Alþýðublaðið - 23.09.1959, Page 5
I
HEIMSFORINGI komm-
únista og einn helzti auð-
kýfingur Arneríku áttu 22
mínútna fund saman á
föstudaginn (sjá mynd).
Þeir hittust í húsi því, sem
sovézki forsætisráðherr-
ann hefur aðsetur í á með
an á Ameríkudvöl hans
stendur.
Rockefeller hefur látið
svo ummælt, að fundur
þeirra hafi verið sérlega
einlægur. Hann sagði, að
sumir hefðu sagt, að heim
sólmin mundi vera til þess
að brúa djúpið á milli há-
kommúnista og háauð-
valds.
Rockefeller hefur oft
verið' nefndur líklegur
sem frambjóðandi Repu-
blikana í forsetakosning-
unum 1960, og hann var
því spurður eftir viðræð-
ur hans við Krustjov,
hvort Sovétleiðtoginn hafi
ekkj látið í Ijósi neina
undrun yfir því, að Rocke-
feller skyldi hafa verið
kosinn borgarstjóri, þar
eð liann og ættfeður hans
hver fram af öðrum hafi
verið auðkýfingar.
Rockefeller hló við, er
hann heyrði þessa spurn-
ingu, en svaraði því til,
að í rauninni hafi Krús-
tjov verið hissa á þessu,
og hann hefði sagt, að
svonalagað gæti aðeins
hent í Ameríku.
Rockefeller var spurður
um persónulegt álit hans
á Krústjov, Hann svaraði:
„Ég mundi segja að hann
væri mjög duglegur“.
Halcðið verður
I BYRJUN okt. n.k. er ald-
arfjórðungur liðinn frá því er
gamli stúdentagarðurinn var
tekinn í notkun. Vistmenn
fyrsta ársins, 1934—35, hafa
nú bundizt samtökum um, að
minnast Gamla Garðs, sem var
fyrsta sameiginlegt heimili
stúdenta við háskóla Islands. I
framkvæmdanefndinni eru Jó-
London, 22. sept. (Reuter).
KVIKMYNDA- og lekfólk í
London þyrptist í kirkju í dag
til þess að vera viðstatt minn-
ingarathöfn um hina fögru leik
konu, Kay Kendall, sem lézt
fyrir skömmu héf á sjúkrahúsi
úr blóðliirabha aðeins 32 ára að
aldri. ,
Rex Harrison, eiginmaður
hinnar látnu og synir þeirra
tveir komust inn um hlðardyr,
en kirkjan var þéttskipuð.
Vivien Leigh leikkona hélt
meðal annarra þakkarræðu og
sagði þar um Kay Kendall, að
það hefði verið eins og hún
hefði haft eítthvert hugboð um
það, að hún mundi ekki njóta
Iífsisn lengi, því að hún hefði
varið hverri stund með slíkri
niuiimiimittiiiiiiiiiittitMimKamiciiimiiitfemmuiK1
umhyggju eins og hún vissi, að
hún mætti engum tíma eyða til
ónýtis.
Sambandsþing
ökumanna
KORSÍKUMAÐUR nokkur,
sem starfaði sem aðstoðarmað-
ur í eldhúsinu á hóteli því, sem
Krústjov mun dvelja á í San
Fransisco var handteldnn í gær
ákærður'fyrir morð í París.
Maðurinn þverneitaði ákær-
unni og sagði, að myndin, sem
lögreglan hafði í fórum sínum,
væri af frænda hans en ekki
honum sjálfum. Lögreglumenn
irnir staðhæfðu aftur á móti,
að fingraför hans væru þau hin
sömu og morðingjans frá París,
en fyrir tug ára var kona myrt
í París og líkið rænt, en morð-
ingjans hefur verið leitað um
víðan heim án árangurs til
fessa.
Nú er lögreglan þess fullviss,
að hún hafi fundið hinn rétta
mann og situr nú fyrrverandi
aðstoðarmaður í eldhúsinu
inni, þrátt fyrir kröftug mót-
mæli sjálfs hans.
SAMBANDSÞING Bindind-
isfélags ökumanna var haldið í
Reykjavík s. 1. laugardag. Mætt
ir voru á þinginu 12 fulltrúar
víðs vegar að af landinu, svo
og allir sambandsstjórnarmenn,
utan einn, er átti um langan
veg að fara. Nokkrar deildir
gátu ekki sent fulltrúa.
Miklar umræður urðu á þing
inu um ýmis félagsmál, svo sem
tryggingamálin, störf deildanna
í umferðamálum, svo og félags
starf innan þeirra. Rætt var um
stofnun unglingadeilda, að taka
upp góðakstra að nýju og auka
kynningu á félaginu og starf-
semi þess sem kostur væri. í
ítarlegri skýrslu miðstjórnar
kom frarn, að táía deilda og fé-
laga hafði tvöfaldazt á tveim-
ur árum. — Samþykktar vóru
ýmsar ályktanir.
Forseti sambandsins var end
urkjörinn Sigurgeir Albertsson.
Heiðursfélagi Bindindisfélags
ökumanna var kjörinn Steinar
Hauge, forstjóri í Osló. Næsti
þingstaður var ákveðinn í
Reykj avík.
fagna ákvðrðiin
neytenda
FUNDUR var nýlega haldinn
í Félagi bifreiðasmiða, og voru
þar ræddir samningar félags-
ins við atvinnuveitendur og
ýmis önnur mál.
Fundurinn gerði eftirfarandi
ályktun samhljóða: „Fundur
haldinn í Félagi bifreiðasmiða
21. sept. 1959 lýsir stuðningi
sínum við þá ákvörðun fulltrúa
neytenda í verðlagsnefnd land-
búnaðarafurða að gera það, sem
í þeirra valdi stendur til þess,
að almennar verðhækkanir
hefjist ekki á ný með þeim af-
leiðingum, sem öllum ættu að
vera ljósar“.
BANDARÍKJAMENN á Kefla-
víkurflugvelli hafa oft kvartað
yfiir því, að íslendingar og aðrir
aki þar allt of hratt. Einkum
er þeim ilía við þennan hraða
akstur við barnaskólann.
Nú hafa þeir gripið til þess
ráðs, að grafa niður í malbikið,
þvert yfir veginn, 5 til 6 tommu
rör báðum megin við barna-
skólann og einnig við verzlun
hersins.
Eru rörin grafin niður til
hálfs og verða bílarnir að hægja
mjög á sér, til þess að taka
ekki niðri.
hann Hafstein bankastjóri, f®r-
maður, en meðstjórnendur
Ragnar Jóhannesson bókavörð-
ur, Akranesi, Gunnlaugur Pét-
ursson, borgarritari, Þorvaldur
Þórarinsson, lögfræðingur ®g
Þórarinn Sveinsson læknir.
Áformað er, að sem flestir
þeirra, er á Garði hafa búið
næstliðin 25 ár komi saman til
nokkurs fagnaðar, ásamt kon-
um sínum, laugardaginn 10.
okt. n. k. Er þess fastlega
vænzt, að Garðbúar fjölmenni
og tilkynni bókara Garðs,
Gunnari Andrew, þátttöku sína
í síma 16037 kl. 12—2 síðd. og
16842 kl. 2—5 síðd. eigi síðar
en 25. þ. m.
OIMMMMWWtvmMHmMMV
Datí ofan í brunn
MAÐUR NOKKUR, féll of-
an í brunn í fyrrakvöld á móts
við Laugaveg 178. Hafði hann
stigið ofan á járnlok en það
látiff undan og hann dottið ofan
í brunnninn. Var maðurinn
fluttur á slysavarðstofuna. —
Kvartaði hann um verki í haki
og höfði.
VEGNA fillögu frá Banda-
lagi íslenzkra listamanna um
að listamaður verði Þjóðgarðs-
vörður hefur komið fram tií-
laga um að biskupsnn yfir ís-
landi gegni emhætti Þingvalla-
prests, en að prestssetur þar
leggist niður.
SAUÐARKROKI, 16. sept. —
Ingvar Guðjónsson var að
leggja hér upp í gærkvöldi ca.
50 lestir eftir rúmlega yiku
tíma á trolli. Fiskiver Sauðár-
króks hefur hann á leigu í eitt
ár.
Jassklúbburinn
hefur sfarf
JAZZKLtJBBUR Reykjavík-
ur byrjar félagsstarfsemi sína
næstkomandi laugardag 26.
sept. í Framsóknarhúsinu. —
Mjög verður vandað til þessa
fyrsta fundar vetrarins og
meðal annars kemur þar fram
hljómsveit Björns R. Einars-
sonar og kvartett Jóns Páls
Bjarnasonar ásamt trompet-
leikaranum Viðari Alfreðssyni.
Félagsstarfsemin mun verða
rekin með nokkuð breyttu sniði
frá því sem var, og er þá fyrst
að nefna að fundir verða að-
eins hálfsmánaðarlega og verð-
ur annar fundur músíkfundur
á móti fræðslufundi, sem reynt
verður að gera sem fjölbreytt'
asta úr garði. Þar á meðal koma
fram þekktir menn á sviði tón-
listarinnar og flytja fyrirlestra
auk margs annars, sem klúbb-
urinn hefur á prjónunum til
fræðslu og skemmtunar.
Slátrun sauðfjár er að hefj-
ast hér hjá Kaupfélagi Skag-
firðinga og hefst fljótlega hjá
Verzlunarfélagi Skagfirðinga,
sem er að ljúka við byggingu
sláturhúss. Mikil atvinna hef-
ur verið hér þetta ár og af-
koma fólks góð. Er nú svo
komið, að fólk leitar eftir að
flytjast hingað í bæinn frá
öðrum stöðum, m. a. frá Rvík.
Eru brögð að húsnæðisvand-
ræðum hér, þó að mikið sé
byggt. — K. Þ.
TOKÝÓ; — Aðeins um 50
Kóreubúar meðal 600.000, sem
nú dvelja í Japan, hafa beðið
um að komast til Norður-Kóreu
aftur, þegar japanski Rauði
krossinn hóf móttöku heimfar-'
arbeiðna í dag á 3.655 skrif-
stofum hér og hvar um landið.
GRINDEAL, Sviss, 21.
sept. (Reuter). — Átta
ára enskur skóladrengur
kleif í dag ppp á hið 12.
000 feta háa Wetterhorn.
Hann er sá yngsti allra
þeirra, sem þetta afrek
hafa unnið.
Drengurinn heitir Tim-
othy Fearon. Hann fór
þetta í fylgd með bróður
sínum, sem er tólf ára og
föður sínum, brezkum lög-
fræðingi, en tveir sviss-
neskir leiðsögumenn leið-
beindu feðgunum upp á
tindinn.
„Ég var ekki hræddur
fyrir fimm aura“, sagði
litli kappinn, þegar niður
kom, „en það var skemmti
legra að ganga upp en
niður“.
Hópurinn lagði af stað
síðla í gærkvöldi, en
dvöldu yfir nóttina í fjalla
skýli. Tindinum náðu
þeir í morgun.
Afi Fearon var fyrstur
allra manna til að klífa
tind þennan fyrir nærri
100 árum.
Fregn til Alþýðublaðsins.
Reyðarfirði í gær.
SLÁTRUN hófst hér 17. sept.
Slátrað verður 40—50 þúsund
fjár á vegum Kaupfélags Hér-
aðsbúa, í þremur sláturhúsum:
Egilsstöðum, Fossvöllum og
Reyðarfirði. Lömbin virðast
ætla að verða heldur rýrari en
í fyrra, ca. 1 kg. minni meðal-
þungi.
Heyskapur er svo að segja
búinn hér um slóðir, enda hef-
ur verið ágætur þurrkur að
undanförnu. í dag er að kólna
í veðri.
„Snæfugl“ fékk gott kast,
250 mál, hér úti á firðinum í
vikunni sern leið. Rær bátur-
inn út á kvöldin að huga að
síld í firðinum, en aflinn er
smár. — G. S.
Alþýðublaðið — 23. sept. 1959 *§.
I