Alþýðublaðið - 07.07.1959, Page 9
AlþýSublaSiS — 7. júl£ 1959
ÞAU urðu úrslit bæjakeppn-
innar í frjálsíþróttum milli
Reykjavíkur og Málmeyjar, að
Reykvíkingarnir sigruðu með
mun meiri stigamun en nokk-
urn hafði órað fyrir, eða 40
stigum. Þetta stafar bæði af
því, að Málmeyjarliðið var ekki
eins sterkt og reiknað hafði
verið með, en einnig og ekki
síður vegna keppnishörku reyk
vísku friálsíþróttamannanna,
sem margir' hverjir náðu sín-
nm bezta árangri á þessu
sumri.
Guðjón Guðmundsson
nálægt meti.
Svíarnir tóku forystuna til
að byrja með í 400 m. grinda-
hlaupinu og fór Karlsson mjög
geyst. Guðjón hljóp rólega og
af öryggi, en þegar hlaupið var
rúmlega hálfnað sáust þrevtu-
snerki á Karlsson og Guðióh
tekur góðan endasprett og sigr-
ar með yfirburðum. Sigurður
varð fyrir því óláni að hrasa
'2-—3 metra frá marki og tapaði
■á því þriðja sæti. Guðjón var
aðeins 2/10 úr sek. frá meti
Arnar Clausen, en það getur
hann bætt hvenær sem er. Stíll
hans yfir grindunum er mjög
góður, hann þarf aðeins að
hlaupa oftar í.gegn, þá koma
53 sek. eða betra.
Malmroos vann léttan sigur
í 200 m. hlaupi og náði allgóð-
xim tíma. Malmroos er skemmti
legur hlaupari, en sennil. er 400
m, hans bezta vegalengd. Val-
'björn náði bezta árangri sín-
iim á árinu og varð annar.
Ekki var um mikla keppni að
xæða í 800 m. hlaupi, Svavar
sigraði léttilega og með yfir-
burðum á góðum tíma. Svíarn-
ir voru í öðru og þriðja sæti,
en Reynir. Þorsteinsson fjórði
á sínum langbezta tíma. Reyn-
ir er í mikilli framför og ef
hann fær örlítið meiri mýkt í
hlaupið kemur fljótt tími und-
ir 2 mín.
Auðveldur sigur
Kristleifs.
Það var Htill byrjunarhraði
í 5 km. hlaupinu og nú vildi
Jönsson ekki taka forystuna
(!), hann hefur sennilega haft
í huga 3 km. hlaupið, en þá var
'^•^•^‘•^'•^•^'•^•^•^'•^■•^•^'•^'•^r.
Jönsson í fararbroddi alla leið-
ina, eða þar til 50 km. voru eft-
ir og okkar ungi hlaupari þaut
framúr . eins og spretthlaupari
væri á ferðinni..
Snúum okkur að 5 km. hlaup
inu, en þar skiptust Kristján
og Kristleifur á um forystuna
framan af, en þegar 2—3 hring
ir voru eftir leiddist Jönsson
þófið og fór framúr, en aðeins
Kristleifi tókst að fylgja hon-
um og viti menn, þegar eftir
voru ca. 50 m. endurtók sig
alveg sama sagan og í 3 km.;
Kristleifur tók spretthlaupara-
endasprett og skildi Jönsson
eftir. Kristján var í þriðja sæti
SATT BEZT AÐ SEGJA
Vígslumót Laugardalsvall-
arins er umfangsmesta og
fjölmennasta mót, sem hald-
ið hefur verið hér á landi.
Það tókst að mörgu leyti vel,
en því miður var framkvæmd
in stundum í molum, keppn-
in gekk seint og það kom fyr-
ir, að áhorfendur urðu að
Iáta sér nægja að horfa á
hinn fagra leikvang, því að
ekkert gerðist.
Þetta á sérstaklega við um
frjálsíþróttakeppnina, en það
er líka erfiðast að stjórna
henni, vegna hins mikla
fjölda dómara, sem kunnu
misjafnlega til verka sinna.
Það er hvimleitt að heyra
þulinn í tíma og ótíma kalla
á keppendur í hinar ýmsu
greinar í stað þess að hafa
sérstaka sendiboða fyrir
greinarnar, Einnig ætti að
vera búið að raða í riðla,
draga um stökk og kaströð
og hlaupararnir um brautir
áður en mótið hefst.
Þeir, sem standa fyrir
frjálsíþróttamótum hér vita
þeíta vel, en það er ekki nóg.
Frjálsíþróttaráðið þarf að
blása Iífi í dómarafélag, sem
einu sinni starfaði hér, verk-
efni þess eru mörg og sterkt
dómarafélag myndi gera
frjálsíþróttamótin skemmti-
legri, en því miður hafa þau
ekki gengið nógu vel, það
sem af er þessu sumri.
á góðum tíma. Millitímar voru
lélegir, 4:33,6 á 1500 m. og 9:
11,6 á 3 km.
W Tvöfaldir reykvískir
sigrar.
Stangarstökkið var skemmti
legt, en þar kom Heiðar mest
á óvart méð því að stökkva yf-
ir 4,10 m. í fyrstu tilraun, en
Valbjörn fór ekki yfir þá hæð
fyrr en í þriðju tilraun. Fyrsta
tilraun Heiðars á 4,20 m. var
allgóð, en Valbjörn fór vel yfir
þá hæð í fyrstu tilraun. Næst
reyndi Valbjörn við 4,35 m,
og var nálægt að fara yfir. Sví-
arnir voru svipaðir og við var
búizt.
Óvæntur sigur
Þórðar.
Heldur var þrístökkið ris-
lágt, nema afrek gestsins Sten
Ericksson, sem náði bezta
árangri Svía í ár. Hann stekk-
ur vel, en er ekki í góðri æf-
ingu.
Þórður vann óvæntan sigur
í sleggjukastinu og náði sínum
bezta árangri í ár, met hans er
52,30 m. Björgvin sigraði í
spjótkastinu, en Jóel var frek-
ar slappur og lét sér nægja
þriðja sætið.
Heildarúrslit hafa því orðið
Reykjavík 121; Málmey 81.
400 m. grindahlaup:
Guðjón Guðmundsson, 54,9 sek.
Per Sjögren, 57, 4
K. Á. Gunnarsson, M„ 58,5
Sigurður Björnsson, 61,5.
?00 m. hlaup:
Björn Malmroos, 22,1 sek.
Valbjörn Þorláksson, 22,7
Bertil Nordbeck, 24,7
Þórður B. Sigurðsson, 29,6.
800 m. hlaup:
Svavar Markússon, 1:54,6 mín.
Bo Kárlsson, M, 1:56,8
Oile Sjöström, 1:59,4
Reynir Þorsteinsson, 2:02,1. '
5000 m. hlaup:
Kristleifur Guðbjörnss., 14:58,4
Stig Jönsson, 15:04,0 mín.
Kristján Jóhannsson, 15:10,4
Áke Nilsson, 15:30,6.
Framhald á 2. síðu.
Hér sést Þórður B, Sigurðsson, fyrirliði Reykjávíkur-
liðsins, í sleggjukasts-,,búrinu“. — Ljósm.: Þorv. Óskarss.
URVALSLIÐ Iþróttabanda-
Iags Reykjavíkur sigraði úrval
héraðssambandanna . utan'
Reykjavíkur í knattspyrnukapp |
Ieik, sem íram fór s. 1. laugar- ,
dag. Leikur þessi var einn lið- '
ur hins mikla vígslumóts Laug-
ardalsleikvangsins dagana 3.—
5. júlí s. 1. ÍBR-Iiðið skoraði 5
mörk gegn 2. Sigur Reykjavík-
urliðsins kom eftir framlengd-
an leik. En jafntefli var eftir
aðalleiktímann, 2:2. En ef jafn
tefli yjfði, skyldi framlengt í
2x7 mínútur. Á þeirri fram
lengingu skoraði Reykjavíkur
liðið 3 mörk. Að leik loknum
afhenti framkvstj. ÍBR, Sigar
geir Guðmannsson sigurvegur
unum bikar að verðlaunum.
GANGUR
LEIKSINS.
Meginhluti fyrri hálfleiks
ins var viðburðasnauður og
sniglaðist áframi í líki sæmi
legrar æfingar, allt fram að 40.
mín., þá reis hann skyndilega
upp úr flatneskjunni og hörku
Framhald á 2. síðu.
Landsleikurinn
(Olympíu-keppnin)
ÍSLAN
fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld þriðjudaginn 7. júlí kl. 8,30.
Forsala aðgöngumiða á Melavellinum og í Austurstræti við Útvegsbankann.
DÓMARI: J. P. BARKLEY.
Línuverðri: Guðbjörn Jónsson — Magnús Pétursson.
Forðist þrengsli. — Kaupið mið'a strax.
Aðeins þessi einu leikur.
K. S. I.
V
A
$
s
s
s
s
*
\
*
s
*
■\
i
\
\