Alþýðublaðið - 24.07.1959, Side 9

Alþýðublaðið - 24.07.1959, Side 9
c iÞróttir ) Handknattleiksmótið: FH sigraði iR með 14 gegn 12 KEPPNIN í handknattleiks- mótinu utanhúss, sem fram fer þessa dagana að Hörðuvöllum í Hafnarfirði, harðnar við hvern leik, og sigurvonir félaganna verða tvísýnni. FH vann ÍR með aðeins tveggja marka mun 14:12 og Afturelding vann sigur yfir Ármanni á síðustu 15 mín. leiksins 22:14. Mótið heldur áfram á morg- un (laugardag) kl. 16 og keppa þá Fram:FH og ÍR:Ármann og á sunnudag kl. 16 lýkur mótinu með leikjum Fram:lR og Aftur elding:FH. FH:ÍR 14:12 Eftir harðan og tvísýnan leik sigraði FH ÍR" með aðeins Birgir og Einar, FH. tveggja marka mun. Fram að síðustu mínútum' leiksins stóð markatalan ýmist á jöfnu eða félögin skiptust á að ieiða raeð einu marki. Er 10 mín. voru eftir af leiknum hafði ÍR náð fveggja marka mun, og hugðust tryggja sér sigurinn með leik- töf nokkurri, en er 4 mín. voru eftir hafði FH jafnað 12:12. Er 90 sek. eru til leiksloka skorar svo Sigurður Júlíusson fyrir FH og Pétur nokkrum sek. síð- ar. Þar sem úthald ÍR-liðsins er áberandi minna en FH-liðs- ins, átti FH að geta unnið þenn an leik með meiri markamun. Knattsppyrnudóm- arafélög í Eyjum og á Akranesi SU'N'NUDAGINN 19. þ. m. var stofnað knattspyrnudóm- arafélag í Vestmannaeyjum, er hlaut nafnið Knattspyrnudóm- arafélag Vestmartnaeyja. Stofnendur Þess voru sex. í stjórn þess voru kosnir Ól- afur Erlendsson formaður og meðstj. Óskar Axel Lárusson og Rútur Snorrason. Fundarboðendur voru knatt- spyrnudómararnir Grétar Norð fjörð og Baldur Þórðarson. Starfandi eru í Vestmannaeyj- um sjö knattspyrnudómarar. Þá var þennan' sama sunnu- dag stofnað dómarafélag á Akranesi. Hlaut það nafnið Knattspyrnudómarafélag Akra ness. Á stofnfundinn mættu sex dómarar. í stjórn ’voru kosnir Ólafur Ingi Jónsson formaður og með- stj. þeir Georg Elíasson og Jak ob Sigurðsson, Á Akranesi eru starfandi tíu knattspyrnudómarar. Fulltrúar fundarboðenda á stofnfundi félagsins voru knatt- spyrudómararnir Magnús V. Pétursson og Einar Hjartarson frá Reykjavík. En FH setti sig í sjálfheldu með að láta ÍR ráða hraða leiks ins allt fram á síðustu mínút- urnar, og mega FH-ingar þakka sínum sæla fyrir að hafa náð tökum á leiknum í lokin. Kom þarna fram mjög mikú „tak- tisk“ skyssa, sem hefði getað orðið þeim dýrkeypt. FH missti og af þrem marktækifærum í vítaköstum og má það furðu- legt heita af svo reyndum mönnum. ÍR lék mun ákveðn- ara og dreifðara spil en á móti Aftureldingu. — Gunnlaugur Hjálmarsson var þeirra sterk- asti maður að vanda og skor- aði 7 mörk í leiknum, þar af þrjú úr vítaköstum. AFTURELDING :ÁRM ANN 22:14 Fyrri hálfleikur var afar jafn og skiptust liðin á um að leiða og var staðan í hálfleik 10:9 Aftureldingu í hag. Strax í byrjun síðari hálfle^ks herti Afturelding sóknina, en náði þó ekki fyllilega yfirhöndinni fyrr en 15 mín. eru til leiksloka, en þá skora þeir 7 mörk og unnu leikinn með 22:14. — Styrkur Aftureldingar vex við hvern leik. Helgi Jónsson lék nú með iwwMmwwwwMwiiimm Tugþrautarkeppni meist- aramóts Reykjavíkur lauk á Melaveliinum síðastl. fimmtudagskvöld. Rvík- urmeistari varð Valbjörn Þorláksson, ÍR, hlaut 5486 stig. Afrek Valbjarnar í einstökum greinum voru sem hér segir: 100 m. 11,4, langstökk: 6,04, kúluvarp: 10,81 m., hástökk: 1,65 m. 400 m.: 54,4 sek., 110 m. grindahlaup: 16,5 sek., kringlukast: 35,32 m., stangarstökk: 4,00 m., spjótkast: 53,21 m. og 1500 m.: 5:09,4 mín. Annar varð Einar Frí- mannsson, KR, með 4475 stig, þriðji Karl Hólm, ÍR, 3827 stig. Brynjar Jens- son, HSH, tók þátt í tug- þrautinni, sem gestur og hlaut 3538 stig. Mun það vera nýtt héraðsmet. WWWWWWWWWMWWWWWW og skoraði 6 mörk í leiknum. Eftir þennan leik ögrar Aftur- elding FH til muna, en þau fé- lög mætast f síðasta leik móts- ms. Háð var keppni í 3000 m. hindru’l’.rhlaupi og varð Krist- leifur Guðbjörnsson, KR, meist ari, hljóp á 9:51,2 mín. í 10 km. hlaupinu á þriðju- daginn, þar sem Kristleifur sigraði á 32:29,8 mín., varð Reynir Þorsteinsson, KR, ann- ar á 38:47,2 mín Drengjameistaramóti fs- lands lauk á Melavellin- um á miðvikudagskvöld- ið. Mótið gefur tilefni til nokkurra hugleiðinga um frjálsíþróttirnar. Þátttakan í þessu drengjamóti var ekki nógu góð og er þetta þó sá aldur, sem íþróttaá- huginn er hvað mestur. Flestir keppendanna voru frá Reykj avíkurf élögun- um þrem, en áður hefur verið minnst á hinn vax- andi áhuga Hafnfirðinga, sem nú hlutu þrjá drengja meistara. En hvernig er það með hina stóru nágrannabæi Reykjavíkur, Keflavík, Akranes og Kópavog? Nennir enginn þar að æfa þessa karlmannlegu og skemmtilegu íþrótt, frjáls íþróttir? Þetta er þó sú grein, sem hæst ber á mestu íþróttahátíð heims hverju sinni, Olympíuleik unum. Heyrzt hefur, að hinn mikli íþróttabær Akranes, sé að fara af stað með nám skeið í frjálsíþróttum og er það gleðilegt. Vonandi reynist eins mikill kraft- ur í þeim þar og verið hef- ur og er í knattspyrnunni. 1 Kópavogi er léleg að- staða, en þar er einnig að aukast frjálsíþróttaáhugi og nýlega þreytti Kópa- vogur bæjakeppni við Hafnarfjörð og kom í ljós, að þar eru efnilegir í- þróttamenn. Áfram á þess ari braut! Einu sinni voru Kefl- víkingar harðir í horn að taka í frjálsíþróttum, það eru aðeins nokkur ár síð- an KR sigraði ÍBK í keppni með 8 stigum, en það er eins og knattspyrn an hafi gleypt allan al- mennan íþróttaáhuga bæj arins. Ekkert er nema gott um það að segja að iðka knattspyrnu, en fleiri skemmtilegar greinar eru til, þ. á. m. frjálsiþróttir. Við skulum vona, að Kefl víkingar fari einnig af stað með námskeið í frjáls íþróttum og reyni að laða æskuna að þeim, því að það sem mótin hér í höfuð staðnum vantar, en þar fara þau flest fram hér á landi, er meiri og almenn- ari þátttaka. Það er því lífsspursmál fyrir áfram- haldandi velgengni okkar í þessari íþrótt, sem hæst hefur borið á alþjóðamæli kvarða af þeim greinum, sem hér eru iðkaðar, að æskan komi í stórum hóp um til æfinga og síðan keppni. Það sem frjálsíþróttafé- lögin hér í Reykjavík vant ar tilfinnanlegast, er meiri þátttaka utan af landi og þess vegna er aðakallandi að nágrannabæirnir reyni að efla áhuga á frjálsí- þróttum og veiti Reykja- víkurfélögunum meiri keppni, fins og í knatt- spyrnunni. Það myndi hafa margt gott í för með sér og þá yrðu mótin á- nægjulegri en þau eru nú. Að lokum þetta: Frjáls- íþróttamót geta verið skemmtileg, ekki síður en knattspyrnukappleikir, en til þess þarf þátttaka að vera mikil, mótið að ganga vel og hörkukeppni í hverri grein. Sfeindór Guðjónsson varð 5- Betri árangur síðari daginn VEÐUR var heldur betra á síðasta degi Drengjameistara- mótsins, en þeim fyrri, enda var árangur betri og mótið skemmtilegra. Steindór Guðjónsson, hinn efnilegi ÍR-ingur varð enn tvö- faldur drengjameistari. Kristj- án Eyjólfsson veitti honum þó allharða keppni í 110 m. grinda hlaupinu og náði sínum bezta tíma, hann er í stöðugri fram- för og sigraði nú í þrístökk- inu, þar sem h-ann náði sínum bezta árangri. í 300 m. hlaup- inu sigraði Steindór með tölu- verðum yfirburðum, en þar varð Gunnar Karlsson, Umf. Ölf. ann-ar á sæmilegum tíma. □ SKEMMTILEGT HLAUP. Keppnin var jöfn og spenn- andi í 1500 m. hlaupinu, en Helgi Hólm sigraði eftir hörku- keppni vð Jón Júlíusson og Steinar llrlendsson. Allir þess- ir pi'ltar náðu sínum langbezta tíma og er þetta- í fyrsta sinn, sem þeir hlaupa á betri tíma en 4:30,0 mín. □ efnilegur KASTARI. Kristján Stefánsson var lang- bezti kastari mótsins, en hann kast-aði kringlunni bæði lengst og bezt. Hafnfirðingar þurfa að hlúa vel að þessu mikla íþrótta- mannsefni. Enginn v-afi er á því, að hann verður kominn 1 fremstu röð meðal fullorðinna eftir 2—3 ár, ef áhuginn helzt. ; lÍÍÉlJl! □ MIKLAR FRAMFARIR. Árangur í stangarstökki var ágætur hjá sigurvegaranum Páli Eiríkssyni, sem aldrei hef- ur stokkið svona hátt. Páll er mjög áhugasamur íþróttamað- ur og sýnir framfarir í hveju móti. Þessi árangur ha*s er hafifirzkt drengjamet. □ STEINDÓR 5-FALDUR MEISTARI. Sveit ÍR sigraði í 4x100 m. boðhlaupi, en í sveitinni voru Kristján Eyjólfsson, Jón Þ. Ól- afsson, Helgi Hólm og Steindór Guðjónsson. Þar nældi Stein- dór sér í fimmta drengj-ameist- arapeninginn. Auk þess varð hann annar í tveim greinum. Þetta er ágætt afrek hja þess- um unga og fjölhæfa íþrótta- manni. Heildarúrslit mótsins hafa orðið þau, að ÍR hlaut lang- flesta meistara eða 9, FH hefur 3 og KR 2. j j_| HELZTU ÚRSLIT 110 mi 'grindahlaup: Steindór Guðjónsson, ÍR 17,2 Kristján Eyjólfsson, Í-R 17,4 Örn Hallsteinsson, FH 19,9 1500 m hlaup: Helgi Hólm, ÍR 4:28,1 Jón Júlíusson, Á 4:29,5 Steinar Erlendsson, FH 4:29,5 Jón Sv. Jónsson, UMSK 4:51,6 300 m hlaup: Steindór Guðjónsson, ÍR 39,4 Gunnar Karlsson, UMFÖ 40,1 Þorvarður Björnsson, KR 41,8 Jón Björgvinsson, KR 42,2 Stangarstökk: Páll Eiríksson, FH 3,25 Steindór Guðjónsson, ÍR 2,90 Erl. Sigþórsson, UMFÖ 2,80 Þristökk: Kristján Eyjólfsson, ÍR 13,31 Þorvaldur Jónasson, KR 13,18 Kristján Stefánsson, FH 12,40 Kringlukast: Kristján Stefánsson, FH 41,46 Jón Þ. Ólafsson, ÍR 38,30 Páll Eiríksson, FH 33,89 Þorvaldur Jónasson, KR 33,20 4X100 m boðhlaup: Sveit ÍR 49,3 sek. (Kristján Eyj., Jón Þ. Ól., Helgi H., Steind.) Sveit FH 50,6 sek. & Félagslíf ICnattspyrnufé!a Þróttur Meistaraflokkur, 1. fl. og 2. flokkur. Áríðandi æfing í kvöldi kl. 8, á Melavellinum. MætiS stundvíslega. -— Þjálfari. KF FRAM. V. fl. áríðandi æf- ing verður á föstudag kl. 5.30 e. h. Á eftir verður valið £ Akranesferð. Áríðandi að all- ir mæti stundvíslega. Þjálfarinn. AlþýSublaðiS — 24. júlí 1959 Q

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.