Alþýðublaðið - 24.07.1959, Síða 2

Alþýðublaðið - 24.07.1959, Síða 2
VEÐRIÐ: SV kaldi. Smá- skúrir. BENZÍNAFGREIÐSLUR í Reykjavík eru opnar í júlí- mánuði sem hér segir; virka daga kl. 7.30—23. Sunnu- daga kl. 9.30—11.30 'og 13 —23. ☆ 3LISTASAFN Einars Jónsson ar, að Hnitbjörgum, er opið daglega kl. 1.30—3.30. ☆ BÆJARBOKASAFN; Lokað vegna sumarleyfa il þriðju- dagsins 4. ágúst. ★ KÓPAVOGSKIRKJA: Sjálf- boðaliðar, sem vildu vinna við Kópavogskirkju, eru beðnir að gjöra svo vel að gefa sig fram við verkstjór- ann á staðnum næstu daga. Byggingarnefndin. SIÐASTLIÐINN sunnudag voru gefin saman í hjóna- band Sigríður Bergsteins- dóttir frá Laugarvatni og Einar Elíasson úr Vest- mannaeyjum. Séra Ingólfur Ástmarsson framkvæmdi hjónavígsluna í Miðdals- 'kirkju. Heimilj ungu hjón- anna er að Eyrarvegi 22, Selfossi. ☆ ÚTVARPIÐ: 19 Þingfréttir. 20.30 Tónleikar. 20.45 Er- indi fyrir kvenþjóðin: Þvottar og þvottaefni (Dag rún Kristjánsdóttir hús- mæðrakennari). 21.05 Kór- söngur: Kárlakór Rvíkur. 21.25 Þáttur af músíklífinu (Leifur Þórarinsson). 22.10 Kvöldsagan: „Tólfkónga- vit“. 22.30 Nýtt úr djass- heiminum. 0ÐRU VÍSI MÉR ÁÐUR BRÁ ... RITSTJÓRI Tímans hefur orðið umræðuefni fólks með nokkuð óvæntum hætti. Hann hefur sem sé orðið fyrstur þingmanna til að flytja á al- þingi tillögu um mál gersam- iega óskylt stjórnarskrárbreyt ingunni eða kjördæmamál- ínu. Fólk rifjar nú upp þau arð Xímans í síðasta mánuði að ekki væri um annað kosið en kjördæmabreytinguna og ekki kæmi til greina að ræða önnur málefni á sumarþing- rnu. Þingmenn og aðra rak því í rogastanz, er þeir augum litu þessa tillögu strax á öðrum fundi þingsins í fyrradag, og að einmitt ritstjórinn skyldi verða til þess að brjóta þ\tta hoðorð sitt með því að fleygja inn á alþingi tillögu til þings ályktunar unl 67 milljón kr. aukið framlag til íbúðalána, án þess að rökstutt sé, hvaðan > jþessara peninga skuli aflað. Jómfrúrtillaga þingmanns Framsóknarmanna í Reykja- vík varð því aðeins löðrungur í eigið andlit, en lítill greiði t’járvana húsbyggjendum, sem sjá alvarleg málefni sín dreg- in inn í ábyrgðarlausan skrípa leik, sem er orðino almennt , aðhlátursefni. Hér er þriðja skák Friðriks og fnga. ÞAÐ hefur einkennt einvígi þeirra Friðriks og Inga R. hvað báðir hafa haft mikinn sigurvilja, ekki síður Ingi, enda þótt hann hafi oft staðið höllum fæti. Hann hefur ekki síður en Friðrik blásið lífi í glæðurnar. Allar hafa skákirn- ar verið óvenju skemmtilegar og aldrei hefur hvarflað að á- horfendum, að annar hvor að- ilinn reyndi að hlífa sér. í sveita síns andlits hafa þeir reynf að kryfja taflstöðurnar til mergjar, en jafnframt séð um að hafa þær svo flóknar, að miðlungsmenn skilji ekki, meistarar lítið og þeir sjálfir varla. Friðrik hefur sennilega komið Inga á óvart í öllum þrem fyrstu skákunum og yf- irleitt fengið betra tafl snemma. Ingi ^ann samt fyrstu skákina og varðist vel í hinum tveim, bótt hann lyti að lokum í lægra haldi. Hér kemur þriðja einvígisskákin: Hvítt: Ingi R. Jóhannsson Svart: Friðrik Ólafsson. DROTTNINGARBRAGÐ. 1. d4—Rf6 2. c4—e6 3. Rf3—d5 4. Rc3—c6 5. e3—Rbd7 6. Dc2—Bd6 7. Bd2—0-0 8. 0-0-0 Þetta er uppbygging Rússans Tajmanoff og/hefur oft gefizt vel, en Friðrik er með nýlega aðferð á prjónunum einnig ætt- aða frá Rússlandi. 8___Bb4! 9. Bd3—c5 10. Hhgl Kbl var eðlilegri og senni- lega betri leikur en Ingi vill hafa líf í tuskunum. 10. —dxc4 11. Bxc4—Rb6 12. Bd3—c4 13. Be2—Bd7 14. e4 Ingi átti ekki margra kosta völ en tekur sennilega þann skársta, að fórna skiptamun fyrir sókn á miðborði og kóngs væng. 14. —Bxc3 15. Bxc3—Ba4 16. Dbl—Bxdl 17. Bxdl—Rfd7 Sennilega var Rbd7 betri leik ur og ætti svartur þá að eiga unnið tafl þótt djúpt sé á vinn- ingnum. 18. g4—e5 Þessi leikur veikir svörtu kóngsstöðuna, en jafnframt opnast taflið sennilega svört- um í hag. 18. —Rc8 kom mjög til greina. 19. Dc2—exd4 20. Rxd4—Rc5 21. Rf5—Dd3 Hér neyðist svartur til að gefa g-peðið þar eð 21. —f6 strandar á 22. g5. 22. Bxg7—Hfe8 23. f3—Hac8 Hér var 23. —Rbd7 eðlilegri og betri leikur. 24. Dc3—Dxc3 25. Bxc3—Rd3t 26. Kbl—He6 27. h4—Rd7 28. g5—b5 29. a3—Rd7-e5 Ingi hefur teflt mjög vel frá því að hann fórnaði skiptamun- inum en nú sést honum yfir beztu leiðina 31. f4!—Rc6, svart ur má ekki drepa peðið vegna 32. Bb4 og hvítur vinnur skipta mun, 32. Bg4—Hb8. 33. Rg3 og hvítur hefur enn ágæta mögu- leika. 31. Rd4—Hb6 32. Hfl—Rc6 33. f4—b4 34. axb4—Rxd4 35. Bxd4—Hxb4 36. Bc3—Hb7 37. Bc2—Rxb2 38. Kcl—Rd3f 39. Bxd3—-cxdS 40. Kd2—Hb3 41. Hgl—Kg8! Hér fór skákin í bið og var nú auðunnin á svart. 42. f5—a5! 43. Bxa5—Hb2 44. Kdl—Hxcl 45. Kxcl—He2 46. g6—Ilxe4 47. Kd2—He5 48. Bc3—Hxf5 49. gxf7—Kxf7 50. Kxd3—Hxh5 51. Ke2—Hg5 52. Kf3—h5 53. Bel—Kg6 54. Bg3—Kf5 55. Bh2—h4 56. Bd6—h3 57. Bg3—Hg4 58. Kf2—Ke4 59. Bc7—Hg2 60. Kfl—Kf3 og svartur gafst upp. Ingvar Ásmundsson. fsieini á þingi í gær Framhald af 1. síðu. kosningu nefndaririiar, sem fær kjördæmamálið til með- ferðar. Umræðurnar í neðri deild í gær urðu að því leyti söguleg- ar, að mjög sló í brýnu moð Einari Ölgeirssyni og Eysteini Jónssyni. Átti Eysteinn frum- kvæðið með því að deila á Einar og Alþýðubandalagið fyrr for- setakjörið á alþingi, en Einar svaraði hressilega í langri ræðu, þar sem hann sagði Fram sóknarflokkrium vægðaiiaust til syndanna. Taldi hann kjör- dæmabreytinguna stóríelida réttarbót fyrir verkalýðinn og sannkallað mannréttindamál. Minnti hann Eystein á, að verkalýðsflokkarnir hefðu nú þrisvar sinnum á 28 árum orðið að knýja fram leiðréttingu á kjördæmaskipuninni í sam- vinnu við Sjálfstæðisflokkinn vegna afturhaldssemi Fram- sóknarmanna, sem ríghéldu í gömul forréttindi. Enn fremur. bar ýmis önnur þjóðmál á góma í þessum orðahnippingum Ey- steins og Einars, og hitnaði báð- um í hamsi. Rök Framsóknarmanna eru hin sömu og þeir beittu í kosn- ingabaráttunni, nema að þeir vilja ekki una úrslitum kosn- inganna 28. júní, þar eð þeir fengu Þar ekki stöðvvmarvald. Var lestur allra Framsóknar- LAXVEIÐI er mikil í Ölfusá og síðustu dægrin hefur laxinn gengið upp eftir ánni og veiðzt í hundraðatali. Mest varð veið- in í fyr'radag, líklega kringum 500 laxar. Allt er þetta veitt í nælonnet, en stangaveiðin er sáralítil. í kvöld verða netin tekin upp, því samkvæmt nýju laxalögunum mega net ekki liggja frá föstudagskvöldi' til þriðjudagsmorguns, og því að- eins veitt hálfa vikuna. Jarðeig endur í Ölfusi og Flóa hafa netaveiðina nær alla á eigin vegum og veiðir hver fyrir sínu landi. mannanna, sem töluðu í neðri deild í gær, hinn sami um kjör dæmamálið, enda fluttu þeir skrifaðar ræður að Eysteini undanskildum. Einn þeirra Framsóknar- manna, sem þátt tóku í þessum umræðum, flytti jómfiýræðu sína á alþingi. Var það Óskar Jónsson, þingmaður Vestur- Skaftfellinga, Las hann ræðu sína sæmilega áheyrilega og var til skiptis stórorður og létt- ur í máli. Minnti málflutning- ur hans mjög á, að hann héldi sig enn á framboðsfundi í Vík í Mýrdal. Mun Óskar skemmti- legur ræðumaður ,enda var meira á hann hlustað en hina fulltrúa Framsóknarflokksins í umræðunum. Kosningalaga FRUMVARPIÐ um kosning- ar til alþingis samkvæmt hinni nýju kjördæmaskipun var lagt fram á alþingi í gær. Er þar svo fyrirmælt, að atkvæðatala annars vegar og hlutfallstala hins vegar ráði um, hverjir verða uppbótarþingmenn, en ákvæðið um raðaðan landlista fellur niður. Hér er um allmikinn laga- bálk að ræða. Nemur hann tutt ugu og þremur köflum og 146 greinum. Fyrirsagnir kaflanna eru þessar: Kpsningarréttur og kjörgengi, Kjördæmi, Kjör- deildir, Kjörstjórnir og kjör- stjórar utan kjörfunda, Kjör- skrár, Framböð, Umboðsmenn, Kosningaundirbúningur, Kjör- dagur, Kjörstaðir, atkvæðakass ar, handbók kosningalaga, At- kvæðagreiðsla utan kjörfund- ar, Atkvæðagreiðsla á kjör- fundi, Kosningaúrslit í kjör- dæmmn, Úthlutun uppbótar- þingsæta, Kosningum frestað, uppkosningar og kosningar eft ir þingrof, Skil á utankjörfund- arkjörgögnum, Óleyfilegur kosningaáróður og kosninga- spjöll, Kosningakærur, Úr- skurður Alþingis um gildi kosn inga, Hvernig varamenn taka þingsæti, Kostnaður, Refsiá- kvæði og Hvenær lögin öðlast gildi. Frumvarpið kemur til fyrstut umræðu á fundi neðri deildar í dag.______________ fil sfsii ÍBK meislari í 4. ffokki. 1 GÆRKVÖLDI kepptu til úrslita á íslandsmótinu í 4. fl. í knattspyrnu ÍBK og KR. Sigr- aði ÍBK með 1:0. Á mótinu gerði ÍBK alls 11 mörk, en fékk aðeils á sig 1 mark. ÍBK á einnig lið, sem keppir til úrslita í þriðja flokki. & SKlPAUTí.tRB KlKISiNS Herðubreið austur um land í hringferð hinn 29. þ. m. Tekið á móti flutningi í dag og árdegis á laugardag til Hornafjarðar Djúpavogs Breiðdalsvíkur Stöðvarfjarðar Borgarfjarðar Vopnafjarðar Bakkafjarðar — og Þórshafnar. Farséðlar seldir á þriðjudag. SJALDSÉÐIR hvítir hrafn- ar, segir orðtakið, og engii* regla er án undantekningar, og nii sannast það enn sem áður, því hvítur hrafn hefur fundizt hér á landi. Hann sási í f jallina fyrir ofan Ólafsvík fyric nokkru, en margir vildu ekkl trúa sögunni fyrr en á þriðju- daginn, er hrafninn náðist heilu og höldnu. Og nú er hann kom- inn til Reykjavíkur — fljúg- andi með Birni Pálssyni seint i gærkvöldi. Kristófer Edilonsson, seim handsamaði fuglinn, laumaðisfc að honum í rigningu og þoku og greip hann þar sem hann sat á klettasyllu. Hann sagði, að svörtu bræður hans hafi ofsótfc hvítingjann og hrekkt hann ét ýmsa lund og telur að hvíta- krumma hafi raunar verið bjargað úr bráðum lífsháska frá þeldökkum bræðrum sín- um. Hvíti hrafninn verður til sýn is næstu daga í Miðbæjarbarna skólanum gegn smávegis gjaldi, en ágóða verður varið sem vísi að fuglasafni í barna- og ung- lingask'ólanum í Ólafsvík. Örlög krumma eru óráðin, en’ að loknum ævidögum sínum verður hann að sjálfsögðu stopp aður upp og varðveittur á nátt- úrugripasafni. Kristófer hafa þegar verið boðnar 15 000 kr. fyrir fuglinn. Ekki er vitað til þess með vissu, að hvítur hrafn hafi sézt hér á landi fyrr. j2 24, júlí 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.