Alþýðublaðið - 27.11.1959, Page 4
f /zsmmmLsdcd
Útgefandi: AlþýCuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánason.
— Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ástþórsson og Helgi Sæmimdsson
(éb.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björg-
▼in Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýs-
fngasjmi 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsina,
Hverfisgata 8—10.
Þjóðnýting
SJÁLFSTÆÐISMENN hafa gengið til stjórn-
arsamstarfs við Alþýðuflokkinn og með stefnuskrá
stjórnarinnar lofað veigamikilli aukningu á trygg
ingakerfi landsins, sem er einn stærsti sósíalistíski
þáttur íslenzks þjóðfélags. Það er því von, að Morg
unblaðinu finnist þörf að hressa upp á andstöðuna
gegn jafnaðarstefnunni. Það birtir ritstjórnar-
grein um hrun þjóðnýtingarstefnunnar og fráhvarf
erlendra jafnaðarmanna frá henni.
Rétt er að jafnaðarmannaflokkar víða um
heim hafa dregið úr þjóðnýtingaráformum sinum.
og jafnvel kommúnistar utan járntjalds láta lítið
bera á tillögum í þá átt. En ekki má ruga saman
tilgangi og meðulum. Tilgangur jafnaðarmanna
hefur verið og er enn sá, að þjóðfélagið eigi að
hafa nægileg yfirráð yfir framleiðslutækjum sín-
um til að tryggja fullnýtingu þeirra, fulla atvinnu,
sanngjarna dreifingu tekna og hindrun stórgróða.
Sú var tíðin. að jafnaðarmenn sáu ekki aðrar
leiðir til að ná þessu marki en þjóðnýtingu allra
framleiðslutækja þjóðarinnar. Nú eru þessi viðhorf
breytt. Yfirráð ríkisvaldsins yfír peningakerfi og
skattakerfi, víðtækar tryggingar og fleiri atriði
hafa gert það kleift að ná þessu upprunalega tak-
marki án allsherjar þjóðnýtingar. Af þessari aug-
ljósu ástæðu skipar þjóðnýtingin ekki sama sess
í stefnu jafnaðarmanna og áður, en tilganginum
hefur í engu verið breytt.
Þrátt fyrir þetta væri mikill misskilningur
að halda, að saga þjóðnýtingar á íslandi væri á
enda. Þvert á móti. Hin nýja stóriðja hér á landi
hlýtur að byggjast upp þjóðnýtt eins og Sements
verksmiðjan. Bæjareign togara vex og bæjar-
eign fiskiðjuvera vex einnig ört. Síldarverk-
smiðjur ríkisins eru í vexti og mætti svo lengi
telja. Þá kemur þjóðnýting ávallt til greina í ein
staka eldri greinum, til dæmis olíuverzlun.
Þetta er sú leið, sem lýðræðisjafnaðarmenn að
hyllast, leið skynsamlegs áætlunarbúskapar, sem
ekki fómar frelsi einstaklinganna eins og kommún
isminn gerir. Innan þessa ramma er rúm fyrir mik
ið heilbrigðan einkarekstur og samvinnurekstur.
Undir heilbrigðri yfirstjórn —en þó ekki ofstjórn
— mun slíkt efnahagskerfi veita flestum lands-
mönnum möguleika til góðrar afkomu og vaxandi
lífshamingju.
Breyft stefna
Framhald af 12. síðu.
telja að frjáls samkeppni og
yfirstjóm ríkisins geti og eigi
að fara saman.
Þýzkir jafnaðarmenn telja
að hverri þjóð beri að efla
varnir sínar eftir beztu getu,
FRIÐKIK ÓLAFSSON stór-
meistari teflir fjöltefli á vegum
Félags ungra jafnaðarmanna í
Reykjavík n. k. sunnudag kl.
2 e. h. — Verður það fyirsta fjöl
tefli hans á þessum vetri.
Taflstaðurinn nánar auglýst-
og viðurkenna, að frjáls hugs-
un og trúfrelsi sé sjálfsögð í
þjóðfélaginu.
Tvær ástæður eru fyrir
þessari stefnubreytingu
þýzkra Jafnaðarmanna. 1
fyrsta lagi hinn frábæri
árangur, sem Erhard efna-
hagsmálaráðherra hefur náð í
uppbyggingu efnahagslífsins.
Hefur hann valið að fara leið
er sameinar frjálst framtak og
yfirstjórn ríkisstjórnarinnar
á þeim málum. í öðru lagi
hafa jafnaðarmenn séð að
þeir geta aldrei gert sér vonir
um að ná stjórnartaumunum
úr höndum Kristilegra Demó-
krata nema því aðeins að þeir
skipuleggi flokk sinn sem
flokk allra stétta.
Fyrsta deiluefni al-
ingis: Dr.Benjamm
FYRSTA deiluefni hins nýja
alþingis bar á góma í umræð-
um í neðri deild í gær — og
var dr. Benjamín Eiríkisson
hagfræðingur og bankastjóri!
Einar Olgeirsson gaf tilefnið,
en Ólafur Thors forsætisráð-
herra tók upp þykkjuna fyrir
dr. Benjamín.
Þetta gerðist í umræðum um
frumvarp Einars Olgeirssonar
varðandi breytingu á lögunum
um áburðarverksmiðju ríkis-
ins. Mælti Einar fyrir þessu
frumvarpi sínu, sem hann hef
ur áður flutt á alþingi, en ekki
Banaslys
Framhald af 1. siðu.
til hnakkinn. U:m leið snerist
hjólið inn á veginn og fyrir bif-
reiðina.
Ökumaðurnn snarhemlaði og
vék undan, en það nægði ekki
til og lenti drengurinn á vinstra
frambretti bifreiðarinnar og
kastaðist síðan um 1 metra á
ská frá bifreiðinni. Ökumaður-
inn fór þegar út og lá Þá dreng
urinn hreyfingarlaus á vegin-
um.
Bifreið kom þarna að í sömu
mund. Ökumaður hennar sneri
við og hringdi á lögregluna í
Hafnarfirði, sem kom þegar á
vettvang með lækni og sjúkra-
bifreið. Telur læknirinn, að
drengurinn hafi látizt samstund
is.
Ekki er vitað um sjónarvotta
að slysinu, en hafi þeir verið
einhverjir, eru þeir beðnir að
hafa þegar samband við lögregl
una í Hafnarfirði.
fengið samþykkt. Kom hann
víða við í framsöguræðunni,
minntist á dr. Benjamín Eirík
isson í sambandi við gengisfell
inguna árið 1950 (og taldi, að
ráð hans þá hefðu orðið þjóð-
inni skaðleg. Æsti Einar sig dá
lítið upp og varð helzt til ó-
þinglegur í tali sínu um hag-
fræðinginn og bankastjórann.
Ólafur Thors kvaddi sér
hljóðs af þessu tilefni og kvaðst
vilja mótmæla ummælum Ein-
ars um þennan hámenntaða og
merka hagfræðing. Sagðist for
sætisráðherra ekki vilja láta
orð Einars standa í þingtíðind-
um án þess að athugasemd
fylgdi.
E.nar kvaddi sér aftur hljóðs
og reyndi að draga úr fyrri
orðum sínum, en hélt þó for-
dæmingunni áfram í mildari
búningi. Taldi hann ráð Benja
míns varhugaverð, enda hefði
hann lært fræði sín í Ameríku.
Ólafur Thors greip þá fram í
cg minnti Einar á, að dr. Benja
mín hefði líka lært í Moskvu.
Einar lagði þá kollhúfur, en
vldi rekja orsakirnar að
slæmri hagfræði dr. Benjamíns
vestur um haf. Þó gekk hann
það til móts við Ólaf að segja,
að íslendingar ættu hvorki að
trúa í blindni hagfræðingum
menntuðum í Ameríku eða
Moskvu, svo að dr. Benjamín
fékk þar tvöfalda áminningu.
Einar bætti því við að lok-
um, að efnahagsráðunautar
fyrrverandi ríkisstjórnar, sem
gegndu sama trúnaðarstarfi
fyrir núverandi ríkisstjórn,
ættu að athuga sinn gang.
Ræðumanni mun sem sé hafa
orðið hugsað til fleiri en dr.
Benjamíns.
Hannes
á h ornin u
ýý Ráðstafanir um fram-
tíðarlausn leysa ekki
vandann í dag
ýV Áskorim um sérstakan
ráðimeytisfund.
ýý Óvenjuleg hók um stór
mál.
ýV Ævintýrasaga land-
helgismálsins.
FORSÆTISRÁÐHERRA sagði
þegar nýja ríkisstjórnin tók við,
að fyrirhugað væri að hækka
ellilaun, örorkulaun, mæðra-
laun og barnalífeyri, að afnema
tekjuskatt af íekjum allt að
hundrað þúsund krónur — og
að afla fjár til aukins stuðnings
við þá, sem ætluðu sér að byggja
smáíbúðir.
ALLT er þetta gott og bless-
að. Ég skal ekki ræða um trygg-
ingarnar eða afnám tekjuskatts-
ins. Það er óþarfi. Þetta eru tvö
af kosningamálum Alþýðuflokks
ins — og hvað tryggingunum við
víkur þá er staðreyndin sú, að
bezt hefur Alþýðuflokknum allt-
af gengið í tryggingamálunum
þegar hann hefur samið við Sjálf
stæðisflokkinn, það er að segja
síðan sá flokkur hætti að berj-
ast á móti öllum tryggingum, ei
hálfri ævi sinni hefur hann eyt
x andspyrnu við þær.
ÉG VIL hins vegar minnast
með nokkrum orðum á bygginga
málin. Ég birti á miðvikudag-
inn eftirtektarvert bréf frá ein-
um þeirra, sem hefur verið að
reyna að koma sér upp íbúð s. 1.
tvö ár, en stendur nú uppi með
tvær hendur tómar og getur ekki
flutt inn — og er auk þess á göt-
unni af því að lán, sem hann átti
að fá hjá húsnæðismálastjórn
hefur brugðizt Þetta bréf var
vel skrifað og vel rökstutt. Fram
tíðarlausnin á þessum málum
virðist vera viðfangsefni ríkis-
stjórnarinnar, en hún leysir ekki
vandamálið í dag með henni fyr
ir þá sem segja má að nú séu
bundnir á höndum og fótum.
RÍKISSTJÓRNIN þarf í dag
að snúa sér að því að fá til bráða
birgða í bönkunum fé til að
leysa brýnustu þarfir þeirra, —
sem aðeins vantar herzlumuninn
til þess að geta lokið við íbúðir
sínar eða þurfa að borga skyndi
lán, sem þeir hafa fengið af bví
að þeir áttu fyrir nokkrum mán-
uðum von á láni frá húsnæðis-
málastjórn. Þetta er mergurinn
málsins. Þessir menn geta ekki
beðið eftir framtiðarlausninni.
Alþingi fresfað
Framhald af 1- síSu.
því ótvírætt til kynna það, sem
raun er á, að stjórnin hygðist
fresta störfum þingsins fram yf-
ir áramót. Mun þingsályktun-
artillaga um fr'estunina vera
væntanleg í dag.
Nokkur reynsla er fengin af
því undanfarin ár, að alþingi
hefur setið vikum saman og
beðið eftir frumvörpum ríkis-
stjtirna um efnahagsmál, sem
jafnan eru flóknustu og erfið-
ustu mál þingsins. Hafa þingin
þá eytt tímanum og haldið
stutta fundi dag hvern án þess
að hafa eðlileg verkefni. Þrátt
fyrir frestunina er gert ráð fyr-
iir, að fjárveitinganefnd geti
starfað að venjulegum undir-
búningi fjárlaga að nokkru.
leyti.
Við frestunina verður allmik-
111 sparnaður í störmm alþingis,
bæði hvað sneríir alþingismenn
og nokkurn hluta af starfsliði
þingsins. Er óhætt að áætla
mjög lauslega, að slíkur sparn-
aður fyrir t. d. hálfaú mánuð
verði 8—900 000 krónur.
Norræna félagsins
AÐALFUNDUR Norræna fé
lagsins verður haldinn í Þjóð-
leikhúskjallaranum föstudag-
inn 27. nóv. n.k. Fundurinn
hefst kl. 20.30. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa verður rætt
um breytingar á skipulagi fé-
lagsins og lagabreytingar.
Að aðalfundi loknum verður
efnt til kvöldvöku.
Leikararnir Valur Gíslason
og Klemenz Jónsson munu
flytja skemmtiþátt á kvöldvök
unni, einnig verður dansað.
Félagar sýni skírteini við inn
ganginn. Félagsmenn eru hvatt
ir til að fjölmenna. Heimilt er
að taka með sér gesti á kvöld-
vökuna.
Það verður að leysa vanda þess-
ara manna þegai í stað, í dag eða
á morgun, en ekki eftir mánuð.
Vill ekki rík'istsjórnin halda emn
ráðuneytisfund um þetta eina
mál í dag?
GUNNAR M. MAGNÚSS hef-
ur unnið gott og þarft verk með
því að taka saman stóra bók um
landhelgismálið frá uppnafi
vega. Hún er í sama sniði og
Öldin okkar og þær bækur, —
journalistiskt yfirlit um inálið
allt frá 1400 til dagsins í dag,
ekki ritgerðir hans heldur stað-
reyndir, skjöl, samþykktir, —
samningar og blaðagreinar á-
samt miklum fjölda mynda, —
látnar tala og segja frá.
SETBERG hefur gefið bókina
út, en það útgáfufyrirtæki er
þekkt að því að vanda vel til
útgáfubóka sinna. Landhelgis-
máljð er eitt helzta stórmál okk-
ar íslendinga á þessari öld og
enn er ekki að fullu séð fyrir
endalok þess. Þess vegna er það
mikils virði einmitt nú, að þjóð-
in skuli fá svo glöggt sögulegt
yfirlit um málið og þessi bók
gefur.
EF MENN HALDA það að
hér sé um þurrt yfirlit að ræða
þá skjátlast þeim. Efninu er að
vísu þjappað saman, en það er
margbreytilegt, — atburðirnir
koma hver af öðrum: samþykkt-
irnar, átökin, afreksverkin, —
mannránin — og ævintýrin. —
Gunnari hefur nefnilega tekizt
að gera bókina svo lifandi að það
er eins og maður sé að lesa hvort
tveggja í senn afrekssögu og
fræðibók.
Hannes á horninu.
^ 27. nóv. 1959 — Alþýðublaðið