Alþýðublaðið - 22.09.1959, Side 10
IV. bréf Freysteins frá Bled:
BLE'D, 14. september. |
DEGI HALLAR., Vatnið er
slétt sem spegill. Við förum í
gönguferð meðfram því, til þess
að auka blóðrásina, næra sál-
ina. Trén skarta sínu fegursta.
rétt fyrir sólarlag. Við forð-
umst allan skarkala, en sættum
okkur við suð engisprettunnar.
Enn eru margir á ferli, og
þarna koma tveir kunnugir á
móti okkur. Annar ungur, dökk
ur á brún og brá, brosleitur.
Hinn miðaldra, feitlaginn, væru
kær.
Við sláumst í för þeirra.
Sá ungi er ættaður frá Arm-
eníu. Kunnugir kalla hann Tigr
an, aðrir Petrosjan. Hinn heitir
Boleslavsky.
Eitt sinn tók Boleslavsky þátt
í áskorendamóti. Hann varð
efstur og tapaði engri skák, en
Bronstein nokkur náði honum
í síðustu umferð og sigraði í
einvígi, með hjálp heppninnar,
sögðu sumir.
Nú er Boleslavsky aðstoðar-
maður Tigrans, og Tigran fet-
iar í fótspor félaga síns. Eftir
sigur hans yfir Keres í fjórðu
umferð er hann heilum vinn-
ing á undan næstu mönnum.
Við spurjum hann um þá skák.
„Þú fékkst erfiða stöðu upp
úr byrjuninni á móti Keres?“
,,Já, ég bafði lakara lengi vel,
svo tókst mér að jafna, en 39.
leikur minn var mjög slæmur
afleikur. í stað þess að leika
peðinu fram, hefði ég átt að
leika Dh4 og hefði þá enn hald-
ið jöfnu“.
,,Já, staðan var ekki sérlega
góð hjá þér, þegar hún fór í
bið, en svo var Keres of hæg-
fara?“
„Já, hann hjakkaði alltof
lengi í sama farinu“, segir Tigr
lan. „Og svo kom þetta--------“
bætir hann við brosandi. Meira
þarf hann ekki að segja, við
vitum að hann á við hina glæsi-
legu hróksfórn og drottningar-
fórn, sem knúði Keres til upp-
gjafar vegna óverjandi máts.
„Meðal annarra orða, ekki
manstu líklega, hvað þú hefur
teflt mai'gar skákir við Keres?“
„N-ei, ekki man ég nú töluna,
þær eru orðnar nokkuð margar,
en ég mun hafa eina yfir, það er
að segja þessa“, segir Tigran.
„Þú ættir heldur að spyrja
Smyssloff hvað hann hefur
teflt margar skákir við Botvinn
ik“, skýtur Boleslavsky inn í.
„Þær munu vera eitthvað um
áttatíu", segjum við.
„Meira — segir Tigran —
þeir' hafa teflt brjú einvígi“.
„Já, og margar skákir þar
fyrir utan,“ segium við.
Svo fara þeir félagar að rifja
upp fyrir sér', hvað þeir Bot-
vinnik og Smyssloff hafa teflt
margar kapnskákir isaman. Nið-
urstaðan verður nálægt níutíu.
„Ef þeir tefldu eitt einvígið
enn, myndu þær fylla hundrað-
ið, og vel það“, segjum við.
Petrosian verður hugsi. —
Sjálfsagt hefur hann hug á að
fefla sjálfur næsta. einvígi við
Botvinnik. Við erum þeirrar
skoðunar, að líklega fái hann
því framgengt, en óbarfi er að
skjalla hann, rneð því að segja
honum þá trú okkar.
Brátt kveðjum við þá félaga,
viljum ekki eiga á hættu að
valda þeim ónæði. Ef til vill
eru þeir að brugga einhverjum
banaráð — á skákborðinu.
Við höfum áður, eitt sinn við
matborðið, spurt Tigran um
skák hans við Friðrik í fyrstu
umferð.
„Var það ekki tiltölulega auð
veldur sigur?“ spurðum við.
„JÚ, því verður ekki neitað“,
svarar Tigran.
„Friðriki hættir til að nota
of mkinn tíma í byrjunina, —
finnst þér það ekki?“ spyrjum
við.
„Gegn mér eyddi hann einni
klukkustund og fjörutíu mínút-
um á fyrstu 13 leikina, sem öll-
um hefði mátt leika án umhugs-
unar“, svarar Tigran. Við höld-
um áfram göngunni við vatnið
og hugsum í furðu um verka-
mannasoninn frá Armeníu, sem
átti í miklum erfiðleikum í upp
vexit, en náði svo heimsfrægð
á sínu sviði. Hann hefur hríf-
andi persónuleika, lítillátur
Ijúfur og kátur. Ef Friðrik hefði
hraða hans, tækni og stöðumat,
þá væri hann ekki á flæðiskeri
staddur. í leikfléttu stendur
Friðrik engum að baki.
Myrkrið er að skella á. Við
mætum ungu pari með vorbros
á vör, og gömul hjón sitja á
bekk með haustkyrr-ð í hjarta.
Þau horfa út á vatnið. Ljósin
kvikna eitt af öðru. Vatnið log-
ar. Staki turninn í eyjunni Ijóm
ar í birtu ljóskastaranna. Kast-
alabergið brennur. Fiskur stekk
ur upp úr vatninu, og trén
standa leyri’dardómsfull í
myrkrinu. Við höldum heim-
leiðis. Hverfum aftur til efnis-
ms
Fneysteinn.
Vegna rúmleysis ■ verður að
sleppa síðari hluta þessa frétta-
bréfs frá Bled.
i
SKlPAUTí.tRB HIMSISS
M.j Skjaldbrefð
fer vestur um land til Akur-
eyrar, mánudaginn 20/9. Tek-
ið á móti flutningi á morgun
til Tálknafjarðar og áætlana-
hafna á Húnaflóa og Skaga-
firði og Ólafsfjarðar. Farseðl-
ar seldir árdegis á laugardag.
Skaftfellingur
fer til Vestmannaeyja í kvöld
— Vörumóttaka daglega.
Molasykur
p ó 1 s k u r
Strásykur, Cúba
Flórsykur
Púðursykur
Kandís í lausu — og
pökkum
Nýbrentt og malað
kaffi í cellophan-pökkum
Verð landbún-
á ÞIHG!
HANESN KJARTANS-
SON aðalræðismaður og
Thcir Thors ambassador
voru mættir fyrri íslend-
inga, þegar 14. allskerjar-
þing S.Þ. var sett í New
York fyrir helgina. Full-
trúar 82 i.-íkja voru þarna
— þar á meðal náigea 50
utanríkisráðherrar. — Á
myndinni er ræðismaður-
inn til vinstri.
lllllIII«<IIIItIIIIIIlllllltII><llllllllllllllIIIII!IIIIlllllllllllllllllIIIIIlEllEIIIIlllllllIIIII>>irillIIIIIIIIIIIIIIISIll«lllllB|IIllHIII>k
Þingholtsstræti 15
Sími 17283
BANDARÍKJAÞINGI var
slitið 15. þessa mánaðar. —
Hafði það staðið í níu mánuði
eða lengur en nokkurt annað
þing í sögu Bandaríkjanna.
Síðustu málin, sem það af-
greiddi vonu jhin umdeilídu
lög um gagnkvæmt öryggi og
per'sónurétt.
Síðasta verk þingsins var
að samþykkja að veita 3626
milljónir dollara til sameig-
inlegra öryggismála og ríflega
fjárupphæð til að hægt verði
að halda áfram störfum nefnd
ar þeirxar, sem endurskoðar
persónuréttinn.
Önnur merk mál, sem þing-
ið afgreiddi má nefna: Upp-
töku 'Hawaii sem 50. ríki
Bandaríkjanna. Lög, sem
koma eiga í veg fyrir spill-
ingu í verkalýðshreyfingunni.
Lög um íbúðabyggingar, Lög
um fjölgun flugvalla. Aukna
aðstoð við uppgjafahermenn.
Fjármálaráðsfafanir ýmsar á
alþjóðlegum vettvangi.
Demókratar hafa yfirgnæf-
andi meirihluta í báðum de.ild
um þingsins og telja Þeir sig
hafa séð til þess að. aígreidd
hafi verið merkileg lög en Re-
públikanar segja að almenn-
ingur hafi sýnt ráðstöfunum
Eisenhowers fullan síuðmng
og þar af leiðandi hafi Demó-
kratar orðið að beygja sig und
ir vilja hans. Þingið gerði að
éngu neitunarvald forsetans
í einu máli, lögum um ár og
hafnir, er það í eina skiptið,
sem þingið hefur virt neitun-
arvald Eisenhowers að vett-
ugi.
Þingið veitti 695 milljónir
dallara til varnarmála, 550
milljónir’ til framkvæmdalána
•— 150 milljónir til tækniað-
stoðar, 1 3 000 milljónir til
hernaðaraðstoðar, 245 mill-
jónir til sérstakrar aðstoðar
og 155 milljónir í sjóð, sem
Bandarikjaforseti hefur um-
ráð yfir.
Lyndon Johnson, formaður
Demokrata í öldungadeildinni
sagði að fyrir næsta þing yrði
lagt frumvarp um persónurétt
— Næsta þing á að réttu að
koma saman 6. janúar 1960
en forsetinn getur kallað það
saman fyr^ ef honum þykir
mikið við liggja.
lússar noía kafbáfa
KRÚSTJOV ræddi vi® skip-
stjóra í San Fl.-ancisco í gær.
Vaktj það mikla athygli, er
Krústjov greindi frá því, að
Rússar hefðu nú tekið upp mjög
nýstárlega aðfero við síldveið
ar. Þeir væru farnir að nota
kafbáta við veiðn:'nar. Þá sagði
Krústjov ennfremur, að Rússar
væru að leggja öllumi beitiskip-
um sínum en í staðinn kæmu
kafbátar. Fréttaniönnum' ber
saman um það, að Krústjov
hafi verið betur fagnað í San
Francisco en í öðrum bcirgum
Bandaríkjanna.
Framhald af 4. síðu.
ur ágreiningur um heimild
framleiðsluráðs til að hækka
verð á kjöti innanlands til
þess að bæta upp lægra verð
á erlendum markaði, eins og
framleiðsluráð hafði gert á sl.
hausti. Héraðsdómur staðfesti
nýlega rétt framleiðenda til
slíkrar hækkunar. Fulltrúar
neyenda hafa áfrýjað þeim
dómi til hæstaréttar og lýstu
því yfir hinn 17. þ. m. að sam-
kvæmt ákvörðun þeirra sam-
taka, er tilnefna þá, gætu þeir
ekki haldið áfram þátttöku í
verðlagsnefnd landbúna.ðaraf
urða fyrr en endanlegur úr-
skurður lægi fyrir um þetta
atriði, og gætu þar af leið-
andi ekki tilnefnt menn í yf-
irnefnd þá, sem skera á úr
ágiteiningjsáitriðum, Af þess-
um sökum gat ákyörðun verð-
grundvallarans ekki farið
fram með þeim hætti, sem
lög gera ráð fyrir.
Sumarið og haustið 1958
hófust hér á landi örar víxl-
hækkanir verðlags og kaup-
gjalds, sem á fáum mánuðum
leiddi þjóðina á barm algerr-
ar upplausnar í efnahagsmál-
um. Það varð hlutverk þeirr-
ar ríki sstj órnar, sem nú situr,
að stöðva þessa þróun og
tryggj a rekstur atvinnuveg-
anna.
R
\ÐSTAFANIR þær, sem
gerðar voru í þessu skyni,
hafa borið þann árangur, að
engar hækkanir hafa orðið á
verðlagi og kaupgjaldi í land-
inu og atvinnuvegir þjóðarinn
ar hafa á þessu ári.getað starf
að með eðlilegum,hætti. Rík-
isstjórnin telur það skyldu
sína, að koma í veg fyrir að
víxlhækkanir verðlags og
kaupgjalds íiefjist á nýjan
leik og ný upplausn skapist í
efnahagsmálunum áður en ný
ríkisstjórn,.studd meiri hluta
alþingis, tekur við stjórnar-
taumunum. Flest verkalýðsfé
lög hafa nú samninga sína
lausa, en ríkisstjórnin telur
fulla ástæðu til að ætla, að
verkalýðsfélögunum og öðr-
um launþegasamtökum sé það
Ijóst ^samhengi efnahagsmál-
anna, að þau fari ekki fram á
kauphækkanir á meðan verð-
lag helzt óbreytt. Á hinn bóg-
inn telur ríkisstjórnin fullvíst,
að sérhverri hækkun á verði
landbúnaðarafurða eða aukn-
um niðurgreiðslum verði beg-
ar í stað svarað m.eð kröfum
um kauphækkun.
u
NDIR þessum kringum-
stæðum taldi ríkisstjórnin
ekki koma annað til greina
en að festa verð landbúnað-
arfurða á þann hátt, sem nú
hefur verið gert, þangað til
nýkjörið alþingi og ný ríkis-
stjórn geta um þessi máj fjall
að. Er ríkisstjórnin þess full-
viss, að með þessu móti sé
hagsmunum íslenzku þjóðar-
innar -allrar bezt þjónað.
10 22. sept. 1959 — Alþýðublaðið