Alþýðublaðið - 14.07.1959, Síða 9

Alþýðublaðið - 14.07.1959, Síða 9
( ÍÞróffir J Knattspyrnuheimsóknin. Islandsmeistararnir sigra józka ú Skora sigurmarkið með vífaspyrnu. AKURNESINGAR báru sig- urorð af Jótum (JBU) í alljöfn- um og fjörugum leik á Mela- vellinum sl. Iaugardag, að við- stöddu fjölmenni og í hinu á- gætasta veðri. Józka liðið var allmikið breytt frá KR-leikn- um og Akurnesingar fengu tvo menn lánaða sér til fulltingis, þú Rúnar Guðryannsson (Fram) og Helga Jónsson (KR) og reyndust þeir íiðinu mikill styrkur. Ekki lék það á tveim tungum, að mölin reyndist Jót- unum þrándur í götu. Knött- urinn „plataði“ þá með óeðli- legu hoppi sínu og skoppi. í leiknum skoruðu Akurnes- ingar 3 mörk gegn 2. Öll mörk- in voru sett í síðari hálfleikn- um. Guðbjörn Jónsson dæmdi, en þrátt fyrir nær 30 aukaspyrn ur, sem liann tók, þar af 18 á Jóta, gat leikurinn ekki talizt „harður“. Hins vegar lét hvor- ugur hlut sinn fyrr en í fulla hnefana. í fyrri hálfleiknum áttu bæði liðin fleiri en eitt marktæki- færi. Ríkharður skaut utanhjá á 10. mínútu og rétt á eftir Helgi Björgvinsson úr sóknar- lotu, skipulagðri af Ríkharði og Sveini Teitssyni, og send- ingu þess síðarnefnda til Helga, sem var í góðu færi. Á 16. mín. er hinn snjalli v.útherji Jót- anna, Kjær, með knöttinn og sækir fram, leikur létt og leik- andi á varnarmapn mótherj-' anna, og það gerði hann reynd- ar hverju sinni allan leikinn, sendir til h. innherja, sem síð- an lætur knöttinn renna til h. úth. og hann aftur fyrir til h. innherja, sem þá er kominn í skotmál, en skýtur beint á Helga, er ver aúðveldlega. Skömmu síðar leikur Kjær sig frían og í færi, skýtur fast á markið, Helgi ver að vísu, en missir knöttinn frá sér, en þar sem enginn fylgir eftii’, bjarg- ast allt við. Aukaspyrna er tek- in á Jóta rétt utan vítateigs, Helgi Jónsson spyrnti að mark- inu, en hátt fram hjá. Horn- spyrna á Jóta skömmu síðar, sem Sveinn Teitsson tekur, er varin. Langspyrna fram er upp haf að sókn þeirra, en er stöðv- uð á vítateigi. Á 37. mín, er mai’ki Jóta ógnað. Sending út til hægri og þaðan til Sveins Teitssonar, en hann framleng- ir hana með ágætum loftbolta til Ríkharðs, sem er í góðri að- Hljóp berfættur! Á BR'EZKA meistaramótinu um helgina urðu mjög óvænt úrslit í 3ja mílna hlaupi. Nær óþekktur hlaupari, Tullosh, — sigi’aði á 13:31,2 mín. — Það samsvarar ca. 13:50,0 í 5 km. Tullosh er grasafræðingur og hljóp berfættur! Valsmenn í Vesf- mannaeyjum UM SÍÐUSTU helgi fór m.fl. Vals til Vestmannaeyja í boði knattspyrnufélaganna þar. — Léku Valsmenn tvo ltedk'i, á laugardag og sunnudag, við sam einað lið Vestmannaeyinga og höfðu sigur í báðum. í þeim fyrri skoruðu Valsmenn 6 mörk gegn 1, en í þeim síðari 9 gegn 3. Létu Valsmenn mjög vel yfir förinni og öllum móttökum. Ríkharður átti ágætan leik á Taugardaginn. stöðu til að skalla beint á mark- ið, en missir knattarins, hittir hann ekki. Hornspyrna á Jóta í’étt á eftir og „pressa“ að marki þeirra, endar með auknaspyrnu á Akurnesinga. SEINNI HÁLFLEIKUR 3:2. Þegar á fyrstu mínútum eru Akurnesingar í sókn. Ríkharð- ur á fast skot, en yfir. Rétt á eftir eru þeir aftur í sókn. Rík- harður er með knöttinn, sendir hann til Helga Björgvinssonar, sem er í ágætu færi, en skýtur utanhjá. Af þessari byrjun var það augljóst að þessi hálfleikur myndi verða viðburðaríkari og snarpari en sá /yrri, og sú varð og raunin á. Á 8. mín. átti h. úth. Jótanna hörkuskot á mark en um leið og hann „hleypti af“ hljóp h. innherjinn fyrir skot- ið og bjargaði marki Akurnes- inga úr bráðri hættu. Auka- spyrna á Akurnesinga og skot h. úth. stuttu síðar, en yfir. AKURNESINGAR SKORA TVÖ MÖRK Á SÖMU MÍNÚTUNNI. Á 25. mín. sækja Akurnes- ingar fram. Sending út til vinstri og þaðan inn á aftur, og enn til Þórðar Jónssonar, sem kominn er inn að markinu og skýtur fast og skorar. Knettin- um er stillt upp til leiks að nýju, en um leið og leikurinn er hafinn, fær Ríkharður knött- inn og sækir örhratt fram og brýst óstöðvandi í gegnum jósku varnarlínuna og skorar aftur. Viðbragðsflýtir hans og hraði var gneistandi og kom jósku varnarmönnunum alveg á óvart. JÓTAR JAFNA. Á 30. mínútu skora svo Jót- arnir. Var það v. útherjinn Kjær, sem átti sinn mikla þátt í því með sendingu fyrir mark- ið, eftir að hafa leikið rétt einu sinni á varnarleikmanninn sem átti að gæta hans. Það var h. útherjinn sem hljóp inn í send- inguna og skallaði fagurlega úr henni, og beint inn hægra meg- in við Helga, sem ekki hreyfði sig úr stað. Var þetta hvort tveggja, sendingin og skallinn, listilega gert. Skömmu síðar fá Jótar aukaspyrnu rétt utan við vítateiginn, Madsen, v. bakvörð ur, tók spyrnuna. Akurnesing- ar mynduðu varnarvegg, og Jótarnir röðuðu sér einnig upp til að vera til taks, en um leið og skotið reið af, skaust einn Jótanna til hliðar og í þá glufu sem myndaðist við það, skaut Madsen og beint á markið og skoraði. Þetta snjalla herbragð var framkvæmt af mikilli ná- kvæmni. Stuttu síðar fá svo Akurnes- ingar óbeina aukaspyrnu fyrir ?..... inni á vítateigi mót- herjanna. Helgi Björgvinsson rennir knettinum til Ríkharðs, sem hyggst skjóta um leið, en er brugðið. Vítaspyrna er dæmd fyrir vikið, og hana fram kvæmir Sveinn Teitsson og skorar. Lýkur leiknum þannig, að Akurnesingar sigra, eins og fyrr segir, með 3:2. í liði Akurnesinga voru þeir Ríkharður og Sveinn Teitsson aðalbaráttumennirnir, og án þeirra væri Akranesliðið ekki margra fiska virði. Hinir yngri sem þar eru að koma fram, virðast ekki ætla að standa hin- um gömlu kempum á sporði, hvorki er tekur til upplags eða snerpu. Þó Jótarnir töpuðu þessum leik fór það ekki á milli mála, að þeir báru af um knattleikni og skipulagshæfni að því er til heildarinnar tók. — EB. Lauer setur hvert metið af öðru. Erlendar fréttir í sfuffu máfi MARGT hefur gerzt í heimi frjálsíþróttanna undanfarið, en fátt hefur þó vakið meiri at- hygli en heimsmet Lauers í 110 m. grindahlaupi, 13,2 sek. Að vísu var örlítill meðvindur, en þó ekki það mikill að metið verði ekki staðfest. Eins og skýrt hefur verið frá hér á síð- unni átti J. Davis, Bandaríkjun um, gamla metið, 13,4 sek., sett 1956. Þess má einnig geta, að Lau- er hefur einnig sett Evrópu- met og síðan heimsmet í 200 m. grindahlaupi, 22,6 sek. og 22,5 sek. Hér kemur listi yfir heims- metin í 110 m. grind frá árinu 1900: 1900 Kraenzlein, USA 15,4 1908 Smithson, USA 15,0 1020 Thomson, Kanada 14.8 1927 Petterssons Svíþjóð 14,8 1927 Pettersson, Svíþjóð 14,7 1928 Weightman-Smith, Suður-Afríka 14,6 1929 Wennström, Svíþjóð 14,4 1931 Sjöstedt, Finnlandi 14,4 1932 Saling, USA 14,4 1932 Beard, USA 14,4 1932 Keller, USA 14,4 1933 Morriss, USA 14,3 1933 Morriss, USA, 14.2 1934 Beard, USA 14,2 1936 Towns, USA 14,1 1936 Towns, USA 13,7 1936 Walcott, USA 13,7 1948 Dillard, USA 13,6 1950 Attlesey, USA 13,5 1956 Davis, USA 13,4 1959 Lauer, Þýzkal. 13.2 —o— Á móti í Stokkhólmi í lok síðustu viku varð Vilhjálmur Einarsson annar í þrístökki með 15,38 m. Sigurvegari varð Pólverjinn Malcherczyk með 15,75 m. Brautir voru mjög slæmar, sem sézt bezt á því, að Pólverjinn hefur varla stokk- ið skemur en 16 metra í keppni í ár, nema þarna. Hann hefur t. d. tvisvar stokkið 16,40 m. og lengra. Vilhjálmur virðist bví vera að komast í "góða æfingu og vonandi líður ekki á löngu þar til við fáum að sjá 16 metr- ana. •—o— Frjálsíþróttamót var haldið í Kaupmannahöfn á laugardag inn með þátttöku margra Bandaríkjamanna, einnig kepptu Hollendingar, Svíar og Pólverjar. Árangur var frekar lélegur, t. d. 11 sek. í 100 m., 3,90 í stöng, 6,83 í langstökki o. s. frv. Þess má geta, að stang arstökkvarinn Richard Larsen felldi byrjunarhæðina í stang- ai’stökki (3,90). Sfokkseyringamóf Frétt til Alþýðublaðsins. Stokkseyri í gær. í GÆR var haldið hér stórmót, Stokkseyringamótið, sein haM- ið er á fimm ára fresti. Önrnið- ust félögin á Stokkseyri og Stokkseyringafélagið í Reykja- vík allan undirbúning, en mót- ið var fjölsótt og vel heppnað. Mótið hófst með guðsþjón- ustu í Stokkseyrarkirkju, eftir það var mótið sett af formaimi Stokkseyringafélagsins í Rvík, Guðrúnu Sigurðardóttur, síðan var haldið til sumarhúss dr. Páls ísólfssonar, en hann ávarp aði mannfjöldann og sungin voru nókkur lög. Að Í?ví búnu var farið út að Knarrarósvita, en þar voru fluttar margar í’æður og sungið. Ræðumenn voru: Helgi Sæmundsson, rit- stjóri, Sturlaugur Jónsson, stór kaupmaður, Haraldur Bjarna- son, byggingarfulltrúi og Ás- geir Eiríksson. Loks talaði sr. Guðmundur ÍBjarnason, sem kominn er heim í heiro- sókn eftir 48 ára dvöl erlendis, en hann er þjónandi prestur í Ameríku. Hafði hann ekki áð- ur komið heim á þessum 48 ár- um. Guðmundur Guðjónsson söng einsöng, dómkirkjukórinn í Rvík og kirkjukórinn á Stokks eyri sungu. Á dansleiknum, sem haldinn var um kvöldið, las frú Inga Þói’ðai’dóttir, leik- kona. upp. Allur ágóði af mótinu renn- ur í orgelkaupasjóð Stokkseyr- arkirkju. Félagasamtökin á Stokks- eyri: ungmennafélagið, kvenfé- lagið og verkamannafélagið, buðu öllum mótsgestum til veg legrar kaffidrykkju um sex- leytið um daginn. AlþýðublaðiS — 14, júlí 1959 ^

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.