Alþýðublaðið - 01.11.1959, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 01.11.1959, Blaðsíða 4
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: lngolfur Kristjánsson. — Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ástþórsson og Helgi Sæmundsson (áb.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björg- vin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýs- lngasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgata 8—10. j Hver §tal frá hverjum? JAFNAÐARMÖNNUM var það mikið ánægju efni í kosningabaráttunni, hversu mikið var ra?tt um stefnu þeirra. Var svo að heyra, sem nú vildu allir flokkar eigna sér jafnaðarstefnuna, og því jafnvel haldið fram, að Alþýðuflokkurinn hefði stolið henni frá íhaldinu! Sannleikurinn er sá, að þjóðin hefur á nokkr- um síðustu áratugum fallizt á fleiri og fleiri atriði þessarar miklu hugsjónastefnu. Jafnótt og forustu menn hinna flokkanna fundu vilja fólksins, hafa þeir beygt sig og tekið undir kröfur jafnaðar manna. Þannig varð forusta íhaldsins að ganga inn á tryggingar, bæja- og ríkisrekstur og fleira, sem Ólafur Thors í eina tíð kallaði tilfinningavæl jafn aðarmanna. j Það er fásinna, að Alþýðuflokkurinn hafi á ■j nokkurn hátt vikið frá jafnaðarstefnunni. Nixver andi ríkisstjórn hefur á nokkrum mánuðum hækkað dánarbætur sjómanna, hækkað skatta- frádrátt sjómanna, lagt fram frumvarp um stór j hækkuð ellilaun, örorkubætur og fjölskyldubæt ur. Eru þetta svik við jafnaðarstefnima? Stjórn .( in hefur lækkað álagningu milliliða og stórlækk að lyfjaverð. Hún hefur tryggt framgang kjör- ■| dæmamálsins, sem er mesta mannréttindaaukn- } ing á síðari árum. Eru þetta svik við jafnaðar- | stefnuna? Hér á landi er þegar meiri ríkis- og bæjarrekst ur en í flestum eða öllum frjálsum ríkjum. Tilgang ur hans er að tryggja fulla framleiðslu, fulla at- vinnu og réttláta tekjuskiptingu. í sumum grein- um er hægt að ná þessum tilgangi með verðlagseft irliti og annarri íhlutun ríkisvaldsins. Auk þess fer bæjareign togara og fiskiðjuvera vaxandi og hin nýja stóriðja íslendinga, t. d. sementsverk- smiðjan, er þjóðnýtt frá upphafi. f; í skattamálum er tilgangur jafnaðarstefnunn ar að leggja byrðamar sem réttlátast á borgarana eftir efnum þeirra. Árið 1916 var tekjuskattur tví mælalaust leiðin til að ná því marki. Nú hafa að- stæður breytzt og skatturinn skapar mikið órétt- læti. Tilgangur jafnaðarmanna er hinn sami, en þeir leita nýrra leiða til að ná honum, ef þess ger- ist þörf. Svo mun og reynast, að frumkvæði þeirra | um endurskoðun skattakerfisins leiði til aukins réttlætis í dreifingu skattbyrðanna. Kommúnistar aðhyllast svipaða stefnu og jafn aðarmenn — með þeim reginmun, að þeir meta frelsi einstaklingsins einskis og vilja framkvæma stefnuna með einræði og fangabúðum. Þess vegna er þeim í engu treystandi og þess vegna verður það ávallt höfuðhlutverk sannra lýðræðisjafnaðar manna að berjast gegn þeim. Ihaldið hefur tekið upp ýms atriði, sem jafn- aðarmenn berjast fyrir, þá aðeins þau, sem það þorir ekki að vera lengur á móti. Þess vegna er vissulega ekki að vænta úr þeim herbúðum ein- lægrar baráttu fyrir framgangi þessara réttlætis- mála. Mikill meirihluti þjóðarinnar aðhyllist nú jafnaðarstefnuna í aðalatriðum. Enginn flokkur getur tryggt framkvæmd þessarar stefnu nema A1 þýðuflokkurinn. Þess vegna á þjóðin að halda á- fram að styrkja þann flokk — eignast stóran og öfl ugan /a^upðarmannaflokk. ,MeS unp fólki Framhald af 3. síðu. Er mikil þörf á að kynna hana sem bezt fyrir hlustendum, svo þeir átti sig á réttindum sín- um þar að lútandi. Guðjón Hansen tryggingafræðingur hefur skipulagt þáttinn og verð ur jafnframt aðalflytjandi hans. Það hefur nokkuð lengi verið í ráði að koma á leiklistarþætti við hliðina á myndlistarþætti Björns Th. Björnssonar. Nú hefur ráðizt til útvarpsins mað- ur, Sveinn Einarsson, sem er lærður í leikbókmenntum og leiklistarsögu. Verður hann í vetur flytjandi að leikhúspistli sem verður á dagskránni tvisv- ar í mánuði, á miðvikudags- kvöldum. AÐRIR ÞÆTTIR. Nokkrir eldri þættir haldast áfram í vetur eins og undan- farin ár. Má þar til nefna ís- lenzkt mál, daglegt mál, hæsta réttarmál, búnaðarþátt, skák- þátt, bridgeþátt, morgunleik- fimi og hússtörfin. Verða flytj- endur þessara þátta flestir hin- ir sömu og verið hafa. fil sýnis á Freyjugöfu ERINDAFLUTNINGUR OG LEIKRIT. Sunnudagserindi útvarpsins verða fastur liður eins og áður, en annar fastur erindatími verð ur á fimmtudögum kl. 20,30. Erindin- um daginn og veginn verða áfram á mánudögum, en byrja ekki fyrr en 21 40. Leik- rit verða áfram á laugardags- kvöldum en einnig framhalds- leikrit á miðvikudagskvöldum. Útvarpssagan verður einu sinni í v.iku éins og áðúr og hefst nú lestur nýrrar sögu, er heitir Sólarhringur og er eftir Stefán Júlíusson. Aðrir liðir verða óbreyttir eins og lestur fomrita, srr-^a vikunnar, skáldakynning o. fl. Nokkrar breytingar verða gerðar á tón- listarflutningi útvarpsins og verður greint frá þeim síðar, svo og barnatímanum o. fl. MEÐFYLGJANDI teikning af Páli ísólfssyni, tónskáldi, er ein teikninga Islandsvinarins þýzka, Haye Walter Hansen, sem um þessar mundir hefur sýningu á verkum sínum, sem bæði eru teikningar og mál- verk, í sýningarsalnum við Freyjugötu. Haye Walter Hansen hefur dvalizt hérlendis alllengi og kynnt sér lifnaðarháttu og þjóð areinkenni íslendinga að fornu og nýju, en hann er fornleifa- fræðingur að mennt. — Nú fyr- ir jólin kemur út í Þýzkalandi bók um ísland, sem H. W. Han- sen hefur skrifað og er bókin myndskreytt af rithöfundinum sjálfum. Margir hafa skoðað sýning- una, en auk mynda frá íslandi getur þar einnig að líta mynd- ir frá Færeyjum. — í dag er síðasta tækifærið að sjá sýn- inguna, sem er opin frá 17— DÖKKIR saumlausir sokkar. Lítið í gluggana 9t Verzluninni SNÓT, Vesturgötu 17. it Innilegar þakkir færi ég öllum þeim mörgu, ler sendú mér hlýjan hug á sextugs afmæli mínu 26. okt. .sl. ■fíinnm fjölmennu samtökum granna minna um veg lega gjöf til mín mun ég seint glieyma. Stefán J. Guðmundsson, Hveragerði. Sfarfsstúlkur óskasf Félagslíf ýý KFUM. — í dgg: Kl. 10 f. h. Sunnudagaskólinn. Kl. 1.30 e. h. Drengir. Kl. 8.30 e. h. Fóm arsamkoma. Samskotin renna í flóttamannahjálpina. Bjarni Eyjólfsson ritstjóri talar. — Allir velkomnir. Héraðsskólann að Núpi, Vestur-ísafjarðar sýslu, vantar 2 starfstúlkur í eldhús strax. Upplýsingar veitir Fræðslumálaskrifstofan eða. skólastj órinn að Núpi. Skólastjórinn. Sálarrannsóknar- félag íslands Sameiginlegur fundur fé- lagsins og kvennadeildarinn ar, verður haldinn í T.iarn- arkaffi, mármdagskvöldið 'kl. 8,3 Ö. Avarp Af alhug þökkum við öllum þeim, sem lagt hafa fram gjaf’r til fjársöfnunarinnar vegna sjóslysanna á síðastliðnum vetri. Hefur þátttakan orðið svo mikil og almenn, að aðdáun vekur. Guð blessi gefendurna og þá, sem gjafirnar þiggja. Fundaxefni: Tvö stutt erindi. Kvikmyndasýning. Kaffidrykkja. Stjórnin. Húselgendur. Onnumst allskonar vatna- Og hltalagnir Ásmundur Guðmundsson. Aðalsteinn Júlíulsson. Adolf Bjötrnjsson. Garðar Þorsteinsson, Pétur Sigurðsson. HIIAL AGNIB UX Símar 33712 — 35444. f 1. nóv. 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.