Alþýðublaðið - 27.11.1959, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 27.11.1959, Blaðsíða 3
SIGFÚS HALLDÓRS frá Höfnum var stadchir í Morgun blaðshúsinu á miðvikudags- morguninn. Vatt sér þá að hon um maður með illyrðum. Gekk hann umhverfis Sigfús með ó- látum ög hótaði honum líkams meiðingum. Ekki lagði hann hendur á Sigfús. Hringt var á lögregluna, sem kom þegar. Maðurinn var þá farinn út úr húsinu, en fljót- lega hafðist upp á honum. Hann er dálítið undarlegur í háttum. Sigfús er veill til heilsunar, og varð honum svo mikið um ógnanir mannsins, að lögregl- an varð að flytja hann-á Slysa- varðstofuna. Vill vinnumiðlunin hvetja alla atvinnurekendur, sem ætla að bæta við sig starfsfólki fyr ir jólin að snúa sér til skrifstofu vinnumiðlunar stúdenta, sími 1 5959, sem er opin í Háskólan um. Þularherbcrrgið í hinu nýja húsnæði útvarpsins. HAMARSHÖGGUNUM í dagskrá útyarpsins er lokið. Þrengslin við upptökur á út- varpsefni eru horfin, og starfs- fólkið, sem undirbýr 10 stunda dagskrá 365 sinnum á ári, býr við betri aðstæður en áður. Út varpið hefur Ioksins flutt úr þeim húsakynnum, sem það fékk fyrir tæplega 30 árum og hcfur — með góðum hug — kvatt Landssímann og þakkað honum langí sambýli. Ríkisút- varpið er nú með öllu flutt í ný húsakynnii í ®silegasta stórhýsi landsins, sem stendur við Skúlagötu, andspænis Esju og KoIIafirði, og er eign Fiskideildar Atvinnudeildar Há skólans. Höfuðatvinnugrein og höfuðmenningartæki þjóðarinn ÍHHWMMmUMMUtMMUU í FYRRADAG lokaði lögregl an Hraðfrystistöðinni í Rvík h.f. samkvæmt ósk horgarlækn is. Hafði Hraðfrystistöðin ekki fylgt fyrirmælum um endur- bætur á fiskúirgangsgeymslu fyrirtækisins og færibandi í hana. Er þó komið um 1% ár síðan þau fyrirmæli voru fyrst gefin og mun fyrjrtækinu marg sinnis hafa verið gefinn frestur til að framkvæma þau, Hefur verið verulegur óþrifnaður að geymslu þesseiri ogr færibandi og hefur hann stórspillt ölhi um hverfi hennar. Ekki er búizt við að fyrir- tækið verði lengi lokað. Eig- andi þess er Einar Sigurðsson ú í gc irða r ma ður. ar búa uú saman á sjávarbakk- anam skammt frá Batterímu gamla. Þessara tímamóta var í gær minnzt með ræðuhöldum og að þeim loknum nokkrum gleð- skap þeirra, sem beint eða ó- beint eru stofnuninni tengdir. Útvarpið er nú dreift u mfjór ar hæðir fiskihússins við Skúla götu, innheimta á fyrstu hæð, fréttir og auglýsingar á þriðju, skriístofur og útvarpssalur á fjórðu og útvarpssalir og tón- list á fimmtu hæð hins mynd- arlega húss. Þar sem húsameistarinn teiknaði fiskirannsóknarstofur framtíðarinnar er nú útvarp til húsa fyrst. um sinn, og þess var minnzt af útvarpsstjóra, 'V.Ihjálmi Þ. Gíslasyni, for- manni útvarpsráðs Sigurði Bjarnasyni, og menntamálaráð herra Gylfa Þ. Gíslasyni í gær. Húsakynnin eru fögur og glæsileg, útvarpsfækin af nýj- ustu og fullkomnustu gerð frá Þýzkalandi. Menntamálaráðherra óskaði þjóðinni til hamingju með þegsa breytingu á högum út- varpsins. ,.Engin stofnun þjóð- lífsins er í ia.fn nánum tengsl- um v'ð jafn marga íslencþnga. Sérhvert framfaraspor á veg- um þessarar stofnunar ætti bví að vera okkur öllum gleðiefni11, sagði menntamálaráðherra. „Við njótum þess í bættri þjón ustu“. Ráðherrann ræddi um hlut- leysi útvarpsins á þessum tíma mótum og sagði, að sér hefði alltaf fundizt, að útvarpið mætti aldrei verða svo hlut- laust, að það yrði skoðanalaust, að frjálslyndi og umburðalyndi vær'. ekki síður nauðsynlegt í störfum þess en hlutleysi. Hann kvaðst vita, að um vandratað- an veg væn að ræða, því út- varpið. mætti. aldrei verða áróð urstæki fyrir einn eða neinn hóp manna. En hitt væri mik- ilvægt, að útvarpið væri vett- vangur allra andlegra hræringa í þjóðlííinu. Skélaíélag Iðnskólans endurvakið NÝLEGA var endurvakið Skólafélag Iðnskólans í Reykja vík. Stofnfundurinn var vel sóttur og mikill áhugi ríkj- andi meðal nemenda á skólafé laginu. Formaður var kjörinn Óttar Guðmundsson, húsasmíða- nemi, en varaformaður Sveinn Guðmbjartsson, útvarpsviskja- nemi. Einnig v.oru kosnir aðrir í stjórn og nefndir. Einn kenn- ari á stæti í stjórn félagsins, S'gurður Ríkharðsson. Skólafélag Iðnskólans hefur ákveðið að hefja skemmtistarf semi sína með „Bingó“, en það spil er mjög vinsælt um þessar mundir. Fyrsta „Bingóið“ er í kvöld, föstudag, og verða góð verðlaun veitt. Keílavík ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖGIN á Suðurnesjum efna til skemmt unar n. k. laugardagskvökl kl. 9 í Keflavík í Ungmennafélags húslnu. Flutt verður ávarp og dansað. Hallbjörg Bjarnadóttir skemmtir kl. 11—12. Aðgöngu- miðar fást í Sölvabúð. Flokks- fólk er hvatt til þess að fjöl- menna og taka með sér gesti. i NEW YORK (NTB—AFP). Danski diplómatinn og SÞ- starfsmaðurinn Povl Bang-Jen- sen, sem saknað hefur verið síð- an á mánudag, fannst í dag l>t- ;nn í skemmtigarði fv.-ir utan New York m°ð skammbvssu í hendi. Við hlið líksins lá bréf til frú Bang-Jensep. Tilkynnti löffreglan í dag, að hún gerði ’-áð fyrir. að Bano--Jensen hefði franjið sjálfsmorð. Daninn fannst í Alley Ponl crarði í Queens-hverfi, ekki langt heiman frá honum og ná- iægt Lake Success, bar sem Sameinuðu hjóðirnar höfðu að- alstöðvar sínar á fvrstu árunum eftir stríð. Lösreglan í 17 ríkj- urn var kölluð út, þegar Bang- Jensens var saknað á mánu- dasskvöld. Hann hafði verið undir handleiðslu sálkönnuðs frá því skömmu eftir að hann v3r rekinn frá SÞ í iúlí 1958, er hann hafði neitað að láta uppi Vörusklpf a jöfnuS- ur éhagslæiur uiii 25 mii!|. i oki. SAMKÆMT bráðabirgðayfir liti Hagstofu íslands var vöru skiptajöfnuðurinn við útlönd ó hagstæður um 25,9 millj. kr. í októbermánuði sl. en óhag- stæður um 10 millj. kr. á sama tíma í fyrra. Út var flutt fyrir 110,3 millj. kr. en inn fyrir 136.2 milij. kr. Útflutningur fyrstu 10 mán uði ársins nam 862,8 millj. kr. en innflutn'ngur 1.170,5 millj. kr. (þar af skip fyrir 25,5 millj. kr.) og er vöruskiptajöfnuður- inn þ.ví óhagstæður um 307,7 millj. kr. á þessu tímabili. ■— í fyrra var vöruskiptajöfnuður inn óhagstæður um 223,4 millj. kr. fyrstu 10 mánuði ársins. lista yfir ungverska flóttamenn, er gefið höfðu skýrslu fyrir hinni sérstöku Ungverjalands-' nefnd Sameinuðu þjóðanna. Powl Bang-Jensen var fimmt ugur að aldri og lætur eftir sig konu og fimm börn. Blelfavaln Framhald af 1. síSu. Það munu vera nokkur brögð að því, að unglingar kaupi sér blettavatnsflösku og þefi -af henni. í blettavatninu er eter, sem gufar auðveldlega upp cg •hefur þau áhrif, að það „svíf- ur“ á þann sem lyktar af hon- um. Margir unglingar notfæra sér þetta, til þess að fara á ,,fyllirí“. Þetta er hættulegt. Lykti menn af blettavatni eitthvað að raði, getur það haft mjög skað lega áhrif á líkamann. Foreldr ar skyldu fylgjast v.el með því, að börn be 'rra „leiki sér“ ekki þannig að blettavatni og skýrá fyrir þeim hættuna sem af þvi stafar. Bazar Kven- félags Álþýðu- flokksins BAZAR Kvenfélags Alþýðu- fíokksins í Reykjavík verður n. k. fimmtudag í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Félagskonur eru beðnar að koma munum til hveríisstjór- anna, eða fyrir hádegi í Alþýðu húsið, gengið, inn frá Hverfis götu. t t ,ER VIST HUN SE: EKKI ME-D HNIF íc 7" Alþýðublaðið — 27. nóv. 1959 SIGOA ¥BC«GA s

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.