Alþýðublaðið - 14.07.1959, Side 10
STOFNÞING Sjálfsbjargar
— landssambands fatlaðra
var sett í Reykjavík 4. júní
s. 1. í Þingholtsstræti 27. Þing
ið sótti 21 fulltrúi frá 5 félags
deildum í Reykjavík, á Akur-
eyri, Siglufirði, ísafirði og Ár-
nessýslu.
Forsetar stofnþingsins voru
kjörnir Sigursveinn D. Krist-
insson og Emil Andersen og
ritarar þær Ingbjörg Magnús-
dóttir frá ísafirði og Heiðrún
Steingrímsdóttir frá Akureyri
r— Þingið stóð í 3 daga og var
því slitið með hóf í félagsheim
ili Kópavogs.
Samþykkt var einróma að
stofna samband félaga fatl-
aðra manna og heitir það
Sjálfsbjörg — Landssamband
fatlaðra.
Hm hlutverk sambandsins
og verkefni segir svo í lögum
þess, 2. gr.: „Hlutverk sam-
bandsins er að hafa forustu í
•baráttu fatlaðs fólks fyrir
auknum réttindum og bættri
aðstöðu í þjóðfélaginu, meðal
annaxs með því:
a) að veita félögum innan
sambandsins og fötluðum ein
staklingum utan sambandsins
jafnt og innan þess þá hjálp,
sem þáð getur 1 té iátið.
b) að koma á fót og starf-
rækja félagsheimili, þar sem
starfsemi sambandsins geti
farið fram.
c) að styrkja fatlað fólk til
að afla sér þeirrar menntunar
bóklegrar eða verklegrar sem
það hefur löngun og hæfileika
til.
d) að aðstoða fatlað fólk til
þess að le.ita sér þeirrar at-
vinnu sem það er fært til að
leysa af hendi í atvinnurekstri
eða þjónustu.
e) stuðla að því að félögin
geti komið upp félags- og
vinnuheimilum fyrir samtök-
in, hvert á sínu félagssvæði,
og með því bætt aðstöðu fatl-
aðs fólks til félagslífs og at-
vinnu.
f) að koma upp þjálfunar-
stöðvum fyrir fatlað fólk úti
um land þar sem slíkar stöðv-
,ar eru ekki fyrir hendi.
g) að vinna að bættri lög-
gjöf um málefni fatlaðs fólks.
h) a.ð efla samstarf við önn-
ur öryrkjasamtök innanlands
og utan“.
1 framkvæmdanefnd •—•
stjórnar sambandsins — voru
kosin: Emil Andersen, Akur-
eyri, forseti; Ólöf Ríkharðs-
dóttir, Reykjavík, ritari og
Zophonías Benediktsson, Rvk,
gjaldkeri. Varaforseti var kos
inn Theodor Jónsson og aðrir
í sambandsstjórn: Trausti Sig
urlaugsson, ísafirði; Björn
Stefánsson, Siglufirði; Sveinn
Þorsteinsson, Akureyri; Val-
gerður Hauksdóttir, Hverar
gerði og Helgi Eggertsson,
Reykjavík.
Endurskoðendur: Hulda
Steinsdóttir, Siglufirði og Ei-
ríkur Einarsson, Reykjavík.
Stofnþingið gerði allmarg-
ar ályktqnir og fara nokkrar
þeirra hér á eftir.
FÉLAGS- OG
VINNUHEIMILI.
1. Stofnþing Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, hald
ið í Reykjavík 4.—6. júní 1959
— ályktar að eitt þýðingar-
mesta verkefni Sjálfsbjargar-
félaganna sé að koma seni
fyrst upp félags- og vinnu-
heimilum fyrir samtökin, þar
sem félagarnir geti jöfnum
höndum iðkað félagsleg menni
ingarstarfsemi og unnið ýmis
konar handavinnu félagi sínu
til stuðnings og síðar tij að
afla sjálfum sér nokkurra
tekna.
2. Þá telur þingið rétt af fé-
lögunum að leita aðstoðar
hlutaðeigandi bæjarfélaga til
að koma á fót og reka félags-
og yinnuheimilin. Má á það
benda, að Sjálfsbjörg á Siglu-
firði hefur þegar á þessu ári
verið veittur styrkur á fjár-
hagsáætlun kaupstaðarins.
3. a) Þingið hvetur til þess
að félögin hafi sem nánasta
samvinnu sín á mlli um kaup
á efni og sölu á framleiðslunni
---b) Ennfremur telur þingið,
að samtökunum beri að vinna
að því að fá undanþegið toll-
um efni til framleiðsiu sinn-
ar.
4. Þingið telur Reglugerð
blindravinnustofunnar til fyr
irmyndar um skpulagshæt.ti
og hvetur Sjálfsbjargarfélög-
in til þess að taka hana til fyr
irmyndar, er þau skipuleggi-
vnnustofur sínar“.
ÁLYKTUN UM
TRYGGINGAMÁL.
„ISÍtofníþing Sjállfsbjargar,
landssambands fatlaðra, hald
ið í Reykjavík 4.—6. júní 1959
beinir þeirri áskorun til hins
háa alþingis:
1) að örorkulífeyrir verði
greiddur án tillits til tekna,
2) að örorkulífeyrir verði
hækkaður um minnst 30%,
3) að sjúkrabætur verði
greiddar jafnt húsmæðrum
sem eiginmönnum.
4) að hjón, sem' bæði eru
örorkulífeyrisþegar fái
greiddan tvöfaldan einstakl-
ingslífeyri.
Þingið felur væntanlegri
stjórn sambandsins að vinna
að framgangi málsins.
ÁLIT FARARTÆKJA-
NEFNDAR.
„Stofnun Sjálfsbjargar, —
landssambands fatlaðra,
haldið í Reykjavík 4.—6. júní
1959 skorar á.hið háa alþingi:
a) að breyta þannig að eftir
gjöf aðflutningsgialda af farar
tækjumi til öryrkja verði auk
in í samræmi við þær hækk-
anir, sem orðið hafa á bifreið
um og mótorhólum.
b) að eftirgjöf af aðflutn-
ingsgjöldum verði afskrifuð
5 árum,
c) að fellt verði niður af bif
reiðum örvrkia hið nýálagða
160% leyfisgjald,
d) að fella niður bungaskatt
af bifreiðum öryrkja.
e) að öryrkjar fái að leggja
farartækum sínum án tillits
tix umferðarlaga. ef þörf kref
ur sökum föt.Iunar, enda séu
farartækin merkt.
f) að hækka um helming
tölu þeirra bifreiða sem ár-
lega er úthlutað til örvrkja.
g) að fulltrúi frá Siálfs-
björg, landssamibandi fatlaðra
verði skipaður í nefnd þá er
ira
úthlutar farartækjum með
tolleftirgjöf“.
Þingið samþykktí að mið-
stöð fyrir innflutning efnis
er félagsdeildirnar þurfi að
nota skul vera á Akureyri. Þá
gerði það ennfremur ályktun
um útgáfu rits, svo og fjáröfl
un fyrir sambandið. Um aukið
samstarf öryrkjasamtaka
gerði þingið svofellda álýkt-
un:
„Stofnþing Sjálfsbjargar, —
landssambands fatlaðra, hald-
ið í Reykjavík dagana 4-—6.
júní 1959 lýsir áhuga sínum á
auknu samstarfi öryrkjafélag
anna. .
Telur þingið að stefna beri
að því, að hin þrjú öryrkja-
samtök sem nú starfa í land-
inu: 'Sjálfsbjörg, landssam-
band fatlaðra, Samband ísl.
berldasjúklinga og Blindrafé-
lagið myndi bandalag sín á
milli til þess að skipuleggja
og samræma baráttuna fýxir
auknum réttj og bættum ahg
öryrkjanna í landinu.
Þingið samþykkir að fela
stjórn sambandsins að vinna
að frarhgangi málsins.
Stjórn Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra heimsótti
þingið og fóru fram viðræður
um vinsamlega samstöðu um
öll þau málefni sem varða
sameiginlega hagsmuni
beggja samtakanna.
de Gaulle
Framhald af 4. síðu.
áminning til hægrj arms UNR
og telja má víst að hún hafi
nokkur áhrif. Þeir óttast nýj-
ar kosningar, sem vafalaust
mundu verða þeim í óhag. í
síðustu kosningum komust
margir öfgamenn inn á þing-
ið af því að þeir kenndu sig
við de Gaulle en nú geta þeir
það ekki lengur. En þeir geta
svarað því til að herinn vilji
ekki kosningar, og herinn er
hæsta tromp aktivistanna.
Frakkar velta þessum mál-
um öllum fyrir sér að venju-
legu andríki og rökfestu en
þrátt fyrir allt getur énginn
gert_sér í hugarlund hvað ger-
ast muni í frönskum stjórn-
málum á næstunni. Alsírmál-
ið er brennandi vandamál og
ekki er að búast við eðlilegu
stjórnmálaástandi í landinu
fyrr en það er leyst. Margt
bendir til að de Gaulle hygg-
ist innan skamms hefja form-
legar viðræður við útlaga-
stjórn Alsírbúa, sem aösotur
hefur í Kaíró, um samband
Frakklands og Alsír. Það er
varla tilviljun að Ferrhat Ab-
bas forsætisráðherra útlaga-
stjórnarinnar og æðst umenn
Marokkó og Túnis skyldu fara
til Rómaborgár um sama leyti
og de Gaulle var þar í opin-
berri heimsókn.
Tíbei
Framhald af 5. síðu.
um gengur hratt, segir Trik-
amdas. Fyrir tíu árum var
Nepal lénsríki í eigu örfárra
fjölskyldna. Nú eru þar
frjálsar kosningar og sósíal-
istisk ríkisstjórn við völd.
Tíbetbúar hafa verið og eru
undir miklum áhrifum frá
stjórnmálaþróuninni í Ind-
landi og Nepal.
— Hafa kommúnistar beð-
ið skaða út af atburðunum
í Tíbet?
— Já, vafalaust. Indverjar
eru hlynntir frelsun Tíbet.
SKlMUfGtRe RUUSI.NS
Esja
austur um land í hringferð
hinn 18. þ. m. Tekið á móti
flutningi í dag, þriðjudag, til
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarð-
ar, Eskifjarðar, Norðfjarðar,
Mjóafjarðar, Seyðisfjarðar, -
Þórshafnar, Raufarhafnar, —
Kópaskers og Húsavíkur.--
Farseðlar seldir á fimmtudag.
Ms. Helgi Helgason
fer til Vestmannaeyja í kvöld.
Vörumóttaka í dag.
Framhald af 2. síðu.
Páll Pálsson, Hnífsdal 902
Pétur Jónsson, Húsavík 1609
Rafnkell, Garði 926
Reykjanes, Hafnarfirði 1283
Reynir, Vestmannaeyjum 968
Reynir, Reykjavík 788
Sigrún, Akranesi 1543
Sigurbjörg, Búðakauþtúni 1040
Sigurður, Siglufirði 861
Sig. Bjarnas., Akureyri 1645
Sigurfari, Grafarnesi 1226
Sigurvon, Akranesi 1382
Skipaskagi, Akranesi 804
Sleipnir, Keflávík 781
Smáir, Húsavík 818
S'næfeil, Akureyri 2594
Stefán Árnas., Búðakaupt. 726
Stefán Þór, Húsavík 650
Stefnir, Hafnarfirði 815
Steinunn gamla, Keflavík 1202
Stélla, Grindavík 925
Stjarnan, Akureyri 1024
Stjarni, Rifi 700
Svanur, Reykjavík 1014
Svanur; Akranesi 634
Svala, EskifirSá 1057
Sæborg, Grindavík 552
Sæborg, Patreksfirði 1370
Sæfari, Akranesi 705
Sæfari, Grafarnesi 1229
Sæfaxi, Neskaupstað 1622
Sæljón, Reykjavík 1646
Tálknfirðingur Sveinseyri 1496
Vaíþór, Seyðisfirði 935
Víðir II, Garði 2462
Víðir, Eskifirði 1596
Viktoría, Þorlákshöfn 958
Vilborg, Keflavík 638
Von II, Keflavík 1838
Vörður, Grenivík 892
Þórkatla, Grindavík 1483
Þorlákur, Bolungarvík 1345
Þorleifur Rögnvaldsson,
Ólafsfirði 1062
Þráinn, Neskaupstað 1108
Öðlingur, Vestmannaeyjum 590
Örn Arnarson, Hafnarfirði 629
Konan mín
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR
Skeiðarvogi 69
andac/.st 12. þessa mánaðar í Landspítalanum.
Fyrir hönd móður, barna og systkina og annarra vandá-
manna
Ólafur Kristjánsson.
Sonur minn og faðir okkar,
KRISTJÁN H. BREIÐDAL,
verzlunarstjóri í Skarðstöð, verður jarðsettur frá Dóm-
kikrjunni tímmtud. 16. júlí kl. 2 e. h.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Stefanía Þórðardóttir
Guðríður Breiðdal
Gissur Breiðdal
Njáll Breiðdal.
mhmmm
Hvera-sn'marskór meS
Kr. 50,00 parið
hæi á
Snorraforayt 38
Sími 1-85-17
J^Q 14. júlí 1959 — Alþýðublaðið