Alþýðublaðið - 01.10.1959, Qupperneq 5
Fregn til Alþýðublaðsins.
SANDGERÐI f gær.
Lokið hefur verið við leng-
ingu aðalbáíabryggjunnar í
Sandgerði á þessu sumri. Hefur
^rysgjan nú verið lengd um
tæpa 40 metra og er þessi nýi
hluti 2,5 metrum breiðari en
það sem fyrir var. Er það gert
til þess að þær stóru bifreiðar,
LONDON, 30. sept. (REUTER).
Croydon-flugvelli, einum elzta
og sögulegasta flugvelli heims,
sem nú er orðinn umluktur í-
búðarhverfum vegna stækkun-
ar Lundúna, var lokað í dag
eftir þriggja ára baráttu við að
halda honum opnum.
Croydon-flugvöllur var ein
af vöggum flugsins, en hefur nú
orðið að greiða fyrir framfar-
irnar á sviði flugmála, því að
nú eru brautirnar orðnar of
stuttar, svo að engar stórar
flugvélar geta lent þar.
Síðasta vélin,sem notaði flug
völlinn, var fjögurra hreyfla
vél af Heron-gerð, er flaug tii
Amsterdam méð 10 farþega. —
Nú er hugmyndin að nota flug-
völlinn undir byggingar.
sem nú eru aðallega notaðar,
eigi auðveldara með að athafna
sig við afgreiðslu bátanna og
að eðlileg umferð um bryggj-
una truflist sem minnst. Þá hef
ur einnig verið steyptur skjól-
veggur ofan á allan útkant
bryggjunnar.
Vinna við framkvæmd þessa
hófst um miðjan júní s.l. og
hafa 15 til 20 menn haft þar
stöðuga vinnu síðan. Verkstjóri
var Bergsveinn Breiðfjörð og
kafari Grímur Guttormsson, en
Magnús Konráðsson verkfræð-
ingur hefur yfirumsjón með
byggingu Sandgerðishafnar f.h.
Vtamálaskrifstofunnar. Kostn-
aður við byggingu þessa er ekki
fyllilega uppgerður ennþá, en
mun verða allt að 1,7 millj. kr.
Vegna hættu á skemmdum
af völdum veðra, sem oft eru
snörþ hér á háustin, var ekki
lagt í að halda verkinu lengra
áfram að þessu sinni, en ákveð-
ið er að hefja áframhald strax
á næsta vori, og á höfnin í því
skyni tilbúið eitt steinker, 12tú
X 12Vé meter. 'Var það steypt
í Kópavogi og verður geymt
þar í vetur. — Ól. Vilhj.
KAUPM-HÖFN 29. sept. (Reut-
er). Albert Schweitzer, hiíin 84
ára heimspekingur, tónlistar-
maður og trúboðslæknir, veitti
í dag viðtöku hinum 100,000 kr.
dönsku Sonning verðlaunum
fyrir fórnarstarf hans í Afríku.
BÆJAR- og sveitastjórnai:--
kosnin-garnar fóru fram í Nor-
egi í fyrradag. Úrslit eru ekki
að fullu kunn, en augljóst er að
VöruskiptajöW-
urinn Öhagsfæður
um 245,6 millj.
ÞAÐ sem af er þessu ári er
vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 245,6 milljónir. Á
sama tíma í fyrra nam vöru-
skiptahallinn 224,9 milljónum.
Útflutt var alls í ágúst sl. fyr-
ir 82,9 millj. (í fyrra 98 millj.).
Útflutt alls jan.—ágúst 1959
fyrir 677,3 millj. (í fyrra 628,2
millj.).
Innflutt alls í ágúst fyrir 98,7
millj. (í fyrra 88,4 millj.). Inn-
flutt alls jan.—ágúst 1959 fyr-
ir 922,8 millj. (í fyrra 853,2
millj.).
Vöruskiptajöfnuðurinn í ág-
úst þetta árið var óhagstæður
um 15,7 millj. (á sama tíma í
fyrra hagstæður um 9,7 millj.).
Það sem af er árinu er hann
nú óhagstæður að því er nemur
245,6 millj. (á sama tíma í fyrra
nam vöruskiptahallinn 224,9
millj.).
kommúnistar hafa stórtapað
fylgi, en Alþýðuflokkurinn og
hægri menn unnið á. Vinstri
flokkurinn hefur einnig unnið
nokkuð á. Aðrir flokkar standa
í stað.
í Osló vann Alþýðuflokkur-
inn þrjú sæti, en kommúnistar
töpuðu tveimur af fimm. Kom-
múnistar töpuðu einnig tveim-
ur sætum í Bergen.
Hlutfallstölur flokkanna eru
þessar, í svigum tölurnar við
kosningarnar síðustu.
Alþýðufl. 44,4% (44,0). Kom-
múnistar 4,0% (6,4). Hægri
19,4% (17,5). Miðflokkur 7,8%
(7,0). Kristilegi flokkurinn
7,4% (7,4). Vinstri 8,9% (7,9).
Sleppt er ýmsum smáflokkum.
xA í ðllum
kjðrdæmum. i
Utankjörstaðaatkvæða- I
greiðsla er hafin. Kjósénd :
um Alþýðuflokksins skal j
bent á það, að listi Alþýðu j
flokksins er A-listi í öll- •
um kjördæmum. I
WWiWWVWWWWWVW
Margt er
bölið
ACCRA 65 ára gamall
bóndi í Ghana, sem á-
kærður er fyrir a ð hafa
reynt að fremja sjálfs-
morð, kveðst hafa ætlað
að gera það vegna þess að
hann ætti 7 konur og 30
börn. „Ég var svo ruglað-
ur, að ég vildi deyja,“
sagði hann. Hann tók eit-
ur ,en ein kona hans fann
hann í tíma.
vvwwwwwwwwww
í GÆR voru Arndísi Björns-
dóttur leikkonu veitt leiklistar-
verðláun úr minningarsjóði
Soffíu Guðlaugsdóttur leik-
konu. Verðlaunin eru ekstytta,
sem nefn der Skálholtssveinn-
inn.
Formaður sjóðsnefndar, Vil-
hjálmur Þ. Gíslason útvarps-
stjóri, afhenti Arndísi verðlaun
in fyrir frábært starf í þágu
leiklistarinnar og leik hennar
nú síðast í leikriti Þjóðleikhúss
ins á sl. vetri, Húmar liægt að
kvöldi.
Verðlaunin voru afhent við
hátíðlega athöfn á heimili leik-
konunnar í gær. í fyria átti
Arndís Björnsdóttir 40 ára leik
afmæli, en afmælið var hátíð-
legt haldið í ár og „afmælisleik
ur“ hennar var í Húmar hægt
að kvöldi.
Ræða á ný um
endurgreiðslsi
láns- og leigu-
sendinga.
WASHINGTON, 30. sept. (NTB
AFP). Eina efnahagsmálið, sem
samkomulag náðist um í við-
ræðum Eisenhowers og Krú-
stjovs 1 Camp David, var að
hefja að nýju samningaviðræð-
ur um uppgjöf vegna láns- og
leigusendinga Bandaríkjanna
til Rússa í síðasta stríði, sagði
Dillon, vara-utanríkisráðherra,
í dag á blaðamannafundi. Kvað
hann samkomulag um þetta at-
riði mundu bæta viðhorfið mik-
ið og styðja tilraunir til að fjar-
lægja hindranir fyrir frjálsri
og friðsamlegri verzlun land-
anna, sagði Dillon.
21. IÐNÞING íslendinga vair
sett í Tjarnarcafé í Reykjavík
miðvikudaginn 30. september
1959 kl. 2 e. h. af forseta Lands
sambands iðnaðarmanna, Björg
vin Frederiksen.
Ávarpaði hann forsætisráð-
herra, Emil Jónsson, og aðra
gesti og fulltrúa og bauð þing-
heim velkominn til starfs.
Minntist hann síðan Guömund-
ar H. Þorlákssonar, skrifstofu-
stjóra Landssambands iðnaðar-
manna, er lézt í ágúst 1958.
Þá ræddi forseti starfsemi
samvinnunefnda, sem hann
hafðj kynnt sér erlendis. Lýsti
hann verksviði þessara nefnda
og taldi þær hinar athyglisverð
ustu. Þá ræddi hann um iðn-
lánasjóð og taldi æskilegt að
framlag ríkisins yrði þrefaldað
eða yrði ca. 5000.000.00. Þá fagn
aði forseti því, aðmú skulu vera
hafnar framkvæmdir við bygg-
ingu iðnaðarbankahúss í Rvík.
Þá ræddi forseti nokkuð sölu-
skatt og útflutningssjóðsgjald
og um það misrétti, sem þessi
skattheimta leiddi af sér. Þá
ræddi hann um framhalds-
fræðslu við iðnskólann fyrir
verðandi meistara. Síðan ræddi
hann um reglur um útboð og
tilboð og um. nauðsyn um bætt
fyrirkomulag í þeim efnum.
FORSÆTISRÁÐHERRA
ÁVARPAR ÞINGIÐ
Að lokum ræddi forseti um
ýms félagsmál. Þá fór fram
FIH efnir III
miinælur-'
hljómleika
IIINIR árlegu miðnætur-
hljómleikar Félags íslenzkra
hljómlistarmanna eru í Aust-
urbæjarbíói í kvöld kl. 11,30.
Þessir skemmtikraftar koma
fram á hljómleikunum: KK-
sextettinn, sem ráðið hefur til
sín Óðin Valdimarsson, er nú
kemur í fyrsta skipti fram með
K.K. opinberlega. Hljómsveit
Björns R. Einarssonar ásamt
söngvara sínum Ragnari Bjarna
syni. Hljómsveit Árna Elfar og
Haukur Morthens. Fimm í fullu
fjöri, söngvarar Díana Magn-
úsdóttir og Sigurður Johnny.
NEO-kvartettinn, Tríó Jóns
Pálssonar frá Vestmannaeyjum
og Erling Ágústsson, söngvari,
sem vakið hafa mikla athygli á
„meginlandinu", og rokk-hljóm
sveit Guðmundar Ingólfssonar
frá Keflavík, söngvari Engil-
bert Jensen. — Kynnir verður
Baldur Georgs.
kosning kjörbréfanefndar o g
gefið kaffihlé. Meðan setið var
undir borðum ávarpaði forsæt-
isráðherra Emil Jónsson þing-
ið, og flutti kveðjur iðnaðar-
málaráðherra, Gylfa Þ. Gísla-
sonar, sem var erlendis, og ósk-
aði hann þess, að störf þingsins
mættu vera gagnleg og gifturík.
Er fundur hafði verið settur að
nýju, skýrði formaður kjör-
bréfanefndar, Gísli Ólafsson
bakari, frá því að borizt hefðu
61 kjörbréf, þar af fjögur frá
félögum, sem óskuðu eftir inn-
töku í landssambandið.
Þá fór fram kosning á starfs-
mönnum þingsins. Þingforseti
Helgi Herm Eiríksson, Rvík,
Fyrsti varaforseti Finnur Árna
son, Akranesi. Annar varafoi-
seti Friðþór Guðlaugsson Vest-J
mannaeyjum. Ritarar: Halldcr
Þorsteinsson, Akranesi, Sigur-
oddur Magnússon, Reykjavík.
Þá fóru fram nefndakosning-
ar og síðan var málum vísað til
nefnda. Gert er ráð fyrir að
nefndir starfi í kvöld, og fundir
hefjist á morgun (fimmtudag)
kl. 10 f. h. í Tjarnarcafé.
Mjólkurlræðingar
Framhald af 1. síðu.
Nú hafa mjólkurfræðingar
náð nýjum samningum og telja
þeir, að kjarabætur þær, er
þeir hafa sarhið um, samsvari
10.6% kauphækkun. Hins veg-
ar hafa þeir ekki fengið neina
beina grúnnkaupshækkun. —
Mjólkurbúin hafa sem fyrr seg
ir samið upp á sitt eindæmi ög
munu að líkindum eiga ein-
hverja varasjóði til þess að taka
úr þessar aukagreiðslur, sem
kjarabætur mjólkurfræðinga
hafa í för með sér.
VERÐLAG ÓBREYTT.
Hins vegar fá þeir hækkunina
ekki uppbætta á hækkuðu verði
landbúnaðarafurða, þar eð eng
in hækkun vefður á því eiris
og öllum er kunnugt, a.m.k.
ekki fyrr en einhverjir stjórn-
málaflokkar hafa að nýju opn-
að flóðgáttir dýrtíðarinnar.
Spurning blaðsins er: Geta
mjólkurbúin ekki einnig greitt
þau 3.18%, er bændur vilja nú
fá, og tekið þau úr sjóðum sínr-
um.
Framhald aí 1. síðu.
Var Hume fundinn sekur um
rán í banka einum í Zúrich og
morð á 49 ára gömlum leigu-
bílstjóra, þriggja barna föðuy,
er hann var að reyna að kom-
ast undan.
KOSNIN G ASKRIFSTOF A Alþýðuflokksins í
Reykjavík er í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu og
er opin daglega kl. 9—7, símar: 15020, 16724. Er
þar hægt að fá upplýsingar um kjósendur hvar-
vetna á landinu (kjörskrá yfir allt landið). Fólk er
beðið að athuga í tíma, hvort það er á kjörskrá.
Alþýðublaðið — 30. sept. 1959 5