiiiiiiuiiimiiimm Ætlast er til, að skipin til- kynni sig til Fiskfélags tslands, er blaðið leitaði frétta hjá Fiski félaginu í gær höfðu sárafá tii- kynnt sig enn. Munu þó velfiest skipin byrjuð veiðar. 15 skip fengu veiði í dag.'— Fcr það allt í bræðslu að und- anteknum 220 junnum í ís. SÖLTUN ENN EKKI HAFIN. Fvíldarsöitun var enn ekki haf in í gær. í>ó hefur fitumagn síldarinnar verið að hækka und anfarið og í gær var það komið upp í 16%. Er talið að söltun vorði leyfð þegar fitumagnið er komið upp í 18%. 1 Má búast við, að það verði utn næstu helgi. Yngsta SVO má heita, að stakk- stæðin séu horfin úr Reykjavíkurlandi; það eru risin myndarleg hús þar sem Reykvíkingar þurrkuðu saltfiskinn sinn fyrir svosem 25 árum. Þó þurrkar Bæjarútgerðin énnþá smáslatta úti -— til allrar hamingju fyrir börnin í nágrennimu. Hér er verið að taka saman. tWWWWiWMMWWWWW LONDON, 30. júní, (Reuter). Geislavirkni yfir London er nú um það bil fjórum sinnunx meiri en fvrir þrem árum, þeg- ar byrjað var að fylgjast með þessu með mælingum. Heilbrigðismálanefnd Lun- dúna birti í dag tilkynningu um þetta. Formaður nefndarinnar tók; þó fram, að enn væri langur vegur frá, að geislavirknin væri orðin svo mikil, að mönn- um stafi hætta af. Allf er það á sömu bókina lærf Sígaretluþjófnaðurinn uppiýsfur. i vörzlu lögreglunnar AÐFARANÓTT sunnudags- ins 21. júní var brotizt inn í vörugeymslu Eimskipafélags Is lands í Hafnarhúsinu. Var stol- ið þaðan 25 kössum: af sígarett- um, eða alls 250 þúsund sígarett um, sem eru eign varnarliðsins. Rannsókn málsins hófst strax og er nú uplýst. 17 ára gamail piltur befur verið handtekinn og játað á sig þjófnaðinn. Pilturinn var einn við inn- brotið og stal sendiferðabifreið til þess að flytja burtu þýfið. Það flutti hann í sumarbústað Framhald á 3. síðu. 111111111 i 111111111111II11111.... BERLÍN, 30. júní (Reuter). — „Neues Deutsch- land”, aðalmálgagn austurþýzkra kommúnista, skýrði frá því í dag, að austur-þýzka verzlunarmálaráðu- neytið hefði „gagnrýnt sig sjálft“ fyrir „sofandahátt- og framtaksleysi.“ Blaðið gefur í skyn, að ráðu- neytið ætli líka að taka sjálft sig til bæna á fyrirhugaðri ráð- stefnu, sem það og efnahags- málaráð kommúnistaflokksins ætla að efna til í næsta mán- uði. Sú ráðstefna mun líka taka til athugunar „ábyrgðarleysi ýmissa leiðtoga í þjóðnýttum verksmiðjum“. Krústjov önnum kafinn RITSTJÓRAR bandaríska skopbiaðsins „Mad“ hafa gert sér það til dundurs að taka heimjpkunnar persónur og gera þær að söguhetjum í heimskunnum myndasögum. Hér fær Krústjov sinn skammt, og munu glöggir Iesendur strax skilja, að teikningarnar eru byggðar á sögunni um Gissur og Rasmínu. Eins og textinu ber með sér, er kona Krústjovs (hún er kölluð ,,Bouboutchka“ í skopstælingunni) að reyna að fá liann til að fara í átveizlu til Mikoyons. Hún ber sig illa, þegar hann svarar, að hann hafi engan tíma til þess: „Ég stend í hreinsun í kvöld.“ — „Hvern á að hreinsa?“ — (þ. e. a. s. útrýma, koma fyrir kattarnef), spyr 'hún á síð- ustu myndinni. Og þá kemur á daginn, að það «r raunar liún sjálf! stjarna í Berlín = BERLÍN, 30. júní (Reuter). | Vestur-þýzka blaðið „Bild | 2eitung“ upplýsti í dag, | að bandaríska kvikmynda | stjarnan Esther Williams | liefði valdið hálfgerðu upp | námi í morgun, þegar hún | fékk sér göngutúr á Stal- | instræti í Austur-Berlín I — berfætt. Esther er á alþjóðlegri I kvikmyndahátíð í Beriín. 'uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinniiiiiiniiiiiiiiiiiuiuiu. S LINZ, 30. júní. — Tékknesk yfirvöld hafa boðizt til að sleppa nokkrum Austurríkis- mönnum, sem villtust yfir tékk nesku landamærin, ef austur- ríska lögreglan vilji framselja 35 ára gamlan Tékka, sem tókst að flýja til Vínarborgar og hefur beðið um dvalarleyfi sem pólitískur flóttamaður. Austurríkismenn hafa ekki ennþá svarað tilboðinu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.