Alþýðublaðið - 24.07.1959, Blaðsíða 1
HDEF
40, árg. — Föstudagur 24. júlí 1959 — 155. tbl.
í GÆR höfðu Síldar-
verksmiðjur ríkisins alls
tekið á móti um 250 þús-
und málum síldar til
bræðslu og Rauðka um 30-
þúsund' málum Heildar-
söltun nam í fyrrinótt um
113 húsund tunnum, þar
af hafði verið saltað í um
81 þúsund tunnur á Siglu
firði.
WWMMWWMWWWMWWWW
MYNDAK
GÓÐ veiði var í fyrrinótt á
Húnaflóa- við Selsker og Skalla
rif. Síldin óð vel og enn fremur
varð vart i^ð síld rétt út af
Siglufirði. í gærkvöldi bárust
þær fréttir, að bátarnir væru
að byrja að fá síld vestur hjá
Kálfshamarsvík við Húnafló-
ann. Síldarverksmiðjur ríkisins
höfðu fengið í gær um 250 þús
und mál til bræðslu og Rauðka
á Siglufirði uiji 30 þúsund mál
Heildarsöltun á landinu nam á
miðnætti aðfaranótt fimmtu-
dags um 113 þúsund tunnum,
þar af á Siglufirði um 81 þús-
und tunnum.
Sigluíjörður
Til Siglufjarðar bárust í gær
um 23 þúsund mál af 41 skipi.
Fór síldin að mestu í bræðsl.u,
því síldin af Húnaflóa er enn
mjög misjöfn. Síldin, sem veidd
ist út af Siglufirði var aftur bet
ur hæf til söltunar En síldin
óð Þar ekki. Bræðslusíldin, sem
borizt hafði hingað í gær, nam
úm 180 þúsund m.álum.
Skagaströnd
Állir á loffi
ÞAÐ vantar mikið þegar
þyngdarlögmálið vantar,
og sannar það myndin
hérna efra. Hún er tekin
á tilraunastöð í Banda-
ríkjunum, og er tilgang-
ur tilraunarinnar að kom-
ast að því, hvaða dilk það
dragi á eftir sér (ef ein-
hvern), þegar geimflug-
menn framtíðarinnar
fljúga frá aðdráttaraflinu.
í erlenda textanum, sem
myndinni fylgdi, var þess
því miður ekki getið
hvaða brögðum tilrauna-
stöðin beitti til þess að
koma mönnunum á loft.
TIL Skagastrandar komu í
gær 15 skip með samtals rúm
8000 mál síldar. Fór megnið af
henni í bræðslu. Nokkuð var þó
saltað, en síldin er mjög mis-
jöfn. Þrær verksmiðjunnar eru
nú að fyllast. Taka þær 30 000
mál og afköst verksmiðjunnar
ei u 10 000 mál á sólarhring með
fullri vinnu.
þar, vejgna þess að galli er á
þeim. Þær haida ekki pækli.
Eru þetta nokkur þúsund tunn-
ur, en aðrar verða fengnar í
staðinn. Miklir erfiðleikar eru
á því, að koma í veg fyrir að
síldin skemmist, sem búið var
að salta í gallaðar tunnur. Er
ekki enn séð hvað af þessu
hlýzt.
Hæsta söltunarstöðin hér er
Framhald á 10. síðu.
40:44 mín.
LQNDON, 23. júlí (Reuter). —
Charles Maughan, foringi í
brezka flughernum, vann í dág
5000 punda verðlaunin í keppn-
inni um að komast milli Marbíe
Arch í London og Sigurbogans
í París á sem skemmstum tíma.
Hann fór í gær frá Sigurbog-
anum til Márble Arch á 40 mín.
44 sekúndum. Frökkum, sem
reyndu í dag, tókst ekki að slá
rriet hans.
Jafnlefli varö miiii
Friðriks og Inga
SÍÐUSTU einvígisskák Frið-
riks Ólafssonar og Inga R.
Jóhannssonar Iauk kl. 11,30 í
gærkvöldi með jafntefli eftir
22 lciki. Einvíginu lauk því
með sigri Friðriks, sem hlaut
214 vinning á móti 1(4 hjá
Inga.
a umræða um kiör
málið I neðri dei
Blaðið hefur hlerað
Að Sveinbjörn Árnason
verzlunarstjóri sé hætt-
ur hjá Haraldarbúð, bú-
inn að kaupa Fatabúð-
ina.
FYRSTA umræða um kjör-
dæmamálið hófst í neðri deild
alþingis í gær og stóð fram á
kvöld, enda tóku margir þing-
menn til máls og voru sumir
langorðir, Emil Jónsson forsæt-
isráðherra fylgdi frumvarpinu
úr hlaði með nokkrum orðum
og lagði til, að deildin kjósi
sérstaka sjö manna nefnd til að
fjalla um málið. Verður sú
nefnd kosin í dag á fundi neðri
deildar, sem byrjar kl. 1.30.
Emil Jónsson kvað frumvarp
ið samhljóða því, sem samþykkt
var á síðasta þingi og um kosið
í kosningunum 28. júni. Benti
hann á, að fylgismenn frum-
varpsins á síðasta þingi heíðu
verið 35, en 17 á móti. Nú væru
fylgismenn þess hins vegar 33,
en andstæðingar 19. Hefði
Framsóknarflokknum aðeins
tekizt að fá rúman fjórðung
þjóðarinnar til fylgis við sig í
baxáttunpi gegn kjördæma-
breytingunni.
Forsætisráðherra kvað mikla
bót fengna á ranglæti kjör-
dæmaskipunarinnar, þegar
frumvarp þetta væri orðið að
lögum. Annars taldi hann ó-
þarft að fjölyrða um málið, þar
eð það væri þrautrætt og öil-
um ljóst. Kvaðst hann þess
vegna vona, að .það gæti fengið
skjóta afgreiðslu á sumarþing-
inu.
Miklar umræður urðu að lok
inni frmasöguræðu forsætisráð
herra, og tóku til máls Eysteinn
Jónsson, Einar Olgeirsson,
Björn Fr. Björnsson, Halldór
E. Sigurðsson, Óskar Jónsson,
Eysteinn Jónsson öðru sinni,
Einar Olgeirsson öðru sinni og
Eysteinn Jónsson í þriðja sinn.
Stóð umræðan fram á kvöld, en
var þá lokið. Atkvæðagreiðslu
var hins vegar frestað, svo og
Framhald á 2. síðu.
Raufarhöfn
Á Raufarhöfn er heldur öm-
urlegt þessa dagana. Engin síld
og fólkið gengur um aðgerða-
laust. Verksmiðjan hefur nú
lokið við að bræða það, sem
hingað hefur borizt, og mun
það vera um 60 þúsund mál.
Allir bátarnir munu nú farnir
af austursvæðinu og hafa hald
ið vestur.
Dalvík
HINGAÐ kom Vilborg KE í
dag með 200 tunnur síldar, sem
voru saltaðar. Nokkuð mun þó
hafa gengið úr við söltumna.
Veiddist síldin fram af Siglu-
firði. Byrjað er að keyra aftur
til Akureyrar tunnur, sem
komu frá tunnuverksmiðjunni
I MOSKVU
NIXON, varaforseti Banda-
ríkjanna, hafði hér örstutta
viðdvöl í gær á leið sinni til
Moskvu. Við erum með fréttir
af ferðalagi hans og móttökun-
um í Rússlandi.
SOLSÓLSÓL
ÞAÐ er útlit fyrir, að það
verði bjart veður og sól
næstu daga sunnanlands,
sögðu veðurfræðingar í gær
dag.
Undanfarið hefur víðast
hvar verið óþurrkasamt á
Suðurlandsundirlendi, og
bændur hafa átt í erfiðleik-
um nteð hey sín.
Norðanlands hefur alltaf
verið þurrkur öðru hvoru, og
um allt land hefur verið
blýja.
Óþurrkarnir hér syðra evu
að mestu leyti sök lægðanna,
sem hafa gert sér tíðförult að
undanförnu upp að landinu
vestanverðu.
Víðast hvar í Vestur-Ev-
rópu er hitastigið nú milli 20
—30 stig, en heldnr svalara í
Noregi, vesti|nfjaUs, og í
Skotlandi.
í gær var 4 stiga hiti í
Thule á Grænlandi og hvergi
frost þar nyrðra nema 1 stig
í Norðurstöð.
Mestur hiti í Vestur-Ev-
rópu, sem mældur var í gær
var rétt fyrir utan París, 31
stig, — í Reykjavík var það
öfugt — nefnilega 13 stig.