Alþýðublaðið - 16.08.1959, Qupperneq 3
EKKI ALLS FYRIR LÖNGU hóf Mjólkurbú Flóamanna
að sækja miólk austur í Vík í Mýrdal. ... Bændur í sveitum,
þar fyrir austan verða að kosta sjálfir flutning á mjólk sinni
til Víkur. ... Lengst er mjólk sótt að Núpsstað, sem er 319
km frá Reykjavík. ... Búizt er við erfiðleikum á því að
Ihalda þessum flutningum gangandi, a. m. k. að vetrinum.
Þýzkur sérfræðingur, Konrad Richter, sem hér var í
fyrra við rannsóknir á KÍSILLEIR í BOTNI MÝVATNS OG
PERLUSTEINI í LOÐMUNDARFIRÐI, segir í skýrslu sinni,
að kísilleirnáman í Mývatni sé sú stærsta í Evrópu og miklui
imeira magn sé í Loðmundiarfirði af perlusteini en áður var
talið.
Bindindisfélag ökumanna, sem ekki er ýkja margra ára,
starfar nú alis í 14 deildum víðs vegar um landið. .. . Fram-
Ikvæmdastjóri þoss er Ásbjörn Stefánsson. ... Annað landsþing
þess verður haldið í Reykjavík í haust.
Minnisvarði um Jón biskup Arason verður afhjúp-
aður á klausturrústunum á Munkaþverá í Eyjafirði á
sunnuda-ginn kemur. ... GUÐMUNDUR FRÁ MIÐDAL
1
hefur gert varðann. ... Þá hefur verið ræktaður minn-
ingarlundur um Jón biskup á Grýtu.
EINAR H. KVARAN skáld á aldarafmæli í desember næst-
ikomándi, og verður afmælisins a. m. k. minnzt af spíritistum
með því að birta úrval af ritgerðum Einars í Árbók félags þeirra.
Aðgangseyvir í Herjólfsdal á þjóðhátíð Vestmannaeyja nam
160 þús. kr. . .. UndirbúMngsneínd hátíðarinnar hét 1000 kr. á
Landakirkju fyrir góðu veðri og eyjaskeggjar undruðust þegar
Mpp stytti rétt áður en gleðin skyldi hefjast eftir samfellda ótíð
og gerði fegursta veður sumarsins. ... Um' leið og hátíðinni lauk,
tók að rigna á ný.
Eggert Þorsteinsson er ekki yngsti þingmaður í for-
setastóli 34 ára . . . Sigurður Bjarnason var hálfum mánuði
yngri, er hann var kosinn 1949. ... 7 þingmenn hafa verið
kosnir í þingforsetembætti yngri en fertugir. . . . Hinir
fijnm eru: Jón Sigurðsson kosinn forseti Sameinaðs þings
38 ára, 1849. .., Ásgeir Ásgeirsson forseti Sameinaðs
þings 35 ára, 1930. . .. Steingrímur Aðalsteinsson 39 ára
forseti efri deildar 1942. ... Klemenz Jónsson forseti
neðri deildar 38 ára 1901 .., Emil Jónsson forseti neðri
deildar 39 ára 1942.
Sandgræðsluflugvélin hefur undanfarið dre>ft áburði og
grasfræi í sandgræðslugirðingar í Þingey í Þin-geyjarsýslu, á
Grímsstöðum, á Mývatnsöræfum, nálægt Hrossaborg og í
Kelduhverfi. . •. Verið er að setja upp nýja sandgræðslugirð-
ingu á Nýhóli á Fjöllum.
Bókakostur Tæknibókasafns Iðnaðarmálastofnunarinnar er
nú hátt á annað þúsund. ... Aukningin á. síðasta ári var 300—
400 rit. ... 700—800 manns sækja safnið á ári.
Eftirfarandi er haft eftir séra ÁRNA ÞÓRARINSSYNI
í viðíali við RÍKHARÐ MYNDHÖGGVARA í Eimreiðinni
nýútkominni: „Það er ég viss um, að prestar eru langsam-
lega syndugustu menn á jörðu. Það er ekki fyrir það, að
i allir merm Ijúga meira og mpnna, en prestar ljúga í Jesú
nafni, araen, og taka fé fyrir, og það er svo mikil synd, að
enginn. guðdómur er svo mkkunnsamur, að hann geti fyr-
irgefið [það. og ef hann fyrirgefur það sa,mt, þá er það;
gIæpur-“
HOLLANDIA. Fimm hundr
uð metrar á dag þykir góð-
ur áfangi í hinum ókönnuðu
landsvæðum inni í hollenzku
Guineu. Sums staðar þætti
,það ærinn slóðaháttur, en
leiðangursmennirnir mega
bó hafa sig alla við.
í apríl síðast liðnum lögðu
70 vísindamenn af stað frá
höfuðstöðvum sínum í hin-
um afskekkta Sibildal ná-
lægt landamærum Papua.
Þeir ætla sér að komast til
Stjörnufjalla, sem eru um
35 km. frá, en þar hefur eng-
inn hvítur maður drepið nið-
ur fæti sínum til þessa.
Nú, nærri fjórum mánuð-
um seinna, er leiðangurinn
þó ekki nema vel hálfnaður,
enda þótt hann hafi, notið
góðrar aðstoðar frá helikopt-
um og hjálparliði útbúnu
nýtízkutækjum.
Á þriggia mílna fresti
höggva vísindaménnirnir
rjóður í frumskóginn, svó að
heiikoptarnir geti lent og
flutt þeim vistir og útbúnað.
Það er óþrifalegt og óþægi-
legt verk.
Þykk, límkennd og kvoðu-
leg leðja leggst á skóna
þéirra, og á hverju kvöldi
verður að skúra skóna upp
að utan og innan úr sápu og
vatni, þurrka þá svo og bera
á þá skóáburð. Leðrið mundi
Ýmsar tegundir af spilum
eru notaðar af áhöfn síma-
lagningaskipa til að „veiða“
símalínur. Frá vinSíri til f
WÉM' hægri eru eftirtaldar gerðir |
af spilum: Fishtail, Lucas f
' Cutting and Holding, Rennie, |
Gifford og Centipede.
.... ^ y!"'V wtwwTOWAwvwwmmM
oft svo mikið, að það orsakar
það, að símalínan slitnar og
detti úr spilinu. Til að forð-
ast bað er ,,the Lucas Cutting
and Holding11 spilið venjulega
notað. Það hefur arm með
klóm á báðum hliðum. Bitjárn
á arinarri klónni skerast inn í
símalínuna meðan hin klóin'
heldur endanum.
TOGARI er ekki eina skip-
ið, sem notað er til veiða.
Símalagningaskip fiska einn
5g — eftir símalínum, ekki
eftir þorski eða makríl, Skip-
stjórar og áhöfn togara geta
auðveldlega aðgreint síma-
lagningaskip í „veiði“-leið-
angri. Þessi skip munu hafa
uppi merkifána úr tveim rauo
um ferningum, aðskildum
með hvítum tígli, og meðan
þau veiða, munu þau fara
'fram og til baka milli bauja.
Símalagningaskipa áhafnir
nota alls konar spil til að
krækja í símalínur. Eins og
góðir veiðimenn myndu gera,
ef eitt dugar ekki, þá reyna
þeir annað. Hvaða tegund af
spili er notuð, fer eftir eðli
hafsbotnsins, aldri símalín-
unnar og sjávardýptinni. í
notkun eru yfir tylft af mis-
munandi gerðum — sumar eru
óhreyfanlegar, aðrar eru hreyf
anlegar, Það eru einnig til
gerðir, sem skera í sundur
símalínurnar 0g koma upp
me-ð annan endann. Eitt spil
getur sent merki til skipsins
þegar það nær djúpum sjó eða
þegar það grípur símalínu.
Elzta gerðin af spili, fimm
arma króna, er notuð þar sem
hafsbotninn er sandur eða
leðja. Þegar botninn er óslétt-
ur, er notað spil með hreyfan-
legum vörðum armi. Dæmi
um það er „the Centipede“-
spilið, sem samanstendur af
stálarmi með hreyfanlegum
krókum. Mjög traust spil fyr-
ir ósléttan hafsbotn, er gert
úr röð af tvíarma hlekkjum.
Gervihlekkur, sem festur er
fyrir framan krókana, heldur
hinni gripnu símalínu fastri.
Þessi tegund gengur undir
nafninu „the Rennie spil“.
Þegar símalína er dregin
upp úr miklu dýpi, er átakið
Þegar togaraskipstjórar sjá
símalagningaskip „á veiðum“
— eða við að leggja símalín-
ur —■ bá væri bezt fyrir alla
viðkomandi að forðast að
vera í nálægð, sérstaklega á
bakborða símalagningaskips-
ins. Ef veiðarfærin festast í
símalínu eða spili, á togarinn.
á hættu að missa vörp-
una. Símalínurnar hafa oft
háspennustraum, sem gæti al-
varlega sakað togaraáhöfn-
ina.
mælir
Tekið hefur verið í notkun
í Bandaríkjunum tæki, sem
er svo hárnákvæmt, að það
getur mælt, hve lengi hljóð er
að fara aSeins 10,16 cm vega-
lengd. Þess má geta, að hraði
hljóðsins er 1,6 km á sek. í
vatni.
lltllfl
rotna annars og eyðileggjast.
Það gerðist fyrir nokkru,
að það tók að rigna, þótt þá
ætti ekki að vera neitt regn-
tímabil, og helikoptasam-
göngurnar tepptust gersam-
lega. Þá varð að flytja vistir
fótgangandi gegnum frum-
skóginn.
Á Nýju-Guineu er eitt
stærsta ókannaða svæði
hnattarins, og leiðangurinn
er farinn til þess að gera
skarð í það svæði. Hollenzka
stjórnin gerir leiðangurinn
út, og tilgangurinn er .að
rannsaka dýralíf og bergteg-
undir framar öðru. Jarðfræð
ingar spá því, að í Stjörnu-
fjöllum muni vera að finna
nikkel, kobalt. tungsten og
gull. Stjörnufjöll er víða 4
•—5 þúsund metra yfir sjó.
En vísindarriénnirnir verða
ekki korrinir til Stjörnufjalla
fyrr en í október, því að ó-
víða er ógreiðfærara á hnett-
inum en þarna. Ef vc.l geng-
ur munu þeir vera í Stjörnu-
fjöllum í lok mánaðarins, en
ef illa gengur . . . ? Ja, það
má búast við, að þeir kom-
ist í meiri vanda en að vaða
fjallalæki og troða sér gegn-
um þéttan frumskóginn.
Á þessum svæðum hafast
við höfuðleðrasafnarar og
mannætur, Frumskógabyggj
ar, sem þeir hafa hitt til
þessa hafa verið þeim vin-
samlegir, en hverju getur
skógurinn ekki búið yfir?
BiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiniiiii Jiimiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiimiiiiuiiiiimimiiiiiiinimimiiiuiiiiiiiiiiiiimniiiiini)
AlþýðublaðiS — 16. ágúst 1959 ^