Alþýðublaðið - 16.08.1959, Blaðsíða 1
40. árg. — Sunnudagur 16. ágúst 1959 — 172 tbl.
LEIT stendur yfir að lið-
hlaupa úr varnarliðinu í Keflav.
Ekkert er vitað um mianninn
frá því 3. ágúst, en vitað er, rað
hann átti vJngott við stúlku
eina hér í Reykjavík.
Hér er um að ræða ungan,
bandarískan pilt, sem að undan-
förnu hefur gengt herskyldu
sinni í setuliðinu í K.vík. 3.
ágúts s. 1. hvarf hann síöan,
sporlaust, og er hans leitað bæði
í Keflavík og Reykjavík. Hann
sást síðast í Keflavík kl. 8.00
þennan fyrrgreinda dag.
Er vitað, að hann átti vin-
gott við unga stúlku, íslenzka,
sem býr í Reykjavík, og er get- \
um að því 'leitt, að ef tip vill
muni hann einhvers staðar á
hennar vegum. Ekki hefur enn
heldur tekizt að hafa upp á
stúlku þessari, en lögreglan
mun vera að leita hennar.
Emil Jónsson,
forsætisráðherra
ÞINGLAUSNIR fóru fram í
gær og er þar með lokið sumar-
þinginu, sem staðið hefur skem-
ur en nokkurt annað þing um-
liðna áratugi, að því er Bjarni
Benediktsson, forseti Samein-
aðs þhngs, sagði £ þingsslitaræðu
sinni í gær. Verður nú efnt til
nýrra kosninga og fara þær
fram 25. og 26. október, sam-
kvæmt tilkynnhigu forseta ís-
lands, en saankvæmt nýju kosn
ingalögunum skulu haustkosn-
ingar fara fram tvo daga alls
staðar nema í Reykjavík, ef á-
stæða þykir ÍÚ.
Þingforseti, Bjarni Benedikts
son, sagði í raeðu sinni, að sum-
arþingið hefði tekið ákvarðanir,
sem valda mundu miklu um
örlög íslenzku Þjóðarinnar í
framtíðinni. Mönnum hefur
sýnzt á tvo vegu, sagði hann,
en víst ér að við sameinumst
allir um þá ósk að vel reynist.
Hann þakkaði þingmönnum fyr
ir samvistir og árnaði þeim og
fjölskyldum þeirra heilla.
Eysteinn Jónsson þakkaði í
nafni þingmanna og flutti for-
seta árnaðaróskir. Tók þing-
heimur undir þá ósk með því að
rísa úr sætum.
Eftir að forseti íslands, Ás-
geir Ásgeirsson hafði lesið for-
setabréf um þinglausnir og lýst
Framhald af 2. siðu.
Ægir lóSar
40 m. þykkar
forfur
ÆGIR er staddur hér inni
núna. Lóðaði hann í gær 40 m.
þykkar síldartorfur djúpt hér
úti fyrir. Eru menn vongóðir
um það eftir þessar fréttir, að
síldin eigi eftir að veiðast hér
talsvert ennþá.
Saltað hefur verið hér alls
í 1200 tunnur í sumar. Undan-
farið hefur síldin ekki verið
söltunarhæf heldur farið í
bræðslurnar. — G. S.
Samtaf við Emil Jónsson
ENN hefur eitt af bar-
ittumálum Alþýðuflokks-
ns verið borið fram til sig
irs, sagði Emil Jónsson,
'orsætisráðherra, að lokn
im þinglausnum í gær í
ftuttu samtali við blaðið.
ÍCjördæmaskipan landsins
?r komin í viðundandi
horf, og það er mikilsverð
réttarbót frá því, sem var,
því að jafn áhrifaréttur á
skipan Alþingis er í sjálfu
sér engu minna virði en
kc|sning|arétturinn sjálfur
og óhjákvæmilegur þáttur
í jafnrétti þjóðfélagsborg
aranna.
Með afgreiðslu þessa máls er
draumur Jóns Baldvinssonar og
brautryðjendanna að rætast. —
Leiðréttingin, sem gerð hefur
verið, jafnar ekki aðeins mis-
rétti fólksins eftir byggðarlög-
um, heldur einnig misrétti á
milli stjórnmálaflokkanna, og
þess vegna hefur Alþýðuflokk-
urinn sérstaklega ástæðu til að
fagna þessum áfanga. Hann hef
ur hér eftir betri vígstöðu í
nýjum kjördæmum heldur en
áður, eins og vel kom í ljós í
vorkosningunum, er jafnaðar-
menn urðu að gjalda eirivígis
Framsóknar og Sjálfstæðis-
manna í mörgum kjördæmum
Framhald á 2. síðu.
immiiiimiiiiiiiiiiiiiHHiimiimiiiiiiiiiiimiimmiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiimiiiiiiiiiiiijiiiHiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiii»iiimmtr.|í
i KRISTÍN Jóhannesdóttir
| lieitir þessi yngismey, sem
1 myndin er af. Hún er aðeins
| ellefu ára, en þótt liún sé ekki
| eldri en það, hefur hún lent
i í meira ævintýri en margir
1 hafa, sem eldri eru.
= Kristín er nýkomin úr 16
| daga ferð á Nýfundnalands-
1 mið. Þangað fór liún með tog-
| aranum Ágúst og var eina
| stúlkan á skipinu, en pabbi
= hennar, Jóhannes Jónsson, er
| vélstjóri á togaranum.
| — Hún var búin að rella um
i þetta í mörg ár, sagði mamma
I hennar, þegar tíðindamaður
| blaðsins leit inn hjá þeim
| mæðgum í gær.
— Og livernig var? Várstu
sjóveik, Kristín?
— Nei, nei.
— Hefurðu farið í sjóferð
fyrr?
— Aldrei svona langt.
— Hvað gerðirðu á skip-
inu? Hjálpaðir þú kokknum?
— Það var nú lítið, ég var
lielzt í vélinni.
— Jæja, svo þig langar
kannske ekkert til að vera
kokkur þegar þú ert orðin
stór?
— Nei, ég vildi þá frekar
eitthvað gera í vélinni.
— Dugleg stúlka .., komstu
nokkuð í hann krappann í
ferðinni?
Framhald á 9. síðu.
Sja OPNUNA