Alþýðublaðið - 20.11.1959, Page 3
Framfiald af 1. síðu.
aði hann því eftir leyfi frá störf-
um. Jafnframt var útbýtt á
fundinum tillögu um það, að
borgarstjórar fyrir Reykjavík
yrðu tveir og verkaskipting
þannig, að annar færi með fjár
•mál og verklegar framkvæmdir
Reykjavíkur en hinn með
menntamál, heilþrigðis- og fé-
lagsmál. Kommúnistar og Fram
sókn óskuðu eftir tveim um-
ræðum um mál þetta, sú tillaga
var felld með 10:3 atkv. Bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokksins, Magn-
ús Ástmarsson, sat hjá. Síðan
var tillagan um leyfi til handa
Gunnari Thoroddsen samþykkt
með 11:2 atkv. Þórður Björns-
son greiddí atkvæði með til-
lögunni en Magnús Ástmarsson
sat hjá. Verkaskiptingin var
sámþykkt með 10 atkv. en 5
sátu hjá.
Síðan fór fram kjör borgar-
stjóra. Kosningu hlutu Geir
Hallgrímsson, sem borgarstjóri
fjármála og verklegra fram-
íkvæmda og Auður* Auðuns, —
sem borgarstjóri menntamála,
heilbrigðis- og félagsmála. Síð-
an voru þau bæði með sam-
bljóða atkvæðum leyst frá for-
setastörfum í bæjarstjórninni.
Forseti bæjarstjórnar var kiör-
inn Gunnar Thoroddsen með 10
atkv. en Guðmundur H. Guð-
mundsson hlsut 1. Guðmundur
H Guðmundsson var kjörinn
fyrsti varaforseti og Gísli Hall-
dórsson annar varaforseti. —
TOGARINN Norðlendingnr
strandaði í fyrradag á Trangis-
vag í FsEireyjum. Mun vera leki
á skipinu á þrem stöðum og m.
a. lekur olía úr skipinu. 1 gær-
kveldi var olíuskip á leiðinni
tij togarans. Ætlunin var að
draga Norðlending til Þórshafn
ar.
Dælur togarans höfðu undan
og gátu haldið honum á floti.
En miki.ll leki hafði komið að
skipinu.
Norðlendingur hafði verið
sendur til Færeyja til þess að
sækja færeyska sjómenn. —
Strandaði hann sunnanmegin í
miðjum Trangisvág.
Framhald af 2. síðu.
kirkjubygginguna — Og fjöl-
margir aðrir í söfnuðinum og
utan hans stuðláð að kir'kju-
byggingunni af veglyndi og
fórnfýsi. Enn er margt ógert
og það er von mín og bæn að
kirkjustarfið eflist og blómgist
í vetur sem hingað til.
Emii Björnsson.
Framihald af 1. síðu.
Ríkisráðsfundur verður fyr-
ir hádegi í dag og mun þá hin
nýja ríkisstjórn taka við völd-
um. Forsætisráðherra hinnar
nýju stjórnar mun væntanlega
í kvöld gera grein fyrir stefnu
stjórnarinnar og mun Alþýðu-
blaðið væntanlega skýra frá
henni í fyrramálið.
FUNDUR fullskipaðrar stjórnar Sam’bands ungira jafnað-
armanna verður haldinn nk. laugardag og einnig á sunnudag
ef þörf krefur. Fundurinn hefst kl. 3 á laugardag í Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu. Rætt verður um vetrarstarf unghreyf-
ingapnnanr1, Skipulagsmál SUJ o. fl„ FuWtrúar og form|enn
FUJ-félaga eru hvaítir til þess að mæta og hafa samhand við
skrifstofu SUJ, sími 16724.
SIGGA
nAmm BYRJAR ÞEÍTA ME£) MESSU'
PA{) PARF ALLTAF A{> &IÐJA FYRIR ÞJÓÐINNI
PEGAR p|NG KEMUR SAMAN"
UM það leyti sem Emil
Jónsson lagði fram lausn-
arbeiðni fyrir ráðuneyti
sitt á ríkisráðsfundi í Ráð-
herrabúsíaðnum (sjá frétt
og myndir á forsíðu),
gekk maður til vinnu
sinnar niður Tjarnargötu.
Fáeinum sekúndum áður
en Emil og samstarfs-
menn hans kvöddu for-
seta, gekk vegfarandinn
fram hjá Ráðherrabú-
staðnum og Alþýðublaðs-
manninum, sem þar beið.
Vegfarandinn og Alþýðu-
blaðsmaðurinn skildu báð
ir samtímis, að hér var
efni í dálitla fréttamynd.
Og vegfarandinn brósti
um leið og Alþýðublaðs-
maðurinn hóf upp mynda-
vél sína og smellti af.
ÞAÐ mun öllum Ijóst, að nú
er óvenju mikið smíðað af ís-
lenzkum skipum erlendis. — Ef
miðað er við þau skip, sem
skipaskoðun ríkisins er kunn-
ugt um að samið hefur verið
um og meðtalin eru þau skip,
sem ókomin voru til landsins 1.
nóvember s. 1., þá eru þessi skip
samtals 72 að tölu, og saman-
’lögð áætlun tonnatala þeirra
er um 17.562 brúttórúmlestir.
Öll eru skip þessi fiskiskip,
að fjórum fr'átöldum, en þau
eru flutningaskip Eimskipafé.-
lags Islands og varðskip Land-
helgisgæzlunnar, sem bæði eru
í smíðum í Álaborg í Danmörku
— ennfremur Vestmannaevja-
skipið Herjólfur, sem er í smið
um í Martenshock í Hollandi
og flutningaskipið Laxá, sem
Hafskip h.f. á í smíðum í
Elmshorn í Vestur-Þýzkalandi.
5 TOGARAR.
í smíðum eru 5 togarar, allir
í Vestur-Þýzkalandi. Er það tog
arinn Guðmundur Jörundsson
í smíðum í Rendsbur'g, og 4 tog-
arar í smíðum í Bremenhaven
fyrir Bæjarútgerð Hafnarfjarð
ar, ísbjörninn h.f., Reykjavík;
ísfell h.f., Flateyri; og Síldar-
og Fiskimjölsverksmiðju Akra-
ness. Ennfremur gamall þýzkur
togari um 650 brúttórúmlestir,
sem Ásfjall h.f. í Hafnarfirði
hefur keypt, og ber nafnið Keil-
ir. Hann hefur verið í viðgerð
undanfarið og er rétt nýkom-
inn til landsins.
Þegar frá eru dregnir þessir
6 togarar og 4 flutningaskip og
varðskip, eru þannig umsamin
erlendis, í smíðum eða ókomin
heim miðað við 1 nóvember,
samtals 62 fiskiskip 250 brúttó
rúmlestir og minni.
Þessi skip skiptast þannig
milli landa, að í Danmörku eru
x smíðum 10 fiskiskip, öll tré-
skip 75 brúttólestir og minni,
samtaíls 695 brúttólestir að |
stærð.
1
22 í NOREGI.
I Noregi eru samtals í smíð-
um 22 fiskiskip, þar af 2 t.ré-
skip. og 20 stálskip og eru þau
frá 85 upp í 208 brúttórúmlest-
ir að stærð og samtals áætluð
3003 brúttórúmlestir.
í Svíþjóð er um að ræða eitt
tréfiskiskip og tvö stálskip, —
saimfals 400 brúttórúmlestir.
í Austur-Þýzkalandi eru eft-
ir tvö 240 brúttórúmlesta tog-
skip og 13 fiskiskip 94 brúttó-
rúmlestir hvert, éða samtals
1720 brúttórúmlestir.
í Vestur-Þýzkalandi eru 10
fiskískip samtals, þar af 1 stál-
skip og 9 tréskip, flest um 75
brúttórúmlestir, eða samtals
790 brúttólestir.
Að lokum er*u svo í Hollandi
tvö stál fiskiskip 120—170
brúttórúmlestir.
Þetta voru þurrar tölur um
skipasmíðar okkar erlendis, nú,
en ekki er úr vegi að athuga
þær nokkuð betur og hvað þær
fela í sér.
FÁST SJÓMENN.
Ekki er efi á, að fyrsta spurn-
ingin, sem vaknar í sambandi
við þessi skipakaup er:
Hvernig leysist vandinn úm
áhafnir á öll þessi nýju skip.
Það mun ekki vera fjarri lagi
að til að manna þessi 72 skip
þurfi nálægt 900 sjómerín. Að
sjálfsögðu verður einhverjum
eldri skipanna lagt upp er ný
skip koma, en helzt ætti það
ekki að verða fram yfir eðli-
lega endurnýjun flotans.
Annað atriði er athyglisvert
af þessum tölum. Ef tekin eru
út úr eingöngu fiskiskip minni
en 100 brúttórúmlestir eru 14
stálskip og 13 tréskip. Af 62
fiskiskipum innan við 250
brúttórúmlestir eiu hinsvegar
aðeins 13 tréskip á móti 59
stálskipum. Sést af þessu greini
lega hversu ört stálskipunum
fjölgar miðað við tréskip í flota
okkar. Með slíku áframhaldi —
vei'ður mjög verulegur fjöldi
fiskiskipa okkar sem stserri eru
en 50 til 60 brúttórúmlestir,
orðin stálskip inna nfárra ára.
(Fiá skipaskoðunarstjóra).
TOGARINN Akurey seldi
afla sinn í Bremerhaven í gær,
168 tonn fyrir 156.500 mörk.
Er það alger metsala.
Drukkinn maður óonaði íveim: síúlkum með hníf
MAÐUR nokkur kom inn í
sælgætis- og tóbakshúðina í
Austurveri, við Miklubraut,
um klukkan 8 í fyrraltvöld. —
Hann bað afgreiðslustúlkuna
um eina Camel-sígarettu. —
Fékk hann hana.
Samtímis var lítil telpa af-
gréidd með 2 pakka af síga-
rettum. Lagði afgueiðslustúlk
an pakkana á borðið og snéri
sér síðan að peningakassanum
til þess að skipta peningum
telpúnnar.
Þegar hún kom aftur, voru
sígarettupakkarnir hcirfnir af
borðinu. Ilún bar það á xnann-
inn, að hann hefði tekið pakkr
ana. En hann neitaði. Þarna
•var stödd stúlka er var í heim
sókn hiá afgreiðslustúlkunni.
Þóttust þær stúlkurnair sjá
móta fyrir pökkunum í úlpu-
vasa mannsins.
Aðkomustúlkan fór fram
fyrir húðarborðið og kíkti í
vasa hans og sá þar 2 sígairettu
pakka. Báru þær nú aftur á
hann að hann hefði stolið pökk
unum af borðinu, en hann neit
aði sem fyrr.
' Stúlkan sá tvo lögreglu-
þjóna ganga framhjá og hljóp
hún til dyra og kallaði á þá. i
Á meðan tók maðurinn upp j
hnif og vei* ekki annað hægt i
að sjá, en að hann ætlaði að *
beita honum á stúlkurnar, en
í því kom lögreglan inn og af-
vopnaði manninn. Var hann
síðan fluttur á lögreglustöðina
o« settur þar í varðhald.
*
Maðurinn var duukkinn er ‘j
þetta gerðist og við yfir-
heyrzlu bar hann við minnis- !
leysi.
Alþýðublaðið — 20. nóv. 1959 3